Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÓvíst að Rúnar Kristinsson
spili gegn Norðmönnum/B2
Víkingur vann ÍR og
Haukar Blika/B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
SEINNI tónleikar bandarísku sópr-
ansöngkonunnar June Anderson á
Listahátíð í Reykjavík verða í Há-
skólabíói í kvöld kl. 20.
Þegar ljósmyndara Morg-
unblaðsins bar að garði í gærkvöldi
voru þau Anderson og Jeff Cohen
píanóleikari að hvíla lúin bein eftir
það sem þau kölluðu skemmtilegan
og erilsaman dag. Ætluðu þau sér
að vera vel upplögð fyrir tón-
leikana í kvöld.
Listamennirnir tóku daginn
snemma í gær en Anderson hafði
lýst áhuga á því að skoða íslenska
náttúru. Fóru þeir meðal annars á
Þingvelli og að Geysi. Að sögn Sig-
ríðar Margrétar Guðmundsdóttur,
kynningarstjóra Listahátíðar, þótti
Anderson mikið til þeirra staða
koma.
Eftir að komið var til Reykjavík-
ur á ný brugðu Anderson og Cohen
sér í verslunarleiðangur á Lauga-
veginum. Að sögn Sigríðar Mar-
grétar hreifst söngkonan þar eink-
um af íslenskri hönnun og keypti
eitthvað af gripum.
Síðasti áningarstaður Anderson í
gær var Listasafn Íslands, þar sem
hún skoðaði sýningu á rússneskri
myndlist. Skoðaði hún þar einnig ís-
lenska list og hönnun og festi meðal
annars kaup á slæðu eftir Rögnu
Fróðadóttur.
Sigríður Margrét segir að June
Anderson sé afar ánægð með dvöl
sína hér á landi, ekki síst viðtök-
urnar á tónleikunum, sem hún átti
ekki orð til að lýsa. Þá gladdist hún
einnig yfir umsögnum í fjölmiðlum.
„Það eina sem June Anderson hefur
gert athugasemd við er hljómburð-
urinn í Háskólabíói en hann er víst
ekki það besta sem hún hefur
kynnst. Hún samgleðst því Íslend-
ingum með fyrirhugað tónlistar-
hús,“ segir Sigríður Margrét.
Morgunblaðið/Ómar
Anderson ánægð
með dvölina
HJÓLREIÐAMAÐUR lenti í heldur
leiðinlegri lífsreynslu á mánudag,
annan í hvítasunnu, þegar hópur
hestamanna meinaði honum för um
akveginn sem liggur vestan og sunn-
an við Elliðavatn. Sögðu hestamenn-
irnir að hjólreiðamenn hefðu engan
rétt á að vera þarna á ferð, sem er al-
rangt, skv. upplýsingum frá lögreglu.
Reiðvegir verða
að vera merktir
Tómas Jónsson var í hjólreiðatúr
um Vatnsenda eins og oft áður, þegar
hann mætti 7–8 hestamönnum á veg-
inum og voru nokkrir þeirra með 2–3
hesta til reiðar. Sá sem fór fremstur
sagði Tómasi að hann hefði engan
rétt til að fara þarna um. Tómas sagði
manninum að hann vissi betur en
væri ekki í skapi til að deila við hann
um þetta og hugðist fara sína leið.
Kom þá að félagi hestamannsins, sem
var með tvo hesta til reiðar og atti
þeim að honum, þannig að Tómas
taldi að sér stæði ógn af.
„Ég reyndi þá að komast leiðar
minnar en hópurinn kom í veg fyrir
það,“ sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið, en hinir hestamennirnir
höfðu stillt hestum sínum upp í kring-
um hann. Tvær konur sem voru í
hópnum reyndu að malda í móinn og
að lokum létu hestamennirnir af
þessari hegðan. Tómas segir að á
þessu hafi gengið í nokkrar mínútur.
Tómasi þykir nóg um þennan yf-
irgang hestamannanna. Í fyrsta lagi
hafi þetta alls ekki verið reiðvegur
heldur akvegur en þar að auki hafi
hestamenn engan einkarétt á vega-
slóðum og stígum.
Skv. upplýsingum frá lögreglu eru
reiðvegir sérstaklega merktir sem
slíkir en teljast að öðrum kosti ekki
vera reiðvegir. Í 9. grein vegalaga
segir ennfremur að reiðvegir séu veg-
ir sem einkum eru ætlaðir umferð
ríðandi manna.
Tómas segist vilja koma því á
framfæri við hestamenn að þeir eigi
engan einkarétt á vegaslóðum í Heið-
mörk eða annars staðar og geti ekki
bannað umferð gangandi vegfarenda
eða hjólreiðamanna.
Hann geri sér fyllilega grein fyrir
því að sumir hestar geti fælst við að
sjá reiðhjól og taki hann alltaf tillit til
þess sem og þeir hjólreiðamenn sem
hann þekki.
Hestamenn meinuðu
hjólreiðamanni för
Einn atti
hestum sínum
að honum
BORGARVERKFRÆÐINGUR og
framkvæmdastjóri Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur, ÍTR, lögðu
til í sameiginlegu bréfi til borgarráðs
í ársbyrjun 1999 að fram færi forval
á líkamsræktarstöðvum til að taka
þátt í byggingu miðstöðvar heilsu-
ræktar í Laugardal með borginni.
Stefán Hermannsson borgarverk-
fræðingur sagði aðspurður í samtali
við Morgunblaðið að þessi tillaga
hefði verið gerð að loknum viðræð-
um þeirra Ómars Einarssonar,
framkvæmdastjóra ÍTR, við Björn
K. Leifsson í World Class og Ágústu
Johnson hjá Hreyfingu.
