Morgunblaðið - 23.04.2002, Síða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 23
STÓRSÝNINGIN Matur 2002 sem
haldin var í Smáranum í Kópavogi
18.–21. apríl þótti takast vel, segir
Dagmar Haraldsdóttir markaðs-
stjóri Matar 2002. Búist var við
25–30.000 gestum á sýninguna og
segir Dagmar því takmarki hafa
verið náð þegar fjöldi boðsgesta
og almennra sýningargesta sé
lagður saman. „Við gerðum skoð-
anakönnun meðal sýnenda síðasta
daginn sem leiddi í ljós mikla
ánægju með hvernig til tókst. Fólk
hefur verið að þakka mér og Jón-
asi Björnssyni framkvæmdastjóra
fyrir en ég vil aftur á móti þakka
sýnendunum sem gerðu sýning-
una jafn glæsilega og raun bar
vitni og óska þeim til hamingju,“
segir hún. Haldin var kaupstefna
fyrstu tvo daga sýningarinnar nú í
fyrsta sinn og segir Dagmar þann
þátt hafa tekist vel. „Við buðum
fjölmörgum stórum kaupendum
að matvælum á sýninguna og er á
sýnendum að heyra að það hafi
gefið mjög góða raun.“
Matur 2002 þótti takast vel
RAGNHEIÐUR Gísladóttir, kaffi-
barþjónn hjá Kaffitári í Banka-
stræti, bar sigur úr býtum í Íslands-
móti kaffibarþjóna sem leitt var til
lykta á Mat 2002 á sunnudag.
Sex kaffibarþjónar komust í úrslit
í undankeppninni og fara þeir sem
landslið Íslands til Ósló í júní að
taka þátt í heimsmeistarakeppni
kaffibarþjóna. Þau sem komust
áfram í undankeppninni voru Ragn-
heiður Gísladóttir frá Kaffitári, sem
fyrr er getið, Ásgeir Sandholt frá
bakaríinu Sandholt, Njáll Björg-
vinsson frá Te og kaffi, Ása Jelena
Petterson frá Kaffitári, Ingibjörg
Guðmundsdóttir frá Konditori Cop-
enhagen og Kristín Björnsdóttir frá
Kaffibrennslunni.
„Íslandsmót síðastliðinna tveggja
ára hafa slegið rækilega í gegn og
eru allir sammála um að á þeim
tíma hafi kaffimenningin breyst til
muna á Íslandi,“ segja aðstandend-
ur keppninnar. Keppnisrétt á Ís-
landsmóti kaffibarþjóna hafa allir
þeir sem vinna við espressó-vélar á
kaffihúsum, veitingahúsum, í bak-
aríum, blómastofum og víðar.
Áhugasamir og metnaðarfullir
Einn af dómurum kaffibarþjóna-
keppninnar var Tony Botterill,
skólastjóri Lavazza-kaffiskólans í
Bretlandi.
Segir hann áberandi hversu þátt-
takendur voru áhugasamir og metn-
aðarfullir í keppninni.
„Þetta er þriðja árið sem keppnin
er haldin og eru keppendur þegar
farnir að sýna þá fagmennsku sem
einkennir góða kaffibarþjóna, til
dæmis að byrja upp á nýtt ef þeir
eru ekki sáttir við kaffið, þó að tím-
inn sé naumur.
Heildarskipulag keppninnar
fannst mér gott og vel á málum
haldið af aðstandendum hennar.
Uppsetning var í samræmi við al-
þjóðlegu keppnina og þetta rann allt
samkvæmt áætlun.
Það verður gaman að fylgjast
með þróuninni á Íslandi í framtíð-
inni hvað kaffi varðar og ánægjulegt
að sjá kaffi skipa jafn stóran sess á
þessari ágætu sýningu eins og raun
bar vitni. Annars óska ég
sigurvegaranum til hamingju og
góðs gengis í heimsmeistarakeppn-
inni,“ segir Tony Botterill.
Morgunblaðið/Júlíus
Kaffibarþjónarnir Kristín Björnsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ragnheiður Gísladóttir, Ása Petterson og
Njáll Björgvinsson þegar úrslitin á Íslandsmóti kaffibarþjóna 2002 voru kynnt á sunnudag.
Kaffibarþjónn Íslands 2002
eins og víkingahjálmur og þriðju
verðlaun Jóhannes Felixson Hjá
Jóa Fel.
Brauðbakstur Kornax
Nemakeppni Kornax í brauð-
bakstri var haldin í tengslum við
sýninguna Matur 2002 og afurðum
keppninnar stillt út á sýningarsvæð-
inu. Að keppninni stendur Kornax
hf. í samvinnu við Hótel- og mat-
vælaskólann í Kópavogi, Landssam-
band bakarameistara og Klúbb bak-
arameistara. Keppendur til úrslita
voru fjórir, Borgþór Þorgeirsson,
Hjá Jóa Fel, Elías Þór Þórðarson,
Mosfellsbakaríi, Haraldur Árni Þor-
varðarson, Kökubankanum, og Þóra
Berglind Magnúsdóttir, Myllunni-
Brauðum. Úrslit urðu þau að Elías
Þór Þórðarson varð í fyrsta sæti,
Haraldur Árni Þorvarðarson í öðru
sæti og Borgþór Þorgeirsson og
Þóra Berglind Magnúsdóttir í 3.–4.
sæti. Sigurvegarinn hlaut að laun-
um farandbikar með áletruðum
nöfnum allra sigurvegara keppninn-
ar frá upphafi og náms- og kynn-
isferð til Danmerkur frá Kornax.
Íslandsmeistarakeppni í köku-
skreytingum var haldin í 6. sinn á
Mat 2002. Að keppninni stóðu
Landssamband bakarameistara,
Klúbbur bakarameistara og Bak-
arasveinafélag Íslands. Keppendur
voru þrír, Ásgeir Sandholt, Sand-
holtsbakaríi, Eggert Jónsson,
Kökubankanum og Hafliði Ragnars-
son, Mosfellsbakaríi. Úrslit urðu
þau að Hafliði Ragnarsson sigraði
með yfirburðum en mjög mjótt var
á munum milli annars og þriðja sæt-
is,“ segir Ragnheiður. Eggert Jóns-
son varð í öðru sæti og Ásgeir
Sandholt í því þriðja.
Sigurvegarinn hlaut að launum
verðlaunagrip með áletruðum skildi
frá Samtökum iðnaðarins, 50.000
króna ávísun frá Landssambandi
bakarameistara, farandbikar frá
Klúbbi bakarameistara með áletr-
uðum nöfnum allra sigurvegara frá
upphafi og farandbikar frá Bakó.
Mun þetta vera í þriðja sinn sem
Hafliði Ragnarsson verður í Ís-
landsmeistari í kökuskreytingum.
BAKARAR úr Mosfellsbakaríi báru
sigur úr býtum í nemakeppni í
brauðbakstri 2002, Íslandsmóti í
kökuskreytingum og kransaköku-
keppni 2002 á sýningunni Mat 2002
nú um helgina.
Kransakökukeppnin er haldin í
fyrsta skipti hérlendis, segir Ragn-
heiður Héðinsdóttur, matvælafræð-
ingur hjá Samtökum iðnaðarins og
framkvæmdastjóri hjá Landsam-
bandi bakarameistara. Að keppn-
inni stóðu Bakarasveinafélag Ís-
lands og Landssamband bakara-
meistara og fólst hún í því að
keppendur skiluðu inn fullgerðum
kransakökum, undir nafnleynd sam-
kvæmt tiltekinni forskrift. Meðal
annars var tekið tillit til hugmynda-
flugs, vinnubragða og hversu auð-
velt er að framleiða kökuna til sölu,
segir Ragnheiður. Sex kökur bárust
inn til keppninnar. Eigandi sigur-
kökunnar er Gunnlaugur Örn Vals-
son, Mosfellsbakaríi en kaka hans
var í líki saxófóns. Önnur verðlaun
hlaut Kristján Sigmundsson,
Sveinsbakaríi, fyrir köku sem leit út
Elías Þórðarson sigraði í
nemakeppni Kornax.
Gunnlaugur Örn Valsson með
saxófóninn, bestu kransakökuna.
Hafliði Ragnarsson varð Íslandsmeistari
í kökuskreytingum í þriðja sinn.
Sigursælir í Mosfellsbakaríi