Morgunblaðið - 19.05.2002, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
YLSTRÖNDIN í Nauthólsvík í Reykjavík var
opnuð á ný í gær, laugardag, þegar heitu
vatni var hleypt í víkina, en það er merki þess
könnuðu hitastig vatnsins á baðströndinni
með bros á vör, en veðrið lék við gesti og
gangandi.
að sumarið sé komið. Við þetta tækifæri var
Kajakklúbburinn í Reykjavík með sína árlegu
kynningu í Nauthólsvík og ungar blómarósir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumaropnun ylstrandarinnar í Nauthólsvík
„ÉG ER varla búinn að átta mig á
þessu ennþá, en tindadagurinn var
stórkostlegur,“ sagði Haraldur Örn
Ólafsson en hann komst á tind Ever-
est-fjalls á fimmtudaginn í Sjö-
tindaleiðangri sínum og var í gær að
koma niður af fjallinu. „Það er
magnað að vera svona hátt uppi, rétt
eins og að ganga inn í himingeiminn.
Það var frábært að ná toppnum, en
ég er fyrst og fremst þakklátur öll-
um þeim sem hafa staðið að baki
mér í leiðangrinum öllum.“
Um hádegisbil að íslenskum tíma í
gær átti Haraldur um tveggja tíma
göngu eftir frá grunnbúðum niður í
þorpið Pheriche. Hann sagði að
gangan niður hefði gengið mjög vel
og áfallalaust fyrir sig. „Við komum
niður í grunnbúðir úr Suðurskarði í
gær [föstudag], sem eru efstu búðir í
tæplega 8.000 metra hæð. Það var
mjög langur dagur, ég gekk með
hléum í tólf tíma.“ Haraldur sagðist
fyrst og fremst ánægður með að
hafa náð tindinum, en sagðist enn-
fremur þreyttur eftir gönguna.
„Tindadagurinn tók mjög á, þannig
að ég er fyrst og fremst þreyttur svo
ég þarf að fara varlega því hættu-
legasti hluti göngunnar er að fara
niður.“ Frá þorpinu Pheriche er
tveggja tíma ganga fyrir höndum til
þorpsins Luhkla en þaðan mun Har-
aldur fljúga til Katmandú. Þar munu
bakvarðasveitin og unnusta Haralds
taka á móti honum en hann áætlar
að koma til Íslands 26. maí nk.
„Tindadagurinn var algjörlega
ógleymanlegur. Fyrst var myrkur
og mikið stjörnuhrap. Það var síðan
mikil upplifun að sjá dagsbirtuna
koma og sjá Himalaya-fjöllin. Þetta
var magnað og ólýsanlegt og mun
stórfenglegri upplifun en ég hafði
ímyndað mér fyrirfram.“
„Eins og að ganga
inn í himingeiminn“
Haraldur Örn Ólafsson fagnar á tindi Everest-fjalls á fimmtudaginn.
BÓNUS hefur fimm helgar frá jólum
orðið að kaupa inn hollenska sveppi
og fá þá senda með flugi til landsins til
að anna eftirspurn í verslunum sín-
um. Af hverju kílói innfluttra sveppa
þarf Bónus að greiða 100 kr. í magn-
toll. Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir undar-
legt að greiða þurfi gjöld af innfluttu
grænmeti þegar það sé ófáanlegt frá
íslenskum framleiðendum.
„Það er bara einn sveppaframleið-
andi á Íslandi og frá áramótum hefur
það komið fyrir fimm sinnum að við
höfum orðið að kaupa inn sveppi frá
Hollandi til að anna eftirspurn. Það er
enginn skilningur fyrir því hjá land-
búnaðarráðuneytinu að fella niður
tollinn af þessum vörum þó svo að ís-
lenska varan sé ekki til.“ Guðmundur
segir vandann mestan um helgar þeg-
ar 70% sveppasölunnar fara fram.
„Að þurfa svo í þokkabót að borga
verndartolla af vörum, sem ekki eru
til, er ferlega dapurt.“
Guðmundur segir að hollensku
sveppirnir séu dýrari í innkaupum en
þeir íslensku en útsöluverð þeirra sé
það sama. „Manni finnst þetta skjóta
skökku við þegar íslenska varan er
ekki til. Það er algjör óþarfi að vera að
leggja á þetta toll, það er ekki verið að
vernda neitt.“ Guðmundur segir að
ekki hafi þurft að grípa til þess ráðs
með annað grænmeti að flytja það inn
frá útlöndum til að anna eftirspurn.
Magntollurinn í endurskoðun
„Íslensku sveppirnir eru til en eru
ekki til í nægilegu magni,“ segir Guð-
mundur Sigþórsson, skrifstofustjóri
hjá landbúnaðarráðuneytinu. „Þá
þarf að flytja inn viðbót. Gjöld hafa
verið lækkuð af slíkum viðbótarinn-
flutningi við þær tillögur grænmetis-
nefndarinnar um að afnema verðtoll,
sem var 7,5%. Þá stóðu eftir þessar
hundrað krónur á kílóið, sem eru
magntollur. Það er nú í endurskoðun
hjá landbúnaðarráðuneytinu að
lækka magntollinn, en ekki stendur
til að afnema hann.“
Ástæðan er sú, að sögn Guðmund-
ar, að ef 95% grænmetisins, sem er
sveppir í þessu tilviki, eru fáanleg hér
á landi og 5% fengin erlendis frá yrðu
þessi 95%, sem framleidd eru í sam-
keppni við erlenda hlutann, í uppnámi
ef gjaldið yrði með öllu afnumið. „Það
verða að vera hæfileg gjöld.“
Tollur á grænmeti anni innlendur markaður ekki eftirspurn
Hæfileg gjöld eru
talin nauðsynleg
VEGAGERÐIN auglýsir eftir
helgina eftir þátttakendum í forvali
vegna jarðganga milli Reyðarfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar annars vegar og
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hins
vegar. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segir að þar með sé
þessu mikla verkefni hrint af stað.
Frestur til að skila inn forvals-
gögnum rennur út 24. júní og verður
þá ljóst hvaða fyrirtæki eru reiðubú-
in til að taka verkið að sér. Nokkrum
vikum seinna mun síðan liggja fyrir
hvaða fyrirtæki fá að taka þátt í lok-
uðu útboði. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvenær útboðið fer
fram né heldur hvenær framkvæmd-
ir hefjast eða á hvorum göngunum
verði byrjað en ákvörðun um það
mun væntanlega liggja fyrir í sumar.
Áætlaður heildarkostnaður við þess-
ar framkvæmdir er 9 til 10 milljarðar
króna. Upphaflega var gert ráð fyrir
að forvalið færi fram í mars. Sturla
segir að frestunin sé að nokkru leyti
vegna tæknilegra ástæðna en aðal-
lega sökum þess að með breytingum
á vegáætlun í vetur hafi minna fé
verið ætlað til jarðganga og fram-
kvæmdum við þau seinki sem því
nemur. Jarðgöng milli Reyðarfjarð-
ar og Fáskrúðsfjarðar yrðu 5,9 km
löng, með vegskálum. Milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar er gert ráð
fyrir að byggja tvenn jarðgöng, alls
rúmlega 10 km löng. Reiknað er með
að öll göngin verði tvíbreið.
Forval
vegna jarð-
ganga
BROTIST var inn í úraverslun
við Skólavörðustíg um áttaleytið
í gærmorgun og allmiklu stolið.
Rúða í hurð verslunarinnar var
brotin til þess að komast inn og
þaðan stolið úrum, en lögreglan
í Reykjavík sagði ekki að fullu
ljóst hversu miklu var stolið.
Þjófurinn eða þjófarnir voru
ófundnir skömmu eftir hádegi í
gær, að sögn lögreglu.
Úrum
stolið