Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 35
Námsstyrkir
Landsbankans
NÍU námsmenn fengu afhenta
styrki frá Námunni, náms-
mannaþjónustu Landsbankans, í
Iðnó miðvikudaginn 15. maí. Allir
námsmenn sem eru félagar í
Námunni eiga rétt á að sækja um
þessa styrki. Alls bárust 202 um-
sóknir.
Þeir sem hlutu styrki að þessu
sinni voru: Háskólanám erlendis,
kr. 300.000 hver: Gréta Björk
Kristjánsdóttir, doktorsnám í
jarðfræði við University of Col-
orado, Sigríður Gunnarsdóttir,
doktorsnám í hjúkrunarfræði við
University of Wisconsin Madison
School of nursing, Gunnar Bjarni
Ragnarsson, sérfræðinám í lyf-
og krabbameinslækningum í Uni-
versity of Washington, Evgenia
Kristín Mikaelsdóttir, doktors-
nám í læknisfræði, University of
Washington, og Vigfús B. Al-
bertsson, meistaranám í sálgæslu
við Luther Seminary. Há-
skólanám á Íslandi, kr. 200.000
hver: Marinó Örn Tryggvason,
Bsc.-nám í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands, Katrín Þórarins-
dóttir, embættispróf í læknisfræði
við Háskóla Íslands. Listnám, kr.
200.000: Margrét Árnadóttir BA-
nám í tónlist í The Juilliard
School, New York. Framhalds-
skólanám, kr. 100.000: Sóley Kal-
dal, nemandi í Verslunarskóla Ís-
lands.
Þetta er í 13. sinn sem náms-
styrkir Landsbankans eru afhent-
ir, segir í fréttatilkynningu.
Morgunblaðið/Sverrir
víkingatímabils og afþreyingu –
væri eðlilegt framhald af því fram-
taki. Það er full ástæða til þess að
gefa slíkum möguleikum náinn
gaum.
Ímynd Íslands
Það er ósjaldan fjallað um mark-
aðssetningu Íslands sem ævintýra-
lands með öflugu næturlífi. Flestar
raddir sem heyrast eru skerandi
neikvæðar í garð ,,búlla“ og
drykkjuláta, þó ekki sé minnst ber-
um orðum á nektardans, eiturlyf og
vændi. Ég held að það séu sárafáir
sem vilji í raun og veru að ferða-
menn sem koma hingað séu neyt-
endur þess konar ,,menningar“. Það
orkar vægast sagt tvímælis ef Ís-
land auglýsir land og þjóð með því
að höfða til slíkrar lágkúru. Aftur á
móti er afar jákvætt að hugsa til
þess ferðafólks sem kemur til Ís-
lands til að fræðast um sérstöðu
þessa lands og til að kynnast ís-
lensku menningarlífi: skoða íslensk
söfn, hlusta á íslenska tónlistar-
menn, kaupa íslenskan fatnað, list-
muni og minjagripi – og læra um
sögu Íslands. Sá hópur getur auð-
veldlega stækkað ef rétt er staðið
að því. Spurningin er einföld: hvers
konar fólk vilja Íslendingar laða
hingað? Vilja Íslendingar selja
skrílmenningu eða eitthvað skárra?
Lokaorð
En það er ekki nóg að hugsjóna-
menn sitji heima í stofu og hristi
hausinn yfir því að þjóðin gæti ver-
ið á barmi mikils menningartaps ef
Íslendingur seldist til útlanda. Það
hlýtur að vera önnur leið. Við verð-
um að taka saman höndum – rík-
isstjórn, fyrirtæki, stofnanir og ein-
staklingar: allir sem kæra sig um
Ísland og íslenska menningu – og
leggja eitthvað af mörkum til að
koma Íslendingi til Íslands, því hér
á hann heima.
Höfundur er skjalaþýðandi og
Íslandsvinur.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 35
FRÉTTIR