Morgunblaðið - 22.05.2002, Síða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 53
JUNIOR Chamber Ísland veitti
viðurkenningu, sem nefnist Fram-
úrskarandi ungir einstaklingar,
miðvikudaginn 15. maí. Fjórir ein-
staklingar hlutu viðurkenningu.
Á sviði persónulegs árangurs
hlaut hana Haraldur Örn Ólafsson
fjallagarpur og pólfari, á sviði
viðskipta og frumkvöðla Magnús
Scheving íþróttamaður, rithöf-
undur og framkvæmdastjóri, á
sviði menningar og lista Margrét
Vilhjálmsdóttir leikkona og á
sviði samfélagsmála Marsibil Sæ-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Götusmiðjunnar.
Að mati dómnefndar hafa allir
þessir einstaklingar unnið af heil-
indum og frumkvæði hvert á sínu
sviði. Að undanförnu hafa verið
unnar ítarlegar umsóknir um
þessa einstaklinga sem sendar
verða í alþjóðlega keppni, The
Outstanding Persons of The
World 2002, á vegum Junior
Chamber International. Í þessa al-
þjóðlegu keppni eru sendar um-
sóknir hvaðanæva úr heiminum.
Á Heimsþingi Junior Chamber
International, sem haldið verður í
nóvember næstkomandi, hljóta
svo tíu einstaklingar viðurkenn-
inguna Outstanding Young Per-
son of The World 2002.
Þessi verðlaun eiga sér talsvert
langa sögu á alþjóðavísu en þetta
er einungis í annað sinn sem verð-
launin eru veitt á Íslandi. Örn
Sigurðsson, landsforseti Junior
Chamber, sagði af þessu tilefni að
það væri von hans að tilnefningin
yrði árlegur viðburður héðan í frá
og að með tímanum yrði það
keppikefli ungra einstaklinga,
sem eru að takast á við krefjandi
verkefni, að fá tilnefninguna
Framúrskarandi ungur ein-
staklingur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Á myndinni eru f.v. Örn Sigurðsson, landsforseti JCÍ, Margrét Vilhjálmsdóttir, Marsibil Sæmundsdóttir, Una
Björk, eiginkona Haraldar Arnar, og Ragnheiður Melsteð, sem tók við viðurkenningunni f. Magnús Scheving.
JC veitir viðurkenningar
21. ÞING Norræna líffæraígræðslu-
félagsins (The Scandinavian
Transplantation Society) verður
haldið í Háskólabíói dagana 22.–24.
maí. Þing þessi eru haldin annað
hvert ár og skiptast Norðurlöndin
fimm á um að halda þau. Þátttak-
endur verða á þriðja hundrað og
koma einkum frá Norðurlöndum en
einnig frá öðrum löndum svo sem
Eystrasaltslöndunum, Austurríki og
Bretlandi.
Gestafyrirlesarar eru m.a.: Blanca
Miranda frá Spáni, sem veitir for-
stöðu stofnun þeirri sem annast öfl-
un líffæra til ígræðslu þar í landi, og
Hrefna Guðmundsdóttir, sem fjallar
um rannsóknir sem vonir standa til
að valda muni byltingu í líffæraíg-
ræðslu í framtíðinni. Á þinginu verða
fluttar skýrslur um ígræðslustarf-
semi á Norðurlöndum á vegum
stofnunarinnar Scandiatransplant
en öll ígræðslusjúkrahús á Norður-
löndum eru aðilar að þeirri stofnun.
Heilbrigðisráðuneytið er aðili að
stofnuninni fyrir Íslands hönd þar eð
líffæraígræðslur fara ekki fram hér-
lendis.
Mörg frjáls erindi liggja fyrir
þinginu ýmist til munnlegs flutnings
eða á veggspjöldum. Meðal þeirra
má nefna erindi Páls Ásmundssonar
og fleiri um árangur nýrnaígræðslu í
íslenska sjúklinga 1970–2000, segir í
fréttatilkynningu.
