Morgunblaðið - 19.05.2002, Side 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinniJÓLIN eru fyrsta stórhátíðkirkjuársins, páskarnirönnur og hvítasunnanþriðja. Einhverra hluta
vegna rís hin síðastnefnda
þó ekki eins hátt í almennri vit-
und nútímans og hinar tvær.
Líklegasta skýringin er vafa-
laust sú, að þegar horft er í of-
urbirtu fölnar það sem næst er á
litið eða eftir kemur. Saga um
lítið barn stendur þannig hjart-
anu nær en frásögn af upprisu,
hvað þá lýsing af eldtungum af
himni.
Samt er hvítasunnan ekki
minni í eðli sínu en jól og
páskar, alls ekki. Allar þrjár eru
samofnar, ekki ósvipað og þrjú
bönd, sem tvinnast og mynda
kaðal. Eða svo notuð séu orð
Sigurbjörns Einarssonar
biskups:
„Engin má aðra missa. Þær varpa
ljóma hver á aðra. Ljósið, sem frá
þeim stafar, kemur frá einni upp-
sprettu og lýsir í einum brennidepli.
Þær túlka saman ríkdóm trúarinnar á
sannan, þríeinan Guð, kunnan í Kristi
Jesú. Jólin eru björt. Þó myndu þau
enga birtu bera, ef páskarnir hefðu
ekki komið. Páskasólin er skær. Þó
hefði hún bliknað, ef hvítasunnan
hefði ekki runnið upp. Vér ættum
ekki kristindóminn, ef hvítasunnan
hefði ekki orðið, og eigum hann ekki
án hennar. Það er ekki nóg að sá. Það
er ekki nóg að sprotinn vakni í mold.
Geislinn að ofan og döggin af hæðum
verða að verma og vökva til þess að
lífið geti sprungið út.“
Hvítasunnan, sem við nú
minnumst og fögnum, var því
lokaþáttur í hinni miklu symfón-
íu almættisins, sem gerð var
mannkyni til að njóta og þrosk-
ast. Hefði sá dagur ekki komið
væri kristindómurinn ekkert
annað en liðin saga á gulnuðum
blöðum.
Það er merkilegt að sjá hvern-
ig lærisveinarnir hreinlega um-
breytast frá síðustu blaðsíðum
guðspjallanna og yfir í frásögn
Postulasögunnar, þar sem at-
burðum hvítasunnudags er lýst
Kristið fólk, bæði þá og nú,
veit að sjálfsögðu hvað olli
þessu: Heilagur andi, þriðja per-
sóna guðdómsins, sem hvert for-
eldri nefnir við skírnarlaugina,
hvert ungmenni á ferming-
ardegi, og söfnuðurinn í guðs-
þjónustunni, um leið og Post-
ullega trúarjátningin er sögð
fram. Þetta er hjálparinn, sem
Jesús lofaði að senda.
Danski presturinn Kaj Munk
ritar á einstakan máta um gleði
þessarar umræddu hátíðar
kristninnar, í bók sinni Við
Babylons fljót (1941), sem í þýð-
ingu áðurnefnds Sigurbjörns
Einarssonar er á þessa leið:
„Hvítasunnudagur opnar fyrir oss
volduga sýn: Skógurinn hefur sprung-
ið út á einu vetfangi, og vér sjáum, að
svipur hans er öldungis allur annar
en hingað til. Þessir óbreyttu hand-
verksmenn, fiskimenn og tollþjónar
eru nú forystumenn í hreyfingu, sem
hefur heiminn allan að takmarki, þeir
eru máttarstólpar í þeim helgidómi,
sem á að ná yfir alla jörð, þar sem
Guðs heilagi andi á að búa … Þessir
menn, sem hingað til hafa verið svo
kyrrlátir og óframir, standa nú í ljós-
um logum. Og fólkið, sem þeir
ávarpa, kannast ekki við þá sem sömu
menn. Gagnrýnendaklíkan í bænum,
sem auðvitað getur aldrei greint satt
frá lognu, lætur í veðri vaka, að þeir
hafi drukkið allt til morguns („aðrir
höfðu að spotti og sögðu: Þeir eru
drukknir af sætu víni“), en algengt
fólk skildi, að hið mikla var að ske
fyrir augum þess, og það lét sigrast
af valdi þess.
Þannig fæddist kirkjan. Hvítasunnan
er fæðingardagur hennar. Bygging
Péturs og vina hans hefur vaxið svo,
að hún nær nú raunverulega yfir all-
an jarðarhnöttinn, inni í henni hljóma
allar tungur, og heilagur andi hefur
átt þar bústað sinn í tvö þúsund ár …
Hann lætur oss skilja, hvað það er
stórkostlegt, hvað það er stórkost-
legt, að vér þekkjum Guð.