Stefán sagði að ekki hefði farið
fram formleg athugun á fjárhagsleg-
um styrkleika þessara líkamsrækt-
arstöðva. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu ákvað borgarráð í
mars árið 1999 að ganga til samninga
við Björn og eru jarðvegsfram-
kvæmdir nú hafnar í Laugardal
vegna byggingarinnar. Borgarstjóri
hefur einnig sagt í Morgunblaðinu að
fyrir mistök hafi Ágústu ekki verið
tilkynnt um viljayfirlýsingu borgar-
innar og Björns, sem undirrituð var í
júlí árið 1999. Fregnaði Ágústa af yf-
irlýsingunni í fjölmiðlum, eins og
hún lýsti í samtali við Morgunblaðið í
síðustu viku.
„Okkur Ómari var falið að kanna
þetta og við töluðum við Björn og
Ágústu. Á þeim grunni komumst við
að þeirri niðurstöðu að fleiri en einn
hefði áhuga svo rétt væri að gera
þetta með formlegum hætti. Við
skrifuðum borgarráði bréf þar sem
við lögðum til að auglýst yrði hverjir
hefðu áhuga og fara því í nokkurs
konar forval til að meta hverjir væru
hæfir til að gera tilboð. Þetta var lagt
fyrir borgarráð en það hikaði og
frestaði málinu um tíma. Það ákvað
svo sjálft, að mig minnir ágreinings-
laust, að Björn væri áberandi hæf-
astur og fól okkur að ganga til samn-
inga við hann,“ sagði Stefán.
Þótti eðlilegt að
semja við Björn
Hann sagði formlegan samanburð
á rekstri líkamsræktarstöðva ekki
hafa farið fram af hálfu embættis
síns eða framkvæmdastjóra ÍTR.
Ekki hefði komið til greina að fara í
opið útboð, heldur auglýsa eftir
mögulegum þátttakendum með for-
vali. Stefán sagði að vafalaust hefði
borgarráði þótt þetta flókin leið og
ekki venjuleg. Aðgreina hefði átt
framkvæmdina, líkt og gert hefði
verið nú með því að borgin fjármagn-
aði keppnislaugina og seldi World
Class lóðarrétt undir sjálfa líkams-
ræktarmiðstöðina.
Haft var eftir Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur, formanni ÍTR, í
Morgunblaðinu í gær að það hefði
verið „mat manna að áhugi og geta
annarra aðila hefði ekki verið eins
mikil“ og hjá Birni K. Leifssyni. Að-
spurð á hverju þetta mat hefði verið
byggt sagði Steinunn við Morgun-
blaðið í gær að það hefði byggst á
umsögn borgarverkfræðings og
framkvæmdastjóra ÍTR. Þeir hefðu
rætt við talsmenn líkamsræktar-
stöðva og gert borgarráði grein fyrir
því.
„Það var samdóma álit allra sjö
borgarráðsfulltrúa að það væri eðli-
legt að ganga til samninga við Björn.
Eftir þessar könnunarviðræður var
enginn ágreiningur uppi um það,“
sagði Steinunn.
Borgarverkfræðingur og framkvæmdastjóri ÍTR rituðu borgarráði bréf
Lögðu til forval vegna heilsu-
ræktarmiðstöðvar í Laugardal
25 ÁRA íslenskur karlmaður var á
sunnudag stöðvaður með tæplega
eitt kíló af hassi á Keflavík-
urflugvelli. Hafði hann límt hass-
plöturnar á fótleggi sína en árvök-
ulir tollverðir sáu við honum.
Skv. upplýsingum frá tollgæsl-
unni á Keflavíkurflugvelli ferðaðist
maðurinn á skilríkjum annars
manns og gaf upp rangt nafn þegar
hann var stöðvaður við venjubundið
eftirlit við komuna frá Stokkhólmi.
Málið telst upplýst og var mann-
inum sleppt að loknum yf-
irheyrslum.
Með hassið á
fótleggjunum
ÁRLEG svokölluð Bright Eye-
björgunaræfing á vegum NATO fór
fram í gær suðaustur af landinu á
milli Íslands og Færeyja. Íslend-
ingar, Færeyingar og Bretar tóku
þátt í æfingunni og notuðu liðsmenn
Landhelgisgæslunnar Fokker-flug-
vél og varðskip. Færeyingar lögðu
til varðskip og þyrlu og Bretar
Nimrod-þotu. Æfð var björgun úr
sjó og samskipti björgunarstöðva
þátttökulandanna en settar voru á
svið aðstæður þar sem flugvél með
sex manns átti að hafa farist í sjón-
um. Tveir þeirra sem saknað var
fundust í gær við fremur slæm leit-
arskilyrði og heldur leitin áfram í
dag, miðvikudag, með fulltingi liðs-
manna Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli.
Björgunaræfing
á vegum NATO
hjá Gæslunni
Slasaður
sjómaður sótt-
ur á haf út
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, sótti slasaðan sjómann
um borð í norska línubátinn
Froyanes og flutti hann á Land-
spítalann á mánudag, annan í
hvítasunnu. Báturinn hafði sam-
band við Gæsluna klukkan 14.35
þegar hann var 120 sjómílur
suðvestur af Reykjanesi. Mað-
urinn hafði slasast á hendi og
lenti áhöfn þyrlunnar með hann
við Landspítalann í Fossvogi
klukkan 16.27.