Morgunblaðið - 22.05.2002, Síða 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DREGIÐ hefur úr vinsældum
Yassers Arafats meðal Palestínu-
manna en margir eru afar ósáttir
við þá spillingu sem talin er ein-
kenna heimastjórn þá, sem Arafat
veitir forystu. Enginn annar leið-
togi Palestínumanna nýtur þó
slíkra vinsælda, að líklegt sé að
hann geti velt Arafat úr sessi.
Þetta má lesa úr skoðanakönn-
un sem gerð var meðal Palest-
ínumanna í síðustu viku. Kom
fram í könnuninni að mikill stuðn-
ingur er við umbætur í heima-
stjórninni, m.a. að reka skuli
spillta ráðherra, skipuleggja ör-
yggisveitir Palestínumanna upp á
nýtt og halda kosningar innan
fárra mánaða.
Ef marka má könnunina nýtur
Arafat stuðnings 35% Palestínu-
manna, en sambærileg tala var
46% í júlí 2000, áður en yfirstand-
andi átök við Ísraela brutust út.
Arafat naut 36% stuðnings í könn-
un sem gerð var í desember 2001.
Marwan Barghouti, leiðtogi
Fatah-hreyfingar Arafats á Vest-
urbakkanum, er næstvinsælastur
palestínskra stjórnmálamanna,
hefur 19% fylgi meðal almennings.
Barghouti, sem Ísraelar handtóku
í síðasta mánuði vegna gruns um
að hann skipulegði sjálfsmorðs-
árásir gegn ísraelskum borgurum,
nýtur meiri vinsælda nú en í des-
ember, en þá fékk hann 11% fylgi í
sambærilegri könnun.
Skoðanakönnunina gerði sjálf-
stæð stofnun sem sérhæfir sig í
gerð kannana meðal Palestínu-
manna. 1.317 manns tóku þátt í
könnuninni og voru vikmörk henn-
ar 3%.
Khalil Shikaki, sem starfar hjá
stofnuninni sem gerði könnunina,
sagði niðurstöðuna sýna að vin-
sældir Arafats væru minni núna
en nokkru sinni áður, en Arafat
hefur verið leiðtogi Palestínu-
manna í fjóra áratugi.
„Almenningur telur ekki að
Arafat sýni forystu, fólki finnst
ekki ljóst hvað það er sem hann
vill,“ sagði Shikaki. „Honum hefur
mistekist á tvennum vígstöðvum;
að binda enda á hernám Ísraela og
byggja upp lýðræðislegt, palest-
ínskt ríki.“
Þetta breytir þó ekki því, segir
Shikaki, að það er enginn annar í
sjónmáli sem gæti skorað Arafat á
hólm og það er næsta víst að sú
staða breytist ekki á meðan enn
standa yfir átök við Ísraela.
„Áfram verður litið á Arafat sem
tákn væntinganna um brottför
Ísraela. Á meðan Arafat er á lífi
mun enginn ógna stöðu hans.“
Vinsældir Arafats aldrei minni
Ramallah. AP.
STJÓRNARKREPPAN, sem nú er
komi upp í Ísrael eftir að þingmenn
hins bókstafstrúaða Shas-flokks
neituðu að samþykkja aðhaldsað-
gerðir stjórnarinnar, sýnir vel hve
illa er komið í ísraelsku efnahagslífi.
Það er að sligast undir gífurlegum
kostnaði við herförina gegn Palest-
ínumönnum, lítilli fjárfestingu og
miklum samdrætti í mikilvægum at-
vinnugreinum.
Fréttaskýrendur telja líklegt, að
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr-
aels, muni takast að ná einhverju
málamiðlunarsamkomulagi um fjár-
lögin en þeir leggja áherslu á, að það
sé ekki til nein skyndilausn á erfið-
leikunum, nema ef vera skyldi frið-
arsamningur við Palestínumenn.
