Morgunblaðið - 15.02.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2002 9
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að þótt dregið
hafi úr aðsókn í leikskólakennara-
nám á allra síðustu árum, þá sé al-
veg ljóst að ekki hafi verið nýtt
þau tækifæri sem áður buðust til
að mennta fólk til starfa á leik-
skólum. Hún segir að tölur frá
1994–1999 sýni að miklu fleiri hafi
sótt um nám í Fósturskólanum og
síðar námsbraut fyrir leikskóla-
kennara í KHÍ en komust þar að.
Borgarstjóri sagði í viðtali við
Morgunblaðið á sunnudag að
Kennaraháskólinn hefði ekki ráðið
við að veita öllum skólavist sem
vildu læra til leikskólakennara.
Ólafur Proppé, rektor KHÍ, sagði
hins vegar í blaðinu í fyrradag að
aðsókn að leikskólakennaranámi
væri dræm, til dæmis hefðu aðeins
30 hafið staðbundið nám síðasta
haust, þótt svigrúm hefði verið til
að taka inn 60. Þá hefði ekki náð
að fylla öll 30 sætin í fjarnáminu.
205 umsóknir
en 66 komust að
Ingibjörg Sólrún vísar hins veg-
ar til þess að árið 1994 sóttu 205
um að komast í staðbundið nám í
Fósturskólanum, sem fór undir
hatt Kennaraháskóla Íslands árið
1998, en aðeins 66 komist að. Árið
1995 hafi umsóknir verið 202 en 74
komist að, ári síðar hafi 152 sótt
um og 76 teknir inn. Árið 1997 hafi
umsóknir verið 121 og 76 fengið
skólavist, 1998 hafi 53 umsækjend-
ur af 105 komist í leikskólakenn-
aranám og árið 1999 53 af 86 um-
sækjendum.
„Ég veit að nú hefur dregið
verulega úr umsóknum, en á þess-
um árum var lag til að mennta
fólk, en það var ekki tekið inn.
1997 sendu sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu erindi til mennta-
málaráðherra, þar sem þeim til-
mælum var beint til ráðuneytisins
að við stofnun nýs kennara- og
uppeldisháskóla yrði tryggt nægi-
legt námsframboð fyrir starfs-
menntun leikskólans, svo auka
mætti framboð uppeldismenntaðra
starfsmanna á leikskólum. Þessi
tilmæli voru auðvitað sett fram í
ljósi stöðunnar árin á undan.“
Ingibjörg Sólrún segir að sveit-
arfélögin hafi reynt að bregðast
við með því að bjóða ófaglærðu
starfsfólki nám, sem nýtist sem
einingar á leið þeirra til leikskóla-
kennaramenntunar. „Í febrúar
2000 var gerð úttekt á vegum
menntamálaráðuneytisins, sem
sýndi að um 1.200 stöðugildi leik-
skólakennara vantaði. Samkvæmt
lögum eiga að starfa leikskóla-
kennarar á leikskólunum, en raun-
in er sú að þeir eru aðeins um 40%
starfsmanna.“
Kennaraháskólinn býður upp á
45 eininga námsbraut í leikskóla-
fræði, auk 90 eininga leikskóla-
kennaranáms. Ingibjörg Sólrún
segir að tekið sé tillit til þess náms
við röðun í launaflokka. „Allt við-
bótarnám ófaglærðra starfsmanna
er metið til launa,“ segir borgar-
stjóri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um leikskólakennara
Tækifæri til mennt-
unar voru ekki nýtt
SKIPAAFGREIÐSLA Húsavíkur
ehf. er að kanna hvort forsendur
séu fyrir því að taka yfir rekst-
urinn á Húsavík harðviði hf., en
öllum starfsmönnum síðarnefnda
fyrirtækisins var sagt upp um liðin
mánaðamót og taka uppsagnirnar
gildi 1. mars.
Húsavík harðviður var stofnað í
maí í fyrra og lagði Húsavíkur-
kaupstaður til 90% fjárins en
hlutafélagið tók á leigu eignir
þrotabús Íslensks harðviðar sem
Skipaafgreiðsla Húsavíkur hafði
leigt undangengna þrjá mánuði.
Þegar uppsagnir starfsmannanna
sex voru tilkynntar fyrir hálfum
mánuði kom fram hjá Reinhard
Reynissyni, bæjarstjóra á Húsavík
og stjórnarformanni fyrirtækisins,
að ekki hefði staðið til að reka það
til lengri tíma og nú væri komið að
tímamótum.
Helgi Pálsson, framkvæmda-
stjóri Skipaafgreiðslu Húsavíkur,
segir að verið sé að skoða hvort
fyrirtækið geti tekið yfir rekstur-
inn og það skýrist fljótlega en of
snemmt sé að segja til um hvað
gerist enda margir lausir endar.
Húsavík harðviður
Mögu-
leikar á
nýju félagi
skoðaðir
Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Opið alla daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Garðatorgi 3, sími 565 6680
Glæsilegir
brúðarkjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Útsölunni
lýkur á morgun
Allt á að seljast
Frábært verð
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Tilboðsdagar
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Hreinlætistæki!
Handlaugar frá kr. 3.950,-
Blöndunartæki f. bað frá kr. 6.880,-
Blöndunartæki f. handlaug frá kr. 5.900,-
Blöndunartæki f. eldhús frá kr. 5.900,-
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433
Blússur kr. 1.000
Pils kr. 1.000
Buxur kr. 1.900
Síðasta vikan
Gallafatnaður
Sjá auglýsingu aftar í blaðinu
Nýtt kortatímabil
Bílstólarnir komnir
BARNAVÖRUVERSLUN
www.oo.is
Mikið úrval
— góð verð
— tilboð
Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
af silkidamaski og annarri metravöru
Frábær tilboð á vönduðum
sængurverasettum, handklæðum o.fl.
Póstsendum
10-70% afsláttur
Í ferðalagið
Handtöskur (skjóður)
með og án hjóla
Ferðatöskur - sundtöskur, gott verð
Tilboð á töskum og hönskum
Skólavörðustíg 7, Rvík — Sími 551 5814