Þing Norræna
líffæraígræðslu-
félagsins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá fjár-
málaskrifstofu Reykjanesbæjar:
„Í tilefni af heilsíðuauglýsingu er
birtist í Morgunblaðinu föstudaginn
17. maí um álagningu fasteigna-
gjalda á eldri borgara vill fjármála-
skrifstofa Reykjanesbæjar koma á
framfæri athugasemd við villandi
samanburð á fasteignagjöldum.
Í auglýsingunni er vísað í grein
Péturs Guðmundssonar sem birtist í
félagsriti eldri borgara í Reykjavík.
Í greininni er þess getið að ,,hafa
verði í huga að fasteigna- og lóðar-
mat er alltaf miklu lægra úti á landi
en á höfuðborgarsvæðinu“.
Fasteigna- og lóðarmat í Reykja-
nesbæ á sambærilegri eign og kem-
ur fram í auglýsingunni er um kr.
7.600.000.
Álögð gjöld á slíka eign með af-
slætti væru nálægt kr. 51.000 en ekki
kr. 105.000 eins og fram kemur.“
Athugasemd
INGA Jóna Þórðardóttir borgar-
fulltrúi fjallar um skipulagsmál á
opnum fundi í kosningamiðstöð sjálf-
stæðismanna í Skaftahlíð 24 í dag,
miðvikudaginn 22. maí, kl. 17.30,
segir í fréttatilkynningu.
Fjallar um
skipulagsmál
ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavíkur
heldur almennan borgarafund í dag,
miðvikudaginn 22. maí, kl. 20 í ÍR-
heimilinu með Alfreð Þorsteinssyni
af R-lista og Vilhjálmi Þ. Vilhjálms-
syni af D-lista um æskulýðs- og tóm-
stundamál í Breiðholtinu, segir í
fréttatilkynningu.
Borgara-
fundur ÍR
ALMANNATENGSLAFÉLAG Ís-
lands heldur fund um innri almanna-
tengsl fyrirtækja miðvikudaginn 22.
maí kl. 8.10-9.30 á Grand Hóteli í
Reykjavík. Á fundinum verður rætt
um mikilvægi góðra samskiptaleiða
og upplýsingaflæðis innan fyrir-
tækja og hvernig megi nýta innri al-
mannatengsl í starfsmannamálum.
Fyrirlesarar á fundinum eru Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, Ólafur Jón Ingólfsson,
starfsmannastjóri Sjóvár-Almennra
hf., Heiða Lára Aðalsteinsdóttir,
upplýsinga- og markaðsstjóri A.
Karlssonar, og Svali H. Björgvins-
son, forstöðumaður starfsmannaráð-
gjafar PricewaterHouse Consulting.
Fundurinn er öllum opinn og verð
með morgunmat er 1.500 kr.
Fundur um innri
almannatengsl
BARBARA W. Hodson prófessor í
talmeinafræði við Wichita State Uni-
versity, Kansas, heldur fyrirlestur á
vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ
fimmtudaginn 23. maí kl. 16.15 í sal
Sjómannaskóla Íslands við Háteigs-
veg um hljóðkerfisvitund og málm-
eðvitund. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Fyrirlestur um
málmeðvitund
KVENFRAMBJÓÐENDUR Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi halda op-
inn fund á Café Prestó, Hlíðasmára
15, í dag, miðvikudaginn 22. maí, kl.
21. Auk þess sem frambjóðendurnir
fjalla um helstu málefni fyrir kom-
andi sveitarstjórnakosningar verður
fyrirspurnum fundarmanna svarað.
Markmið fundarins er að vekja um-
ræður um pólitíkina í Kópavogi og
framtíðarsýn. Jafnframt verður
Pharmaco með kynningu á nýjung-
um í snyrtivörum. Allir velkomnir,
segir í fréttatilkynningu.
