Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLAND og heimsbúskapurinn – Hagkerfi smárra eyríkja á tímum al- þjóðavæðingar var yfirskrift ráð- stefnu er haldin var í Harvard-há- skóla á mánudag. Ráðstefnan var haldin í sameiningu af Alþjóðaþróun- arstofnun John F. Kennedy School of Government og Háskóla Íslands. Á ráðstefnunni var fjallað um hvernig litlum hagkerfum hefði vegnað á und- anförnum árum og þá ekki síst Ís- landi, sem er það smáríki er náð hefur hvað mestum efnahagslegum og fé- lagslegum árangri í heiminum. Hópur erlendra og íslenskra fræðimanna flutti erindi á ráðstefnunni og kynnti rannsóknir sínar á þessu sviði. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat ráðstefnuna og stjórnaði umræðum á henni hluta dags. Ráðstefnan hófst á því að þeir Þor- valdur Gylfason prófessor og Jeffrey Sachs, professor við Harvard og for- stöðumaður Alþjóðaþróunarmið- stöðvarinnar, fjölluðu almennt um stöðu smáríkja. Þorvaldur sagði að smæð hefði jafnt kosti sem galla í för með sér þeg- ar hagkerfi væru annars vegar. Helstu kostirnir væru þeir að lítil þjóðfélög væru einsleitari en þau stærri, sem dregur úr félagslegri spennu og auðveldar þar með hag- vöxt. Þau eru yfirleitt opnari fyrir fjárfestingum og viðskiptum og upp- lýsingaflæði er skilvirkara en í stærri ríkjum, þar sem boðleiðir eru lengri og flóknari. Lítil hagkerfi bjóða hins vegar ekki upp á eins mikla stærð- arhagkvæmni og þau stærri og þar sem íbúar eru færri koma ekki fram jafnmargir snillingar á borð við Moz- art, líkt og Þorvaldur orðaði það. Úr- takið er minna. Lega smáríkja er einnig oftar en ekki óhagstæð, þar sem þau er mörg hver annað hvort fjarlægar eyjar eða hafa ekki aðgang að sjó. Af þeim 207 ríkjum, sem er að finna í heiminum í dag, eru 43 með íbúa- fjölda á bilinu 100 þúsund til milljón. Þar af eru 26 eyríki. Meðaltalsíbúa- fjöldi smáríkjanna er 373 þúsund en 28,7 milljónir í öllum ríkjunum 207. Þjóðarframleiðsla er hins vegar að meðaltali töluvert meiri í smáríkjun- um en heimsmeðaltalið eða 9.600 doll- arar á móti 6.900 dollurum. Lykilatriði að vera opin fyrir alþjóðaviðskiptum Þorvaldur sagði hins vegar að smá- ríki væru að mörgu öðru leyti keimlík þeim stóru þegar hagtölur væru skoð- aðar. Á samanburðartímabilinu 1960– 1999 hefði til að mynda ekki verið mikill munur á fjárfestingum og hag- vexti á milli samanburðarhópanna. „Stærð virðist ekki skipta eins miklu máli og halda mætti,“ sagði Þorvaldur Gylfason. Það væri þó lykilatriði fyrir smáríki, ef þau ætluðu að ná árangri, að vera opin fyrir alþjóðaviðskiptum og fjárfestingum. Jeffrey Sachs tók í sama streng og sagði auðlegð smáríkja vera afrakstur alþjóðaviðskipta. Staðsetning skipti hins vegar miklu máli upp á gengi þeirra. Íslendingar nytu þess að vera nálægt jafnt Evrópu sem Bandaríkj- unum, loftslag væri milt og mikið af náttúruauðlindum. Sachs sagði hóp kjarnaríkja vera drifkraft hagvaxtar í heiminum en þessi ríki væru Bandaríkin og Kan- ada, ríki Vestur-Evrópu, Japan, Ísr- ael, Ástralía, Taívan, Hong Kong, Nýja-Sjáland og Ástralía. Í þessum ríkjum yrðu flestar nýjungar til ef ný- skráning einkaleyfa í Bandaríkjunum væri notuð sem mælikvarði. Í rannsókn Sachs, sem tók til ár- anna 1980–1998, var ríkjum skipt upp í þrjá flokka. Í fyrsta flokknum eru kjarnaríkin, í öðrum flokki eru ríki sem eru í innan við þrjú þúsund kíló- metra fjarlægð frá kjarnaríkjunum og hafa að auki aðgang að hafi og í þeim þriðja önnur og fjarlægari ríki. Í ljós kom að tekjur nærríkjanna voru að jafnaði helmingi hærri en fjarlæg- ari ríkja óháð stærð þeirra. Þetta tel- ur Sachs mega rekja annars vegar til nálægðar fyrri hópsins við kjarnarík- in og hins vegar að fjarlægari ríki eru mörg hver í hitabeltinu. Fyrri