Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 42
HESTAR 42 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vörurnar sem virka FREMSTIR FYRIR GÆÐI UNGA fólkið setti nokkurn svip á mótið hjá Sörla. Ungu mennirnir Daníel Ingi Smárason og Hinrik Þ. Sigurðsson hafa nú lokið yngri flokka ferlinum og spreyttu þeir sig við hina bestu að þessu sinni og varð vel ágengt. Daníel sigraði í fimm- gangi á Vestfjörð frá Fremri-Hvestu og var í úrslitum í öðrum greinum. Boðið var upp á flokk áhugamanna en ekki virðist enn grundvöllur fyrir meistaraflokki enn sem komið er hjá Sörla. Spurningin er hvort þeir fylgi ekki í kjölfar annarra félaga og opni mótið sitt á næsta ári. Opn- un mótsins hefur ekki átt fylgi að fagna fram að þessu en Sigurður E. Ævarsson sagði að sér fyndist orðin breyting á eftir þetta mót. Þátttaka hefði verið lítil og líklegt að það mundi hleypa lífi í keppnina ef það yrði opnað á næsta ári. Nú í annað sinn opnar Faxi sitt íþróttamót og sagði Rósa Emils- dóttir að þátttaka hefði verið þokka- leg en heldur lakari þó en í fyrra. Sölvi Sigurðarson úr Herði gerði góða ferð í Borgarfjörðinn, sigraði í bæði fjór- og fimmgangi og varð stigahæstur keppenda í opnum flokki. Þá má geta þess að nýr formaður var kjörinn á aðalfundi Faxa nýlega. Þar tók við Sigurður Ragnarsson á Ferjubakka en hann er enginn ný- græðingur í félagsmálum hesta- manna. Hefur hann setið í stjórn Landsambands hestamannafélaga um árabil auk þess að vera formað- ur hjá Andvara í Garðabæ áður en hann flutti í Borgarfjörð. Ungu mennirnir kveðja sér hljóðs hjá Sörla Aðeins tvö mót voru haldin um hvítasunnuhelgina. Sörli í Hafnarfirði hélt sitt árlega íþróttamót og var það lokað en Faxi í Borgarfirði var með sitt mót opið í annað sinn. Valdimar Kristinsson fjallar hér um þessi mót. Morgunblaðið/Vakri Vel bar í veiði hjá Sölva Sigurðarsyni í Borgarfirði, hann sópaði að sér gulli og öðrum góðmálmum, sigraði í fimmgangi og varð annar í gæðingaskeiði á Fannari frá Keldudal og fjórgangi á Ísaki frá Ytri Bægisá. Afmælisgjöfin virkar vel hjá Atla Guðmundssyni sem er Sprettur frá Skarði en kona hans gaf honum hann í afmælisgjöf á sínum tíma. Þeir sigruðu í gæðingaskeiði og 150 metra skeiði en Sprettur missti skeifu í úrslitum fimmgangs og það þýddi fimmta sætið. Snorri Dal vann góðan sigur á Greifa í slaktaumatölti hjá Sörla. MARGT góðra hrossa verður í keppni á gæðingamóti Fáks um helgina. Meðal þeirra sem þar ætla sér stóra hluti er Ragnar Tómasson sem í gær gekk frá kaupum á stóðhestinum Hegra frá Glæsibæ. Kaupir Ragnar hest- inn ásamt Helga Vilhjálmssyni sem gjarnan er kenndur við sæl- gætisgerðina Góu. Hegri sem er undan Ófeigi frá Flugumýri hefur vakið athygli undanfarin ár fyrir létta og fagra framgöngu. Seljandi er Gunnlaug- ur Jónsson og segir Ragnar það samkomulag milli kaupenda og seljenda að gefa ekki upp sölu- verð. Ragnar hyggst keppa á Hegra í B-flokki gæðinga og kvaðst hann gera sér vonir um góðan árangur. Hann minnti á að keppnin væri um leið val á gæðingum sem Fák- ur mun tefla fram á landsmótinu á Vindheimamelum og var hann vongóður um að Hegri yrði þar á meðal og hann þá einnig. Sigurbjörn Bárðarson hefur verið með Hegra í þjálfun und- anfarnar vikur og sagði Ragnar að hann hefði tekið hestsmissin- um með karlmennsku eins og honum er einum lagið en pantaði fyrsta folatollinn hjá klárnum um leið og honum var tilkynnt um kaupin. Ragnar Tómasson og Helgi í Góu kaupa Hegra frá Glæsibæ Í SVARGREIN við greinum mínum í Mbl. 2. maí og 15. maí sl., sem Pétur Bjarnason skrifar í Morgunblaðið 18. maí sl., heldur hann því fram að stjórn Haf- rannsóknastofnunar- innar sé „ekki eiginleg stjórn í venjulegum skilningi þess orðs, heldur er í reynd miklu fremur ráðgefandi fyr- ir ráðherra og for- stjóra. Stjórnin er þess vegna ekki sambærileg við stjórnir fyrirtækja (jafnvel ekki fyrirtækja sem alfarið eru í eigu ríkisins) eins og ég ætla að Árni þekki til“. Í lögum nr. 64. 1965 III. kafla um Hafrannsóknastofnun, 10. gr., segir svo: „Hafrannsóknastofnunin er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið.“ 11. gr. laganna mælir fyrir um skipan stjórnar stofnunarinnar. 12. gr. laganna kveður ákveðið á um hvernig stofnuninni skuli stjórnað og segir m.a. svo: „Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn stofnunarinnar og tekur ákvarðanir um meginatriði í stefnu og starfi hennar,“ o.s.frv., eins og rakið var í fyrri grein. Í 13. gr. laganna segir m.a.: „Sjáv- arútvegsráðherra skipar forstjóra að fengnum tillögum stjórnar stofnun- arinnar til fimm ára í senn …“ Þá er í 16. og 18. grein laganna einnig kveðið nánar á um hlutverk stjórnar stofnunarinnar. Samkvæmt framanrituðum til- vitnunum er alveg ljóst til hvers lög- gjafinn ætlast af stjórn Hafró. Jafn- framt er það ljóst, skv. grein Péturs Bjarnasonar, að stjórn stofnunarinn- ar vinnur ekki eins og lögin leggja fyrir hana. Hvernig á mönnum að detta í hug að ráðherraskipuð stjórn vinni ekki samkvæmt þeim lögum sem um hana gilda, eins og Pétur heldur fram? Og hver er ástæða þess? Ekkert í grein Péturs skýrði það ráðslag. Þegar skipan stjórnar Hafró er gagnrýnd er það að sjálfsögðu gert með tilliti til ákvæða laga um hlut- verk stjórnarinnar. Reiknað er með því að stjórnin sé yfirstjórn stofn- unarinnar, eins og lögin segja til um, og þeir sem þar sitja viti hvert hlut- verk þeirra er. Yfirstjórn stofnana eða fyrirtækja á að vita hvað þar gerist og hvað er líklegt að gerist á næstunni. Því gefur það augaleið að stjórn- armenn í Hafró, sem störfuðu eins og til er ætlast skv. lögum, eiga að hafa upplýsingar sem ekki liggja á hvers manns borði. Pétur Bjarnason segist ekki hafa ímyndunarafl til þess að sjá hvernig hægt er að misnota þær upplýsingar sem fást á stjórnarfundum í þágu þeirra fyrirtækja, sem stjórnar- mennirnir tengjast. Þetta verður skiljanlegt í því ljósi að stjórnin er, að sögn Péturs, ráðgefandi fyrir ráð- herra og forstjóra og kemur því með þekkinguna inn í stofnunina, en fær hana ekki þar, og stjórnar ekki stofnuninni. En það má einnig líta orð Péturs öðrum augum og spyrja: Ráðleggja stjórnendur stórra sjávarútvegsfyr- irtækja, sem sitja í stjórn Hafró, ráð- herra og forstjóra örugglega heilt, með hagsmuni alls sjávarút- vegsins í huga, þótt ráðin færu í bága við hagsmuni fyrirtækja þeirra? Er engin hætta á að ákvarðanir stjórn- arinnar markist af hagsmunum stjórn- enda þeirra stórfyrir- tækja, sem í henni sitja? Því hefur ekki verið haldið fram í greinum mínum að upplýsingar, sem stjórnarmenn byggju yfir vegna starfa sinna í Hafró, hafi verið misnotaðar. Hins vegar er hverjum manni ljóst að sá sjávarútvegsforstjóri, sem býr yfir upplýsingum sem aðrir hafa ekki, svo sem upplýsingum um ástand fiskistofna og væntanlega ráðgjöf stofnunarinnar, hefur for- skot á aðra um að gera ráðstafanir til að tryggja og bæta hag síns fyrir- tækis, færu stjórnvöld t.d. að ráðum Hafró um skerðingu á leyfilegum afla. Pétur nefnir að upplýsingar frá Hafró séu birtar jafnóðum og þær verða til, nánast á sama tíma, eftir að hafa verið í vinnuferli hjá Alþjóða- hafrannsóknaráðinu. Það vinnuferli tekur langan tíma. Hverjir þekkja þau gögn sem send eru Alþjóðahaf- rannsóknaráðinu? Veit stjórnin ekk- ert hvað í þeim gögnum er? Pétur segir Hafrannsóknastofn- unina njóta mikils trausts. Það kann að vera rétt. En stofnunin sætir einnig mikilli gagnrýni. Ein undirrót þeirrar gagnrýni er skipan stjórnar stofnunarinnar. Önnur er einokun stofnunarinnar á rannsóknum í lög- sögunni og andstaða hennar við að hleypa þar öðrum að, sem dæmi eru um. Og enn önnur er það haft, sem stofnunin leggur á vísindalegar um- ræður utan stofnunarinnar. Að sjálfsögðu vilja allir að vísinda- legt sjálfstæði Hafró sé tryggt, en Pétur telur það hafið yfir allan vafa að svo sé. Það hefur hins vegar verið dregið í efa, af mönnum sem eru til þess færir, og m.a. með þeim rökum að stjórnin sé skipuð með þeim hætti sem raunin er á. Besta ráðið til að tryggja sjálf- stæði og framgang Hafrannsókna- stofnunarinnar og eyða efasemdum um vísindalegt sjálfstæði hennar er að breyta sem snarast skipan stjórn- ar stofnunarinnar þannig að í henni starfi menn, óháðir einstökum sjáv- arútvegsfyrirtækjum, sem stjórni stofnuninni eins og fyrir er lagt í lög- um, en ekki með öðrum hætti, eins og Pétur Bjarnason heldur fram að gert sé. Það er því brýnt verkefni löggjafans að koma þeim breyting- um í verk. Enn um stjórn- arsetu í Hafró Árni Þormóðsson Höfundur er framkvæmdastjóri. Hagsmunaárekstrar Að sjálfsögðu vilja allir, segir Árni Þormóðsson, að vísindalegt sjálfstæði Hafró sé tryggt. UMRÆÐAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.