Konukvöld á
Café Prestó
STJÓRNMÁLAAFLIÐ „Vinstri
hægri snú“ stendur fyrir hátíð í Húsi
málarans fimmtudaginn 23. maí kl.
21, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hátíð í
Húsi málarans
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Verkalýðs-
félaginu Hlíf:
„Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar
tekur undir sameiginlega yfirlýsingu
Alþýðusambands Íslands og Sam-
taka atvinnulífsins um rauð strik en
telur að í henni hefði átt að koma
fram að íbúðarlán hafa hækkað um-
talsvert undanfarin misseri vegna
verðtrygginga sem á þeim eru.
Þarna er um afgerandi hækkun að
ræða sem eykur greiðslubyrði al-
mennings. Sem betur fer bendir flest
til þess að verðbólgan lækki á næstu
mánuðum en það munu íbúðarlánin
ekki gera, heldur munu fyrrgreindar
hækkanir fylgja launafólki til síðustu
greiðslu.
Til þess að mæta þessari auknu
greiðslubyrði verður að afnema
verðtryggingu íbúðarlána. Óstöðug-
leikinn í fjármálum þjóðarinnar er
ekki vegna of hárra launa hjá verka-
fólki, heldur vegna þeirrar verð-
tryggðu okurvaxta er hér gilda, sem
eru bæði atvinnurekendum og launa-
fólki til skaða.“
Vilja afnema
verðtryggingu
íbúðalána HELGA Hilmisdóttir, doktorsnemi
við Háskólann í Helsinki, heldur op-
inberan fyrirlestur á vegum Ís-
lenska málfræðifélagsins í dag, mið-
vikudaginn 22. maí, kl. 16.15 í stofu
422 í Árnagarði. Allir eru velkomn-
ir.
Fyrirlesturinn nefnist: Nú?
Fjallar hann um smáorðið nú í ís-
lenskum samtölum með hliðsjón af
kenningum samtalsfræðanna (con-
versation analysis). Umfjöllunin
byggist á 10 klukkustundum af töl-
uðu máli (hversdagslegum samtöl-
um og útvarpsefni).
Helga Hilmisdóttir lauk fil.mag.-
prófi í norrænum málum frá Há-
skólanum í Helsinki árið 1999. Hún
er nú í doktorsnámi við sama há-
skóla og er að skrifa doktorsritgerð
um hlutverk smáorðsins nú í ís-
lenskum samtölum, segir í frétta-
tilkynningu.
Málfræði-
fyrirlestur
OPIÐ hús verður um mat á um-
hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu
í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bú-
staðaveg á morgun, 22. maí, frá kl.
16–19.
Þar verður hægt að kynna sér
helstu niðurstöður matsskýrslunn-
ar og framhald matsferlisins. Einn-
ig gefst tækifæri til að ræða við
fulltrúa Landsvirkjunar og ráð-
gjafa um matið á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu.
Matsskýrslan er á heimasíðu
verkefnisins, www.nordlingaalda-
.is, ásamt ýmsu öðru kynningar-
efni.
Mat á umhverf-
isáhrifum Norð-
lingaölduveitu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning:
„Ferðaþjónustan Lónkoti í
Skagafirði stendur fyrir þremur
mörkuðum í sumar. Markaðirnir
fara fram síðasta sunnudag í júní,
júlí og ágúst og eru haldnir í risa-
tjaldi staðarins, sem er hið stærsta
á landinu. Dagarnir eru: 30. júní,
28. júlí og 25. ágúst. Markaðirnir
eru opnir gestum frá kl. 13 til 18,
en sölufólk hefur auk þess tímann
frá kl. 10 til 13 til að koma sér fyr-
ir. Hægt er að fá frekari upplýs-
ingar og panta söluborð hjá Ferða-
þjónustunni Lónkoti. Markaðir í
Lónkoti hafa verið árvissir síðan
1999.“
Markaður í
Skagafirði
GUÐFRÆÐINEMARNIR Gunn-
ar Jóhannesson og Kornelia Eich-
horn flytja lokapredikanir sínar í
kapellu Háskóla Íslands í dag, mið-
vikudaginn 22. maí, kl. 18. Allir eru
velkomnir, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Lokapredik-
anir í guð-
fræðideild
Hvítasunnuhelgin
var annasöm hjá lög-
reglunni í Reykjavík.
Mikil umferð var frá
höfuðborgarsvæðinu
á föstudag og síðan var þungur
umferðarstraumur til höfuðborg-
arinnar á sunnudag og mánudag.
Alls voru 116 ökumenn grunaðir
um of hraðan.
Því miður varð helgin ekki slysa-
laus. Á föstudag var ekið á konu í
miðborginni sem var flutt á slysa-
deild með sjúkrabifreið en hún
hafði fótbrotnað, úlnliðsbrotnað og
fengið skurð á höfuð. Á sunnudag
varð harður árekstur á Suður-
landsvegi við afleggjarann að Fjár-
borgum. Ökumaður annarrar bif-
reiðarinnar var að bíða eftir að
geta beygt inn afleggjarann og
kastaðist bifreiðin rúmlega 20
metra við höggið, þrír farþegar
voru í bifreiðinni. Á vettvang komu
þrjár sjúkrabifreiðar og ein tækja-
bifreið ásamt lögreglu. Í hinni bif-
reiðinni voru tveir menn. Ökumenn
og farþegar í báðum bifreiðunum
voru fluttir á slysadeild með
sjúkrabifreið og draga þurfti báðar
bifreiðarnar af vettvangi.
Á föstudags- og laugardags-
kvöld var nokkur fjöldi í miðborg
Reykjavíkur, flest var á tímabilinu
3 til 5 um nóttina.
Slagsmál í miðbænum
Á föstudagskvöldið var lögregla
kölluð til aðstoðar vegna slagsmála
á horni Pósthússtrætis og Austur-
strætis en þar hafði sést í eftirlits-
myndavélum hvar menn slógust.
Það mál var leyst án aðgerða en
upplýsingar teknar. Í miðborginni
var stöðvaður töluverður fjölda bif-
reiða og gætt að ástandi ökumanna
og þurfti í fjórum tilvikum frekari
rannsókna við. Maður kom á mið-
borgarstöð en á hann hafði verið
ráðist og hann sleginn í Austur-
stræti, lögreglan ók honum á slysa-
deild.
Á laugardagskvöldi mynduðust
nokkrar biðraðir við skemmtistað-
ina og var ölvun talsverð. Nokkuð
var um slagsmál og í nokkrum til-
fellum þurfti að aðstoða dyraverði
veitingahúsa vegna ölvaðra gesta
sem þeir áttu í vandræðum með að
hemja. Sem dæmi þá „skallaði“
maður tvo dyraverði á skemmti-
stað með þeim afleiðingum að hann
nefbraut annan þeirra en það
kvarnaðist úr tönn hjá hinum.
Árásarmaður var handtekinn og
fluttur í fangageymslu.
Úr dagbók lögreglunnar 17. til 21. maí.
Annasöm
hvítasunnuhelgi
hjá lögreglu
KJÖRSKRÁ vegna borgarstjórnar-
kosninga í Reykjavík er nú aðgengi-
leg almenningi á vef Reykjavíkur-
borgar, www.reykjavik.is. Þar er
hægt að fletta rafrænt upp í kjör-
skrá og fá upplýsingar um á hvaða
kjörstað maður eigi að kjósa og í
hvaða kjördeild. Með því að slá inn
kennitölu er flett upp í kjörskrá og
upplýsingar um kjörstað og kjör-
deild birtar. Markmiðið með þessu
er að auðvelda fólki að nálgast upp-
lýsingar um hvar kjósa eigi og er
þetta liður í bættri rafrænni þjón-
ustu við borgarbúa, segir í frétta-
tilkynningu.
Kjörskráin
í Reykjavík
aðgengileg
á vefnum