Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 12/5 –18/5
ERLENT
INNLENT
VILJAYFIRLÝSING
heilbrigðisráðherra og
borgarstjóra um öldrunar-
þjónustu felur í sér að
hjúkrunarrýmum í borg-
inni yrði fjölgað um 284 og
að eignarhlutur ríkisins í
hjúkrunarheimili í Soga-
mýri verði 70%.
TEKJUR deCODE á
ársfjórðungi þeim sem
lauk 31. mars voru 865
milljónir króna en voru 5
milljónir á sama tímabili
árið 2001.
HARALDUR Örn Ólafs-
son komst á tind Everest á
fimmtudagsmorgun. Hann
er fimmti maðurinn í
heiminum til að komast á
hæsta tind hverrar heims-
álfu og suður- og norður-
pólinn. Hann setti heims-
met í því að komast á
pólana og hátindana sjö á
sem skemmstum tíma.
DEILUR hafa staðið
milli forstjóra og stjórnar-
formanns Byggðastofn-
unar. Gekk forstjóri af
fundi stjórnar í byrjun maí
þegar honum var meinað
að taka ársreikninga fyrir
á fundinum. Stjórnarfor-
maður segir ástæður
deilna húsnæðiskaup for-
stjórans og stofnunarinnar
sem hann hafi gert at-
hugasemd við.
GUÐJÓN Þórðarson
knattspyrnustjóri verður
ekki áfram við stjórnvöl-
inn hjá Stoke City og hef-
ur stjórn félagsins rift
samningi við hann sem
gerður var til eins árs í
maí á síðasta ári. Lögfræð-
ingar Samtaka knatt-
spyrnustjóra skoða nú
málið.
Allir utanríkisráðherr-
ar NATO-ríkja mættu
UTANRÍKISRÁÐHERRAR allra að-
ildarríkja Atlantshafsbandalagsins
sátu vorfund NATO í Reykjavík.
Erlendir þátttakendur á fundinum
voru rúmlega 750 að meðtöldum sendi-
nefndum og alþjóðlegu starfsliði Atl-
antshafsbandalagsins. Þá voru nokkur
hundruð erlendir fréttamenn við-
staddir fundinn. Strangar öryggisráð-
stafanir voru gerðar á svæðinu þar
sem fundirnir voru haldnir.
Á fundinum var gengið frá samningi
um stofnun sameiginlegs samstarfs-
ráðs NATO-ríkjanna og Rússlands
sem veitir Rússum aðild að ákvörðun-
um bandalagsins.
Ráðherrarnir staðfestu á fundinum
þann ásetning sinn að ráða niðurlögum
alþjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi og
sögðust staðráðnir í að styrkja og efla
viðbúnað eigin ríkja og sameiginlegan
viðbúnað til að taka á þessari nýju ógn.
Varnarliðið hluti
af gagnkvæmum
varnarviðbúnaði
HALLDÓR Ásgrímsson og Colin
Powell, utanríkisráðherrar Íslands og
Bandaríkjanna, áttu óformlegar við-
ræður um tvíhliða samskipti landanna.
Sagði Powell á fréttamannafundi eftir
viðræðurnar að samband landanna
væri byggt á afar traustum grunni.
Hann sagði að Bandaríkjamenn átt-
uðu sig á mikilvægi veru Bandaríkja-
hers hér á landi sem hluta af gagn-
kvæmum varnarviðbúnaði landanna.
Halldór Ásgrímsson sagði að ljóst
væri að Bandaríkjamenn ætluðu sér
að standa við þær skuldbindingar sem
þeir hafi gagnvart Íslendingum með
varnarsamningnum. Sagði hann að
ekkert annað lægi fyrir en að þær flug-
vélar, sem Bandaríkjaher hefur haft
hér á landi í samræmi við bókun við
varnarsamning Íslands og Bandaríkj-
anna, yrðu hér áfram.
Samið um fækkun
kjarnavopna
RÚSSAR og Bandaríkjamenn hafa
komist að samkomulagi um að fækka
verulega kjarnavopnum beggja
ríkjanna. Verður samkomulagið und-
irritað af þeim Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta og George W. Bush, for-
seta Bandaríkjanna, þegar Bush
kemur til Moskvu nú í vikunni.
Mikil tíðindi urðu einnig á utanrík-
isráðherrafundi Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) og samstarfsríkja þess,
sem haldinn var hér í Reykjavík í vik-
unni. Þar var gengið frá samkomulagi
um nýtt samstarfsráð NATO og Rúss-
lands sem veitir Rússum aðild að
ákvörðunum bandalagsins.
