Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND og heimsbúskapurinn –
Hagkerfi smárra eyríkja á tímum al-
þjóðavæðingar var yfirskrift ráð-
stefnu er haldin var í Harvard-há-
skóla á mánudag. Ráðstefnan var
haldin í sameiningu af Alþjóðaþróun-
arstofnun John F. Kennedy School of
Government og Háskóla Íslands. Á
ráðstefnunni var fjallað um hvernig
litlum hagkerfum hefði vegnað á und-
anförnum árum og þá ekki síst Ís-
landi, sem er það smáríki er náð hefur
hvað mestum efnahagslegum og fé-
lagslegum árangri í heiminum. Hópur
erlendra og íslenskra fræðimanna
flutti erindi á ráðstefnunni og kynnti
rannsóknir sínar á þessu sviði. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat
ráðstefnuna og stjórnaði umræðum á
henni hluta dags.
Ráðstefnan hófst á því að þeir Þor-
valdur Gylfason prófessor og Jeffrey
Sachs, professor við Harvard og for-
stöðumaður Alþjóðaþróunarmið-
stöðvarinnar, fjölluðu almennt um
stöðu smáríkja.
Þorvaldur sagði að smæð hefði
jafnt kosti sem galla í för með sér þeg-
ar hagkerfi væru annars vegar.
Helstu kostirnir væru þeir að lítil
þjóðfélög væru einsleitari en þau
stærri, sem dregur úr félagslegri
spennu og auðveldar þar með hag-
vöxt. Þau eru yfirleitt opnari fyrir
fjárfestingum og viðskiptum og upp-
lýsingaflæði er skilvirkara en í stærri
ríkjum, þar sem boðleiðir eru lengri
og flóknari. Lítil hagkerfi bjóða hins
vegar ekki upp á eins mikla stærð-
arhagkvæmni og þau stærri og þar
sem íbúar eru færri koma ekki fram
jafnmargir snillingar á borð við Moz-
art, líkt og Þorvaldur orðaði það. Úr-
takið er minna. Lega smáríkja er
einnig oftar en ekki óhagstæð, þar
sem þau er mörg hver annað hvort
fjarlægar eyjar eða hafa ekki aðgang
að sjó.
Af þeim 207 ríkjum, sem er að finna
í heiminum í dag, eru 43 með íbúa-
fjölda á bilinu 100 þúsund til milljón.
Þar af eru 26 eyríki. Meðaltalsíbúa-
fjöldi smáríkjanna er 373 þúsund en
28,7 milljónir í öllum ríkjunum 207.
Þjóðarframleiðsla er hins vegar að
meðaltali töluvert meiri í smáríkjun-
um en heimsmeðaltalið eða 9.600 doll-
arar á móti 6.900 dollurum.
Lykilatriði að vera opin
fyrir alþjóðaviðskiptum
Þorvaldur sagði hins vegar að smá-
ríki væru að mörgu öðru leyti keimlík
þeim stóru þegar hagtölur væru skoð-
aðar. Á samanburðartímabilinu 1960–
1999 hefði til að mynda ekki verið
mikill munur á fjárfestingum og hag-
vexti á milli samanburðarhópanna.
„Stærð virðist ekki skipta eins miklu
máli og halda mætti,“ sagði Þorvaldur
Gylfason. Það væri þó lykilatriði fyrir
smáríki, ef þau ætluðu að ná árangri,
að vera opin fyrir alþjóðaviðskiptum
og fjárfestingum.
Jeffrey Sachs tók í sama streng og
sagði auðlegð smáríkja vera afrakstur
alþjóðaviðskipta. Staðsetning skipti
hins vegar miklu máli upp á gengi
þeirra. Íslendingar nytu þess að vera
nálægt jafnt Evrópu sem Bandaríkj-
unum, loftslag væri milt og mikið af
náttúruauðlindum.
Sachs sagði hóp kjarnaríkja vera
drifkraft hagvaxtar í heiminum en
þessi ríki væru Bandaríkin og Kan-
ada, ríki Vestur-Evrópu, Japan, Ísr-
ael, Ástralía, Taívan, Hong Kong,
Nýja-Sjáland og Ástralía. Í þessum
ríkjum yrðu flestar nýjungar til ef ný-
skráning einkaleyfa í Bandaríkjunum
væri notuð sem mælikvarði.
Í rannsókn Sachs, sem tók til ár-
anna 1980–1998, var ríkjum skipt upp
í þrjá flokka. Í fyrsta flokknum eru
kjarnaríkin, í öðrum flokki eru ríki
sem eru í innan við þrjú þúsund kíló-
metra fjarlægð frá kjarnaríkjunum
og hafa að auki aðgang að hafi og í
þeim þriðja önnur og fjarlægari ríki. Í
ljós kom að tekjur nærríkjanna voru
að jafnaði helmingi hærri en fjarlæg-
ari ríkja óháð stærð þeirra. Þetta tel-
ur Sachs mega rekja annars vegar til
nálægðar fyrri hópsins við kjarnarík-
in og hins vegar að fjarlægari ríki eru
mörg hver í hitabeltinu. Fyrri rann-
sóknir hafa sýnt fram á að auðlegð er
mest í ríkjum utan hitabeltisins.
