Morgunblaðið - 23.04.2002, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 61
DAGBÓK
LJÓÐABROT
SONNETTA
Þótt form þín hjúpi graflín, granna mynd,
og geymi moldin þögla augun blá
hvar skáldið forðum fegurð himins sá,
– ó fjarra stjörnublik, ó tæra lind –
og eins þótt fölni úngar varir þær
sem eitt sinn þíddu kalinn hlekkjamann,
þær hendur stirðni er ljúfar leystu hann
og ljúki dauðans greip um báðar tvær,
það sakar ei minn saung, því minning þín
í sálu minni eilíft líf sér bjó
af yndisþokka, ást og mildri ró,
einsog þú komst í fyrsta sinn til mín;
einsog þú hvarfst í tign, sem mál ei tér,
með tár á hvarmi í hinsta sinn frá mér.
Halldór Kiljan Laxness
Árnað heilla
60 ÁRA og 70 ÁRA systkinaafmæli. Í dag, þriðjudaginn23. apríl, verður sextug Katrín Eymundsdóttir, Lind-
arbrekku, Kelduhverfi, og sjötugur verður Magnús Ey-
mundsson, Bárugötu 5, Reykjavík. Þau verða að heiman í
dag, en Katrín og eiginmaður hennar, Gísli G. Auðunsson,
bjóða vinum og sveitungum til fagnaðar í Skúlagarði, Keldu-
hverfi, laugardaginn 27. apríl, frá klukkan 17–20.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1
b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3
Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2
Bb7 12. Bc2 He8 13. b3 Bf8
14. d5 c6 15. c4 Rb6 16. Bd3
Rfd7 17. Ba3 cxd5 18. cxd5
f5 19. exf5 Rxd5 20. Re4
R7f6 21. Rfg5 Rf4
22. Bc1 Rxd3 23.
Dxd3 Rxe4 24.
Rxe4 d5 25. Rg3
e4 26. Dd2 d4 27.
Bb2 Bc5 28. Hac1
Bb6 29. Df4 Dd5
30. Hc2 e3 31.
fxe3 Hac8 32.
Hd2 Hxe3 33.
Hxe3 dxe3 34.
He2
Staðan kom
upp á Amber
mótinu í Monakó
sem lauk fyrir
skömmu. Vladim-
ir Kramnik
(2.809) náði sér ekki á strik
á mótinu og varð áttundi á
meðal 12 keppenda. Hann
átti þó sína spretti og hér
tókst honum með svörtu að
leggja Peter Leko (2.713) að
velli. 34...Hc2! 35. Dg4 35.
Hxc2 gekk ekki upp vegna
35...e2+ 36. Kh2 Dxg2#.
Framhaldið varð: 35...Hxb2!
36. f6 g6 37. f7+ Dxf7 og
hvítur gafst upp enda manni
og stöðunni undir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
SPILAMENNSKA suðurs
í fjórum hjörtum er næst-
um því sjálfgefin og myndi
ekki vefjast fyrir neinum
við „græna borðið“. En ill-
ur grunur læðist að les-
andanum þegar spilið er
sett á „teikniborðið“. Er
einhvers staðar fiskur und-
ir steini?
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ G752
♥ 52
♦ ÁD4
♣ÁK96
Suður
♠ K
♥ KD10983
♦ KG95
♣D8
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar *
Pass 2 grönd Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
* geimkrafa
Hvernig á að spila með
litlum tígli út?
Í hreinskilni sagt kemur
varla neitt annað til greina
en að spila laufi þrisvar og
henda spaðakóng. En um
leið er ljóst af samhenginu
að sú leið er dæmd til að
misheppnast. Og víkur þá
sögunni til vesturs:
Norður
♠ G752
♥ 52
♦ ÁD4
♣ÁK96
Vestur Austur
♠ D983 ♠ Á1064
♥ ÁG3 ♥ 74
♦ 10872 ♦ 63
♣107 ♣G5432
Suður
♠ K
♥ KD10983
♦ KG95
♣D8
Sagnhafi tekur á tígulás,
spilar laufi þrisvar og
hendir spaðakóng. Vestur
trompar með þristinum og
íhugar framhaldið. Skipt-
ing suðurs liggur nokkuð
ljós fyrir – hann á þrjú
svört spil og sennilega 6-4
í rauðu litunum. Þar með
sér vestur fallega fléttu:
Hann spilar tígli. Sagnhafi
svarar með hjartakóng, en
vestur tekur strax á ásinn
og gefur makker tígul-
stungu. Fær svo lauf til
baka og uppfærslu á
trompgosanum. Vörnin
hefur þannig fengið fjóra
slagi á tromp.
Sagnhafi gat auðvitað
unnið fjögur hjörtu með
því að spila strax trompi,
en það má teikna upp ýms-
ar legur þar sem sú leið er
ekki gæfuleg. Til dæmis
ÁGxx í trompi í vestur og
einspil í tígli, en spaðásinn
í austur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur góða félagslega
hæfilega. Þú átt gott með
samskipti, sérstaklega
innan samtaka.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það kemur þér á óvart hversu
auðveldlega þér reynist að fá
þínu framgengt í vinnunni í
dag. Þetta sannar það að bý-
flugur laðast fremur að hun-
angi en ediki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Afstaða stjarnanna felur í sér
loforð um stuðning og frið þér
til handa. Leitaðu leiða til að
njóta lífsins.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nýttu þér hvert tækifæri sem
gefst í dag til líkamsræktar.
Þú þarft að sleppa lausri orku
sem hefur hlaðist upp innra
með þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Njóttu samræðna við vin,
hópa og samtök. Þú ert í góðu
formi í dag og munt vekja
hrifningu annarra fyrir nú-
tímalega hugsun.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú nýtur athygli annarra
vegna þess að þér líður vel í
sviðsljósinu. Fólk er farið að
taka eftir þér og lítur á þig
sem fyrirmynd.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fyrirætlanir þínar um að
bæta við menntun þína eru
góðar. Hlýddu þeim í dag með
því að skrá þig á námskeið í
dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í dag ættir þú að skila bókum
og öðrum munum sem þú hef-
ur fengið að láni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn í dag er kjörinn til
þess að koma á ný sambönd-
um sem farið hafa út um þúfur
vegna misskilnings. Þar sem
þú áttar þig fljótt á tilfinning-
um annarra muntu vita hvað
er best að segja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér getur orðið ágegnt í
vinnunni í dag vegna þess að
yfirmenn eru móttækilegir
fyrir uppástungum þínum.
Samstarfsfólk þitt er einnig
hjálplegt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Málefni tengd ástinni, róman-
tík og jafnvel léttúðugu daðri
gera daginn mjög spennandi
fyrir þig. Einhver sem býr
langt í burtu mun reyna að
komast í samband við þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áform þín um að bæta heim-
ilið eða fjölskylduna munu fá
þann stuðning sem þú hefur
óskað eftir. Aðrir eru reiðu-
búnir að veita fjárhagslega að-
stoð svo þú getir framkvæmt
áform þín.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hæfileiki þinn til að ná til fólks
er í hámarki í dag. Þú finnur
til sjálfstraust þegar kemur að
kennslu, sölumennsku, skrif-
um og markaðssetningu
vegna þess að þú munt hrífa
aðra með orðavali þínu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Með morgunkaffinu
Er samkomulagið ekkert að lagast…?!
Bankastræti 14, sími 552 1555
Sumardragtir
Jakkar frá 8.950 - Buxur frá 5.950
Pils frá 5.600
SUNDBOLIR OG BIKINI
í skálastærðum
Stuttbuxur, strandkjólar og -sloppar
Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá,
Rýmingarsala á ANTIK
Laugavegi 101, sími 552 8222.
Opið mánudag-laugardags frá kl. 11-18
Verslunin flytur
Allt að 50% afsláttur
Einstakt tækifæri til að koma með í spennandi
16 daga rútuferð um Færeyjar og Noreg,
auk hringferðar um Ísland.
Ljúf sigling með Norrænu milli landa. Ferðast í lúxusrútu
með góðri leiðsögn og gist á bestu hótelum.
Almennt verð 155.900.
Fararstjóri: Kristján M. Baldursson.
Kynningarfundur í dag, þriðjudag 23. apríl, kl. 18
í Ferðafélagshúsinu í Mörkinni 6 (risi).
Spennandi rútu- og skemmtiferð
með Vestfjarðaleið 12.-27. júní
Vestfjarðaleið, Ferðaskrifstofa, Skógarhlíð 10,
s. 562 9950, info@vesttravel.is
Sjá heimasíðu: www.vesttravel.is
Þrjár heildsölur
1. Heildverslun sem selur vörur fyrir matvæla- og sjávarútvegsfyrir-
tæki. Góð umboð og fastir viðskiptavinir. Góð velta.
2. Heildverslun með hárvörur og ýmiss heimilistæki og tól. Er með
vörur sem gott er að selja í heimasölu. Gott verð.
3. Heildverslun með hárskraut, töskur og eldhúsáhöld. Er með góð
viðskiptasambönd og gott dreifikerfi. Laust strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu.
Sími 567 3718
virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
BUXNADAGAR
15% afsláttur af nýjum buxum
20-70% afsláttur af eldri buxum
Opið