Samstarfsráðinu er ætlað að verða
vettvangur þar sem NATO-ríkin nítján
og Rússland geta undirbúið, samþykkt
og síðan framfylgt ákvörðunum sem
snerta sameiginlega hagsmuni þeirra.
Samkomulagið verður undirritað á
fundi í Róm 28. maí nk.
Stórsigur hægri-
flokka í Hollandi
FULLVÍST er talið að Jan Peter
Belkenende, leiðtogi Kristilegra demó-
krata, verði næsti forsætisráðherra í
Hollandi en þingkosningar fóru fram í
landinu á miðvikudag. Kristilegir
demókratar unnu mikinn sigur og er
stærsti flokkurinn á þingi með 43 sæti,
en alls sitja 150 á hollenska þinginu.
Stjórnarflokkarnir guldu afhroð í
kosningunum en Verkamannaflokkur-
inn, flokkur Wims Koks fráfarandi for-
sætisráðherra, fékk aðeins 23 þing-
sæti, en hafði 45 áður. Næststærsti
flokkurinn á þingi eftir þessar kosn-
ingar er Listi Pims Fortuyns, stjórn-
málamannsins umdeilda sem myrtur
var nýverið. Flokkurinn fékk 26 menn
kjörna og er talinn líklegur til að eiga
aðild að ríkisstjórn. Mat Herben var
kjörinn nýr leiðtogi flokksins en hann
er fyrrverandi blaðamaður.
MIÐSTJÓRN Likud-
bandalagsins, flokks Ar-
iels Sharons, forsætisráð-
herra Ísraels, samþykkti í
vikunni tillögu þar sem
lýst er þeirri afstöðu að
Palestínumenn eigi ekki
að fá eigið ríki. Niður-
staða miðstjórnarinnar
gekk þvert gegn vilja
Sharons.
JIMMY Carter, fyrrver-
andi forseti Bandaríkj-
anna, heimsótti Kúbu og
hvatti hann þá Fidel
Castro, forseta Kúbu, m.a.
til að leyfa breytingar í
lýðræðisátt í landinu. En
Carter lýsti því líka yfir að
Bandaríkin ættu að aflétta
viðskiptabanni sínu á
Kúbu.
Endurskoðunarfyrir-
tækið Arthur Andersen er
nú í talsverðum vanda eft-
ir að David Duncan, fyrr-
verandi starfsmaður þess,
upplýsti fyrir rétti í
Bandaríkjunum að honum
hefði verið ljóst að verið
væri að fremja lögbrot
þegar Andersen ákvað að
eyða gögnum um Enron-
raforkufyrirtækið, sem nú
er farið á hausinn.
HÚN olli miklu upp-
námi í Bandaríkjunum sú
uppljóstrun að George W.
Bush Bandaríkjaforseta
hefðu verið veittar upplýs-
ingar um það fyrir 11.
september sl. að möguleiki
væri á að hryðjuverka-
menn á vegum Osama bin
Ladens hygðust ræna
bandarískum flugvélum.
Bush segir að upplýsing-
arnar hafi verið almennar
og að gripið hafi verið til
viðeigandi ráðstafana.
KYNJABUNDINN launamunur hjá
starfsmönnum Reykjavíkurborgar
mældist 7% í október 2001 og hefur
hann minnkað um helming frá því í
október 1995, þegar hann mældist
14%. Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands vann skýrslu um samanburð
launa karla og kvenna hjá Reykjavík-
urborg og var skýrslan kynnt í gær.
Ef borin eru saman dagvinnulaun
karla og kvenna er munurinn ekki
mælanlegur og virðist þessi 7% mun-
ur liggja í yfirvinnugreiðslum.
Árið 1995 fól borgarstjóri Fé-
lagsvísindastofnun að kanna launa-
mun kynjanna hjá Reykjavíkurborg
og voru markmiðin með könnuninni
að greina rætur jafnlaunavandans. Í
mars 1995 mældist óskýrður launa-
munur karla og kvenna 15,5%, en
14% í október sama ár eins og fyrr
segir.
„Í kjölfarið einsettum við okkur að
breyta þessu og draga úr þessum
launamun og höfum unnið að því síð-
an með margvíslegum aðgerðum.
Borgin setti sér starfsmanna- og
jafnréttisstefnu, auk þess sem hún
mótaði sjálfstæða stefnu í kjara-
samningaviðræðum við sína samn-
ingsaðila,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri. Hún telur
að þessar markvissu aðgerðir séu að
skila árangri, það sjáist í könnuninni
nú.
