Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 44

Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 44
FRÉTTIR 44 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ JODEL D til sölu, 180 ha. 5 sæta, 6 tíma flugþol. 800 tímar eftir á mótor. Nýlega klædd. Stuttbrautarvél. Hentar sérstkalega við íslenskar aðstæður. Flugvél sem gerir allt sem þú ætlast til af góðri einkaflugvél. Frábærir flugeiginleikar fyrir alvöru flugmenn. Upplýsingar í símum 898 6033 og 567 6022. Flugvél til sölu JÖRÐ ÓSKAST Landmikil jörð með veiðihlunnindum, skot- og stangveiði, óskast. Æskileg staðsetning Vesturland, Suðurland eða Austurland. Upplýsingar í síma 897 7061 Ármúla 21, sími 533 4040 Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen, sími 568 2444 Sumarbúst. - Arnarstapi www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Allar upplýsingar veittar á skrifstofu í símum 588 4477 eða 899 9271 Glæsilegur ca 40,6 fm bú- staður ásamt ca 15 fm svefn- lofti. Einstök staðsetning í heillandi náttúru. Bústaðurinn er fullfrág. m. stórum verönd- um og fl. Mjög vandaður frá- gangur. Verð tilboð. Myndir á valholl.is. Upplýsingar gefur Þórarinn í síma 899 1882 SÍÐUMÚLA 8 www.odal.is Sími 525 8800 Gullengi 29 - íbúð 01.02 OPIN HÚS Í DAG KL. 14-17 Björt og falleg 3ja herb. 85 fm íbúð á 1. hæð með sérinngangi af svölum. Forstofa og hol. Tvö rúmgóð svherb. með innb. fatask., eldhús og bað með hv. beyki-innréttingum, þvottah. í íb. Rúm- góðar stofur og 15 fm flísal. suðursvalir. Þvottahús í íbúð. Verð 11,2 millj. LAUS FLJÓTLEGA. Hjalti og Svanfríður taka á móti gestum. Laus í maílok. Njálsgata 87 - íbúð 02.03 Björt og falleg 55 fm íbúð á 2. hæð í góðu steinhúsi. Íbúð og hús mikið endurnýjað, s.s. nýtt parket og flísar á gólfum. Nýtt eldhús, baðherbergi, gólfefni o.fl. LAUS STRAX. Lukka tekur á móti gestum. Helgi M. Hermannsson lögg. fasteignasali • helgi@odal.is Óli Antonsson sölustjóri • oli@odal.is Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  Hjallabraut 33 - Opið hús - Eldri borgarar Glæsileg 93 fm 3ja herb. íbúð á fyrstu hæð. Vandað- ar innréttingar og gólfefni, allt fyrsta flokks. Tvennar svalir. Öll þjónusta til stað- ar. Frábær staðsetning. Tekið verður á móti gest- um milli 14.00 og 17.00 í dag, sunnudag, íbúð 1-03. Verðtilboð Á KIRKJUDEGI aldraðra á upp- stigningardag var margt fólk saman komið í Húsavíkurkirkju og börn voru færð til skírnar. Kór eldri borgara söng við undir- leik Judit György og sr. Sig- hvatur Karlsson þjónaði fyrir alt- ari. Úr Reykjahreppi voru skírð tvö börn, þau Björn Gunnar Jónsson og Elva Mjöll Jónsdóttir. Þau eru þremenningar og eiga heima á sama bæ, eiga feður með sama nafni og eru fædd sama dag, hinn 7. mars sl. Eitt barn frá Húsavík var skírt við þessa sömu athöfn og er það einnig fætt 7. mars. Sr. Sighvatur þakkaði fólki fyr- ir að koma í kirkjuna og ekki síst þeim sem komu með börnin til þess að skíra þau við altarið og hvatti til þess að fólk notaði al- mennar messur meira til skírn- arathafna en verið hefur til þessa. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Séra Sighvatur Karlsson sóknarprestur ásamt sóknarbörnunum úr Reykjahreppi, þeim Jóni Helga Björnssyni og Ingibjörgu Sigurjóns- dóttur sem heldur á Birni Gunnari, svo og Jóni Helga Vigfússyni og Sól- veigu Ómarsdóttur sem heldur á Elvu Mjöll. Margt sameiginlegt með skírnarbörnunum Laxamýri. Morgunblaðið. NÝVERIÐ voru stofnuð Samtök fyr- irtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH). Stofnaðilar að þessum samtökum eru nærri 20 fyrirtæki, sjálfseignarstofn- anir, fyrirtæki í einkaeigu, í eigu fé- lagasamtaka eða sveitarfélaga. Fyr- irtækin sem stóðu að stofnuninni eru dvalar- og hjúkrunarheimili, endur- hæfingarfyrirtæki og fyrirtæki sem starfar að meðferðarmálum, sam- kvæmt því sem kemur fram í frétta- tilkynningu. Tilgangur samtakanna er að efla samstarf aðildarfélaga, standa vörð um hagsmuni þeirra og vinna að bættum starfsskilyrðum, stuðla að ár- angursríku samstarfi við heilbrigðis- yfirvöld, sveitarfélög, félagasamtök og aðra þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta, koma á framfæri við stjórn- völd og almenning afstöðu samtak- anna til mála er varða hagsmuni að- ildarfélaga og fylgja þeim fram og að gangast fyrir upplýsinga- og fræðslu- starfsemi m.a. í því skyni að stuðla að framförum og hagræðingu í starfsemi og rekstri aðildarfélaga. „Með stofnun samtakanna hefur verið skapaður vettvangur fyrir stjórnir og stjórnendur þessara fyr- irtækja til að koma saman, bera sam- an bækur sínar og ræða sameiginleg hagsmunamál. Sameinuð verða þessi fyrirtæki öflugri en þau eru eitt og sér og sameiginlega geta þau unnið að ýmsum hagsmunamálum, sem þau hafa hingað til unnið að hvert fyrir sig, svo sem við gerð kjarasamninga, samninga við heilbrigðisyfirvöld. Helstu verkefni nýrrar stjórnar er að skoða með hvaða hætti samstarf þessara aðila verður árangursríkast, einnig að vinna að betri starfsskilyrð- um fyrirtækjanna og í því sambandi verður skoðað hvernig bæta má fjár- hagslega og lagalega stöðu þeirra og verður það vonandi gert í góðri sam- vinnu við heilbrigðisyfirvöld. Jafn- framt fékk stjórnin það verkefni að kanna hagkvæmni þess að sækja um aðild að Samtökum atvinnulífsins og verða niðurstöður þeirrar könnunar lagðar fyrir fyrsta aðalfund samtak- anna að ári,“ segir í fréttatilkynningu. Fyrsti formaður samtakanna var kosinn Jóhann Árnason, fram- kvæmdastjóri Sunnuhlíðar í Kópa- vogi, aðrir í stjórn voru kosnir Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri á Grund, Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri NLFÍ í Hveragerði, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður stjórnar Eirar, og Theodór S. Hall- dórsson, framkvæmdastjóri SÁÁ. Varamenn eru Guðmundur Hall- varðsson, formaður stjórnar Sjó- mannadagsráðs, sem rekur Hrafn- istuheimilin, og Finnbogi Björnsson, framkvæmdastjóri Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum. Samtök fyrirtækja í heilbrigðis- þjónustu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.