Morgunblaðið - 27.02.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 35
✝ Grímur Odd-mundsson fædd-
ist að Horni í Horns-
vík í Norður Ísa-
fjarðarsýslu 11. maí
1930. Hann lést á
heimili sínu í Reykja-
vík mánudaginn 11.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Oddmundur Guð-
mundsson sem lést
þegar Grímur var á
fyrsta ári og Jóhanna
Hallvarðsdóttir, lát-
in. Grímur átti fimm
systur; Elín, látin,
Sigríður, látin, Guðmunda, látin,
Friðgerður, býr á Dalvík og Guð-
björg, býr í Bolungarvík. Eftirlif-
andi eiginkona Gríms er Guðrún
Sigurjónsdóttir, f. 3. júní 1937,
ættuð frá Brekku í Norður-Húna-
vatnssýslu. Foreldrar hennar
voru Sigurjón Jónas-
son, látinn og Eva
Karlsdóttir á Syðri
Brekku í Sveins-
staðahreppi. Börn
Gríms og Guðrúnar
eru Axel, f. 3. októ-
ber 1959, Sveinn, f.
20. desember 1962,
og Elín Eva, f. 29.
maí 1964. Grímur
ólst upp hjá móður
sinni og stjúpföður,
Stefáni Þorbjarnar-
syni.
Grímur fór ungur
að stunda sjó-
mennsku uns hann gerðist lög-
reglumaður, sem varð hans ævi-
starf.
Útför Gríms fór fram 18. febr-
úar í kyrrþey að hans ósk. Jarð-
sett var í kirkjugarðinum í Gufu-
nesi.
Grímur mágur okkar var rólegur
og dagfarsprúður maður. Hann var
vinnusamur og sinnti af samvisku-
semi því sem hann tók sér fyrir
hendur. Á yngri árum vann hann
störf sem til féllu í hans heimabyggð
fyrir vestan – stundaði m.a. sjóinn –
en mestan hluta starfsævi sinnar
sinnti hann störfum á ýmsum sviðum
löggæslu. Hann lét sig fjölskylduna
miklu skipta og hugði gjarnan að því
sem kom sér vel í heimilishaldinu,
enda uppalinn á þeim tíma og við
þær aðstæður þegar miklu skipti
hvernig til tókst að draga björg í bú
og nýta það sem aflað var.
Grímur var fróður og fylgdist vel
með. Hann var oft ómyrkur í máli
um menn og málefni í þjóðfélaginu
og í áranna rás hafa orðið ófáar um-
ræður á þeim vettvangi. En það var
gaman að spjalla við Grím um fleira
en það sem efst var á baugi í þjóð-
félaginu hverju sinni. Hann þekkti
landið vel, enda hafði hann gaman af
að ferðast. Þegar börnin voru lítil
var gjarnan farið í tjaldferðir auk
hinna árlegu ferða í Húnavatns-
sýsluna. Seinna tóku sumarferðalög-
in á sig ýmsar myndir en bílferðir
þeirra hjóna um Reykjavík og ná-
grenni voru farnar allan ársins hring
og er á fáa hallað þótt fullyrt sé að
Grímur þekkti höfuðborgarsvæðið
betur en flestir aðrir. Á seinni árum
slóst Grímur í nokkur skipti í för
með börnum sínum þegar ferðinni
var heitið út fyrir landsteinana. Þar
var fleira en landslag og staðhættir
sem hann hafði áhuga á. Eitt það
skemmtilegasta sem Grímur gerði
erlendis var að fara á söfn og ekki
var hægt annað en hrífast með þegar
hann lýsti því sem fyrir augu hafði
borið þar.
Grímur var safnari að eðlisfari.
Hann átti góð söfn sem hann lagði al-
úð við að byggja upp og varðveita.
Nákvæmnin sem honum var svo eig-
inleg naut sín vel í þessu áhugamáli
hans þar sem hver hlutur átti sinn
sess.
Á liðnum árum og áratugum höf-
um við notið þess að koma á heimili
Gríms og Gunnu í Skeiðarvoginum, í
Ljósheimunum og á Kleppsveginum.
Þau voru ófá skiptin fyrr á árum sem
við gistum hjá þeim með fjölskyldur
okkar. Við áttum einnig skemmtileg-
ar samverustundir þegar stórfjöl-
skyldan tók sig til og fór í ferðalög
saman. Á þessari stundu viljum við
þakka fyrir liðna tíð.
Við sendum innilegar samúðar-
kveðjur til Gunnu, Axels, Sveins og
Elínar Evu.
Katla og Sigrún.
Grímur Oddmundsson er fallinn í
valinn. Ég vil með fáeinum línum
minnast þessa vinar míns og félaga
Gríms Oddmundssonar, aðstoðar-
varðastjóra í lögreglunni í Hafnar-
firði. Grímur lét af störfum í lögregl-
unni fyrir aldurs sakir á vordögum
árið 2000, og fékk hann því ekki notið
eftirlaunaáranna sem skyldi nema
fáeina mánuði. Fyrir u.þ.b. ári
greindist hann með illvígan sjúkdóm
sem að lokum lagði hann að velli hátt
á sjötugasta og öðru aldursári. Ég er
fjölskyldu Gríms afskaplega þakk-
látur að hafa getað uppfyllt síðustu
óskir hans, en það var að fá að ljúka
sínu lífi á heimili sínu í faðmi fjöl-
skyldu sinnar. Ég mun alltaf minn-
ast þeirrar stundar er ég sat við dán-
arbeð Gríms nokkrum klukku-
stundum fyrir andlát hans. Hann var
í djúpu dái og lífskrafturinn smátt og
smátt að fjara út. Ég hélt í hönd hans
og þakkaði honum fyrir samfylgdina,
vináttu hans og trúnað og bað honum
Guðs blessunar á þeirri braut sem
framundan væri. Fann ég þá að hann
gaf mér merki af veikum mætti með
því að hreyfa fingur sína tvisvar sem
ég hélt í hendi mér, þannig að þrátt
fyrir djúpa dáið þá skynjaði hann orð
mín. Það fannst mér vænt um.
Það var fyrir hartnær 36 árum að
leiðir okkar Gríms lágu saman. Við
vorum þá báðir að hefja störf sem
lögreglumenn við sýslumannsemb-
ættið í Hafnarfirði. Grímur árið
1966, en ég ári síðar. Fljótlega tókst
með okkur vinátta sem stóð alla tíð
síðan. Áður en Grímur gerðist lög-
reglumaður í Hafnarfirði hafði hann
starfað sem lögreglumaður hjá lög-
reglustjóraembættinu í Reykjavík
um nokkurra ára skeið og nokkur
sumur starfaði hann í lögreglunni á
Siglufirði, auk þess sem hann var um
tíma fangavörður á Litla-Hrauni.
Starfsaldur Gríms á þessum vett-
vangi var því orðinn æði langur eða
46 ár. Áður en Grímur gerðist lög-
reglumaður hafði hann stundað sjó-
mennsku, og er það álit mitt að ætíð
síðan hafi hugur hans staðið sterkt
til þess vettvangs, og það sannar að
áhugamál hans seinna á ævinni er
hann tók að safna myndum af skipa-
flota íslendinga.
Segja má að Grímur hafi því lifað
tímana tvenna við þetta ævistarf sitt.
Oft sagði hann mér ótrúlegar sögur
frá starfi sínu á Siglufirði sem lög-
reglumaður þar. Það hefur ekki ver-
ið auðvelt að eiga að halda uppi lög-
um og reglu á þessum tíma á
síldarárunum þegar þetta litla sjáv-
arpláss fylltist af fólki, bæði í land-
vinnslu og á sjó og íbúafjöldi þessa
litla samfélags margfaldaðist. Ekki
hefur það verið auðvelt verk að stilla
til friðar á landlegum þegar nokkur
þjóðabrot komu saman og voru á
öndverðum meiði á ölkærum kvöld-
um.
Í gegnum tíðina áttum við Grímur
það sameiginlegt að þurfa á stundum
í gegnum þetta lífsstarf okkar að
sigla þungan sjó með boðaföllum á
bæði borð, þótt logn væri, í sam-
skiptum okkar við suma, sem til for-
ustu voru valdir.
Grímur var vel greindur maður,
vörpulegur á velli og hafði að geyma
sérstakan persónuleika. Hann var
trúr og tryggur vinur vina sinna, en
gat orðið heitur þeim sem á hlut
hans gerðu. Ég á margar góðar
minningar frá samskiptum mínum
við Grím, bæði í leik og starfi, minn-
ingar sem ég hefði ekki viljað vera
án. Grími hefur farnast vel í starfi á
langri lögreglumannsævi sinni,
starfi sem ætíð er og verður van-
þakkað. Hann var yfirboðurum sín-
um sem og samborgurum trúr og
tryggur og ekki síst sinni eigin sann-
færingu. Hann gleymdi aldrei því
mikilverðasta sem prýða ætti hvern
lögreglumann en það var hinn mann-
legi þáttur lífsins, þáttur sem er svo
mikilsverður, en vill oft gleymast.
Grímur var ekki sú manngerð að
vinna sín störf með yfirgangi og
hroka. Hann vildi hvers manns
vanda leysa. Hann hafði sínar
ákveðnu skoðanir á hlutunum og lét
þær hispurslaust í ljós ef því var að
skipta. Grímur var hraustmenni og
handtakagóður ef á þurfti að halda,
og engum betra að vera með í erf-
iðum útköllum. Hann fylgdist vel
með landsmálum og sagði sitt álit á
þeim og var þá ekkert að skafa af
hlutunum er honum fannst gengið á
rétt lítilmagnans í einhverjum mál-
um.
Eitt af áhugamálum Gríms var
söfnun ýmissa muna. Hann átti fá-
gætt safn félags- og fyrirtækja-
merkja svo og ýmissa einkenna.
Póststimpluðum umslögum safnaði
hann einnig. Hann átti einnig, eins
og fyrr er nefnt, mikið safn báta- og
skipamynda og of segi ég ekki að
hann hafi átt myndir af flestum ef
ekki öllum bátum og skipum í eigu
Íslendinga langt aftur á síðustu öld.
Einnig veit ég að hann átti myndir af
öllum færeyska báta- og skipaflot-
anum. Það var unun að fylgjast með
Grími ef honum áskotnaðist eitthvað
í safnið sitt. Hann fór mjúkum og
mildum höndum um hlutinn, hvort
heldur að það var merki, umslag eða
myndir, ekki mátti myndast krumpa
eða brot ef um mynd eða umslag var
að ræða. Hann fór vel með sitt.
Eins og áður segir á ég ógleyman-
legar minningar um Grím í gegnum
tíðina. Við gengum nú ekki sömu
vaktir, en lentum engu að síður oft
saman á vakt. Þegar svo bar undir
var ævinlega lagt til að slegið yrði
saman í púkk og keypt hráefni til
matargerðar. Oftast lenti það á mér
að standa yfir pottunum. Ég hafði
unun að elda ef Grímur var annars
vega, slíkur var áhuginn einlægnin
og drengskapurinn. Uppáhaldið
hans frá þessum árum var rammís-
lensk kjötsúpa.
Grímur átti sína trú á Almættið en
bar hana ekki á torg. Við áttum oft,
þó sérlega nú í seinni tíð, samræður
um lífið sjálft, tilgang þess og gildi,
og hvort eitthvað tæki nú við af þess-
ari jarðvist lokinni, hvort okkur væri
nú ætlað meira hlutverk en að ganga
þessa lífsgöngu hérna megin grafar.
Hann hafði sína trú og skoðun á því,
og því veit ég að nú siglir Grímur
lygnan og sléttan sjó. Mér er afskap-
lega minnisstætt atvik sem varð fyr-
ir mörgum árum. Við Grímur vorum
staddir tveir saman í lögreglubíl. Þá
er spilað lag með Gylfa Ægissyni
sem ber nafnið Gústi Guðsmaður,
var þetta lag um mann sem helgaði
Guði líf sitt, gerði út lítinn bát og gaf
alla afkomu til trúboðsstarfa. Grím-
ur hækkar þá útvarpið og segir
„hlustaðu á textann, heyrðu hvað
hann er fallegur“. Ég hlustaði á
þennan texta og mikið rétt, fallegur
var þessi texti. Síðan hef ég alltaf
hlustað með athygli ef ég heyri þetta
lag spilað. Mér finnst þetta lýsa svo
mjög hugarfari Gríms, kærleika
hans og drengskap sem í honum bjó
og hann lét ekki öllum í té. Grímur
sagði mér ýmsar sögur af þessum
Gústa Guðsmanni sem hann hafði
kynnst á Siglufjarðarárum sínum.
Ég vil með þessum fáu línum
þakka fyrir að hafa fengið að njóta
vináttu þinnar og drengskapar. Ég
vona, Grímur minn, að ég hafi getað
endurgoldið þér á einhvern hátt þá
vináttu og skjól sem þú veittir mér
fyrir fáum árum er ég þurfti að sigla
þungan sjó með boðaföll á bæði borð.
Þú stappaðir í mig stálinu, kæri vin-
ur, og hvattir mig til að standa af
mér boðaföllin. Ég fann þá hversu
dýrmætt það er hverri manneskju að
eiga vin í raun. Hafðu þökk fyrir allt
og allt. Megir þú ganga á ljóssins
vegum í Guðsríki. Guð blessi minn-
ingu þína kæri vinur.
Ég vil að lokum votta eiginkonu
Gríms, Guðrúnu Sigurjónsdóttur,
börnum þeirra, Axel, Sveini og Elínu
Evu, mína dýpstu samúð. Megi frið-
arins faðir fylgja ykkur og styrkja í
sorginni.
Arnbjörn Leifsson.
GRÍMUR
ODDMUNDSSON
;
$
" $ ( (
$1A
1 &%#5 &"
8C
%#"'
+#+
6;)%%
"+
+#% :+
'
$%= %%
7%
%%
6;)
7
+#%%
)
+#%
6#
.
+#%%
"+
%
-%*% $
%
6)#+
%% 6
;
- ,0
% 6
6 %
-
%% -%&
-%%
1+",;)
%
'
& +
17
1/
,
- 5
+*
$ &
/<
&
:
& :
/0
3# "
1+"0
+:
0% '
;
$
$
(
(
"
"
-/6 A
5
+)'
9
$
9&
:
# "
%
6;)%%
%
-%;
%
%%
&"+
D
%
,)
,,)'
1
# -
-#;+%
B
:#;&#
"
: &
. &
0
/66
'
$"
1&%
%%
:
.%D
1&%
;
E
1&%
1&%
(
1&% % -%*+ +
1&% %
&"+
1'
%
'
%%
?
%
%% '
1
6.
/
+)+
F
6 %
"
&
'
&"
/
/0
1+"0
%%
6;)%
& %
1+"*+ %%
6;)%% !:
-%;5%
1+"&"+
6;)%
%
6;)%% G
1+"*+ %
1+"0
&"+
&
1+"0
$0%
&
6
%#
&
+
&
E'