rann- sóknir hafa sýnt fram á að auðlegð er mest í ríkjum utan hitabeltisins. Ein athyglisverðasta niðurstaðan var hins vegar sú að ekki var grein- arlegur munur á hagvexti smáríkja (með færri en milljón íbúa) og stærri ríkja. Skipti þá ekki máli í hvaða flokki þau voru. Hins vegar virtust millistór ríki (þar sem íbúafjöldinn er á bilinu ein til tíu milljónir) líða fyrir „smæð“ sína. Sachs taldi að hugsan- leg skýring á þessu væri sú að hag- vöxtur í stærri ríkjum byggðist á inn- lendum tækninýjungum og framförum í iðnaði auk erlendra fjár- festinga. Hagvöxtur minni hagkerfa byggðist að mestu á útflutningi til kjarnaríkja. Í mjög litlum ríkjum gæti reynst nóg að einni grein, s.s. ferðaþjónustu eða fjármálaþjónustu, vegnaði vel til að allt hagkerfið nyti góðs af. Í smáríkjum þar sem íbúa- fjöldi væri 1-10 milljónir væri hins vegar þörf á að nokkrum útflutnings- greinum vegnaði vel, en því markmiði væri erfiðara að ná. Smæðinni fylgdi hins vegar einnig ákveðin áhætta. Þannig myndi það hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir mjög lítil hagkerfi ef þau hefðu ekki eins greiðan aðgang að mörkuðum kjarnaríkjanna. Þá eru efnahagssveifl- ur mun meiri í mjög litlum hagkerfum óháð því í hvaða flokki þau eru. Auðlindastjórnun Þorvaldur Gylfason og Martin Weitzman, hagfræðingur við Harvard-háskóla, kynntu á ráðstefn- unni ritgerð sína um auðlindastjórn- un. Þorvaldur og Weitzman færa rök fyrir því að kerfi sem byggist á óheft- um aðgangi að auðlindinni en jafn- framt auðlindagjaldi, er greitt yrði eftir að afla er landað, sé mun skil- virkara stjórntæki en kvótakerfi. Þeir segja að þrátt fyrir að hægt sé að sýna fræðilega fram á yfirburði auð- lindagjalds geti reynst erfitt að afla slíku kerfi stuðnings þar sem með upptöku þess væri í raun verið að af- nema óbeina niðurgreiðslu í gegnum kvótakerfið. Þorvaldur og Weitzman rekja með- al annars í fimmtán liðum hvernig sníða megi ýmsa helstu galla kvóta- kerfisins í burtu, þar á meðal of mikla afkastagetu flotans, brottkast og of litla stærðarhagkvæmni. Einnig flutti Már Guðmundsson, yfirhagfræðingur Seðlabanka Ís- lands, fyrirlestur um gengismál og Gylfi Zoëga um íslenska hagkerfið og stærðarhagkvæmni. Að ráðstefnunni lokinni hélt Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, op- inn fyrirlestur í Harvard-háskóla þar sem hann fjallaði um áhrif alþjóða- væðingarinnar á Ísland. Rakti forset- inn hvernig íslensk fyrirtæki hefðu nýtt sér ýmis tækifæri á erlendum mörkuðum. Alþjóðavæðing ógnaði ekki smáríkjum heldur opnaði nýjar dyr og möguleika. Jafnvel væru teikn á lofti um að ný gullöld smáríkja væri í uppsiglingu að því gefnu að þau framfylgdu skilvirkri efnahagsstefnu og opnuðu hagkerfi sín fyrir umheim- inum. Stærðin skiptir ekki öllu máli Hagvöxtur í ríkjum þar sem íbúar eru færri en milljón hefur verið sambærilegur við hagvöxt í stórum ríkjum undanfarna fjóra ára- tugi. Hins vegar virðist stærðin hamla ríkjum þar sem íbúafjöldi er á bilinu 1–10 milljónir, segir Steingrímur Sigurgeirsson, sem sat ráðstefnu um hagkerfi smárra eyríkja, sem haldin var í Harvard-háskóla í samvinnu við Háskóla Íslands. Ráðstefna Háskóla Íslands og Harvard-háskóla um hagkerfi smárra eyríkja NEI, þessi mynd er ekki tekin í útlöndum heldur í Austurstræti síðastliðinn föstudag þar sem gestir og gangandi sleiktu sólina. Það er víst óhætt að segja að borgarbúar kunni vel að meta milt veðurfar undanfarna daga og er léttur klæðnaður þeirra til marks um það. Hvort óhætt er að pakka vetrarflíkunum niður fyrir sumarið skal ósagt látið, enda kannski mikilvægast að njóta sól- ardaganna þegar þeir gefast en klæða sig eftir veðri og vindum þar fyrir utan. Morgunblaðið/Ásdís Sumar- stemning í mið- borginniREYKJAVÍKURLISTINN fengi 52,4% atkvæða og átta menn kjörna og Sjálfstæðisflokkurinn 41,8% og sjö menn kjörna ef kosið yrði nú sam- kvæmt skoðanakönnun Gallup sem Ríkisútvarpið greindi frá í gærkveldi. Frjálslyndir og óháðir fengju 3,7% og Vinstri hægri snú 1,1% og önnur framboð innan við eitt prósent. Könnunin var gerð 18. og 20. maí og var úrtakið 1.200 manns. Svarhlut- fall var 65,6%, óákveðnir 6% og 5,5% neituðu að svara og 1,3% segjast ekki ætla að kjósa eða skila auðu. Gallup hefur einnig gert skoðana- könnun í Kópavogi og á Akureyri. Samkvæmt könnuninni í Kópavogi fengi Framsóknarflokkurinn 26,9%, Sjálfstæðisflokkurinn með 40,9%, Samfylkingin 23,2% og Vinstri hreyf- ingin grænt framboð 9%. Ef þetta yrði niðurstaða kosninganna fengi Framsóknarflokkurinn 3 fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn fengi 5 fulltrúa, Samfylkingin 2 fulltrúa og Vinstri grænir fengju einn fulltrúa. Könnun- in var gerð 16.–21. maí og var úrtakið 1.200 manns. Svarhlutfall var 71,7%. Óákveðnir voru 11,5%, 7,4% neita að svara og 0,9% ætla ekki að kjósa eða skila auðu. Listi fólksins með tvo fulltrúa Samkvæmt könnuninni á Akureyri fengi Sjálfstæðisflokkurinn rúmlega 36% atkvæða ef kosið yrði nú, Fram- sóknarflokkurinn tæplega 22%. Rúm- lega 19% ætla að styðja Lista fólksins, tæplega 12% Samfylkinguna og tæp- lega 11% styðja Vinstri græna. Sam- kvæmt þessari niðurstöðu fengi Sjálf- stæðisflokkurinn 5 bæjarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn 2 fulltrúa, Listi fólksins 2 og Samfylkingin og Vinstri grænir hvort sinn fulltrúann. Ekki er marktækur munur á fimmta fulltrúa Sjálfstæðisflokks og þriðja fulltrúa Framsóknarflokks, að því er fram kom í fréttum RÚV. Könnunin var gerð dagana 14.–21. maí. Úrtakið var 1.200 manns og svar- hlutfall 68%, óákveðnir voru 11% og tæplega 6% neituðu að svara. Ný skoðanakönnun Gallup Reykjavíkurlist- inn með 52,4% ÁRNI Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkurborgar, segir aðspurð- ur að ekki beri að skilja samning Reykjavíkurborgar og Rauðhóls ehf. vegna skipulags og uppbygg- ingar í Norðlingaholti, á þann veg að borgin hafi skuldbundið sig til að takmarka lóðaframboð annars staðar í borgarlandinu til þess að stuðla að því að lóðir á vegum Rauðhóls gangi út. Eins og fram kom í blaðinu í gær er kveðið á um sölu og ráðstöfun byggingarréttar í samningi borg- arinnar og Rauðhóls um uppbygg- ingu í Norðlingaholti og tekið fram að við útboð skuli leitast við að ná sem hæstu mögulegu endurgjaldi. Að sögn Árna heyrir þessi samn- ingur ekki undir skipulagsnefnd borgarinnar og því þekki hann ekki ákvæði samningsins í smáatriðum en hann segist ekki túlka samning- inn svo að hann feli í sér skuld- bindingu um að takmarka lóða- framboð annars staðar í borgarlandinu. Samningur Rauðhóls og Reykjavíkur Ekki skuldbinding um að takmarka lóðaframboð MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá skrifstofu forseta Íslands: „Vegna fréttar á Stöð 2 þriðjudaginn 21. maí vill forseti Ís- lands taka fram: Í ræðu við Harvard háskóla var vikið að verð- bólguþróun á Íslandi s.l. 40 ár og meðal annars sagt að á árunum 1988–1991 „tókst að koma böndum á verðbólguna og skapa grundvöll að varanlegum stöðugleika. Þá fór verðbólga úr rúmlega 20% undir 2%“. Þetta orðalag má misskilja en því var ætlað að lýsa því að á þess- um árum hófst lækkunarferli sem jafnt og þétt færði verðbólguna úr rúmlega 20% undir 2% en nákvæm- ara hefði verið að bæta því við að markinu var ekki náð fyrr en 1994. Í endanlegri útgáfu ræðunnar verð- ur þetta gert skýrt á eftirfarandi hátt: „Þá hófst lækkunarferli sem færði verðbólgu úr rúmlega 20% undir 2% árið 1994“.“ Frá skrifstofu forseta Íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.