Að sögn Ingibjargar eru ýmsir
þættir sem útskýra þessa þróun, ekki
síst kjarasamningsatriði, eins og
stórhækkun grunnlauna í mörgum
hefðbundnum kvennastörfum og
samræming á launatöflu fyrir stóran
hluta borgarstarfsmanna. Hún legg-
ur áherslu á að enn sé sjö prósenta
munur til staðar og það sé sjö pró-
sentum of mikið.
Miklar vonir bundnar
við samræmt starfsmat
„Við hljótum að stefna að því að
reyna að eyða þessum mun. Það er
samt erfitt að sjá að það verði ein-
göngu gert í gegnum kjarasamninga,
vegna þess að munurinn skýrist enn í
yfirvinnugreiðslum,“ segir hún og
bendir á að nú séu bundnar miklar
vonir við samræmt starfsmat fyrir
alla fjölmenna starfshópa hjá
Reykjavíkurborg, en þegar hefur
verið samið við um 64% starfsmanna
Reykjavíkurborgar um að ganga inn
í slíkt samræmt starfsmat.
„Ég hef aldrei rekist á könnun,
hvorki hérlendis né erlendis, sem
hefur sýnt jafnstóra sveiflu á jafn-
skömmum tíma,“ segir Hildur Jóns-
dóttir, jafnréttisráðgjafi Reykja-
víkurborgar. Hún segir það
jafnframt hafa komið sér á óvart að
launamunurinn hafi minnkað svona
mikið undanfarið, þar sem fræði-
kenningar geri ráð fyrir að launa-
munur kynja aukist á þensluskeiði og
við séum nýbúin að ganga í gegnum
þensluskeið. Skýringarnar á þessu
segir Hildur vera að á vinnumark-
aðnum gildi ýmis lögmál, sem stuðli
að því að halda bilinu breiðu eða stía
kynjunum í sundur aftur. „Þegar at-
vinna eykst og efnahagsástand batn-
ar eru karlmenn oft í störfum, sem
meiri markaðssamkeppni er um. Til
dæmis geta iðnaðarmenn og verk-
fræðingar teflt yfirboðum úr einka-
geiranum fram á móti atvinnurek-
endum hjá hinu opinbera til að
þrýsta á launin. Konur eru miklu síð-
ur með þessa markaðsaðstöðu á
vinnumarkaðnum. Markaðslögmálið
virðist ekki virka á sama hátt fyrir
konur og karla,“ bendir Hildur á.
Stella Blöndal hjá Félagsvísinda-
stofnun segir að sömu aðferðafræð-
inni hafi verið beitt við könnunina nú
og könnunina 1995. „Þetta er söguleg
rannsókn sem við erum að gera núna,
að því leyti að þetta er í fyrsta skipti
sem við framkvæmum könnun fyrir
sveitarfélag í annað sinn þannig að
hægt sé að bera saman og skoða hvað
gerst hefur. Reykjavíkurborg hefur
lagt mikla áherslu á að reyna að út-
rýma þessum kynbundna launamuni
og nú erum við að reyna að leggja
mat á það hvað hefur gerst á þessum
árum frá 1995 til 2001,“ nefnir hún.
Að sögn Stellu hefur sama að-
ferðafræði verið notuð fyrir önnur
sveitarfélög, til dæmis Akureyrarbæ
árið 1998. Þar mældist launamunur-
inn um 8%, þegar allir hópar voru
teknir með.
!
#
$ #&
' #&!%
!
#"
!%
$"
$" %
$!
!
(&!%
!
#
$ #&
' #&!%
!
#"
!%
$"
$" %
$!
!
(&!%
!
!" "
)
*
+
!
Skýrsla Félagsvísindastofnunar um launamun
karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg
Munurinn liggur í
yfirvinnugreiðslum
GÍSLI Ólafsson, læknir á Blönduósi,
er í góðu líkamlegu formi. Hann
lætur sig ekki muna um að hjóla í
vinnuna þegar hann er að sinna
störfum á heilsugæslunni á Skaga-
strönd. Vegalengdin sem hann hjól-
ar er 23 kílómetrar hvor leið þann-
ig að til að komast í og úr vinnu
hjólar hann 46 kílómetra.
Þegar fréttaritari hitti Gísla
kvaðst hann hafa verið um 45 mín-
útur að hjóla frá Blönduósi til
Skagastrandar enda hefði hann far-
ið rólega – „… því það lítur ekki vel
út að maður sé rennsveittur að tala
við fólk sem mætir á heilsugæsl-
una“, sagði hann.
Gísli er einn þeirra sem fyrir
stuttu fengu afhent ný, mjög full-
komin og dýr keppnishjól eins og
áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu. Hann er líka vanur hjól-
reiðamaður og hefur æft hjólreiðar
um nokkurn tíma.
Hjólar 23
kílómetra
í vinnuna
Skagaströnd. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson