Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 10
10 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
F
JÁRMÁL borgarinnar hafa
verið mjög til umræðu und-
anfarið. Hverjar voru
skuldir borgarinnar þegar
Reykjavíkurlistinn tók við
stjórn borgarinnar 1994 og
hverjar eru þær núna?
„Þegar fjallað er um
skuldir borgarinnar er mik-
ilvægt að gera greinarmun
á borgarsjóði annars vegar og fyrirtækjum
borgarinnar hins vegar. Langflestar fjárfest-
ingar sem borgarsjóðurinn fer út í eru ekki
arðbærar í hefðbundinni merkingu þess orðs;
skila ekki miklum tekjum inn í borgarsjóð;
þetta eru skólar, leikskólar, gatnamannvirki,
íþróttamannvirki, menningarstofnanir og svo
framvegis. Sjálfstæðismenn auglýsa að skuldir
borgarinnar í dag séu skattar á morgun. Þetta
er einfaldlega blekking. Skuldir sem hvíla á
borgarsjóðnum greiðast fyrst og fremst með
skattpeningum. Lán sem tekin eru af fyrir-
tækjum borgarinnar eru hins vegar greidd nið-
ur með tekjum fyrirtækjanna, hvort sem það
er hjá Félagsbústöðum sem hafa leigutekjur,
hjá Orkuveitunni í formi orkugjalda, hjá Höfn-
inni sem hefur tekjur af hafnargjöldum eða hjá
Bílastæðasjóði.
Þessi fyrirtæki hafa sjálfstæðan fjárhag og
eiga að standa undir skuldum sínum. Þess
vegna geri ég skýran greinarmun á því hvort
borgarsjóðurinn safnar skuldum eða fyrirtæk-
in. Heildarskuldir borgarsjóðs og fyrirtækja
borgarinnar voru 17,6 milljarðar árið 1994 en
eru nú 46,6 milljarðar. Þessi upphæð skiptist
þannig að í árslok 1994 skuldaði borgarsjóður
15,9 milljarða en skuldar nú 15, en fyrirtækin
sem skulduðu þá um 1,6 milljarða skulda nú
31,6.“
Gjaldskrá Orkuveitunnar lækkað að raungildi
Það er því ekki ágreiningur um að skuldir
borgarapparatsins í heild hafa aukist mikið síð-
an þið tókuð við?
„Það er ekki ágreiningur um tölur, heldur
um það hvort eigi að blanda saman borgar-
sjóðnum og fyrirtækjum borgarinnar og tala
um allt í sama orðinu. Það er deilt um hvort
skuldir fyrirtækjanna séu eðlilegar eða of mikl-
ar.“
Hvert er þitt mat á þessum miklu skulda-
hækkunum? Eru þær eðlilegar?
„Stór hluti þessara skulda er hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Hún skuldar núna 21,7 milljarða,
Félagsbústaðir skulda 7 milljarða, Reykjavík-
urhöfn 1,5 og önnur fyrirtæki 2,7 milljarða.
Félagsbústaðir taka 90% lán hjá Íbúðalána-
sjóði til þess að byggja og kaupa leiguíbúðir, og
þau lán greiðast upp á 50 árum og eiga að
greiðast af þeim leigutekjum sem Félagsbú-
staðir hafa. Á bakvið þessar skuldir er eigna-
myndun í íbúðum sem hafa markaðsvirði og
þær eignir eru meiri en nokkurn tíman skuld-
irnar.
Svo er það Orkuveitan; þrátt fyrir að fyr-
irtækið hafi ráðist í allar þessar fjárfestingar á
umliðnum árum hafa gjaldskrár hennar verið
að lækka að raungildi. Fjárfestingarnar hafa
því ekki komið niður á viðskiptavinum fyrir-
tækisins, þvert á móti eru framkvæmdir eins
og á Nesjavöllum, að skila Orkuveitunni millj-
arði í tekjur á þessu ári. Hagnaður Orkuveitu
Reykjavíkur á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs voru 1,4 milljarðar þannig að þetta er mjög
arðbært fyrirtæki. Ég hef engar áhyggjur af
skuldum Orkuveitunnar meðan hún ræðst í
fjárfestingar sem skila arði.“
Getur þú þá lofað því að á næstu fjórum ár-
um verði álögur á borgarbúa ekki hækkaðar
vegna aukinnar skuldasöfnunar?
„Já, það get ég. Til marks um það vil ég
nefna að samkvæmt þriggja ára áætlun á borg-
arsjóður 4–5 milljarða í afgang þegar búið er að
taka fyrir öllum rekstri.“
Hvert verður framhaldið í lántökum og
skuldaaukningu. Verður haldið áfram á sömu
braut?
„Varðandi Orkuveituna teljum við margt
benda til að það þurfi að fara í nýja jarðvarma-
virkjun á Hellisheiði á næstu árum. Það er
virkjun upp á 10 milljarða, en hún á líka að
standa undir sér. Ef menn sjá fram á arðbæra
fjárfestingu er ekkert að því að taka lán.
Við ætlum að þjóna tekjulægstu hópunum
með kaupum á 100 félagslegum leiguíbúðum á
ári og það verður ekki gert öðru vísi en að taka
áfram 90% lán hjá Íbúðalánasjóði. Það þýðir
auðvitað að það verður aukin skuldsetning hjá
Félagsbústöðum en á bakvið þá skuldsetningu
standa íbúðir sem hafa markaðsvirði.“
Talandi um arðbærar fjárfestingar; um-
deildasta fyrirtæki borgarinnar er Lína.Net en
tap á rekstri þess var 172 milljónir króna í
fyrra. Er það hlutverk borgarinnar, að þínu
mati, að reka fyrirtæki eins og þetta, jafn
áhættusamt og það er?
„Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð í
þeim efnum. Lína.net er þróunarfyrirtæki og
viðskiptaáætlanir gerðu ráð fyrir að fyrirtækið
yrði rekið með tapi fyrstu árin eins og flest fyr-
irtæki sem eru í mikilli uppbyggingu. Nú er bú-
ið að fjárfesta í ljósleiðurum og lögnum fyrir
2,6 milljarða og samkvæmt sömu áætlunum
mun fyrirtækið fara að skila hagnaði á kom-
andi árum.
Um það má auðvitað alltaf deila hvort op-
inberir aðilar eigi að koma að slíkum fyrirtæk-
um, en okkar mat var einfaldlega að Orkuveit-
an ætti grunnnet sem mætti þróa og nota til að
skapa á markaðnum einhverja samkeppni við
Landssímann, til dæmis í gagnaflutningum þar
sem þörf er fyrir mikla bandbreidd. Halló,
Frjáls farskipti og Íslandssími nota til dæmis
ljósleiðara Línu.nets. Ég tel nauðsynlegt að
veita Landssímanum samkeppni og ef einkaað-
ilar treysta sér ekki í þá fjárfestingu sem þarf í
upphafi til að skapa þær aðstæður þá finnst
mér rétt að Orkuveitan geri það. Landssíminn
er ríkisfyrirtæki sem stendur til að einkavæða
og einkavædd einokun er verri en ríkisrekin.“
Ætlið þið að eiga Línu.Net áfram?
„Það var aldrei hugmyndin í upphafi. Hún
var sú, að koma þessu á stofn, skapa þennan
möguleika – sem er í samræmi við það sem
gerst hefur í mörgum borgum á Norðurlönd-
unum. Það má hins vegar færa fyrir því rök að
við hefðum ef til vill ekki átt að stofna sérstakt
hlutafélag um þetta með öðrum heldur halda
þessu sem hluta af Orkuveitunni meðan verið
var að byggja grunnnetið upp, og selja síðan. Í
upphafi var að því stefnt að fá fleiri fjárfesta
inn í fyrirtækið en eins og við vitum hefur ekki
verið auðvelt að fá hluthafa inn í fjarskiptafyr-
irtækin á umliðnum árum. En við erum sem
sagt reiðubúin til þess að selja aukinn hlut í
Línu.Net ef viðunandi verð fæst.“
Sjálfstæðismenn hafa verið duglegir að
impra á því undanfarið að Alfreð Þorsteinsson
stjórni borginni í raun og veru og kalla vara-
borgarstjóra. Hvernig er stjórnskipulagið hjá
ykkur í R-listanum? Hver stjórnar borginni?
„Ég fer fyrir mínu fólki. Þetta er fráleitur
málflutningur hjá Sjálfstæðismönnum og hafð-
ur uppi til þess eins að reyna að draga úr mín-
um trúverðugleika. Þetta þjónar engum til-
gangi öðrum. Þeir vita sem er að ég hef
umtalsverðan stuðning meðal borgarbúa, meiri
stuðning en Reykjavíkurlistinn og meiri stuðn-
ing en Alfreð Þorsteinsson, með allri virðingu
fyrir honum, og hvað gera menn í slíku tilviki?
Þeir reyna að ráðast að minni stöðu og veikja
hana í hugum fólks. Ég er bæði pólitískur sam-
nefnari fyrir Reykjavíkurlistann og yfirmaður
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Hins vegar er-
um við auðvitað með ákveðna valddreifingu og
verkaskiptingu, bæði í stjórnsýslunni og póli-
tíska kerfinu, og þar verður að fara saman vald
og ábyrgð. Ég lít svo á að þegar fólki hafa verið
falin ákveðin verkefni þá eigi maður ekki alltaf
að vera með puttana í verkum þess. Ég treysti
þessu fólki til að sinna sínum verkum vel og
hver ber ábyrgð á sínu sviði, þó hin sameig-
inlega ábyrgð sé mín og ég sé yfirmaður emb-
ættismanna borgarinnar.“
Finnst þér ykkur hafa tekist vel með þessa
valddreifingu og borginni sé vel stjórnað?
„Já, mér finnst hafa tekist vel til, alveg sama
á hvaða málflokk er litið. Þetta er vinnusamur
hópur, fólk sem er vakið og sofið í því sem það
er að gera. Mér finnst ánægjulegt að sjá árang-
ur á öllum sviðum og nú er að koma enn betur í
ljós en áður að þau vinnubrögð sem við höfum
ástundað skila árangri; að maður hafi framtíð-
arsýn, setji sér markmið, ákveði leiðirnar að
settu marki og geri áætlun um hvernig eigi að
ná því. Það getur tekið mörg ár að ná settu
marki en aðalatriðið er að vinna að því af stað-
festu, jafnvel þó gefi á bátinn á stundum, og
láta ekki hrekja sig af leið. Mér finnst við sjá
árangurinn af þessum vinnubrögðum í skóla-
málum þar sem gerð var áætlun um einsetn-
inguna árið 1996 og við náum settu marki núna
í haust; í leikskólamálunum náum við þeim ár-
angri í haust að við getum tekið öll tveggja ára
börn inn á leikskóla, í jafnréttismálum – þar
sem hinn óútskýrði launamunur á milli
kynjanna er að minnka um helming – og í
hreinsun strandlengjunnar, þar sem menn
settu sér markmið fyrir átta árum. Því verki er
senn lokið og það hefur verið fjárfest fyrir 8,7
milljarða í þessu umhverfisátaki sem er eitt hið
mesta sem ráðist hefur verið í hér á landi.
Ég vil nefna eitt enn dæmi, umferðarörygg-
ismálin. Við byrjuðum að vinna fyrstu umferð-
aröryggisáætlun Reykjavíkurborgar 1994 og
hún var samþykkt ’96. Við settum okkur það
markmið að fækka slysum um 20%, gripum til
raunhæfra aðgerða s.s. að takmarka hraða í
íbúðahverfum við 30 km og höfum náð því að
fækka slysum um meira en 30%.“
Þú talar um samstilltan hóp. Töluvert er af
nýju fólki á listanum og fyrst eftir að hann var
kynntur voru margir í sviðsljósinu en eftir því
sem nær líður kosningum verður þú sífellt
meira áberandi. Eru kosningarnar kannski
ekki síður keppni um borgarstjóra en lista?
„Bæði. Það er ekki hægt að aðskilja þetta.
Fyrir því er pólitísk hefð að borgarstjórnar-
kosningar í Reykjavík séu líka borgarstjóra-
kosningar. Við sem erum í framboði til borg-
arstjóra erum tákngervingar fyrir ákveðna
pólitík, ákveðnar hugmyndir, og það er mjög
mikilvægt að fólk tengi saman einstaklinga,
hugmyndir og stefnu. Borgarstjórinn í Reykja-
vík er samnefnari fyrir þann hóp sem býður sig
fram til þess að stjórna borginni. Hann er and-
lit borgarinnar út á við og þegar hann hefur
verið kosinn borgarstjóri er hann fulltrúi allra
Reykvíkinga, ekki bara þeirra sem kusu hann.