Þjóðarframleiðslan minnkar
Ástandið í ísraelsku efnahagslífi
hefur stórversnað síðan Palestínu-
menn hófu uppreisnina gegn her-
námi Ísraela á Vesturbakkanum og
Gaza í september 2000. Verðbólgan
er á uppleið og þjóðarframleiðslan
dróst saman um 0,5% á síðasta ári.
Hefur það ekki gerst síðan 1953.
Hafa Ísraelar orðið verr úti í sam-
drættinum í heimsbúskapnum en
margir aðrir, einkum vegna þess hve
hátæknifyrirtækin vega þungt.
Fréttaskýrendur benda á, að þótt
aðhaldsaðgerðirnar, nýir skattar og
útgjaldastöðvun, verði samþykktar,
þá muni það breyta litlu um stöðu
ríkissjóðs. Erlendir fjárfestar og er-
lendir ferðamenn muni halda áfram
að forðast landið.
„Það er harla fátt, sem Sharon
getur gert,“ sagði Gil Feiler, prófess-
or í hagfræði við Bar-lan-háskólann,
og bætti því við, að ísraelskur al-
menningur væri búinn að missa alla
trú á efnahagsráðstöfunum stjórnar-
innar.
„Ef þetta heldur áfram mun verða
mikill fjármagnsflótti frá landinu og
gengi gjaldmiðilsins, shekelsins,
hrynur. Þá munu margir verða til að
flytja sinn atvinnurekstur til annarra
landa.“
Shekelinn féll í gær um 0,9% gagn-
vart dollara og lánstraust ríkisins og
einkafyrirtækja er á niðurleið.
Auknir skattar,
aukinn samdráttur
Fréttaskýrendur segja, að það
versta við aðhaldsaðgerðirnar sé, að
þær veiti í raun lítið aðhald. Sam-
kvæmt þeim á að hækka virðisauka-
skatt um 1% og skera niður barna-
bætur. Þær verða þó aðeins skornar
niður hjá þeim fjölskyldum, sem eiga
engan í hernum eða tengdum störf-
um. Það á einkum við um ísraelska
araba og bókstafstrúaða gyðinga,
sem eru undanþegnir herskyldu. Að
auki á að skattleggja meira arð af
fjárfestingum og verð á bensíni og
tóbaki hefur þegar verið hækkað.
Feiler segir, að skattahækkunin
muni aðeins verða til að draga enn úr
eftirspurn og þar með auka á sam-
dráttinn. Þá bendir hann á, að skat-
taáþján sé óvíða meiri en í Ísrael og
ekki óalgengt, að fólk greiði um 60%
teknanna til hins opinbera.
Óttast fjár-
magnsflótta
AP
Þrír þingmenn bókstafstrúaðra gyðinga á Ísraelsþingi. Þeir felldu að-
haldsaðgerðir stjórnarinnar vegna þess, að þær gera ráð fyrir minni
barnabótum til fjölskyldna, sem eiga engan tengdan hernum.
Jerúsalem. AFP.
GERT var ráð fyrir að tugir þús-
unda friðarsinna myndu taka þátt í
mótmælum, sem skipulögð höfðu
verið í Berlín í gær í tilefni heim-
sóknar George W. Bush Bandaríkja-
forseta til Þýskalands í dag. Bush
mun í heimsókninni eiga viðræður
við Gerhard Schröder, kanslara
Þýskalands, um samskipti Banda-
ríkjanna og Evrópuþjóðanna og um
baráttuna gegn hryðjuverkum.
Meira en 240 samtök, sem og
margir liðsmenn stjórnmálaflokka,
sem aðild eiga að ríkisstjórn Þýska-
lands eða borgarstjórn Berlínar,
tóku þátt í mótmælunum í gær en
þau fóru fram undir yfirskriftinni
„öxull hins góða“, og var þar verið
að vísa til ummæla Bush í vetur um
„öxulveldi hins illa“, þ.e. Írak, Íran
og Norður-Kóreu.
Talsmaður mótmælenda lagði
áherslu á að mótmælin snerust ekki
um andúð á Bandaríkjunum og
Bandaríkjamönnum heldur væri
meiningin að mótmæla þeirri til-
hneigingu Bandaríkjastjórnar að
grípa til einhliða aðgerða í utan-
ríkis- og umhverfismálum.
Dagblaðið Berliner Zeitung sagði
í leiðara í gær að Schröder myndi
að sjálfsögðu taka Bush fagnandi.
Margir Þjóðverjar væru þó ósáttir
við stefnu Bandaríkjamanna. „Aldr-
ei fyrr hefur neinn forseti Banda-
ríkjanna virst okkur jafnfjarlægur
og aldrei áður hafa þýskir rík-
isborgarar haft jafnmiklar efasemd-
ir um stefnumál öflugasta banda-
manns þeirra,“ sagði í leiðaranum.
Fer einnig til Rússlands,
Frakklands og Ítalíu
Það eru einkum áform Banda-
ríkjamanna um árásir á Írak sem
andúð Evrópumanna beinist að, sem
og ákvörðun þeirra um að leggja
verndartolla á innflutning landbún-
aðarvara og stáls til Bandaríkjanna.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tók hins vegar upp
hanskann fyrir Bush, við upphaf
Evrópuheimsóknar hans, í viðtali
við The Times í gær. Sagði Blair þar
að hann teldi það eitt af verkefnum
sínum, að koma í veg fyrir að fólki
tækist að rjúfa skarð í samstöðu
Evrópumanna og Bandaríkjanna.
„Þeir einu sem myndu hagnast af
slíkri vök milli vina væru hin illu öfl
í veröldinni,“ sagði Blair.
Bush kemur til Berlínar í dag en
heldur síðan til Moskvu og Sankti
Pétursborgar í Rússlandi en þar
mun hann m.a. undirrita, ásamt
Vladimír Pútín Rússlandsforseta,
samkomulag um fækkun kjarna-
vopna. Síðan fer Bush til Frakk-
lands og endar loks Evrópuför sína í
Róm, en þar mun hann sækja leið-
togafund Atlantshafsbandalagsríkj-
anna. Er ætlunin að skrifa þar undir
samkomulag um sérstakt samstarfs-
ráð NATO og Rússa, sem samþykkt
var á utanríkisráðherrafundi NATO
hér í Reykjavík í síðustu viku.
Þúsundir mótmæla
komu Bush til Berlínar
AP
Einn mótmælenda heldur á lofti auglýsingaspjaldi sem á stendur:
„George W. Bush – helsti hryðjuverkamaður heimsins.“
Berlín, London. AFP.
BANDARÍSKI líffræðingurinn
Stephen Jay Gould lést úr krabba-
meini á heimili sínu í New York sl.
mánudag, sextug-
ur að aldri. Skrif
Goulds um þróun-
arkenninguna og
steingervinga-
fræði hafa vakið
mikla athygli
jafnt meðal fræði-
manna sem al-
mennings. The
New York Times
segir hann hafa
verið einn áhrifamesta þróunarfræð-
ing tuttugustu aldar, og „ef til vill sá
þekktasti síðan Charles Darwin“.
Skrif Goulds vöktu oft hörð við-
brögð, og litu fylgismenn sköpunar-
kenningarinnar á hann sem helsta
óvin sinn. En viðhorf Goulds urðu
einnig til þess að vísindamenn
neyddust til að endurskoða viðtekn-
ar hugmyndir um þróunarferli.
Meðal þróunarkenningarsinna var
ekki einhugur um kenningar Goulds.
Var það einkum kenning hans um
„rofið jafnvægi“ sem vakti deilur.
Hann hélt því fram, að þróun yrði í
tiltölulega hröðum gusum breytinga
á tegundum, fremur en í hægfara,
samfelldum breytingum.
Stephen Jay
Gould látinn
Boston. AP.
Gould