Morgunblaðið - 23.04.2002, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 59
Símar: 515 1735 og 515 1731
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin.
Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt.
Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.00 – 15.30.
Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar
og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar.
Utankjörsta›askrifstofa
Sjálfstæ›isflokksins
Sjálfstæ›isfólk!
Láti› okkur vita um stu›ningsmenn
sem ekki ver›a heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
Kringlunni - sími 581 2300
Í MIKLU ÚRVALI
STÆRÐIR 34 - 48
STRETCHBUXUR
30% afsláttur af öllum vörumGarðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi, sími 551 0081
HÖRMUNGARNAR í Austurlönd-
um nær hafa sterk áhrif á marga.
Umræðan er því miður einhliða og
dómgreind sumra ágætra manna hef-
ur brugðist þeim í orrahríðinni.
Maður er nefnd-
ur Haukur Már
Haraldsson og titl-
ar sig framhalds-
skólakennara.
Hann skrifa pistil í
Morgunblaðið 19.4.
sl. þar sem hann fer
með rangt mál og
leggur mér og fleir-
um orð í munn.
Þegar ég var að
alast upp varð ég ekki var við annað
en að kennurum væri fyllilega treyst-
andi fyrir því að fara með rétt mál og
gefa nemendum sínum glögga mynd
af umheiminum. Ég varð aldrei var
við annað en að menn temdu sér að
fjalla um mál af sanngirni og bæru
ekki svívirðingar á aðra að tilefnis-
lausu. Haukur fylgir ekki fordæmi
þessara manna.
Haukur staðhæfir að ég segi að
Guð sé að verki þegar hermenn vinni
voðaverk í stríði sem nú geisar í Ísr-
ael. Þetta er fjarri öllum sanni. Ég hef
aldrei réttlætt voðaverk af neinu tagi.
Blóðsúthellingar og ofbeldi af hvaða
tagi sem er hef ég fordæmt skilyrð-
islaust. Tilgangurinn helgar aldrei
meðalið. Það er aumt hlutskipti
manns sem vill kenna öðrum að gera
mönnum upp svo böðulslegt viðhorf.
Ég hef sagt að Gyðingar eru þjóð
sem er útvalin af Guði til ákveðins
hlutverks. Guð gerði sáttmála á sín-
um tíma við þessa þjóð og hann mun
standa við hann óháð viðbrögðum
þeirra. Ef menn halda að þar með sé
allt gott og gilt sem Ísraelsmenn gera
vegna þessa vaða menn reyk. Við
blessum því ekki með neinum hætti
þau voðaverk sem framin eru í þess-
um átökum. Þau eru sannarlega ekki
Guði þóknanleg.
Kirkjan hefur unnið mörg illvirki í
gegnum söguna. það vita allir sem
vilja vita, en kirkjan á engu að síður
sáttmála við Guð sem hann mun ekki
rifta. Kirkjan er grundvöllur og stólpi
sannleikans í samtímanum, en samt
eru þar um borð ýmsir skuggabaldr-
ar. Sáttmáli við Guð eða útvalning
hans er ekki vottorð um ágæti við-
komandi. Ísrael og kirkjan hafa svip-
aða stöðu frammi fyrir Guði.
Þegar ég var í skóla var það einn af
kennurunum mínum, Felix Ólafsson,
sem benti mér á sérstöðu Ísraels í
fjölskyldu þjóðanna. Hann benti mér
á hvernig trúfesti Guðs og reyndar til-
vist væri sýnileg í samskiptum hans
við þessa litlu hröktu þjóð sem fékk að
fara heim eftir nær tveggja árþús-
unda vergang.
Látum ekki moldviðri átakanna í
Austurlöndum nær villa okkur sýn.
Við megum ekki láta ofstopamenn og
morðingja, hvar í röðum sem þeir
standa, stjórna skoðanamyndun okk-
ar.
GUNNAR ÞORSTEINSSON,
forstöðumaður í Krossinum
í Kópavogi.
Haukurinn og dúfan
Frá Gunnari Þorsteinssyni:
Gunnar
Þorsteinsson
Íslandsmót í tvímenningi
Undanúrslitin verða spiluð 25.-26.
apríl. 25. apríl, sumardaginn fyrsta,
byrjar spilamennska kl. 11.00 en
26. apríl er byrjað að spila kl. 17.00.
Úrslitin verða síðan spiluð 27.-28.
apríl.
Að öðru leyti er mótið með hefð-
bundnum hætti. Í undanúrslitum
eru spilaðar 3 lotur og kemst 31
par í úrslitin. Í úrslitum spila að
auki Íslandsmeistarar síðasta árs
og allir svæðameistarar, alls 40 pör.
Allir spila við alla, 3 spil milli para.
Undanúrslitin og úrslitin verða spil-
uð í Fjölbrautaskólanum Ármúla.
Keppnisstjórar eru Sveinn Rúnar
Eiríksson og Björgvin Már Krist-
insson.
Bridsfélag Reykjavíkur
Föstudaginn 19. apríl var spil-
aður einskvölds Mitchell tvímenn-
ingur með þátttöku 25 para.
Í efstu sætum í NS lentu:
Birkir Jónsson – Bogi Sigurbjörnsson +45
Guðlaugur Sveinss. – Magnús Sverriss.+34
Gísli Steingrímss. – Sveinn R. Þorv. +27
Eggert Bergsson – Friðrik Jónsson +16
Í efstu sætum í AV lentu:
Hermann Láruss. – Vilhjálmur Sig. Jr.+62
Unnar Atli Guðm. – Helgi Samúelss. +30
Guðm. A. Grétarss. – Óli B. Gunnarss. +22
Helgi Bogason – Guðjón Sigurjónss. +14
Spilaðir eru einskvölds tvímenn-
ingar öll föstudagskvöld. Spila-
mennskan hefst kl. 19.00.
Allir eru velkomnir. Aðstoðað er
við myndun para. Því miður er ekki
spilað næstkomandi föstudag, 26.
apríl, vegna Íslandsmóts í tvímenn-
ingi.
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Eftir að hafa hitað upp með eins
kvölds tvímenning þann 3. janúar,
þá hófst aðalsveitakeppni félagsins
þann 11. janúar. Í mótinu tóku 8
sveitir þátt og spiluðu 32 spila leiki
sín á milli. Mótinu lauk 28. febrúar
eftir æsispennandi keppni. Efstu
sveitir urðu þessar:
Anton, Pétur, Auðunn, Sigfinnur,
Birgir B. og Sturla 121
Vilhjálmur, Guðjón, Magnús, Gísli H.
og Helgi Grétar 120
Höskuldur, Gunnar V., Garðar,
Guðmundur, Hörður og Jón 119
Sigurður, Stefán, Grímur M., Gísli Þ.,
Þórður og Grímur A. 114
Þessu næst tók við 4 kvölda tví-
menningur, Sigfúsarmótið, sem er
jafnframt aðaltvímenningur félags-
ins. Í mótinu spiluðu 13 pör. Röð
efstu para varð þessi:
Þröstur Árnas. – Ríkharður Sverriss. 56,34
Ólafur Steinas. – Gunnar Þórðars. 56,29
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
ÉG VIL þakka Davíð Oddssyni fyrir
andstöðu hans gegn inngöngu Íslands
í Evrópubandalagið, en um leið bið ég
hann að hugsa vel um og hlúa að ís-
lenskum landbúnaði og standa vörð
um búsetu í dreif-
býli landsins sem
nú stendur svo
höllum fæti að við
liggur að heilar
sveitir leggist í
eyði. Síðan vil ég
segja nokkur orð
um hugsanlega
inngöngu Íslands í
ESB.
Í mínum huga
liggur mjög ljóst
fyrir að ef Ísland gengur í ESB þá ger-
ist meðal annars tvennt sem menn
verða að gera sér ljóst.
Íslenska þjóðin glatar forræði sínu
yfir auðlindum hafsins innan fiskveiði-
lögsögunnar því þó takast mætti ef til
vill að semja við ESB um tímabundnar
undanþágur um óbreytta lögsögu,
sem er mjög ólíklegt, þá myndi slíkur
samningur ekki standast þegar til
lengri tíma er litið.
Íslenskur landbúnaður myndi bíða
stórfellt tjón og er ekki á bætandi.
Byggð myndi leggjast af í stórum stíl
umfram það sem orðið er. Í stuttu máli
sagt yrði þar með stórlega kreppt að
framleiðslumöguleikum þjóðarinnar
til sjávar og sveita.
Ótalmargt annað mun gerast sem
fyrst og fremst myndi skerða stórlega
sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar. En
þessar tvær ofangreindar ástæður
eru fullgild rök ein og sér gegn inn-
göngu Íslands í ESB.
Ég sé ekki ástæðu til að harma það
þó EES-samningurinn sé orðinn
„ófullnægjandi“, eins og það hefur
verið orðað. Það er ekkert vandamál.
Íslendingar eiga hreint út sagt að
segja samningnum upp og hefja síðan
viðræður um tvíhliða viðskiptasamn-
inga við Evrópuríkin sem frjálsir
menn eins og við önnur ríki veraldar.
Að öðrum kosti fellur fullveldið eða
réttara sagt það sem eftir stendur af
því vegna þess að það hefur verið
stórlega skert með gildistöku EES-
samningsins.
Það er áhyggjuefni og sorgarsaga
hversu margir íslenskir forráðamenn
og stór hluti þjóðarinnar hefur látið
glepjast af blindri trú á samkeppni og
efnishyggju. Við förum ekki með jarð-
neskar fjárfúlgur yfir landamæri lífs
og dauða þegar þar að kemur.
Auðhyggja ríkra þjóða er orðið
stórfellt vandamál sem veldur gríð-
arlegri óánægju og hatri meðal fá-
tækra þjóðríkja þar sem almenningur
líður stórfelldan skort, hungur og
dauða. Afleiðingin: Ófriður og hryðju-
verk.
Því verður varla á móti mælt með
nokkrum fullgildum rökum að ís-
lenska þjóðin hefur verið að versla
með fullveldi sitt síðan EES-samn-
ingurinn var samþykktur. Gangi hún
inn í ESB mun það sem eftir stendur
að mestu leyti heyra sögunni til.
FRIÐJÓN GUÐMUNDSSON,
Sandi, Aðaldal.
Efnishyggjan
og fullveldið
Frá Friðjóni Guðmundssyni:
UM ÞESSAR mundir fer fram þjóð-
armorð í Palestínu. Ísraelar, sem um
árabil hafa hunsað mannréttindi Pal-
estínumanna og beitt þá ofbeldi og
kúgunum, hafa nú gengið lengra en
nokkru sinni fyrr. Í skjóli tryggrar
vináttu sinnar við Bandaríkin og
hinnar svokölluðu „baráttu gegn
hryðjuverkum“ eru þeir með skipu-
lögðum hætti að myrða saklausa
borgara og að því er virðist að ganga
endanlega frá heimastjórn Palestínu-
manna.
Allir sem hafa nokkurn snefil af sið-
ferðiskennd sjá að hernaðaraðgerðir
Ísraela eru óréttlætanlegir glæpir.
Einmitt þess vegna brá mér í brún
þegar ég fyrir nokkrum dögum
heyrði í útvarpi Davíð Oddsson for-
sætisráðherra lýsa því yfir að Ísraelar
væru og hefðu alltaf verið vinaþjóð
okkar. Í gærkvöldi kveikti ég svo á
sjónvarpinu þar sem verið var að taka
viðtal við Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra um ástandið í Palestínu.
Þegar hann var búinn að lýsa því
tvisvar yfir á innan við tveimur mín-
útum að Ísraelar væru miklir vinir
okkar og við vildum ekki fyrirgera
þeirri vináttu ofbauð mér og ég
slökkti. Það er smánarlegt að tveir
æðstu ráðamenn þjóðarinnar skuli
láta í ljós slíkar skoðanir þar sem þeir
öðrum fremur hafa það hlutverk að
tala fyrir hönd Íslendinga á alþjóða-
vettvangi. Ég geti ekki túlkað þessi
orð með öðrum hætti en að ríkisstjórn
Íslands styðji þjóðarmorð í Palestínu.
Að minnsta kosti minntist hvorug-
ur þessara manna einu orði á að við
værum „vinir Palestínumanna“. Að
mér læðist hins vegar sá grunur að
hinir raunverulegu „vinir“ sem Davíð
og Halldór eiga hér við séu Banda-
ríkjamenn, stríðsglaða veldið í vestri
sem íslensk stjórnvöld virðast hafa
takmarkalausa aðdáun á.
