Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 50
Hver þekkir ljóðið?
ÁGÆTU lesendur! Kann
einhver ykkar ljóð þar sem
í eru eftirfarandi erindi,
sem vera kann að ég muni
þó ekki rétt. Ég heyrði
þetta sungið í útvarpi fyrir
mörgum árum en man ekki
hver söngvarinn var.
Einnig þætti mér vænt
um ef einhver gæti upplýst
mig um hver höfundur
ljóðsins er.
Oft ég klifraði háa hjalla
upp á hæstu brúnir fór
og ég trúði því varla að verið
gæti
veröldin svona stór.
Þá kom yfir mig þessi útþrá
að engan ég festi blund
og úr átthögum mínum ég
ætlaði bara
um ofurlitla stund.
En nú lít ég í fjarska fjöllin
þar sem forðum ég ungur var
og ef aftur ég kem þangað
einhvern tíma
er ég sem gestur þar.
Með fyrirfram þökk.
Sveinbjörn Bjarnason,
s.: 468 1210, fax 468 1211,
póstfang: svbjarna@sim-
net.is
Góð þjónusta
í Stúdíóblómum
ÉG vil koma á framfæri
ánægju minni með blóma-
verslunina Stúdíóblóm í
Mjóddinni. Þar ríkir mikil
fagmennska, gott viðmót
og gott verð. Vil ég hvetja
fólk í hverfinu til að versla
á heimaslóðum.
Húsmóðir í Seljahverfi.
Dýrahald
Zorro vantar heimili
10 MÁNAÐA fress vantar
heimili. Zorro er frekar loð-
inn, svartur og hvítur og
hann er inniköttur. Upplýs-
ingar í síma 564 4608. Mjög
gæfur og vanur börnum.
Gormur er týndur
GORMUR týndist 10. apr-
íl. Hann er svartur og hvít-
ur með hvítar loppur mjög
loðið skott og hvítur á
bringu. Hans er sárt sakn-
að. Ef eitthverjir hafa orðið
var við Gorm eru þeir vin-
samlegast beðnir að hafa
samband í síma 587-5609
eða 846-6075. Fundarlaun í
boði. Ath. Gormur er inni-
kisa og hefur því aldrei far-
ið út nema í þetta skiptið
svo hann kann að vera
mjög hræddur.
Þrílita læðu
vantar heimili
ÁRS gömul þrílit læða, blíð
og góð, vantar heimili
vegna ofnæmis eigenda.
Upplýsingar í síma
869 3268.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
ÍBÚI í Reykjavík hefur
áhuga á að vita hvort
nokkur eigi svona vegg-
teppi eins og þetta sem
myndin er af. Mótívið
mun vera kaupmaðurinn
í Feneyjum eftir Shake-
speare.
Teppið var að lík-
indum teiknað sér-
staklega upp sem vegg-
teppi og ofið í verk-
smiðju, sem sést af því
að vefnaðurinn er jafn
og litir fábreyttir. Um-
rætt teppi er ekki yngra
en 100 ára en varla
eldra en 150 ára. Stell-
ingar persónanna minna
á nýklassískan stíl um
1870 en búningar og
húsgögn eru samkvæmt
tísku sem ríkti á tímum
Shakespeares.
Þekki einhver svona
teppi þá vinsamlega látið
vita í síma 551-5746.
Veggteppi
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
fara út Brúarfoss og
Marschenland.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun fer Brúarfoss.
Mannamót
Aflagrandi 40 „Vor í
vesturbæ.“ Dagana 23.
24. og 25. maí frá kl. 13–
17 verður hátíð með
söng, dans og veislukaffi.
Allir velkomnir.
Eldri borgarar, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið í Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30. Spil og föndur.
Lesklúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11. Kór-
æfingar fimmtudaga kl.
17–19. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16. Uppl. um fót-, hand-
og andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Fræðslufundur um bein-
vernd í umsjá Halldóru
Björnsdóttur verður í
Dvalarheimilinu Hlað-
hömrum miðvikudaginn
22. maí kl. 20. Lyfja mun
kynna beinþéttnimæl-
ingu (ómskoðun).
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Á þriðjudag: Brids. Nýir
spilarar velkomnir.
Saumur undir leiðsögn
og frjáls handavinna kl.
13.30. Spænskukennsla
kl. 16.30. Vestmanna-
eyjaferð 2.–4. júlí. Rúta,
Herjólfur, gisting í 2
nætur. Frekari upplýs-
ingar og skrásetning í
Hraunseli og í síma 555-
0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og mat-
ur í hádegi.