Ein athyglisverðasta niðurstaðan
var hins vegar sú að ekki var grein-
arlegur munur á hagvexti smáríkja
(með færri en milljón íbúa) og stærri
ríkja. Skipti þá ekki máli í hvaða
flokki þau voru. Hins vegar virtust
millistór ríki (þar sem íbúafjöldinn er
á bilinu ein til tíu milljónir) líða fyrir
„smæð“ sína. Sachs taldi að hugsan-
leg skýring á þessu væri sú að hag-
vöxtur í stærri ríkjum byggðist á inn-
lendum tækninýjungum og
framförum í iðnaði auk erlendra fjár-
festinga. Hagvöxtur minni hagkerfa
byggðist að mestu á útflutningi til
kjarnaríkja. Í mjög litlum ríkjum
gæti reynst nóg að einni grein, s.s.
ferðaþjónustu eða fjármálaþjónustu,
vegnaði vel til að allt hagkerfið nyti
góðs af. Í smáríkjum þar sem íbúa-
fjöldi væri 1-10 milljónir væri hins
vegar þörf á að nokkrum útflutnings-
greinum vegnaði vel, en því markmiði
væri erfiðara að ná.
Smæðinni fylgdi hins vegar einnig
ákveðin áhætta. Þannig myndi það
hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir
mjög lítil hagkerfi ef þau hefðu ekki
eins greiðan aðgang að mörkuðum
kjarnaríkjanna. Þá eru efnahagssveifl-
ur mun meiri í mjög litlum hagkerfum
óháð því í hvaða flokki þau eru.
Auðlindastjórnun
Þorvaldur Gylfason og Martin
Weitzman, hagfræðingur við
Harvard-háskóla, kynntu á ráðstefn-
unni ritgerð sína um auðlindastjórn-
un. Þorvaldur og Weitzman færa rök
fyrir því að kerfi sem byggist á óheft-
um aðgangi að auðlindinni en jafn-
framt auðlindagjaldi, er greitt yrði
eftir að afla er landað, sé mun skil-
virkara stjórntæki en kvótakerfi. Þeir
segja að þrátt fyrir að hægt sé að
sýna fræðilega fram á yfirburði auð-
lindagjalds geti reynst erfitt að afla
slíku kerfi stuðnings þar sem með
upptöku þess væri í raun verið að af-
nema óbeina niðurgreiðslu í gegnum
kvótakerfið.
Þorvaldur og Weitzman rekja með-
al annars í fimmtán liðum hvernig
sníða megi ýmsa helstu galla kvóta-
kerfisins í burtu, þar á meðal of mikla
afkastagetu flotans, brottkast og of
litla stærðarhagkvæmni.
Einnig flutti Már Guðmundsson,
yfirhagfræðingur Seðlabanka Ís-
lands, fyrirlestur um gengismál og
Gylfi Zoëga um íslenska hagkerfið og
stærðarhagkvæmni.
Að ráðstefnunni lokinni hélt Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, op-
inn fyrirlestur í Harvard-háskóla þar
sem hann fjallaði um áhrif alþjóða-
væðingarinnar á Ísland. Rakti forset-
inn hvernig íslensk fyrirtæki hefðu
nýtt sér ýmis tækifæri á erlendum
mörkuðum. Alþjóðavæðing ógnaði
ekki smáríkjum heldur opnaði nýjar
dyr og möguleika. Jafnvel væru teikn
á lofti um að ný gullöld smáríkja væri
í uppsiglingu að því gefnu að þau
framfylgdu skilvirkri efnahagsstefnu
og opnuðu hagkerfi sín fyrir umheim-
inum.
Stærðin skiptir
ekki öllu máli
Hagvöxtur í ríkjum þar sem íbúar eru færri en milljón hefur verið
sambærilegur við hagvöxt í stórum ríkjum undanfarna fjóra ára-
tugi. Hins vegar virðist stærðin hamla ríkjum þar sem íbúafjöldi
er á bilinu 1–10 milljónir, segir Steingrímur Sigurgeirsson,
sem sat ráðstefnu um hagkerfi smárra eyríkja, sem haldin
var í Harvard-háskóla í samvinnu við Háskóla Íslands.
Ráðstefna Háskóla Íslands og Harvard-háskóla um hagkerfi smárra eyríkja
NEI, þessi mynd er ekki tekin í
útlöndum heldur í Austurstræti
síðastliðinn föstudag þar sem
gestir og gangandi sleiktu sólina.
Það er víst óhætt að segja að
borgarbúar kunni vel að meta
milt veðurfar undanfarna daga
og er léttur klæðnaður þeirra til
marks um það. Hvort óhætt er að
pakka vetrarflíkunum niður fyrir
sumarið skal ósagt látið, enda
kannski mikilvægast að njóta sól-
ardaganna þegar þeir gefast en
klæða sig eftir veðri og vindum
þar fyrir utan.
Morgunblaðið/Ásdís
Sumar-
stemning
í mið-
borginniREYKJAVÍKURLISTINN fengi
52,4% atkvæða og átta menn kjörna
og Sjálfstæðisflokkurinn 41,8% og sjö
menn kjörna ef kosið yrði nú sam-
kvæmt skoðanakönnun Gallup sem
Ríkisútvarpið greindi frá í gærkveldi.
Frjálslyndir og óháðir fengju 3,7% og
Vinstri hægri snú 1,1% og önnur
framboð innan við eitt prósent.
Könnunin var gerð 18. og 20. maí
og var úrtakið 1.200 manns. Svarhlut-
fall var 65,6%, óákveðnir 6% og 5,5%
neituðu að svara og 1,3% segjast ekki
ætla að kjósa eða skila auðu.
Gallup hefur einnig gert skoðana-
könnun í Kópavogi og á Akureyri.
Samkvæmt könnuninni í Kópavogi
fengi Framsóknarflokkurinn 26,9%,
Sjálfstæðisflokkurinn með 40,9%,
Samfylkingin 23,2% og Vinstri hreyf-
ingin grænt framboð 9%. Ef þetta
yrði niðurstaða kosninganna fengi
Framsóknarflokkurinn 3 fulltrúa,
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 5 fulltrúa,
Samfylkingin 2 fulltrúa og Vinstri
grænir fengju einn fulltrúa. Könnun-
in var gerð 16.–21. maí og var úrtakið
1.200 manns. Svarhlutfall var 71,7%.
Óákveðnir voru 11,5%, 7,4% neita að
svara og 0,9% ætla ekki að kjósa eða
skila auðu.
Listi fólksins
með tvo fulltrúa
Samkvæmt könnuninni á Akureyri
fengi Sjálfstæðisflokkurinn rúmlega
36% atkvæða ef kosið yrði nú, Fram-
sóknarflokkurinn tæplega 22%. Rúm-
lega 19% ætla að styðja Lista fólksins,
tæplega 12% Samfylkinguna og tæp-
lega 11% styðja Vinstri græna. Sam-
kvæmt þessari niðurstöðu fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 5 bæjarfulltrúa,
Framsóknarflokkurinn 2 fulltrúa,
Listi fólksins 2 og Samfylkingin og
Vinstri grænir hvort sinn fulltrúann.
Ekki er marktækur munur á fimmta
fulltrúa Sjálfstæðisflokks og þriðja
fulltrúa Framsóknarflokks, að því er
fram kom í fréttum RÚV.
Könnunin var gerð dagana 14.–21.
maí. Úrtakið var 1.200 manns og svar-
hlutfall 68%, óákveðnir voru 11% og
tæplega 6% neituðu að svara.
Ný skoðanakönnun Gallup
Reykjavíkurlist-
inn með 52,4%
ÁRNI Þór Sigurðsson, formaður
skipulags- og byggingarnefndar
Reykjavíkurborgar, segir aðspurð-
ur að ekki beri að skilja samning
Reykjavíkurborgar og Rauðhóls
ehf. vegna skipulags og uppbygg-
ingar í Norðlingaholti, á þann veg
að borgin hafi skuldbundið sig til
að takmarka lóðaframboð annars
staðar í borgarlandinu til þess að
stuðla að því að lóðir á vegum
Rauðhóls gangi út.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
er kveðið á um sölu og ráðstöfun
byggingarréttar í samningi borg-
arinnar og Rauðhóls um uppbygg-
ingu í Norðlingaholti og tekið fram
að við útboð skuli leitast við að ná
sem hæstu mögulegu endurgjaldi.
Að sögn Árna heyrir þessi samn-
ingur ekki undir skipulagsnefnd
borgarinnar og því þekki hann ekki
ákvæði samningsins í smáatriðum
en hann segist ekki túlka samning-
inn svo að hann feli í sér skuld-
bindingu um að takmarka lóða-
framboð annars staðar í
borgarlandinu.
Samningur Rauðhóls og Reykjavíkur
Ekki skuldbinding
um að takmarka
lóðaframboð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá skrifstofu forseta
Íslands: „Vegna fréttar á Stöð 2
þriðjudaginn 21. maí vill forseti Ís-
lands taka fram: Í ræðu við
Harvard háskóla var vikið að verð-
bólguþróun á Íslandi s.l. 40 ár og
meðal annars sagt að á árunum
1988–1991 „tókst að koma böndum
á verðbólguna og skapa grundvöll
að varanlegum stöðugleika. Þá fór
verðbólga úr rúmlega 20% undir
2%“. Þetta orðalag má misskilja en
því var ætlað að lýsa því að á þess-
um árum hófst lækkunarferli sem
jafnt og þétt færði verðbólguna úr
rúmlega 20% undir 2% en nákvæm-
ara hefði verið að bæta því við að
markinu var ekki náð fyrr en 1994.
Í endanlegri útgáfu ræðunnar verð-
ur þetta gert skýrt á eftirfarandi
hátt: „Þá hófst lækkunarferli sem
færði verðbólgu úr rúmlega 20%
undir 2% árið 1994“.“
Frá skrifstofu forseta Íslands