Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 55
Magni: Mér finnst samt ótrúlegt
að enginn sé búinn að berja neinn.
Heimir: Jú, það hefur auðvitað
soðið uppúr, það kemur fyrir. Aldrei
neitt alvarlegt samt.
Sævar: Enda erum við nú allir vel
yfir meðallagi greindir.
Er þetta ekki full vinna?
Sævar: Við erum reyndar tveir í
hljómsveitinni kennarar þannig að
sumarrúnturinn passar því mjög vel.
Heimir: Við erum flestir að vinna
eitthvað smávegis með þessu. Ég er
bara í þessu en ég er reyndar um-
boðsmaðurinn líka.
Sævar: Þetta er samt aðalstarfið
hjá okkur öllum.
Heimir: Í stutt tímabil er alveg
hægt að hafa nóg að gera. Það er bú-
ið að vera svona hjá okkur í svona
rúmt ár, kannski tvö ár og verður
kannski svona tvö ár í viðbót. Þetta
er náttúrlega svo lítið land.
Leggið þið upp með mikið af nýju
efni í sumar?
Magni: Já, við erum að semja og
taka upp núna.
Sævar: Við erum að gæla við að
gefa út plötu á þessu ári.
Heimir: Við gáfum út plötu í fyrra
og svo stóð ekki til að gefa út plötu
fyrr en á næsta ári en svo gekk
þetta bara svo vel, svo að líklega
verður til önnur plata núna.
Magni: Já, svo verðum við með á
plötum á borð við Svona er sumarið
og öðrum safnplötum í sumar.
Allt nema besta söngkonan
Nú hafið þið sífellt verið að sækja
á í vinsældum hér á landi og farið í
sumar fyrir fjömennum flokki inn-
lendra sveitaballahljómsveita. Hver
er galdurinn?
Sævar: Þolinmæði.
Magni: Nei, þið sem eruð að hugsa
um að láta reyna á ykkur, sleppið því
bara. Annars eruð þið komin í sam-
keppni við okkur.
Sævar: Já, gleymið þessu bara í
svona eitt til tvö ár.
Heimir: Nei, ég held í alvöru að
það sé þolinmæði.
Sævar: Já, og heppni.
Hvernig er með laga- og texta-
smíðar hjá hljómsveitinni, er einhver
einn sem semur eða skiptið þið því á
milli ykkar?
Magni: Við skiptum því aðallega á
milli Heimis.
Sævar: Já, Heimir hefur verið
duglegastur í því.
Heimir: Ég kem kannski með
grunnhugmynd á æfingu og svo
vinnum við að henni allir saman. Við
erum allir skrifaðir fyrir lögunum.
Nú fenguð þið ófáar tilnefningar
til Hlustendaverðlauna Fm 957 og
þóttuð eiga Bjartasta brosið fyrir
ári. Hvað finnst ykkur um verð-
launaafhendingar af þessu tagi?
Sævar: Maður tekur þetta ekki
hátíðlega. Verðlaunaafhendingar eru
ágætar í íþróttum.
Magni: Ef það væri ekki gerð
svona mikil samkeppni úr þessu væri
þetta betra.
Heimir: Eins og núna síðast þá
vorum við tilnefndir í bara öllum
flokkum.
Magni: Já, nema besta söngkonan,
ég komst ekki í þann flokk.
Heimir: Við fengum engin verð-
laun en það var að okkar mati alveg
nóg að vera bara tilnefndir.
Sævar: Þetta hefði kannski ein-
hverja þýðingu fyri menn ef það
væri eitthvað fagfólk sem sæti í dóm-
nefndinni. Þetta er samt auðvitað
rosa skemmtilegt og alveg frábært
framtak.
Heimir: Já, öll umfjöllun um tón-
list er auðvitað mjög góð.
Sævar: Það er líka alltaf hæpið að
segja að eitt sé eitthvað betra en
annað, það er kannski einhver hljóm-
sveit á Sauðárkróki sem er best. Það
sem er best er auðvitað bara smekk-
ur hvers og eins.
Magni: Það er eiginlega ekki hægt
að keppa í tónlist á svona lítilli eyju
eins og okkar.
Hvað er svo framundan hjá Á móti
sól eftir sumarið?
Magni: Gera plötu kannski og
kaupa jólagjafir.
Heimir: Við ætlum líka að reyna
að fara saman til útlanda í frí síð-
sumars. Fara kannski á einhverja
góða tónleika með konunum og þá er
U2 efst á óskalistanum.
Magni: Já, hún er uppáhalds-
hljómsveitin okkar allra.
Hafa landvinningar á erlendri
grund aldrei heillað?
Allir: Nei aldrei.
Magni: Það skilur enginn íslensku
þarna úti.
Sævar: Þetta dugar okkur alveg,
við skemmtum okkur svo vel hérna.
Heimir: Heyrðu, megum við segja
eitt að lokum? Björgum sveitaböll-
unum!
Sævar: Já, það er svona kannski
það sem við viljum koma til skila.
Heimir: Já, á mörgun þessum
stóru stöðum úti á landi stendur til
að hætta að halda böll vegna hækk-
unar á sjálfræðisaldrinum.
Sævar: Þetta er mjög hættuleg
þróun.
Heimir: Já, ég meina, hvað eiga 16
ára krakkar á Sauðárkróki að gera
sér annað til skemmtunar, með fullri
virðingu fyrir Sauðárkróki.
Magni: Er ekki betra að hafa þau í
húsi þar sem er löggæsla, dyraverðir
og sætaferðir fram og til baka.
Heimir: Já, mætum sem sagt öll í
Hreðavatnsskála og björgum sveita-
böllunum.
Morgunblaðið/Sverrir
birta@mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 55
★★★ 1/2 kvikmyndir.com
★★★ 1/2 kvikmyndir.is
★★★★ Sánd
Komin í bíó um land allt!
Missið ekki af
bíóupplifun ársins!„Frábær skemmtun fyrir unnendur
sannra ævintýramynda. Tekur
síðustu mynd langt fram.“
★★★ MBL, Sæbjörn Valdimarsson
MENNINGARMÁL