Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 1
Varað við hryðju- verkum í New York BANDARÍSKA alríkislögregl- an, FBI, varaði í gær yfirvöld í New York-borg við því að hryðjuverkamenn kynnu að gera árásir á Frelsisstytt- una og ýmis þekkt mann- virki í borg- inni. Viðvörunin byggist á upp- lýsingum sem fengist hafa við yfir- heyrslur yfir föngum sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkasamtök- um. Þessar upplýsingar hafa þó ekki verið staðfestar, að sögn bandarískra embættis- manna. Öryggisgæslan hert Yfirvöld hafa hert öryggis- gæsluna við minnismerki og þekkt mannvirki í borginni vegna viðvörunarinnar, meðal annars við Brooklyn Bridge, brú milli Manhattan og Brook- lyn. Raymond Kelly, lögreglu- stjóri í New York, sagði að lögregla borgarinnar gerði allt sem í valdi hennar stæði til að koma í veg fyrir hryðjuverk og ætti náið samstarf við FBI. Í dag hefst árlegur viðburður í borginni, svonefnd Flotavika, þar sem 22 skip úr bandaríska sjóhernum og um 6.000 sjólið- ar koma saman. New York. AP.  Bush nýtur stuðnings/25 Frelsis- styttan í New York 118. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 22. MAÍ 2002 ÓÞEKKTIR menn myrtu í gær Adbul Ghani Lone, leiðtoga helstu hreyfingar aðskilnaðarsinnaðra múslíma í Kasmír þar sem mann- skæð átök hafa geisað milli ind- verskra og pakistanskra hermanna síðustu daga. Atal Bihari Vajpayee, forsætis- ráðherra Indlands, sem heimsótti indverska hluta Kasmír í gær, sagði að morðið myndi ekki hindra friðarumleitanir Indverja og hóf- samra aðskilnaðarsinna. Lone, sem var sjötugur, hafði reynt að koma á friðarviðræðum við Indverja og var andvígur vopn- aðri baráttu fyrir aðskilnaði ind- verska hluta Kasmír. „Hann beitti sér fyrir friði og sú barátta kostaði hann lífið,“ sagði Vajpayee. „Dauði Lones þýðir að við verðum að leggja enn harðar að okkur við að koma á friði í Kasmír.“ Engin hreyfing hefur lýst morð- inu á hendur sér. Lone og líf- vörður hans voru skotnir til bana í árás tveggja manna, sem klæddust lög- reglubúningum, þegar hann var viðstaddur minn- ingarathöfn um annan leiðtoga aðskilnaðarsinna sem var myrtur fyrir 12 árum. Um 5.000 manns sóttu athöfnina og annar tilræð- ismannanna kastaði handsprengju að hópnum en hún sprakk ekki. Varað við allsherjarstríði Yfirvöld í indverska hluta Kasm- ír kenndu Pakistönum um morðið en stjórn Pakistans sagði það „enn eitt dæmið um tilraunir indverska hernámsliðsins til að brjóta að- skilnaðarsinna í Kasmír á bak aft- ur með morðum, ofbeldi og nauðg- unum“. Fimm óbreyttir borgarar voru í gær sagðir hafa látið lífið í sprengjuárásum indverskra og pakistanskra hermanna yfir landa- mærin. Ríkin hafa safnað alls um milljón hermanna við landamærin. Sendiherra Pakistans í Bret- landi sagði að mikil hætta væri á nýju allsherjarstríði milli grann- ríkjanna tveggja sem ráða bæði yfir kjarnavopnum. Ríkin hafa tvisvar sinnum háð stríð vegna deilunnar um Kasmír frá því að þau fengu sjálfstæði frá Bretlandi 1947. Srinagar. AP, AFP. Abdul Ghani Lone Leiðtogi aðskilnaðar- sinna í Kasmír myrtur Ariel Sharon forsætisráðherra reynir að afstýra stjórnarkreppu Vona að hægt verði að bjarga ríkisstjórn Ísraels  Óttast fjármagnsflótta/24 Jerúsalem. AP, AFP. ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, reyndi í gær að afstýra stjórnarkreppu í landinu eftir að hafa rekið fjóra ráðherra og sjö aðstoðar- ráðherra tveggja flokka strangtrú- aðra gyðinga úr samsteypustjórninni vegna deilu um efnahagsstefnu henn- ar. Náist ekki samkomulag í deilunni kann stjórnin að missa meirihluta sinn á þinginu og það gæti leitt til nýrra kosninga. Bandamenn Sharons á þinginu voru þó vongóðir um að stjórnin héldi velli. Ráðherrarnir voru reknir eftir að flokkarnir tveir, Shas og Sameinaði Tóra-flokkurinn, neituðu að styðja lagafrumvarp fjármálaráðherrans um að minnka útgjöldin til velferð- armála og hækka skatta til að standa straum af kostnaðinum við aðgerðir hersins á svæðum Palestínumanna. Strangtrúarflokkarnir eru andvígir því að barnabætur verði lækkaðar, enda eru margir kjósenda þeirra barnmargir. Frumvarpið var fellt seint í fyrra- kvöld með 47 atkvæðum gegn 44. Zeev Boim, forystumaður í flokki Sharons, Likud, sagði að frumvarpið yrði borið aftur undir atkvæði á þinginu í dag og kvaðst vera að reyna að fá miðflokkinn Shinui og að minnsta kosti nokkra þingmenn hægriflokksins Þjóðarsambandsins til að ganga í stjórnina. „Ég tel ekki að kosningar séu í sjónmáli,“ sagði Boim. Hugsanlegt er að Sharon reyni einnig að ná samkomulagi við Shas og Sameinaða Tóra-flokkinn áður en brottvikning ráðherranna tekur formlega gildi í kvöld. Giora Pordes, forseti þingsins, sagði þó að ekki kæmi til greina að breyta frumvarp- inu áður en það yrði borið undir at- kvæði aftur. Eli Yishai, formaður Shas, léði máls á samningaviðræðum um nýja efnahagsstefnu sem gerði flokknum kleift að vera áfram í stjórninni. Shas er með 17 þingsæti og þriðji stærsti flokkurinn á þingi Ísraels á eftir Verkamannaflokknum (23 þing- sæti) og Likud (19 sæti). Sameinaði Tóra-flokkurinn er með fimm þing- sæti. Óttast að kosningar torveldi friðarumleitanir Náist ekki samkomulag við strang- trúarflokkana verður samsteypu- stjórnin með 60 þingsæti af 120. Sér- fræðingar í ísraelskum stjórnmálum segja að verulegar líkur séu á því að flýta þurfi kosningum missi stjórnin meirihlutann og telja að þær myndu torvelda friðarumleitanir. Palestínu- menn óttast að hægrisinnaðir and- stæðingar friðarviðræðna fái meiri- hluta á þinginu og myndi næstu stjórn verði kosningunum flýtt. AP Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fylgist með þyrlu lenda á ísraelsku herskipi sem hann skoðaði í gær. BRESKA lögreglan kynnti í gær nýjasta vopnið í baráttunni gegn glæpum – bíla með há- tæknibúnað sem gerir lögregl- unni kleift að fylgjast með ferð- um þeirra ef þeim er stolið og fjarstýra þeim. Hátæknibúnaðurinn verður settur í venjulega bíla sem verða geymdir á götunum sem tálbeit- ur. „Ólíkt því sem gerist þegar þjófum á venjulegum bílum er veitt eftirför standa þeir miklu verr að vígi í tálbeitubílunum því þeir komast að því, hvenær sem lögreglan vill, að þeir geta hvorki stýrt bílunum né komist hjá handtöku,“ sagði talsmaður leynilögreglunnar í London. Hann kvað lögregluna geta fylgst nákvæmlega með ferðum þjófanna um leið og bílunum væri stolið. Fyrstu tálbeitubíl- arnir voru teknir í notkun í Ess- ex. Reynist þeir vel verða þeir notaðir út um allt Bretland. Fjarstýrðir bílar til að góma þjófa London. AP. ÞÚSUNDIR manna komu saman í miðborg Berlínar í gær til að mót- mæla heimsókn George W. Bush Bandaríkjaforseta til Þýskalands í dag. Mótmælendurnir héldu á stórri eftirmynd af Bush sem hélt kyrkingaról um hálsinn á konu í gervi „móður náttúru“. Heimsókn Bush mótmælt  Þúsundir mótmæla/24 AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.