Jesús hefur áunnið oss þá trú, og
andinn hefur samtengt oss henni. Og
í því er hvítasunnuhátíðin fólgin, að
vér getum fært honum þakkir fyrir
vísdóm og fegurð, fyrir réttlæti og al-
mátt, en umfram allt fyrir gæzku
hans. Sjáið grænan gróðurinn, sem
sprettur upp úr moldinni. Hann er
ekki aðeins til gagnsmuna. Hin ferska
grænska hans er og fögnuður fyrir
augað. Horfðu inn í vinaraugun á
blessaðri kúnni. Hugsaðu þér, að
blómin eru sköpuð með ilmi og litum,
í gagnlegum tilgangi, en jafnframt
sem gjöf handa oss, sem eigum augu
og nasir, sem eru gjörð til þess að
njóta alls, sem ljómar og ilmar. Og
fjölbreytnin í fuglasöngnum, hressu
sköllin í vepjunni, trumbusláttur sef-
hegrans, gælurnar í svartþrestinum,
þú ríka, ríka líf, geislakoss frá sólu,
atlot vindarins, um leið og hann
strýkst hjá, þrýsting frá elskuðum
armi, undrunarroði barnanna yfir dá-
semdum lífsins, – þakkir séu þér,
heilagur andi, að þú hefur kennt oss,
að allt þetta eru gjafir frá góðum
Guði, að þú hefur kennt oss, að auð-
legð lífsins er vottur þess eins, að
Guð er til.“
Til hamingju með daginn,
gott fólk.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Geislakoss frá sólu
Kristindómurinn varð formlega til á hvíta-
sunnudag fyrir um 2000 árum, tíu dögum
eftir himnaför Jesú. Sigurður Ægisson
lítur til þessarar miklu hátíðar, sem fæstir þó
kunna að meta að verðleikum.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
KIRKJUSTARF
Hallgrímskirkja. Vortónleikar Mótettu-
kórs annan hvítasunnudag kl. 17.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna-
hópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum
alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587-
9070.
Hjallakirkja: Þriðjudagur: Prédikunar-
klúbbur presta í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra kl. 9.15-10.30. Umsjón:
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK-fundur
fyrir stelpur á aldrinum 9-12 ára kl.
17.15 í kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni.
Allar stelpur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon-
fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl.
13.15-14.30. TTT-fundir í safnaðarheim-
ili kl. 16-17. Fundir í æskulýðsfélaginu
Sánd kl. 17-18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K-starf
kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl.
17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Erling Magnússon. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Ræðumaður Mike
Fitzgerald. Barnakirkja fyrir 1-9 ára börn
meðan á samkomu stendur. Við minnum
á sjónvarpsútsendingu á guðsþjónustu
frá Fíladelfíu sem verður send út í rík-
issjónvarpinu að kvöldi hvítasunnudags
kl. 21.55. Ræðumaður Vörður L.
Traustason. Allir hjartanlega velkomnir.
Vegurinn. Engin samkoma á hvítasunnu-
dag. Annan í hvítasunnu er samkoma kl.
20. Halldór Pálsson prédikar. Lofgjörð,
fyrirbænir og samfélag. Minnum á aðal-
fund kirkjunnar miðvikudaginn 29. maí.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnudag-
ur: Samkoma kl. 14. Ræðumaður Helga
R. Ármannsdóttir. Bænastund fyrir sam-
komu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir börn frá eins árs
aldri. Þriðjud: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverustund unga fólksins
kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð guðs
rætt. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verð-
ur í Grafarvogskirkju kl. 11 á
hvítasunnudag. Séra Bjarni Þór
Bjarnason prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt séra Vigfúsi Þór
Árnasyni. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Einsöngur: Kristín María
Hreinsdóttir. Organisti: Hörður
Bragason.
Hátíðarguðsþjónusta á Hjúkr-
unarheimilinu Eir kl. 15. Séra Vig-
fús Þór Árnason prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Einsöngur: Kristín
María Hreinsdóttir. Organisti:
Hörður Bragason.
Vortónleikar í Grafarvogskirkju
sunnudaginn 26. maí kl. 17. Miða-
verð kr. 1.000. Missa brevis Sancti
Joanni de Deo eftir Josep Haydn.
Einnig verða flutt verk eftir César
Franck, C.H. Gounod, Hjálmar H.
Ragnarsson, Pál Ísólfsson og W.A.
Mozart. Fram koma: Barna- og
unglingakór Grafarvogskirkju,
Kristín María Hreinsdóttir sópran
og Kór Grafarvogskirkju ásamt
kammersveit.
Morgunblaðið/Jim Smart
Grafarvogskirkja
Helgihald
í Grafarvogs-
kirkju um
hvítasunnuna
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum