Morgunblaðið - 23.04.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir sveppasýkingar
www.islandia.is/~heilsuhorn
Oregano olía
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Nýkaupi og
Árnesapóteki á Selfossi
Einbýlishús á Dalvík til sölu
Hús þetta við Dalbraut á Dalvík er til sölu.
Stærð þess er 216,5 fm og bílskúrs 36 fm.
Húsið er mjög vel staðsett og er ástand þess
mjög gott. Hugsanleg skipti á húseign
í Reykjavík eða nágrenni.
Upplýsingar á fasteignasölunni Eignakjör ehf.,
Akureyri, sími 462 6441
VELTA Fóðurverksmiðjunnar Lax-
ár á Akureyri jókst umtalsvert árið
2001 eða um tæp 50%, úr 210 millj-
ónum árið 2000 í 312 milljónir árið
2001. Þessi aukning kemur til vegna
sölu til Færeyja, en einnig hækkaði
fóður í verði. Tap á rekstrinum nam
rúmum 3,4 milljónum króna á síðasta
ári. Þetta kom fram í máli Valgerðar
Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra
á aðalfundi fyrirtækisins nýlega.
Framleiðsla fyrirtækisins í fyrra
var rúmlega 4.300 tonn samanborið
við 3.100 tonn árið 2000, sem er um
40% aukning milli ára. Til Færeyja
voru seld 1.904 tonn og 2.415 tonn
innanlands sem er samdráttur frá
fyrra ári. Þar munar mestu um tjón
sem einn af stærstu viðskiptavinum
Laxár varð fyrir, er nánast allur fisk-
urinn hans drapst.
Einnig kom fram í máli Valgerðar
að árið 2001 var mjög erfitt rekstr-
arlega séð. Verð á hráefnum hækk-
aði mjög mikið og fóðurverð náði
ekki að fylgja að fullu í kjölfarið. Gíf-
urlegar hækkanir urðu á lýsi, allt að
300%, og fiskimjöli vegna eftirspurn-
ar umfram framboð í heiminum, en
mestur hluti þess fer nú til fiskeldis.
Þá hafa sveiflur á gengi íslensku
krónunnar mjög mikið að segja í hrá-
efnainnkaupum en þau eru öll í er-
lendri mynt, jafnvel fiskimjöl og lýsi
sem framleitt er á Íslandi. Framleið-
endur þess selja á heimsmarkaðs-
verði og er þá engin undantekning
gerð hvort kaupandinn er íslenskur
eða erlendur.
Afskriftir Fóðurverksmiðjunnar
Laxár á síðasta ári námu 11,1 milljón
króna, sem er svipuð upphæð og árið
áður. Tap fyrir fjármagnstekjur og
gjöld nam 1,6 milljónum króna á
móti rúmlega 11 milljóna króna
hagnaði árið áður. Nettófjármagns-
gjöld voru 176 þúsund krónur og tap
af reglulegri starfsemi 3,7 milljónir
króna. Heildareignir í árslok námu
167,5 milljónum króna. Veltufjár-
munir voru 105 milljónir króna og
skammtímaskuldir rúmar 43 millj-
ónir króna. Veltufjárhlutfall var 2,42
og lækkaði úr 3,3 árið áður. Fasta-
fjármunir nema um 62 milljónum
króna og langtímaskuldir eru 4 millj-
ónir króna. Heildarskuldir fyrirtæk-
isins voru tæpar 48 milljónir króna í
lok síðasta árs og eigið fé um 120
milljónir króna. Eiginfjárhlutfall var
því 71,6% en það var tæp 80% árið
áður.
Tilraunaverksmiðja
sett upp á Dalvík
Í máli Valgerðar kom fram að
Laxá hefur nú einn markaðsmann
sem starfar á vegum Útflutnings-
ráðs í Kanada en stefnt er að því að
senda þorskafóður þangað á vori
komanda. Hún er bjartsýn á fram-
haldið og hefur trú á að yfirstand-
andi ár gangi vel. Fiskeldi er nú að
aukast á Íslandi og eru menn að
skoða ýmsa möguleika í þeim efnum.
Má þar nefna þorsk-, beitarfisk- og
sandhverfueldi. Þá standa vonir til
þess að ná sölu til Færeyja. Unnið er
að því að setja upp tilraunaverk-
smiðju á Dalvík en í henni er fyr-
irhugað að framleiða smáar einingar
af fóðri og gera tilraunafóður.
Starfsmenn á síðasta ári voru 10 tals-
ins.
Tap á rekstri Fóðurverksmiðjunnar Laxár
Veltan jókst um
tæplega 50% milli ára
BLÓMABÚÐ Akureyrar hefur fært
út kvíarnar og opnað aðra blóma-
búð í bænum. Nýja blómabúðin er í
verslunarmiðstöðinni Glerártorgi, í
norðurenda hússins, við hliðina á
Sportveri en Blómabúð Akureyrar
er einnig í göngugötunni við Hafn-
arstræti.
Á myndinni eru eigendur Blóma-
búðar Akureyrar, Kristín Ólafs-
dóttir og Jóhann Gunnar Arnars-
son, í húsnæðinu á Glerártorgi.
Morgunblaðið/Kristján
Blómabúð
Akureyrar
á Glerártorg
Tækifæri
efri ára
„ÚLLEN dúllen doff-dagur-
inn“ verður haldinn í fyrsta
sinn á Akureyri á morgun, síð-
asta vetrardag. Undirtitill
dagsins er „tækifæri efri ára“
þar sem fjallað verður um efri
árin á jákvæðan hátt og hin
ýmsu tækifæri sem bjóðast.
Stefnt er að því að dagur
þessi verði haldinn árlega og að
þá verði skoðaðar ýmsar hliðar
þessa lífsskeiðs.
Dagskrá dagsins fer fram í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Þar verða fluttir fyrir-
lestrar auk þess sem ýmsar
sýningar og kynningar verða í
anddyri og á gangi. Fyrirlesar-
ar eru Haraldur Bessason,
fyrrverandi háskólarektor,
Ingibjörg Pétursdóttir iðju-
þjálfi, Jón Björnsson, fyrrver-
andi félagsmálastjóri, Ingi-
gerður Einarsdóttir, Félagi
eldri borgara, Gunnar Eyjólfs-
son, leikari, Sigríður Halldórs-
dóttir, prófessor, Vilhjálmur
Bergmann Bragason og Guð-
rún Ásmundsdóttir leikkona.
Óskar Pétursson og Sigrún
Arna Arngrímsdóttir syngja.
Féll af
hestbaki
UNG kona féll af hestbaki þar
sem hún var stödd í reiðtúr í
hesthúsahverfinu í Breiðholti á
Akureyri um miðjan dag í gær.
Sjúkrabíll frá Sökkviliði Ak-
ureyrar var sendur eftir henni
og var hún flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið vegna gruns um
háls- og hryggáverka.
Á sunnudagsmorgun barst
slökkviliði tilkynning um bíl-
veltu á Svalbarðsströnd, við
bæinn Mógil.
Tveir sjúkrabílar og klippu-
bíll voru sendir á staðinn auk
læknis. Einn maður var í bíln-
um og var
hann fluttur meðvitundar-
laus á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Við skoðun komu í
ljós hryggáverkar og var hann
lagður inn á gjörgæsludeild
FSA.
Líkamsbeit-
ing og skíða-
búnaður
JEANNIE Thoren, sem er
heimsþekktur skíðakennari
heldur fyrirlestur í kaffiteríu
Íþróttahallarinnar á Akureyri
í kvöld, 23. apríl, og hefst
hann kl. 20. Þar fjallar hún
um líkamsbeitingu og skíða-
búnað. Fyrirlesturinn er á
vegum Vetraríþróttamið-
stöðvar Íslands og Hlíðar-
fjalls.
AÐALFUNDUR Auðhumlu, félags
mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og
S-Þingeyjarsýslu, sem haldinn var í
Sveinbjarnargerði í gær, sam-
þykkti að fela stjórn félagsins að
ganga frá kaupum á hlut Kaldbaks
hf. í Norðurmjólk ehf. Samkvæmt
tillögunni er gert ráð fyrir að eign
Auðhumlu verði 40–41% í Norður-
mjólk, Mjólkurbú Flóamanna kaupi
16%, Mjólkursamsalan 16% og 16%
skiptist á milli KEA svf. og Kaup-
félags Skagfirðinga. Þá kaupi Osta-
og smjörsalan 11–12% hlut sem
Auðhumla hafi forkaupsrétt að.
Samningur skal borinn upp
á félagsfundi í Auðhumlu
Náist samningar við Kaldbak um
kaupverð skal bera kaupsamning-
inn undir félagsfund í Auðhumlu til
staðfestingar. Náist hins vegar
ekki samningar um kaupverð sam-
þykkir fundurinn að láta meta
verðmæti Norðurmjólkur sam-
kvæmt ákvæðum hluthafasam-
komulags, náist um það samkomu-
lag meðal kaupenda. Þá samþykkti
fundurinn að niðurstöður mats-
manna skyldi bera undir félagsfund
í Auðhumlu til ákvörðunar um
hvort kaupa skuli hlut Kaldbaks á
matsverði eða að kaupverðið verði
sett í gerðardóm.
Aðalfundur Auðhumlu
Hlutur Kaldbaks
í Norðurmjólk
verði keyptur
Eyjafjarðarsveit
ÁGÆT aflabrögð hafa verið hjá ís-
fisktogurum Útgerðarfélags Akur-
eyringa að undanförnu. Í gærmorg-
un komu tveir togarar félagsins til
heimahafnar, Harðbakur EA með
um 125 tonn og var uppistaðan karfi
og Árbakur EA með um 80 tonn af
þorski. Veiðiferðir skipanna voru
stuttar en Árbakur landaði 123
tonnum 15. apríl sl. og Harðbakur
78 tonnum 13. apríl. Þá landaði
Kaldbakur EA 114 tonnum í síðustu
viku.
Rauðinúpur ÞH er á rækjuveið-
um á Flæmska hattinum og landaði
um 165 tonnum á Nýfundnalandi í
gær. Að sögn Sæmundar Friðriks-
sonar, útgerðarstjóra ÚA, hefur
ekki verið nema rétt þokkaleg veiði
á Flæmska hattinum og of mikið af
smárækju í aflanum.
Sléttbakur EA-304, hinn nýi
frystitogari ÚA, lét úr höfn á sunnu-
dag. Verið er að prófa búnað og
tæki úti fyrir Norðurlandi, áður en
skipið heldur til grálúðu- og karfa-
veiða á Vestfjarðamiðum.
Morgunblaðið/Kristján
Árbakur EA kemur til heimahafnar í gærmorgun.
Ágæt aflabrögð
hjá ÚA-togurum
Úllen dúllen
doff-dagurinn í
Safnaðarheimilinu
Sumarfagn-
aður Hlífar
ÁRLEGUR sumarfagnaður Kven-
félagsins Hlífar verður haldinn sum-
ardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25.
apríl, kl. 15 í safnaðarsal Glerár-
kirkju.
Sr. Örn Friðriksson sýnir lista-
verk eftir sig. Helgi, Reynir og Við
stelpurnar syngja og spila og þá
verður boðið upp á veislukaffi og
happdrætti. Allur ágóði rennur til
styrktar á tækjakaupum fyrir barna-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri.
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Akur-
eyrarkirkju á sumardaginn fyrsta,
fimmtudaginn 25. apríl, og hefst
hún kl. 11. Að venju munu skátar
setja svip á þessa athöfn.
Prestur verður séra Svavar A.
Jónsson. Hugleiðingu flytur Jenný
Karlsdóttir kennari. Sigríður A.
Whitt mun lesa St. Georgsboðskap-
inn, sem að þessu sinni er ritaður af
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands. Einsöng syngur Arna Vals-
dóttir.
Skátar safnast saman við
Íþróttahöllina við Skólastíg og
munu ganga þaðan til kirkju kl.
10.30 við undirleik Lúðrasveitar
Akureyrar.
Skátamessa
♦ ♦ ♦