Þess vegna er mikilvægt að maður hafi trú-
verðugleika og njóti trausts hjá fólki sem er
ekki endilega sammála manni pólitískt. Þess
vegna verður borgarstjóri að hafa skírskotun
út fyrir sinn pólitíska flokk.“
Ekki í þingframboð á næsta ári
Er tryggt að þú verðir borgarstjóri næstu
fjögur ár ef þú nærð kjöri?
„Nei, það er ekki tryggt. Ég gæti náttúrlega
hrokkið upp af!“
Spurt er vegna þess að oft er talað um að
Samfylkinguna vanti nýjan leiðtoga og þú
nefnd til sögunnar.
„Það er ekki mitt viðfangsefni. Ég er að
bjóða mig fram til næstu fjögurra ára en ætla
mér hins vegar ekki að verða ellidauð hérna í
Ráðhúsinu.“
En þú ætlar að vera þar næstu fjögur ár?
„Já, ég er ekki á leið í þingframboð að ári ef
það spurningin sem undir liggur.“
Ef þú hrekkur upp af – eins og þú tekur til
orða – hver tæki við af þér? Er einhver vara-
borgarstjóri í hópnum?
„Nei, það er ekki svo. Ég get hins vegar al-
veg séð það fyrir mér að við í Reykjavíkurlist-
anum höfum leiðtogaprófkjör þegar minni tíð
lýkur hér, og vil út af fyrir sig þakka Sjálfstæð-
isflokknum fyrir að benda okkur á þessa leið.
Sjálfstæðisflokkurinn heyktist reyndar á þess-
ari aðferð og valdi að ryðja bekkinn til að rýma
fyrir Birni en mér finnst þetta vera vænleg leið
og held hún sé mjög skynsamleg fyrir Reykja-
víkurlistann.“
Snúum okkur að skipulagsmálum. Þið aug-
lýsið átta ný íbúðahverfi; spennandi framtíð-
arsýn. Á hvaða tímabili eiga þau að byggjast?
„Á næstu 20 árum. Í nýju aðalskipulagi er
búið að skipuleggja íbúðabyggð til næstu 24
ára og við leggjum áherslu á að áður en við för-
um að byggja í útjaðri borgarinnar nýti borg-
aryfirvöld þau tækifæri sem eru innan núver-
andi borgarbyggðar.“
En hvar viljið þið að byggt verði á næsta
kjörtímabili, á næstu fjórum árum?
„Til dæmis í Grafarholti og stækkuðu
Bryggjuhverfi og í Norðlingaholti þar sem gert
er ráð fyrir 1000 íbúðum. Þá eru uppi þétting-
aráform í miðborginni á þeim tíma, í Skugga-
hverfi, Holtunum og vestur við Ánanaust og við
Eiðsgranda og svo getum við farið í suðurhlíð-
ar Úlfarsfells hvenær sem okkar hentar. Það
land eigum við allt, Björn Ólafsson arkitekt í
París vann skipulagssamkeppni um svæðið og
er nú að vinna það skipulag þannig að á næsta
ári væri þess vegna hægt að fara í suðurhlíðar
Úlfarsfells. Þar gerum við ráð fyrir 5000 íbúð-
um þannig að það er enginn hörgull á bygging-
arlandi í borginni.“
Miklar blekkingar
Sjálfstæðismenn hafa einmitt gagnrýnt að
þið séuð að flytja til efni í landfyllingar úr Geld-
inganesi og vestur í bæ, þegar nóg er af bygg-
ingarlandi í bænum?
„Það er vegna þess að við viljum þétta
byggðina, styrkja bakland miðborgarinnar og
draga það eins og við getum að fara út á Geld-
inganesið, svo dæmi sé tekið, vegna þess að
byggð þar yrði að vissu leyti úr tengslum við
aðliggjandi byggð, yrði eins og eyja og þyrfti
að verða sjálfri sér næg um flesta hluti. Það er
því bæði hagkvæmara og heppilegra að byggja
fyrst annars staðar og fólk getur svo í framtíð-
inni tekið ákvörðun um þetta land í Geldinga-
nesi. Það fer ekkert.“
En þið eruð að flytja grjót úr Geldinganesi í
landfyllingar vestur í bæ, ekki satt?
„Sjálfstæðismenn hafa verið með miklar
blekkingar í þeim efnum og alveg ótrúlegt að
leyfa sér – jafnvel þó svo menn séu í kosninga-
baráttu – að taka 40 til 50 hektara stykki úr
Geldinganesinu, eins og Sjálfstæðismenn gera
í sjónvarpsauglýsingu, og flytja út í Ánanaust.
Þessi fleki þeirra, sem svífur yfir borgina, er
um það bil 10 sinnum stærra svæði en um-
hverfismatið sem gert var vegna grjótnámsins
heimilar. Við Ánanaust er gert ráð fyrir 37
hektara fyllingu, en grjótnámið í Geldinganesi
er fimm hektarar. Fylling er heldur ekki búin
til úr grjóti heldur að mestu úr sandi og möl og
grús, efni sem tekið er í húsgrunnum og af
hafsbotni. Grjótið er bara notað sem vörn utan-
með þannig að þetta eru vísvitandi blekkingar.
Eflaust hafa þær virkað á ýmsa, til þess er auð-
vitað leikurinn gerður en það er ekki verið að
flytja Geldinganesið vestur í bæ.“
Umræða um lóðaskort í borginni hefur verið
mikil. Nú talið þið um að byggja á mörgum
stöðum, á sama tíma og mikið er af óseldu íbúð-
arhúsnæði í Grafarholti vegna þess hve það er
dýrt. Er það ekki til merkis um að það kerfi
sem þið notið við úthlutun lóða hefur ekki virk-
að sem skyldi?
„Skipulagsmál í borgarsamfélagi verður að
skoða í samhengi. Ég er þeirrar skoðunar að til
þess að við fáum þá mynd á borgina sem við
viljum verði að endurskipuleggja og byggja ný
hús á mörgum lóðum sem eru innan borgar-
markanna – t.d. í Holtunum þar sem eru iðn-
aðarhús sem hafa misst hlutverk sitt. Þar eru
rammgerð mannvirki, sem menn hafa ekki séð
sér hag í að kaupa, brjóta niður og byggja upp
að nýju á sama tíma og borgin úthlutar nið-
urgreiddum lóðum til samkeppnisaðila í útjaðri
borgarinnar. Ég held að þarna sé m.a. að leita
skýringa á því hvernig hefur farið fyrir Lauga-
veginum og Hverfisgötunni í gegnum tíðina;
hvernig gat það að borgað sig fyrir einhverja
aðila að kaupa mannvirki á þessu svæði, brjóta
þau niður og byggja upp nýtt verslunarhús-
næði á sama tíma og borgin var að úthluta nið-
urgreiddum lóðum í Síðumúla, Ármúla, Suður-
landsbraut og Skeifunni fyrir slíka starfsemi.
Menn fá enga arðsemi út úr slíku. Það verður
að skapa forsendur fyrir því að menn sjái ein-
hvern ávinning í því að nýta landið betur en
þeir gera. Og þá segi ég: það er eðlilegt að
markaðurinn segi til um hvað hægt er að bjóða
í landið. Verktakafyrirtæki, sem byggja og
selja íbúðir, eiga að vita á hvaða verði íbúðir
geta selst og eiga náttúrlega ekki að bjóða
meira en svo í landið að þeir treysti sér til að
byggja íbúðir á viðunandi verði.“
Var ekki framboð á lóðum einfaldlega svo lít-
ið að menn urðu að bjóða hátt til að fá eitthvert
land?
„Þessi fyrirtæki eru auðvitað að vinna hér á
einum markaði. Þeir eru líka að byggja í Kópa-
vogi og Hafnarfirði, fá úthlutað eftir hefð-
bundnum leiðum í Kópavogi og ég veit ekki til
þess að þeir séu að selja sambærilegar íbúðir
neitt ódýrar þar.“
Líturðu þá á höfuðborgarsvæðið sem þannig
heild að þú hafir ekki sérstakar áhyggjur af því
að mun meira sé byggt í Kópavogi en Reykja-
vík um þessar mundir. Er það ef til vill ekkert
sérstakt vandamál fyrir borgina?
„Nei. Þetta hefur verið saga höfuðborgar-
svæðisins í 50 ár. Reykjavík hefur frá því um
1950 verið með um 37–39% af íbúafjölda lands-
ins og þannig er það enn í dag. Sveitarfélögin
hérna í kring hafa byggst miklu hraðar upp og
Stolt af verkum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur verið borgarstjóri í átta ár.
Skapti Hallgrímsson og Ragna Sara Jónsdóttir ræddu við hana
í tilefni sveitarstjórnarkosninganna um næstu helgi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri