Morgunblaðið - 27.02.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.02.2002, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 19 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frábærar aðstæður á suðurströnd Spánar í 3 eða 4 vikur á ótrúlegum kjörum. Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur þjónustu far- arstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um spennandi kynnis- ferðir á meðan á dvölinni stendur. Vorin eru fallegasti tími ársins á suð- ur-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í þessum yndislega heimshluta og á báðum áfangastöðum bjóðum við þér okkar bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 37.400 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, Flug- sæti eingöngu. Alm. verð kr. 39.270. Verð kr. 51.900 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, El Pinar, 3 vikur, 7. apríl með 8.000 kr. afslætti. Skattar ekki innifaldir. Alm. verð kr. 54.495. Verð kr. 69.000 M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 7. apríl, 3 vikur, með 8.000 kr. afslætti. Völ um aukaviku. Skattar kr. 3.350, ekki innifaldir. Almennt verð kr. 72.450. Vorferðir Heimsferða til Costa del Sol og Benidorm 7. og 10 apríl frá kr. 37.400 Costa del Sol Verð kr. 41.000 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára El Faro, 2 vikur, 8. maí með 10.000 kr. afslætti. Alm. verð kr. 43.155. Verð kr. 56.100 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára El Faro, 10. apríl, 4 vikur með 10.000 kr. afslætti. Alm. verð kr. 58.905. Verð kr. 76.900 M.v. 2 í íbúð, El Faro, 4 vikur, 10. apríl með 10.000 kr. afslætti. Skattar kr. 3.350, ekki innifaldir. Alm. verð kr. 80.745. BenidormSKOÐUNARFERÐ TIL SPÁNAR Euromarina umboðið á Íslandi Euromarina býður öllum þeim sem áhuga hafa á að kaupa íbúð, raðhús eða villu á Alicantesvæðinu (Torrevieja) ókeypis hóteldvöl og frítt fæði í eina viku í mars. Fargjald greiðir hlutaðeigandi. Farið verður sunnudaginn 17. mars til Alicante og heim viku síðar 24. mars. Allar gerðir húsa Euromarina verða skoðaðar og nágrennið en húsin eru á mjög hagstæðu verði. 50% lán til 15 ára á 4,5% vöxtum. Íslenskur fararstjóri. Allar nánari upplýsingar í símum Euromarina umboðsins á Íslandi, 820 1440 og 822 1931. ELÍSABET II Bretlandsdrottning kemur til Ástralíu í dag en á sama tíma er hætta á stjórnarskrárkreppu í landinu vegna ásakana um, að fulltrúi hennar og krúnunnar í Ástr- alíu hafi hylmt yfir með barnaníðing- um. Ásakanirnar beinast gegn Peter Hollingworth en hann er eins konar þjóðhöfðingi Ástralíu í fjarveru Bretadrottningar. Var hann erkibisk- up ensku biskupakirkjunnar í Brisb- ane um 11 ára skeið og þurfti þá að fjalla um mál presta, sem sakaðir höfðu verið um að misnota börn. Sagt er, að hann hafi ýmist tekið á þeim með silkihönskum eða beinlínis stungið málunum undir stól. Skoðanakönnun, sem dagblaðið The Age í Melbourne birti sl. mánu- dag, sýnir að tveir þriðju hlutar Ástr- ala vilja, að Hollingworth segi af sér en ríkisstjórn John Howards sam- þykkti þann sama dag, að hann skyldi sitja áfram. Áður hafði Howard sagt, að brottrekstur hans myndi valda „stjórnarskrárlegum jarðskjálfta“. Stuðningur við stjórnina minnkar Hefur þetta mál haft veruleg áhrif á vinsældir stjórnarinnar. Fyrir rúm- um hálfum mánuði naut hún stuðn- ings 46% kjósenda en 42% um síðustu helgi. Stuðningur við Verkamanna- flokkinn, helsta stjórnarandstöðu- flokkinn, fór á sama tíma úr 34% í 40%. Kemur hér líka til annað mál úr kosningabaráttunni sl. haust en svo virðist sem stjórnin hafi þá logið því til, að ólöglegir innflytjendur köstuðu börnum sínum í sjóinn til að tryggja, að þeir yrðu teknir um borð í áströlsk herskip. Þess eru engin dæmi, að fulltrúa bresku krúnunnar í Ástralíu hafi ver- ið vikið frá en Verkamannaflokkurinn krefst þess, að hann segi af sér og einnig forsætisráðherrar sumra ástr- ölsku ríkjanna. Talsmaður Verka- mannaflokksins í utanríkismálum, Kevin Rudd, segir, að þetta mál geti varpað dimmum skugga á fund for- ystumanna Samveldisríkjanna, sem hefst í Queensland á laugardag. Hart deilt í Ástralíu um fulltrúa krúnunnar Sakaður um að hafa hylmt yfir með barnaníðingum Sydney. AFP. ANDLEGA vanheill morðingi, sem er svo illa haldinn af geðveiki að hann heldur stundum að leikkonan Sigourney Weaver sé Guð, var náð- aður af fangelsismálaráði Georgíu- ríkis í Bandaríkjunum á mánudags- kvöld. Hann hafði verið dæmdur til dauða en úrskurðinum var breytt í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Talsmenn morðingj- ans, Alexanders Williams, segja að aftaka hefði verið ósanngjörn refs- ing fyrir hann. Williams er 33 ára og var greindur með geðhvarfasýki eftir að hann var dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt stúlku er hann var 17 ára. Williams nam stúlkuna, sem hét Aleta Bunch, á brott þar sem hún var í verslunar- miðstöð í Augusta að kaupa afmæl- isgjöf handa móður sinni. Williams nauðgaði henni og myrti hana. Talsmenn geðsjúkra höfðu mót- mælt yfirvofandi aftöku á Williams, og í gegnum árin hafa stuðnings- menn hans, þ. á m. trúarleiðtogar og Rosalyn Carter, fyrrverandi for- setafrú, sent fangelsismálayfirvöld- um í Georgíu fjölda bréfa. Verjendur Williams hafa haldið því fram, að geðveiki hans hafi verið á byrjunar- stigi þegar hann framdi glæpinn. Verjendurnir segja ennfremur að það sé rangt að taka mann af lífi fyr- ir glæp sem hann framdi þegar hann var ekki orðinn lögráða. Mál Williams er eitt þriggja mála sem hefur orðið til að vekja umræðu í Bandaríkjunum um réttmæti dauðarefsinga. Málin snúast að mestu um sanngirni slíkra refsinga þegar í hlut á fólk sem sökum aldurs eða andlegrar vangetu kann að geta talist ófært um að vita mun á réttu og röngu. Drekkti fimm börnum sínum Auk máls Williams er nú verið að rétta í máli Andreu Yates, sem í júní sl. drekkti fimm börnum sínum í baðkarinu á heimili þeirra í Houston í Texas. Verjendur hennar segja hana ekki sakhæfa sökum geðbilun- ar. Yates er 37 ára. Ef kviðdómur sakfellir hana verður dómurinn einnig að skera úr um hvort hún eigi skilið að vera tekin af lífi fyrir glæp- inn. Þegar réttarhöldin yfir henni hóf- ust fyrr í mánuðinum héldu sak- sóknarar því fram, að hún hafi vitað hvað hún var að gera, en lögfræð- ingur hennar sagði að hún hafi þjáðst af alvarlegu fæðingarþung- lyndi, og geðhvarfasýki hafi gert illt verra. „Í máli Yates stöndum við frammi fyrir grundvallarspurningum um réttlæti og mannúð. Ég veit að Yat- es er brjáluð. Réttarhöldin yfir henni munu skera úr um hvort við erum líka brjáluð,“ skrifaði dálka- höfundurinn Richard Cohen í Wash- ington Post fyrir skömmu. Fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna liggur einnig mál um stjórnarskrár- legt réttmæti dauðadóms yfir and- lega vanþroska manni, Daryl Atkins, sem dómstóll í Virginíuríki dæmdi til dauða fyrir að hafa rænt og myrt Eric Nesbitt fyrir sex árum þegar Nesbitt var að taka út peninga úr hraðbanka. Atkins er 24 ára og hef- ur greindarvísitöluna 59. Verjendur hans segja hann ekki sakhæfan vegna þessarar fötlunar, en greind hans sé svipuð og hjá barni. Þar sem svo mörg mál eru í op- inberri umræðu í einu „gætu orðið vatnaskil á þessu ári“, segir David Elliott, talsmaður Baráttusamtaka gegn dauðarefsingum í Bandaríkj- unum (National Coalition to Abolish the Death Penalty). „Bandaríkja- menn eru að endurskoða réttmæti dauðarefsinga,“ sagði Elliott. „Þeir eru líka að endurskoða mál þar sem ekki ætti að beita henni, eins og til dæmis þegar í hlut á fólk undir lög- aldri og greindarskert eða andlega vanheilt fólk.“ 3.700 bíða aftöku Í fjórum ríkjum Bandaríkjanna, Kentucky, Indiana, Arizona og Flór- ída, velta menn því fyrir sér að banna dauðadóma yfir fólki sem var undir lögaldri þegar það framdi glæpina sem um ræðir, og í þrem öðrum ríkjum, Maryland, Nýju- Mexíkó og Nevada, þykir koma til greina að afnema dauðarefsingar al- gerlega. Elliott segir að leiðin til að afnema dauðarefsingar í Bandaríkjunum sé sú, að það verði gert í einu ríki á fæt- ur öðru. Nú bíða alls 3.700 dauða- fangar aftöku í Bandaríkjunum, en Elliott telur að mögulegt sé að lækka þá tölu verulega. En sigur er fráleitt unninn. Í síð- ustu viku var John Byrd tekinn af lífi fyrir morð á kaupmanni. Byrd kvaðst saklaus. Hann var líflátinn með banvænni sprautu, en hafði krafist þess að verða settur í raf- magnsstólinn, og vildi með því láta í ljósi andstöðu sína við dauðarefsing- ar. Samkvæmt upplýsingum frá Upplýsingamiðstöð um dauðarefs- ingar (Death Penalty Information Center) hafa ellefu manns verið líf- látnir í Bandaríkjunum það sem af er þessu ári. Geðsjúkur dauðamaður fær náðun Atlanta, Washington. AP, AFP. ’ Ég veit að Yateser brjáluð. Réttar- höldin yfir henni munu skera úr um hvort við erum líka brjáluð ‘ Andrea Yates sýndi engin svipbrigði þar sem hún sat í réttarsalnum þegar kviðdómur tilkynnti þann úrskurð sinn, að hún teldist sakhæf. Yates er 37 ára og á yfir höfði sér dauðarefsingu fyrir að hafa drekkt fimm börnum sínum í baðkarinu á heimili þeirra í Houston í Texas. Yates lýsti því yfir að hún væri ekki sek vegna þess að hún væri ekki heil á geðsmunum. Hjá henni situr annar verjenda hennar, Wendell Odom. Svipbrigðalaus Reuters Þrír umdeildir dauðadómar vekja umræðu um dauðarefsingar í Bandaríkjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.