Þeir sem hafa skráð sig í
Vestfjarðaferð 18.–23.
júní og Vestmannaeyjar
11.–13. júní þurfa að
staðfesta ferðina fyrir
18. maí.
Dagsferð 27. maí; Hafn-
arfjörður-Heiðmörk.
Kaffi og meðlæti. Leið-
sögn: Páll Gíslason og
Pálína Jónsdóttir. Brott-
för frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 13, skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB.
Fræðslunefnd FEB
stendur fyrir ferð í
skrúðgarða Reykjavíkur
29. maí. Brottför frá Ás-
garði, Glæsibæ, kl. 13.30,
skráning á skrifstofu
FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í Ás-
garði, Glæsibæ. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB.
Félagsvist og dansinn
falla niður í dag.
Brids verður ekki spilað
á mánudaginn 20. maí.
Þriðjudagur 21. maí.
Skák kl. 13.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
frá kl. 10–12. í s.
588 2111. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt í Faxafen
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ.
Sýning á handverki eldri
borgara dagana 26.–31.
maí, að báðum dögum
meðtöldum. Kaffi-
húsastemmning og lif-
andi tónlist. Tekið á móti
munum á sýninguna
þriðjud. 21. maí í Selinu.
Vesturgata 7. Farið
verður miðvikudaginn
22. maí í Borgarleikhúsið
að sjá leiksýninguna
„Kryddlegin hjörtu“.
Skráning í síma
562 7077.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Kvenfélag Kópavogs,
farið verður út að borða
23. maí. Tilkynna þarf
þátttöku sem fyrst hjá
Ólöfu, s: 554 0388 eða
Guðmundu, s: 554 5164.
Mæting kl. 19.15 í
Hamraborg 10.
Orlofsnefnd húsmæðra í
Kópavogi. Á vegum
nefndarinnar verða farn-
ar tvær ferðir á þessu
sumri: að Kirkjubæj-
arklaustri 13.–15. júní, í
Skagafjörð 22.–24.
ágúst. Hvíldar- og hress-
ingardvöl að Laug-
arvatni 24.–30. júní.
Innr. í s. 554 0388, Ólöf,
s. 554 2199, Birna.
Minningarkort
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minningar-
kort til stuðnings orlofs-
vikum fyrir krabba-
meinssjúka og langveika
fást í síma 587-5566, alla
daga fyrir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu gíró-
seðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru til
sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551-3509.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeonfélags-
ins er að finna í and-
dyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og víð-
ar. Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýja testamentum sem
gefin verða 10 ára skóla-
börnum eða komið fyrir
á sjúkrahúsum, hjúkr-
unarheimilum, hótelum,
fangelsum og víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort
Grafarvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að
nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Reykja-
vík.
Líknarsjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði, eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði
fást í Bókabúð Böðvars,
Pennanum í Hafnarfirði
og Blómabúðinni
Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjushúsinu
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju Vesturbrún 30
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28, í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum í Reykja-
vík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Lág-
múla 9, s. 535-1825. Gíró
og greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra,
Lönguhlíð, Garðsapótek,
Sogavegi 108, Árbæj-
arapótek, Hraunbæ
102a, Bókbær í Glæsibæ,
Álfheimum 74, Kirkju-
húsið, Laugavegi 31,
Bókabúðin Grímsbæ v/
Bústaðaveg, Bókabúðin
Embla, Völvufelli 21,
Bókabúð Grafarvogs,
Hverafold 1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavogur:
Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10, Kefla-
vík: Apótek Keflavíkur,
Suðurgötu 2, Lands-
bankinn, Hafnargötu
55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vest-
urlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borgarnes:
Dalbrún, Brákabraut 3.
Grundarfjörður: Hrann-
arbúð sf, Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guðmundsd.
Laugarholti, Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Austur-
landi: Egilsstaðir:
Gallery Ugla, Mið-
vangur 5. Eskifjörður:
Póstur og s., Strandgötu
55. Höfn: Vilborg Ein-
arsdóttir, Hafnarbraut
37.
Í dag er sunnudagur 19. maí, 139.
dagur ársins 2002. Hvítasunnu-
dagur. Orð dagsins: Drottinn hefir
heyrt grátbeiðni mína. Drottinn
tekur á móti bæn minni.
(Sálm. 6, 10.)
Víkverji skrifar...
GUÐJÓN Þórðarson verður ekkiþjálfari knattspyrnuliðsins
Stoke City í Englandi áfram. Það
hefur virst augljóst í nokkurn tíma
að annar hvor yrði að víkja, Guðjón
eða Gunnar Þór Gíslason, stjórn-
arformaður félagsins, vegna þess
að andað hefur köldu á milli þeirra.
