Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 43
Hjarðarhagi 13 - opið hús
Híbýli fasteignasala, Suðurgötu 7, sími 585 8800 og 864 8800
Mjög góð og vel skipulöð 130
fm efri hæð í fjórbýlishúsi.
Íbúðin skiptist í samliggjandi
stofur með stórum suðursvöl-
um útaf. Þrjú rúmgóð svefnher-
bergi. Baðherbergi nýflísalagt.
Gott þvottahús í íbúðinni. Stór
geymsla í kjallara. 21 fm bílskúr. Húsið er nýlega tekið í gegn að
utan og nýmálað. Áhv. 8,5 millj. hagstæð langtímalán. (Afb. 67
þús. á mán.) Verð 17,7 millj. Laus strax.
HELENA SÝNIR ÍBÚÐINA Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-17.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Höfum til sölu 2,5 ha byggingarlands á einum
af betri útsýnisstöðum í Kópavogi.
Uppdráttur og allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
BYGGINGAMEISTARAR – VERKTAKAR
BYGGINGARLAND Í KÓPAVOGI
HINN 1. maí opnuðu nemendur í
Listaskóla Bennós sýningu í Gall-
erýi Áhaldahúsi í Vestmanna-
eyjum. Gríðarlegur áhugi hefur
vaknað á síðustu árum á myndlist
í Vestmannaayjum en auk Bennós
hefur Steinunn Einarsdóttir verið
með fjölsótt námskeið. Í nem-
endasýningu Bennós tóku 17
listamenn þátt og sýndu 150
myndir sem er með ólíkindum
mikill fjöldi eftir vetrarstarfið og
sýnir hve gróskan er mikil í
myndlistinni í Vestmannaeyjum
um þessar mundir. Mörgum bæj-
arbúum komu á óvart gæði mynd-
anna og ekki síður það manna-
úrval sem sótti námskeiðið. Á
námskeiðinu var nánast flóra
mannlífs í Eyjum, fv. skipstjóri,
bakari, tannlæknir, skurðlæknir,
húsasmiður, fiskverkakona o.fl
o.fl. Flestar myndir á sýningunni
voru til sölu og var verð mynd-
anna frá 5.000 krónum, en á dýr-
ustu myndina voru settar 200.000
krónur.
Nemendanámskeið Listaskóla Bennós
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Í TILEFNI af 10 ára afmæli tíma-
ritsins Sumarhúsið verður haldin
sýning á vegum Rits og ræktar í
Íþróttamiðstöðinni að Varmá í
Mosfellsbæ dagana 30. maí til 2.
júní.
Sýningin ber nafnið „Sumar-
húsið og garðurinn“ og þar mun
fjöldi fyrirtækja og þjónustuaðila
kynna vörur sínar og nýjungar
fyrir sumarhúsa- og garðeigend-
um.
Íþróttamiðstöðin að Varmá er
tilvalin til sýningahalds, bæði inni í
nýju íþróttahúsi og utandyra í fal-
legu umhverfi.
72 fyrirtæki og stofnanir eru bú-
in að staðfesta samninga sína.
Fagmenn sýna handbrögð við m.a.
torfhleðslu, steinhögg, blóma-
skreytingar og trjáskurð. Fag-
menn í bygginga-, ræktunar- og
umhverfisgeiranum flytja stutt er-
indi alla dagana. Hópur lista-
manna sýnir verk unnin úr nátt-
úrulegum efnum sem þeir hafa
unnið sérstaklega vegna sýning-
arinnar.
„Margvísleg afþreying verður á
íþróttavellinum, þar verða gömlu
íslensku leikirnir rifjaðir upp und-
ir stjórn Hlyns Guðmundssonar
íþróttakennara.
Sýningin sumarhúsið og garð-
urinn er fersk, fjöldi nýjunga
kynntur og afþreying við allra
hæfi.
Sérstakt sýningarblað
verður gefið út
Sameiginlegt blað fyrir Sumar-
húsið og Við ræktum verður gefið
út í tilefni sýningarinnar og verður
því dreift til áskrifenda blaðanna,
sumarhúsaeigenda sem eru á skrá
hjá Fasteignamati ríkisins og til
um 600 fyrirtækja. Blaðið ber nafn
sýningarinnar, Sumarhúsið og
garðurinn.
Sýningarstjórn skipa þau Auður
Ottesen og Páll Pétursson frá Riti
og rækt, en þau eru jafnframt
sýningarstjórar, Ágúst Pétursson
markaðsráðgjafi, Birna Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Mark-
fells, og Þorbjörn Árnason lög-
fræðingur,“ segir meðal annars í
fréttatilkynningu.
Sýningin Sumar-
húsið og garður-
inn í Mosfellsbæ
FORMLEG opnun á nýrri aðstöðu
rannsóknarnefndar sjóslysa í
Flugstöðinni á Stykkishólmsflug-
velli fór fram föstudaginn 10. maí.
Viðstaddir opnunina voru sam-
gönguráðherra, Sturla Böðvars-
son, starfsmenn samgönguráðu-
neytisins og fleiri gestir.
Nefndin er skipuð fimm fag-
mönnum á sínu sviði og eru að-
almenn Ingi Tryggvason, héraðs-
dómslögmaður, formaður,
Borgarnesi, Emil Ragnarsson,
skipaverkfræðingur Reykjavík,
Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna Reykja-
vík, Pálmi Jónsson, vélfræðingur
hjá Orkubúi Vestfjarða, Ísafirði og
Pétur Ágústsson, skipstjóri,
Stykkishólmi.
Hjá nefndinni eru tveir starfs-
menn í fullu starfi, þeir Jón A.
Ingólfsson, framkvæmdastjóri,
sem er skipstjóri og rekstrarfræð-
ingur sem hóf störf 1. nóv. sl. og
Guðmundur Lárusson, fulltrúi,
sem einnig er skipstjóri og fyrr-
verandi útgerðarmaður sem hóf
störf um síðustu áramót.
Tilgangur sjóslysanefndar er
að koma í veg fyrir slys á sjó
Rannsóknarnefnd sjóslysa starf-
ar á grundvelli nýlegra laga nr. 68
frá sept. 2000 og reglugerðar nr.
133/2001 um rannsóknir sjóslysa.
Starf hennar tekur til slysa og at-
vika á sjó, köfunarslysa og slysa
og annarra atvika á vötnum. Áður
en til nýju laganna kom voru
ákvæði um rannsóknarnefnd sjó-
slysa í siglingalögum og heyrði
nefndin með óbeinum hætti undir
sjávarútvegsráðuneytið. Nýju lög-
in voru því hin fyrstu sem fjalla
eingöngu um rannsóknir á sjóslys-
um.
Rannsóknarnefnd sjóslysa starf-
ar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum
og öðrum rannsóknar aðilum,
ákæruvaldi og dómstólum og hún
ákveður sjálf hvenær efni eru til
rannsóknar slysa og annarra at-
vika. Lögsaga nefndarinnar tekur
til allra íslenskra skipa, svo og
allra erlendra skipa í siglingum að
og frá landinu þegar sjóslys varðar
íslenska hagsmuni.
Nefndin hefur að leiðarljósi í öll-
um rannsóknum sínum að þær
miði að því einu að koma í veg fyr-
ir slys um borð í skipum og að ör-
yggi til sjós megi aukast og mark-
mið hennar er að hraða afgreiðslu
þeirra mála sem berast henni. Til-
gangur rannsóknar er ekki að
skipta sök eða ábyrgð og er fyllsta
trúnaðar gætt og er ekki heimilt
að nota skýrslur nefndarinnar sem
sönnunargögn í opinberum málum.
Öll slys á sjó ber að tilkynna
til nefndarinnar
Rannsóknarnefnd sjóslysa fund-
ar að jafnaði mánaðarlega en
nokkur röskun varð á starfi henn-
ar í vetur vegna flutningsins og
breytinga á starfsmannahaldi.
Nefndin fær að meðaltali um 114
mál til umfjöllunar á ári ef tekið er
mið af síðustu níu árum. Á árinu
2001 kom 121 mál til nefndarinnar
og á eftir að afgreiða 62 mál af
þeim en 23 af þeim eru á lokastigi.
Það sem af er árinu 2002 eru kom-
in 60 mál á skrá, þannig að nefnd-
in á eftir er að skoða um 100 mál.
Að sögn starfsmanna er þrátt
fyrir ákvæði nýju laganna um til-
kynningaskyldu til nefndarinnar
enn þó nokkuð um að hlutaðeig-
andi aðilar tilkynni ekki óhöpp til
hennar. Á undanförnum árum hafa
að meðaltali komið á milli 300–400
tilkynningar um möguleg bóta-
skyld slys á sjómönnum til Trygg-
ingastofnunar ríkisins sem nefndin
þarf að afla upplýsinga um að eig-
in frumkvæði. Þó að mörg þessara
slysa séu, sem betur fer, lítils-
háttar geta falist í þeim og ekki
síst við „næstum því óhöppum“
mikilvægar upplýsingar sem geta
komið að gagni við þá vinnu nefnd-
arinnar að reyna að koma í veg
fyrir óhöpp. Það hefur komið fram
í rannsóknum erlendis að við hvert
slys tengjast að meðaltali um 13
tilfelli um „næstum því óhöpp“ áð-
ur en óhappið á sér stað. Það er
því ljóst að í þeim getur legið mik-
ill lærdómur og er það verðugt
verkefni að kenna sjómönnum að
koma þessum upplýsingum til
nefndarinnar.
Starfsmenn eru ánægðir með
hina nýju aðstöðu nefndarinnar og
eru í óða önn að koma sér upp
búnaði og tileinka sér vinnubrögð
til framtíðar. Kostnaður vegna
flutnings nefndarinnar til Stykk-
ishólms liggur ekki endanlega fyr-
ir en hann stefnir í að vera á bilinu
2,5 til 3 mkr.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Rannsóknarnefnd sjóslysa ásamt samgönguráðherra og starfsmönnum
nefndarinnar í nýjum húsakynnum nefndarinnar í Stykkishólmi.
Starfsemi rannsóknarnefnd-
ar sjóslysa fer vel af stað
121 mál kom til nefndarinnar á síðasta ári
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
LEIÐRÉTT
Hrannar er
Arnarsson
Nafn Hrannars B. Arnarssonar,
borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans,
misritaðist í blaðinu í gær og er
beðist velvirðingar á því.
Sýnir á Stokkseyri
Elfar Guðni myndlistarmaður
opnar um helgina vinnustofu og
sýningarsal á Stokkseyri en ekki
Eyrarbakka eins og misritaðist í
blaðinu í gær. Beðist er velvirð-
ingar á því.
Bára er
Stefánsdóttir
Nafn stúlku sem fermd verður í
Akureyrarkirkju á hvítasunnudag
kl. 10.30 er Bára Stefánsdóttir en
ekki Stefánsson. Beðist er velvirð-
ingar á því.