Morgunblaðið - 22.05.2002, Page 25

Morgunblaðið - 22.05.2002, Page 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 25 Reykjavík í fyrsta sæti Kynntu flér málin og sko›a›u myndbandi› um Geldinganes á www.reykjavik2002.is DICK Cheney, varaforseti, Banda- ríkjanna, sagði á sunnudag að gera yrði ráð fyrir fleiri árásum hermd- arverkamanna á landið en enginn gæti séð fyrir hvar eða hvenær þeir myndu láta til sín taka. Yfirmaður alríkislögreglunnar FBI, Robert Mueller, tók undir á mánudag. „Við munum ekki geta stöðvað þá, við verðum að læra að lifa með þessu,“ sagði Mueller og taldi einnig óhjá- kvæmilegt að sjálfsmorðs- sprengjumenn myndu einhvern tíma láta til sín taka á götum Bandaríkjamanna. Ráðamenn landsins hafa eftir hryðjuverkin 11. september oft tjáð sig með þessum hætti og reynt eftir mætti að feta vandrataðan stíg milli þess annars vegar að efla kjark þjóðarinnar og hins vegar benda á hættuna. En hart hefur verið deilt að undanförnu í Bandaríkjunum um störf þeirra stofnana sem eiga að annast öryggi ríkisins gagnvart hryðjuverkamönnum og bent á slæm mistök sem þær hafa gert, bæði fyrir árásirnar 11. september og eftir þær. Dick Gephardt, leiðtogi demó- krata í fulltrúadeild þingsins, segist ætla að leggja fram tillögu um op- inbera rannsókn á árásunum. Hann vill m.a. að kannað verði hvort bæta megi úrvinnslu upplýsinga, og jafn- framt hvort samstarf milli opin- berra öryggismálastofnana hafi brugðist. Dæmi eru um að upplýs- ingastreymi milli þeirra sé afar lé- legt og stundum talið að samkeppni sé orsökin. Vitað hefur verið lengi um ýmis mistök alríkislögreglunnar FBI, leyniþjónustunnar CIA, þjóðarör- yggisstofnunarinnar, NSS og fleiri stofnana er gerðu al-Qaeda kleift að undirbúa hryðjuverkin og hrinda þeim í framkvæmd. Einnig hefur stjórn George W. Bush forseta ver- ið sökuð um leyndarhyggju en í ljós hefur komið að nokkrir af æðstu ráðamönnum fengu, skömmu eftir árásirnar, í hendur gamla skýrslu leyniþjónustumanns frá júlímánuði þar sem varað var við því að liðs- menn al-Qaeda og annarra hópa myndu ef til vill ræna flugvélum og fljúga þeim á stór mannvirki. Einn- ig mun Bush hafa fengið skýrslu frá CIA í ágúst sl. þar sem svipaðar við- varanir komu fram. Áfallið vegna árásanna á New York og Washington var svo mikið að í fyrstu var lögð ofuráhersla á að sameina þjóðina og ekki leitað að sökudólgum. En kosningabaráttan vegna þingkosninga í haust er þeg- ar hafin og sjá má merki hennar í mörgum málum. Stjórnmálamenn úr röðum andstæðinga Bush hafa forðast að gagnrýna stefnu hans í baráttunni gegn hryðjuverkum af ótta við að vera sakaðir um að grafa undan samheldni þjóðarinnar. Nú virðist sem þau grið séu að ein- hverju leyti rofin og menn ræða op- inskátt hvort stjórnvöld hafi ekki lagt sig nægilega fram við að hindra árásir á Bandaríkin. Harkaleg við- brögð helstu leiðtoga demókrata virðast þó ekki hafa haft umtalsverð áhrif á traust almennings á Bush. Staða Bush öflug Ný skoðanakönnun fyrir dagblað- ið Washington Post og ABC-sjón- varpsstöðina, sem birt var í gær, bendir til þess að 76% séu ánægð með störf Bush en 22% ósátt. Í könnun frá mars voru samsvarandi tölur 78% og 20%. Hins vegar sögðu aðeins 46% aðspurðra að þau hefðu trú á því að stjórnvöldum myndi takast að stöðva frekari árásir á Bandaríkin. Hefur hlutfallið lækkað úr 55% í könnuninni sem gerð var í mars. Svörin í könnuninni eru sögð endurspegla í ríkum mæli hvaða flokk fólk styður; vantrú á stefnu og frammistöðu Bush er mun meiri meðal demókrata en repúblikana. Liðlega 800 manns voru í úrtakinu og var könnunin gerð á laugardag. John Ashcroft dómsmálaráð- herra og Mueller, yfirmaður FBI, fengu nokkrum dögum eftir árás- irnar í hendur viðvörun frá Kenneth Williams, starfsmanni FBI í Phoen- ix í Arizona, um að nokkrir nemar við bandarískan flugskóla gætu ver- ið al-Qaeda menn. Ashcroft og Mueller létu að sögn The New York Times leiðtogum á þingi ekki í té upplýsingar um skýrsluna frá Will- iams. Embættismenn bera því við að stöðugt flóð af skýrslum um hugsanlegar hættur berist á borð ráðamanna og því óhjákvæmilegt að margar ábendingar drukkni eða gleymist. En hve mikið vissi Bush forseti sjálfur? Condoleezza Rice, þjóðar- öryggisráðgjafi Bush, segir forset- ann ekki hafa heyrt um skýrslu Williams fyrr en eftir árásirnar og virðist sem andstæðingar Bush beri ekki brigður á þá fullyrðingu. Rice segir einnig að Bush hafi ekki heyrt um skýrsluna þar til fyrir fáeinum vikum. „Stutt er síðan ég fékk sjálf vitneskju um hana,“ segir Rice og minnir á að einvörðungu hafi verið um almenn viðvörunarorð í skýrslu Williams að ræða en ekki upplýs- ingar um samsæri. Hún segist hafa beðið Mueller og George Tenet, yf- irmann CIA, um að fara vandlega yfir málið. Hugboð gamalreynds leyniþjónustumanns Skeyti Williams barst aðalstöðv- um FBI um tveim mánuðum fyrir fyrir árásirnar eða 10. júlí en ekki var brugðist við því með aðgerðum af nokkru tagi. Tiltölulega lágt sett- ir sérfræðingar kynntu sér viðvörun Williams sem sagt er að hafi ekki í sjálfu sér byggst á leynilegum upp- lýsingum heldur hafi hann reynt að geta sér til um hvaða hætta gæti stafað af því að fjöldi manna frá Mið-Austurlöndum væri að læra flug í landinu. Hann hafi eingöngu stuðst við „hugboð“ gamalreynds leyniþjónustumanns og bent á að bin Laden eða aðrir hryðjuverka- menn gætu hafa fengið nemana til að þjálfa sig fyrir árásir úr lofti. Margt undarlegt hefur komið í ljós sem bendir til þess að varnar- leysið gagnvart hermdarverka- mönnum sé enn mikið vestra, þrátt fyrir hertar ráðstafanir og stóreflt eftirlit á flugvöllum og víðar. Starfs- menn innflytjendaeftirlitsins gáfu út heimild handa Mohammad Atta, leiðtoga árásarmannanna 11. sept- ember, og félaga hans, Marwan al- Shehhi, til að búa í Bandaríkjunum í sex mánuði meðan hann stundaði flugnám. Heimildin var samþykkt í mars hjá stofnuninni, nokkrum mánuðum eftir sjálfa árásina og olli málið miklu fjaðrafoki og harðri gagnrýni á eftirlitið. Ljóst er að umfangsmikil rann- sókn á atburðunum í september myndi ná nokkuð aftur í tímann. Yrði þá rifjað upp að hryðjuverka- menn ollu usla í embættistíð demó- kratans Bill Clintons, reyndu m.a. að sprengja World Trade Center árið 1993 og tilræði í tveim banda- rískum sendiráðum í Afríku ollu dauða mörg hundruð manna árið 1998. Báðir flokkar bera því ábyrgð á því að varnirnar brugðust. Bush nýtur áfram stuðn- ings meirihluta kjósenda Gagnrýni á stefnu Bush Bandaríkjaforseta virðist ekki hafa mikil áhrif á vinsældir hans vestra. Demókratar á Bandaríkjaþingi hyggjast beita sér fyrir rannsókn á aðdrag- anda atburðanna 11. september. Reuters George W. Bush gengur inn í Rósagarðinn við Hvíta húsið. NORSKA ríkisstjórnin telur, að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, EES, hafi skilað því, sem til var ætlast. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu, sem stjórnin hefur lagt fyrir Stórþingið. Norska sjávarútvegsblaðið Fiskaren gerði þessa skýrslu að umfjöllunarefni í leiðara ný- lega og rifjar þar upp, að af- staða norsku stjórnarflokkanna til Evrópuaðildar sé ólík. Kristilegi þjóðarflokkurinn sé andvígur henni en Hægriflokk- urinn hlynntur. Stjórnarsátt- málinn gangi hins vegar út á, að ekkert verði aðhafst í Evrópu- málunum á kjörtímabilinu. Fiskaren segir, að þótt Norð- menn séu ekki með í öllu ákvörðunarferlinu innan Evr- ópusambandsins, ESB, þá geti þeir haft áhrif á það áður en endanlegar ákvarðanir séu teknar. Það hafi þeir líka gert í orkumálunum en vanrækt það á mörgum öðrum sviðum eins og bent sé á skýrslunni. Í henni segir, að nauðsynlegt sé að auka áhrif Norðmanna á fyrri stigum ákvörðunarferlisins, en hins vegar standi ónóg þekking margra norskra stjórnmála- manna á EES og ESB því fyrir þrifum. Það valdi því, að þótt EES-samningurinn hafi virkað vel, þá gæti hann virkað enn betur. Segja EES-samn- inginn virka vel

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.