Víkverji veltir því fyrir sér hver
taki við af Guðjóni sem knatt-
spyrnustjóri Stoke og hvort ekki sé
undarlegt út á við að Íslendingur-
inn hætti nú sem þjálfari. Loks
þegar takmarkið næst og liðið vinn-
ur sér sæti í 1. deildinni er hann lát-
inn fara!
x x x
SVO má velta því fyrir sér hvern-ig íslenskur almenningur
bregst við, sem á sínum tíma keypti
hlutabréf í félaginu. Einn úr þeim
hópi, sem hafði samband við Vík-
verja, sagði aðeins eina ástæðu hafa
verið fyrir því að hann setti peninga
í félagið: hann hefði tröllatrú á Guð-
jóni Þórðarsyni sem þjálfara og
væri viss um að hann gæti gert
góða hluta með Stoke. Hann hefði
ekki keypt sér hlut í félaginu til
þess að Gunnar Þór Gíslason, eða
einhver annar hinna íslensku fjár-
festa, yrði stjórnarformaður ensks
félagsliðs!
Skyldi íslenskur almenningur
hafa sama áhuga á að eiga hluta-
bréf í Stoke eftir að Guðjón fer?
Eða skiptir það kannski engu máli
hjá þorra fólks hvort hann er við
stjórnvölinn eður ei?
x x x
ÞÁ ER sumarið komið! Sólin far-in að skína og fótboltinn að
rúlla. Íslandsmótið hefst á morgun
og Víkverji bíður spenntur eftir því
að sjá hvernig knattspyrnumenn
koma undan vetri.
Strax í fyrstu umferð Símadeild-
arinnar, efstu deildar karla, á
morgun, mætast m.a. FH og Fylk-
ir, sem reiknað er með að verði
bæði við toppinn í sumar, auk þess
sem KR og Grindavík eigast við í
vesturbænum í Reykjavík; alltaf er
mikils vænst af KR-ingum, a.m.k.
af hörðustu stuðningsmönnum fé-
lagsins, og Grindvíkingum er að
þessu sinni spáð Íslandsmeistara-
tign í árlegri könnun þjálfara, fyr-
irliða og forráðamanna félaganna í
Símadeildinni. Víkverji er ánægður
með hve Grindvíkingum er spáð
góðu gengi. Það yrði stórskemmti-
legt ef lið frá svo litlu bæjarfélagi
sem Grindavík er næði að vinna
meistaratitil. Sá árangur yrði öðr-
um smærri byggðarlögum gott for-
dæmi, og sýndi forystumönnum
bæjarfélaga og íþróttamönnum að
allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
x x x
VÍKVERJI hafði lúmskt gamanaf því að aka í nágrenni hótels
Sögu meðan á utanríkisráðherra-
fundi NATÓ stóð í síðustu viku.
Gríðarleg öryggisgæsla var á svæð-
inu, eins og talsvert var fjallað um í
fréttum, nokkuð myndarlegri girð-
ingu var komið fyrir á Melunum og
hugurinn reikaði til baka. Til að
fullkomna verkið, og gefa fólki
tækifæri til að endurlifa gamla tíð,
hefði verið smart að hafa girð-
inguna þónokkru hærri og úr báru-
járni og mála hana síðan græna eða
blágræna. Var ekki girðingin
kringum Melavöllinn gamla ein-
hvern veginn þannig síðustu árin?
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 galsafengin, 8 gróði, 9
nam, 10 erfiði, 11 stúlku-
barn, 13 sleifin, 15 hagn-
að, 18 bölva, 21 þreyta, 22
sverð, 23 treg, 24 kross-
gatna.
LÓÐRÉTT:
2 skellur, 3 dorga, 4
skella, 5 bareflis, 6 aumt,
7 eiga, 12 lítill maður, 14
dveljast, 15 blekking, 16
bónbjargarmann, 17
gömul, 18 bókum, 19
kátt, 20 eyðimörk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 ljóst, 4 búkur, 7 príla, 8 rósum, 9 náð, 11 atti,
13 gata, 14 lyfta, 15 tagl, 17 töng, 20 óra, 22 notum, 23
fauti, 24 aumur, 25 rella.
Lóðrétt: 1 loppa, 2 ólíkt, 3 tían, 4 borð, 5 kasta, 6 remma,
10 álfar, 12 ill, 13 gat, 15 tunna, 16 gætum, 18 ötull, 19
geiga, 20 ómar, 21 afar.