Það er sama á hverju gengur,
stjórnvöld hér á landi standa einatt
gagnrýnislaust við bakið á stefnu
Bandaríkjanna. Nærtækt dæmi er
hin hræsnisfulla „barátta gegn
hryðjuverkum“ sem hefur haft í för
með sér ólýsanlegar hörmungar fyrir
fólk í Afganistan og á fleiri stöðum,
sem er svo óheppið að vera músl-
imatrúar. Gegn þeirri „baráttu“ hafa
ráðamenn þjóðarinnar engum mót-
mælum hreyft – enda „vinir okkar“
þar á ferð.
Ímyndum okkur nú að vinur okkar
gangi einn góðan veðurdag inn á
einkaheimili vopnaður skammbyssu
og skjóti fjölskylduna sem þar býr.
Myndum við reyna að réttlæta
verknaðinn og koma honum undan
refsingu með þeim rökum að „hann
væri og hefði alltaf verið vinur okk-
ar“? Ég efast um að nokkur maður
myndi gera það. Það er skammarlegt
að ríkisstjórn landsins þegi þunnu
hljóði á meðan fram fara fjöldamorð.
Ég minnist þess að ráðamenn þjóð-
arinnar þurftu ekki langan umhugs-
unarfrest áður en þeir fordæmdu op-
inberlega hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum síðastliðið haust. Sem
íslenskur ríkisborgari vil ég því fara
fram á það að ríkisstjórn Íslands slíti
tafarlaust stjórnmálasambandi við
Ísrael og fordæmi á opinberum vett-
vangi voðaverk þeirra gegn Palest-
ínumönnum.
SALKA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skeiðarvogi 135, Reykjavík.
Um vini ríkisstjórnar Íslands
Frá Sölku Guðmundsdóttur:
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Mjög góð þátttaka er um þessar
mundir hjá eldri borgurum í Kópa-
vogi. Þriðjudaginn 16. apríl spiluðu
26 pör Mitchell tvímenning og
urðu lokaúrslitin þessi í N/S:
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss. 389
Hannes Ingibergss. - Magnús Halldórss.
370
Halla Ólafsd. - Ólína Kjartansd. 341
Hæsta skor í A/V:
Hreinn Hjartarson - Ragnar Björnss. 376
Ásta Erlingsd. - Sigurður Pálsson 355
Brynja Dýrborgard.- Þorleifur Þórarins.
350
Sl. föstudag mættu svo 24 pör
og þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 272
Eysteinn Einarss. - Jón Stefánss. 250
Ingibj. Halldórsd. - Sigríður Pálsd. 245
Hæsta skor í A/V:
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Dav-
íðss.277
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 270
Magnús Oddss. - Guðjón Kristjánss. 255
Ásta Erlingsd. - Sigurður Pálss. 255
Meðalskor á þriðjudag var 312
en 216 á föstudag.
BRÉF TIL BLAÐSINS Guðjón Einarss. – Vilhjálmur Þ. Pálss.
55,09
Garðar Garðarss. – Sigfinnur Snorras./
Auðunn Hermannss. 53,87
Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorra.
53,49
Næst síðasta mót vetrarins var
spilað 11. apríl sl. og var jafnframt
Suðurlandsmót í tvímenningi. Þátt
tóku í mótinu 16 pör og keppn-
istjórn var í góðum höndum Sig-
urbjörns Haraldssonar. Röð efstu
para varð þessi:
Sigurður Vilhjálmss. – Vilhjálmur Sig. +41
Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorras.
+40
Stefán Jóhannsson – Daníel Sigurðsson
+37
Höskuldur Gunnarss. – Gunnar Valg. +26
Þröstur Árnas. – Ríkharður Sverriss. +25
Guðmundur Gunn. – Bjarni Einarss. +22
Keppnistímabilinu lauk síðan
með eins kvölds tvímenningur þann
18. apríl sl. Úrslit lágu ekki fyrir
þegar þessar línur eru skrifaðar.
Stjórn Bridsfélagsins vill þakka
öllum þeim spilurum sem spiluðu
hjá félaginu í vetur og vonast til að
sjá sem flesta aftur í haust, ásamt
nýjum félögum.
Friðjón
Guðmundsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar