Morgunblaðið - 19.05.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 19.05.2002, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÉG HEF áður minnst áþá sérstöku kaffi-húsamenningu semer við lýði í háskóla- bænum Berkeley. Bæði hvað varðar kaffidrykkina sjálfa (kalda-koffínlausa-heilsu- kaffið með öllum bragðefn- unum) og almenna stemmn- ingu meðal kaffihúsagesta (þjáðu lestrar- og lærdóms- hestarnir). Mig langar til að halda aðeins áfram með þessa útlistun og kynna til sögunnar nokkrar algengar týpur á kaffihúsum hér, sem hafa með athyglisverðri og óbrigð- ulli hegðun sinni veitt mér ómælda skemmtun í allan vet- ur. Æsti aðstoðarkennarinn: Í háskólum hér er kennslufyr- irkomulagið þannig að mast- ers- og doktorsnemar eru að- stoðarkennarar á BA- og BS-námskeiðum. Aðstoð- arkennarar sjá um öll sam- skipti við nemendur og halda viðtalstíma sína gjarnan á kaffihúsum. Afsökun þeirra fyrir því að hitta nemendur á kaffihúsum er sú að þeir hafi svo lélega skrifstofuaðstöðu í skólanum (þeir deila gjarnan skrifstofu með tveimur til þremur öðrum aðstoðarkenn- urum), en ég hef þá grunaða um að nota kaffihúsin til að fullnægja afar sérstakri teg- und af sýniþörf. Aðstoðarkennarinn breiðir gjarnan vel úr sér líkamlega, talar hátt og gjóir augunum iðulega í kringum sig til að at- huga hvort það séu ekki örugglega einhverjir að fylgj- ast með. Hann situr með ,,nemanda“ sínum, sem oftast er ekki nema örfáum árum yngri en hann, og talar til hans valdsmannslega, hrósar því sem er vel gert yfirlæt- islega og bendir á það sem betur má fara með alveg sér- staklega háværri röddu. Þessi hegðun aðstoðarkennarans virðist ganga út á það að presentera gáfur annars veg- ar og vald hins vegar, sem er nokkuð spaugilegt í ljósi stöðu hans, en kannski líka skiljanlegt þegar hugsað er til þess að þetta er líklega í fyrsta sinn sem að hann er í stöðu yfirvalds eftir að hafa verið undirsáti alla sína tíð. Glænýi bókmenntafræða- neminn: ,,Mér finnst Kafka eitthvað svo meiriháttar! Ég skil eiginlega ekki hvernig ég gat skilið tilvist mína áður áð- ur en ég uppgötvaði Kafka.“ ,,Segi það með þér, ég meina fólk sem les ekki bókmenntir missir af svo ótrúlega stórum hluta af lífinu...“ ,,Ef hægt er kalla líf án bókmennta líf…“ ,,Já og svo er náttúrlega allt fólkið sem les, en þið vitið… skilur ekki…“ ,,Akkúrat, ég meina það eru ekki allir jafn heppnir og við…“ ,,Já og svo kunnum við líka að túlka og greina, þetta er náttúrlega ótrúleg ábyrgð sem við ber- um.“ ,,Já einmitt.“ Löng þögn. ,,Guð hvað við erum mikið forréttindafólk.“ ,,Hvort við erum, við verðum eiginlega að gefa eitthvað til baka. Eigum við kannski að stofna umræðuhóp um túlkun og greiningu?“ ,,Jahá… það yrði alveg ótrúlega gaman!“ Afdankaði rithöfund- urinn/fræðimaðurinn: Þessi týpa er gjarnan í stöðu hræ- gamms gagnvart fyrrnefndri týpu, unga bókmennta- fræðinemanum. Þessi afdank- aði læðist að hinum unga þeg- ar hann situr einn síns liðs og byrjar að ræða við hann um heimsbókmenntirnar. Heldur langar ræður um hugmyndir sínar, vinnuaðferðir, skoðanir á einstökum höfundum, stefnum og -ismum og hinn ungi kann ekki við annað en að hlusta af athygli og dást að þekkingu og visku hins af- dankaða. Slík samskipti leiða gjarn- an út í afar vandræðalegar aðstæður fyrir hinn unga þeg- ar hinn afdankaði byrjar að færa sig upp á skaftið. Það skal tekið fram að í tilfellum sem þessum er bókmennta- fræðineminn nær undartekn- ingarlaust kvenkyns og rit- höfundurinn/fræðimaðurinn karlkyns. Miðaldafræðingurinn: Fólk sem leggur stund á mið- aldafræði heldur gjarnan hópinn og á það til að skera sig verulega úr. Þeir allra hörðustu klæða sig jafnvel upp í riddarabúninga, stúlk- urnar skreyta sig gjarnan með dýrabeinum og mið- aldalegu skarti, en hringur á þumalfingri er ómissandi fylgihlutur kvenkyns mið- aldafræðings. Miðaldafræð- ingnum finnst lítið til nú- tímans koma og leggur sig ekki fram við að samlagast honum, en fyrir honum er ,,tími“ eingöngu ,,ástand“. Honum finnst fátt skemmti- legra en að ræða miðaldabók- menntir, sögu og siði á mið- öldum og hittir aðra miðaldafræðinga á kvöldin til að rýna í gömul handrit og tala um hvað sé leiðinlegt að vera uppi á 21 öldinni. Fólk á blindu stefnumóti: Skælbrosandi kona í lista- mannslegum fötum, með eld- rauðan varalit. Talar hægt: ,,Þú vinnur hjá tölvufyrirtæki í San Francisco er það ekki?“ Stuttklipptur, töff klæddur, afslappaður náungi: ,,Jú ein- mitt, það er reyndar verið að fara að loka því, þannig að ég er að leita mér að annarri vinnu.“ ,,Nú já.“ Vandræðaleg þögn. Hann: ,,En þú, ert þú ekki í háskól- anum?“ Hún. Talar miklu hraðar: ,,Jú ég er í dokt- orsnámi í mannfræði. Segðu mér hverjar eru líkurnar á því að þú fáir aðra vinnu, eru ekki öll þessi tölvufyrirtæki að fara á hausinn?“ ,,Jú, útlitið er frekar svart.“ ,,Veistu, ég held að ég verði að láta þetta duga, ég hef ekki tíma til að standa í þessu.“ ,,Hvað áttu við?“ ,,Fullkomin hreinskilni? Ég er 37 ára, klukkan er farin að tifa, ég verð að finna mann sem er til í að skella með mér í tvö börn áður en ég verð fer- tug. Hann verður að skaffa vel svo ég geti stundað fræði- störf og helst verðum við að hafa efni á barnfóstru.“ Hún gengur burt. Hann þurrkar svitann af enninu og horfir vandræðalegur í kringum sig. Kjáninn sem liggur á hleri: Að lokum er það alveg sér- staklega ókurteis týpa sem situr og fylgist með fólkinu í kring og hlustar á samræður annarra. Kjáninn leggur á minnið fyndnar setningar, bara til að geta sagt öðrum frá þeim og telur sig vita ótrú- legustu hluti um fólkið í kringum sig út frá hinu og þessu í fari þess. Þó að um- rædd týpa sé svona kjánaleg þá vakir ekki fyrir henni að valda tjóni. Skal tekið fram að athuganir hennar eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda held- ur eru þær fyrst og fremst ætlaðar sem dægradvöl. Birna Anna á sunnudegi Morgunblaðið/Ásdís Kaffihúsatýpur Þ AÐ ER ágæt dægrastytting að sækja listmunauppboð. Í dag er meira að segja hægt að fylgjast með uppboðum á Netinu, bjóða í „minni“ verk eða bara fylgjast með verðinu sem fæst fyrir þau. Ef maður hefur áhuga á myndlist og mati fólks á listaverkum, þá er áhugavert að sækja uppboð; þau vekja spurningar – og svara sumum – um verðmæti listaverka og mat kaup- enda á listrænum gæðum. Hér á landi hafa listmunauppboð verið haldin um árabil, en í kjölfar margumræddra föls- unarmála glötuðu þau trausti kaupenda. En uppboðin hafa engu að síður verið haldin og nú upp á síðkastið hefur ýmislegt bent til þess að verð góðra verka eftir suma kunnustu myndlist- armenn þjóðarinnar sé aftur stígandi. Svo þurfa alltaf einhverjir að selja listaverk og þá er gjarn- an farin sú leið að setja verkin á uppboð. Á dögunum sótti ég uppboð hjá listmunasöl- unni Fold í Súlnasal Hót- el Sögu. Framkvæmdin var svipuð og á þeim sem ég hef sótt hér á landi síðasta áratuginn. Virðulegur uppboðshald- arinn, í þessu tilviki Tryggvi P. Friðriksson, heldur gestum við efnið og stýrir boðum af skörungsskap milli þess sem hann sveiflar hamrinum. Ungir menn bera verk eftir verk á svið og halda þeim svipbrigðalausir svo gestir geti virt þau fyrir sér. Úr rökkri þéttskipaðs salarins heyrast hvíslingar, þrusk og glamur í kaffibollum; margir eru með plöstuð núm- eraspjöld sem þeir lyfta um leið og þeir bjóða. Tryggvi keyrði uppboðið áfram, endaveitti ekki af þar sem verkin voruóvenjulega mörg að þessu sinni, 163alls. Þeim hafði verið skipt í hópa, fyrst voru boðin upp grafíkverk, prent og ljósmyndir, þá verk unnin á pappír, skúlptúrar og loks verk unnin með olíu. Ekki hefur verið farið útí að skipta verkum upp eftir tímabilum, eins og al- kunna er erlendis, enda væri það nánast ógern- ingur hér þar sem verkin sem boðin eru upp eru nánast undantekningarlaust af hefðbundnara taginu. Framsækin myndlist á ekki uppá pall- borðið hjá uppboðshúsinu – og sjálfsagt heldur ekki hjá flestum þeim sem sækja þessi uppboð. Vitaskuld voru gæði þeirra verka sem seld voru þetta kvöld ákaflega mismunandi. Sumt var hreint drasl. Það var þónokkuð um þokka- leg verk þokkalegra listamanna, eitthvað um slæm verk eftir góða listamenn, nokkur góð verk eftir góða listamenn, og svo var gaman að sjá hreint ágæt verk eftir nokkra okkar bestu listamanna á liðinni öld. Einhver þeirra voru seld á verði sem manni finnst þau eiga að kosta. En þau voru líka mörg verkin sem fóru fyrir hlægilega lítið, jafnvel svo lítið að það er hrein- lega til skammar. Söluverð var frá 4.000 krónur, eins og portrettteikning eftir Helga Bergmannseldist á, upp í 1.410.000 en það verð dýr-asta verksins, fallegrar Húsafellsmyndar eftir Ásgrím Jónsson. Með í þessu verði eru tuttugu prósentin sem bætast ofan á við söluna; höfundarréttargjald og uppboðsgjald. Það gerðist sjaldan að verkin seldust á eða yfir upp- gefnu verðmati. Vatnslitamyndir eftir Jón Jóns- son, bróður Ásgríms, voru að fara á kr. 9.600 og 19.200; landslagsmynd eftir Ólaf Túbals á 19.800; góð vatnslitamynd eftir einfarann Kíkó Korríró á 33.600. Stórt Mývatnsmálverk eftir Jóhannes Frímannsson fór á 7.200; myndir eftir Eyjólf Eyfells á 18.000, 21.600 og 24.000; tvö málverk eftir Gunnar Örn, frá 1983 og 1984, fóru á 40.800 og 60.000. Stór módelmynd eftir Jón Engilberts var slegin kaupanda á 144.000; ljómandi vatnslitamyndir eftir Gunnlaug Schev- ing á 102.000 og 96.000; stór gvassmynd eftir Karl Kvaran seldist fyrir 72.000; vatnslitamynd eftir Gunnlaug Blöndal af Reykjavíkurhöfn, tær og falleg, var slegin á 348.000 og vatnslitamynd eftir Ásgrím frá Hornafirði, metin á 500– 600.000 var slegin á 300.000 krónur. Í lokahrinu uppboðsins voru margar bestu myndirnar seldar. Herðubreiðarmynd eftir Stórval, ekki ein af þeim betri, var slegin yfir matsverði, á 62.400 kr. Fágætt portrett eftir Ágúst Petersen á 102.000 kr. Boðnar voru upp ólíkar myndir eftir Kjarval og nokkrar ljómandi góðar, þær voru að seljast á verðbilinu 240 til 840.000. Í sumum tilvikum ágætt verð en í öðr- um líklega alltof lágt, miðað við gæði verkanna. En Kjarval var afkastamikill og margar mynda hans í umferð á meðan það er sjaldnar sem ágæt verk af- kastaminni góðra málara eins og Snorra Arinbjarnar rata á uppboð. Eitt verka hans var slegið á 300.000, talsvert undir matsverði. Þær myndir sem þokka- legt eða gott verð er að fást fyrir, eru eftir horfna lista- menn eldri kynslóða, full- trúa landslagshefða eða módernisma sem upp kom um miðja síðustu öld. Verk lifandi listamanna eru ekki mikils virði á uppboðum hér og seljast iðulega langt undir verðinu á sölusýn- ingum listamannanna. Góð mynd eftir Kristján Dav- íðsson fór þannig á 330.000. Nokkuð stór mynd eftir Daða Guðbjörnsson á 61.000, ennþá stærra málverk eftir Baltasar á 90.000. Undantekning frá þessu eru málverk Tolla, en hann virðist vin- sæll meðal þeirra sem sækja uppboð hér og seldust þetta kvöld á 242.000, 228.000 og 456.000. Þessi íslensku uppboð eru þannig takmörkuð að því leyti hvers konar verk eru boðin upp og sjálfsagt einnig í því hverjir sækja þau. Þannig finnst mér ég ekki sjá mörg þeirra andlita sem ég sá í Súlnasal þetta kvöld á sýningum ungra listamanna eða sýningum á framsækinni sam- tímalist. Með vissri alhæfingu má segja kaup- endurna spennta fyrir hefðbundnu málverki sem þegar hefur sannað sig; myndir teiknaðar eða málaðar af látnum meisturum eða af við- urkenndu myndefni. Ákveðin mótív eru sí- vinsæl og virðast ganga vel, og Þingvallamyndir eru í sérstöku uppáhaldi. Ellefu eða tólf voru á þessu eina uppboði. Það er vissulega ólíku saman að jafna, enþað hefur verið athyglisvert að fylgjastmeð fréttum þessa vikuna af stóru vor-uppboðum á samtímalist hjá Sotheby’s og Christie’s í New York. Þar kom í ljós að myndlistarmarkaðurinn hefur rétt fyrr úr kútn- um en búist var við eftir hryðjuverkin 11. sept- ember. Nú eru kaupendur komnir á kreik og reiðubúnir að greiða vel fyrir réttu verkin. Blaðamaður New York Times segir safnara hafa sagt við sig: „Hver vill deyja með pen- ingana á verðbréfamarkaðinum þegar maður getur átt Rothko-málverk á veggjunum?“ Á fyrra uppboðinu, hjá Christie’s, var sett verðmet fyrir verk eftir fimmtán listamenn, þar á meðal Jean-Michel Basquiat, Donald Judd, Louise Bourgeois og Ed Ruscha. Það var trymbill hljómsveitarinnar Metallica sem seldi tvö dýrustu verkin. Annað, eftir Basquiat, fór á 495 milljónir króna, og hitt, „Paris Montparn- asse“ eftir Dubuffet, á 423 milljónir. Stórt verk eftir Donald Judd, úr ryðfríu stáli og plexigleri, var metið á 3 til 4 milljónir dala; 270–360 millj- ónir. Tveir kaupendur slógust um verkið sem að lokum var selt á 414 milljónir. Þar með var verðmetið fyrir Judd aldeilis hækkað, því kvöld- ið áður hafði eldra metið verið sett þegar Phil- ips-uppboðshúsið seldi veggverk eftir hann á 117 milljónir. Tekist var á um verkið „Blind Man’s Buff“ eftir Bourgeois. Fjórir héldu áfram að bjóða og skúlptúrinn fór að lokum á 126 milljónir króna. Háar upphæðir fengust líka fyrir pop-listaverk. Silkiþrykkið „Four-Foot Flowers“ eftir Andy Warhol seldist fyrir 333 milljónir. Önnur útgáfa af sömu mynd fór kvöldið áður hjá Philips á 198 milljónir. Málverkið „Talk About Space“eftir Ruscha, úr röð verka sem vísa til þjóð- vegaskilta, fór á 315 milljónir. Það var einnig mikið líf og mikið af dölumsem skiptu um eigendur á uppboðiSotheby’s. Þar fengust tvær hæstu upp-hæðirnar fyrir verk eftir Gerhard Richt- er, en yfirlitssýning hans í Museum of Modern Art hefur hlotið mikla athygli og umfjöllun uppá síðkastið. Þar fyrir utan segja blaðamenn Warhol hafa átt þetta uppboð, en nýverið kom út fullnaðarskrá yfir öll hans verk. Annað verk Richters, eitt fjögurra af lita- spjöldum sem hann gerði árið 1971, var selt fyr- ir 351 milljón. Eitt þessarra fjögurra verka seldist í júní í fyrra fyrir níutíu milljónum minna og er það skýrt dæmi um vinsældir Richters um þessar mundir. Hitt verkið seldist fyrir sömu upphæð, en það heitir „Kerti“, eitt þeirra sem listamaðurinn málar eftir ljósmyndum. Verkin eftir Warhol voru frá ólíkum tímabil- um á ferli hans. Fyrrum aðstoðarmaður lista- mannsins seldi verkið „Fimm látnir“, frá 1963 og fékk 333 milljónir fyrir. Sjálfsmynd Warhols frá 1986 fór á 270 milljónir. „Superman“ frá 1981 fór á 153 milljónir. Lokst má geta þess að verk eftir Richard Tuttle seldist fyrir 90 millj- ónir og er það lang hæsta verð sem fengist hef- ur fyrir verk eftir hann. Þegar verð verka á íslenskum uppboðum og þeim fyrir vestan haf eru borin saman á þennan hátt getur maður varla annað en þakkað fyrir að óbreyttur almúgamaður sem hefur áhuga á góðri íslenskri list, skuli hafa efni á að eignast ágæt verk sér til ánægju; það virðist heldur dýrara að taka þátt í þeim leik fyrir utan land- steinana. En það má þó alveg spyrja hvort verð- ið sem hér er greitt fyrir gott verk á uppboðum sé sanngjarnt og eðlilegt. Uppboð hér og þar Mörg listaverk enda á uppboði, fyrr eða síðar. Hér er boðið upp síð- asta skópar van Goghs sem enn var í einkaeigu. AF LISTUM Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.