Morgunblaðið - 18.05.2002, Síða 17
Stjúpu
tilboð
Fullt verð á
30 stjúpum: 2.400 kr.
30 stk. aðeins 1.199 kr.
(Blandaðir litir)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
77
85
05
/2
00
2
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 17
ELFAR Guðni myndlistarmaður hefur nýverið
tekið í notkun nýja vinnustofu sem staðsett er í
fyrrverandi húsnæði Hraðfyrstihúss Stokkseyrar.
Það er nú í eigu Hólmarastar sem er saltfisk-
vinnsla. Þegar fréttaritari leit inn hjá Elfari og
spurði hann út í þessa nýju aðstöðu sagði hann að
eigendur Hólmarastar hefðu komið að máli við sig
og boðið sér þessa aðstöðu og hann ákveðið að slá
til og sjái ekki eftir því.
Við það að Hólmaröst keypti húsið og kom með
starfsemi sína þangað fyrir nokkrum árum, og
hefði sýnt vilja til að fylla það aftur af lífi, hefði
bjartsýni sín aukist sem ef til vill má sjá í mynd-
unum því þær eru mun mildari og jákvæðari. Það
eru ekki sömu átök og áður.
Fréttaritari spyr Elfar út í allar þessar möppur
sem hann er með og er búinn að mála á þær marg-
ar. Svarar hann því til að þegar hann flutti inn
hafi verið þar heil ósköp af möppum frá fyrri eig-
endum, sennilega um 500 möppur. Hann hafi
fengið að eiga þær og farið að velta fyrir sér hvað
gera ætti við möppurnar og hafi sér dottið í hug
að mála á þær myndir í léttum stíl af lífinu á
Stokkseyri bæði í nútíð og fortíð.
Elfar mun einnig nota vinnuaðstöðuna sem
sýningarsal sem hann kallar Gallerý Svartaklett
og mun opna þar sýningu á verkum sínum í dag,
laugardaginn 18. maí. Sýningin stendur til 9. júní.
Þetta er 38. einkasýning Elfars sem vanalega
hefur sýnt í samkomuhúsinu Gimli en vegna
breyttrar notkunar á því gangi það ekki upp.
Sýningin er opin um helgar kl. 14–22 og virka
daga kl. 17–22.
Þess má til gamans geta að oftar en ekki hafa
komið um 1.000 manns á sýningar Elfars Guðna í
gegnum árin.
Elfar Guðni sýnir á Eyrarbakka
Stokkseyri
Ljósmynd/Gísli Gíslason
EIGENDUR Kjarvalsverslananna
hafa látið það boð út ganga að
verslununum á Stokkseyri og Eyr-
arbakka verði lokað um mánaða-
mótin júní og júlí. Þetta eru einu
verslanirnar á báðum stöðunum og
því er kvíði í fólki yfir að enginn
skuli ætla að taka við þeim.
Á Selfossi eru tvær lágvöru-
verslanir með matvöru, Bónus og
Krónan, auk stórmarkaðar KÁ og
verslunarinnar Hornsins, sem
einnig er matvöruverslun.
Sjálfsagt kaupir fólk nauðsynjar
sínar þar sem verðið er lægst, að
öllu jöfnu, og því hafa viðskipti
Eyrbekkinga vafalítið flust til
fyrrgreindra verslana á Selfossi.
Ef fólk vantar nagla eða saumnál-
ar, svo eitthvað sé nefnt, verður að
sækja það á Selfoss og ferðin þá
jafnframt notuð til annarra inn-
kaupa.
Þessi lokun verslananna kemur
þó verst niður á þeim sem ekki
hafa yfir bíl að ráða, svo sem
mörgum eldriborgurum. Það mun
vera í athugun hvort bensínstöðv-
arnar geti bjargað málunum á ein-
hvern hátt, að minnsta kosti hvað
varðar mjólkurvörur, brauð og
aðrar nauðsynlegustu vörur sem
heimilin þarfnast.
Kjarvali
lokað
Eyrarbakki
UM hvítasunnuna verður opnuð leir-
listar- og málverkasýning í Óðins-
pakkhúsinu á Eyrarbakka. Þar hef-
ur undanfarið verið tekið til
hendinni við hvers konar lagfæring-
ar. Síðast þjónaði þetta hús sem
veiðarfærastöð, en upphaflega var
þetta reist af Kaupfélaginu Heklu
árið 1913 og þá auðvitað kallað
Heklupakkhús og framundan því var
Heklubryggja.
Sýnendur í Óðinsgalleríi; eru Ingi-
björg Klemensdóttir, sem sýnir leir-
og postulínsverk, og Sverrir Geir-
mundsson sem sýnir olíumálverk.
Sýningin verður opin um helgar
og eftir samkomulagi aðra daga,
fram á 17. júní.
Málverka-
og leirlistar-
sýning
Eyrarbakki
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Veiðiskap-
urinn er
kominn á
fulla ferð
Selfoss
NÚNA er allt á fullu í veiðiskapn-
um og mjög góð vorveiði hérna í
kring, til dæmis í Hlíðarvatni,“
sagði Ágúst Morthens í Veiðisporti
á Selfossi en hann hefur gjarnan
fingurinn á veiðipúlsinum á Sel-
fossi. „Það voru nokkrir félagar
mínir að koma úr veiði í Hlíð-
arvatni með 27 fiska og þar á und-
an voru menn að fá þetta 15–15
fiska á dag. Í Soginu er aðeins
minni veiði en heldur stærri fisk-
ur. Svo eru menn að missa stórar
bleikjur í Hlíðarvatni, það var
saga um einn sem missti um 10
punda bleikju og eingöngu fyrir
það að menn eru með granna
tauma svona á vorin enda bleikjan
mjög taumafælin,“ sagði Ágúst
Morthens.