Morgunblaðið - 22.05.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 22.05.2002, Síða 48
Elsku langafi. Þegar ég vaknaði föstudaginn 10. maí sagði mamma mér að þú værir dáinn. Ég grét smá en svo fór ég að hugsa. Ég held að þér líði miklu betur núna, uppi á himnum og langamma stendur við hliðina á þér. Ég veit að hún hefur verið rosaglöð að hitta þig loksins. Ég er búin að teikna mynd af þér og langömmu, þið standið á skýi uppi á himnum, með engla í kringum ykk- ur. Þið brosið mikið. Mamma ætlar að geyma myndina þangað til við komuna næst til Íslands. Þá ætla ég að gefa ykkur myndina og fallegu blómin sem ég hef sjálf tínt í skóg- inum hérna í kringum mig. En ég er glöð að hafa fengið að kynnast þér, þú varst mjög góður langafi. Takk fyrir allar gjafirnar og öll páskaeggin sem þú hefur gefið mér. Kysstu langömmu rembingskoss frá mér. Pabbi, mamma og Hera systir biðja kærlega að helsa og hafðu það sem allra best, elsku langafi minn. Þín Hekla Ýr, Noregi. SÖLVI GUTT- ORMS- SON ✝ Sölvi Guttormsson var fæddurá Síðu í Víðidal í V-Hún. 2. febrúar 1913. Hann lést á sjúkra- húsinu á Hvammstanga 10. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hvammstangakirkju 17. maí. MINNINGAR 48 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mig langar með örfá- um orðum að minnast Braga mágs míns, sem látinn er langt um aldur fram, aðeins tæplega 55 ára að aldri. Hann sem alltaf hefur verið svo hraustur er allt í einu hrifinn burt frá eiginkonu, börn- um, ættingjum og vinum. Ég man fyrst eftir Braga þegar hann var 13 ára, en það var þegar ég BRAGI ÞÓRHALLSSON ✝ Bragi Þórhallsonvar fæddur á Langhúsum í Fljóts- dal 20. maí 1947. Hann lést á Landspít- alanum 11. maí síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Eski- fjarðarkirkju 20. maí. kom í fyrsta sinn með manninum mínum, bróð- ur hans, í Langhús. Síð- an hefur verið meira og minna samband á milli okkar. Bragi fór ungur að heiman að leita sér að vinnu. Fyrst fór hann til Vestmannaeyja, en síð- an kom hann fljótlega hingað til Reyðarfjarðar og fór að vinna í síldinni sem þá var nóg af á þeim árum. Svo hitti hann Rannveigu og þau byrj- uðu að búa hér á Reyðarfirði, úti á Bakka. Svo fluttu þau á Eskifjörð. Þar voru þau búin að búa sér fallegt heimili, en hann var nýbúinn að vinna að endurbótum á húsinu og er það allt mjög smekklegt og fínt. Þau eignuð- ust þrjú myndarleg börn sem öll eru uppkomin. Bragi vann hjá Reyðarfjarðar- hreppi í nokkur ár en eftir að hann flutti á Eskifjörð vann hann alltaf hjá bænum, mest á vélum og fleira. Bragi var sérstaklega greiðvikinn og duglegur, hafði gaman af að gera öðrum greiða. Alltaf var hann hress í bragði þegar hann kom, hafði gaman af að spjalla og munum við hjónin sakna heimsókna hans mjög. Bragi ók sjúkrabílnum og var í slökkviliðinu, og hef ég heyrt að gott hafi verið að leita til hans. Elsku Rannveig, Eiður, Palli, Ið- unn og Ásta Kristín, ég bið góðan guð að hugga ykkur og styrkja í þessari miklu sorg sem þið takist nú á við. Kæri mágur, megir þú hvíla í friði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Nanna Björnsdóttir. ✝ Leon Ter-Oganjanfæddist í Péturs- borg í Rússlandi árið 1911. Hann lést í Varsjá 12. febrúar síð- astliðinn. Móðir hans var rússnesk, en faðir hans armenskur. Þeg- ar foreldrar Leons slitu samvistir flutti hann ásamt móður sinni til Varsjár í Pól- landi, þar sem hann ólst upp. Hann hlaut menntun við háskól- ann í Varsjá og varð magister í ensku og enskum bók- menntum. Ter-Oganjan gekk í pólska her- inn og var hermaður þegar síðari heimsstyrjöldin braust út. Hann var tekinn til fanga og sendur til Síberíu, en þar var hann öll stríðsárin og bjó við mikið harðræði. Þeg- ar stríðinu lauk var hann látinn laus og fór þá aftur til Varsjár. Hann kenndi ensku og enskar bókmenntir við háskólann í Varsjá, þar til hann lét af störfum um 1980. Eftirlifandi eigin- kona Leons Ter-Oganjan er Maria Ter-Oganjan. Þau voru barnlaus. Útför Leons Ter-Oganjan fór fram í Varsjá. Látinn er í hárri elli Leon Ter- Oganjan, magister og háskólakenn- ari við háskólann í Varsjá í Póllandi. Hann var mikill Íslandsvinur og einn af stofnendum Íslensk-pólska vin- áttu- og menningarfélagsins í Varsjá, en það er systurfélag Pólsk- íslenska menningarfélagsins í Reykjavík. Bæði félögin voru stofn- uð árið 1959. Ter-Oganjan var náinn samstarfs- maður hinnar kunnu málvísindakonu Margrétar Schlauch, sem var pró- fessor í miðaldabókmenntum við Varsjárháskóla. Hann kom margoft hingað til lands og átti hér vini, eink- um úr röðum frímerkjasafnara en hann var kunnur í heimalandi sínu og víðar sem slíkur. Árið 1983 hlaut Leon Ter-Oganjan heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu fyrir störf sín að kynningu ís- lenskra málefna og menningar í Pól- landi. Eftirlifandi eiginkona hans er Maria Ter-Oganjan. Henni eru send- ar samúðarkveðjur. Kristján Jónsson. LEON TER-OGANJAN Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ; ! <     6   1 6'  .!  "  1   "  //$ 01   6 &D %! * 1 56  4&&  $ !  && %6 &#) &&&  ' # &&&   5 )" &&&  "L  )8F  !  %! ;$ ! &    ! @2   @ $ ! &  ) $ @  !  $ !  ' # #& * ; !  <    <!  !  6    1 6  .!   ! !    . "  1  +.-@ /  '!  !     ! *  #  &   #+*% 56 &      6  & ; ! <     <! ! 6   1 .  . "  1  %  /=    6ID  ! * $    <          ! ,  1 1 "2 !    "      '  A&"! &  @!4# !   &"! &     &"!  &"! &          56 6  & * ; !  <      .   <!  ! 6     1   6  . "   1   "   !        !       .-3 ; %++//00.  2@) !   #4!  "! I!  * $   <    .     1 1  !       " $!     "        !  .!   @6  !! % & @6  %6 &#/"# &  5! @6   6 % & &    % &  %!  #% & & * ; !  <      . "   6      . "  1  !        !       = ,-8 +/00. @ ! G ! "#* $  !  <  . 1  <   /      1   " ! !0    .#    "          $   "&# &  !   5 2 ;    ! @6  !&  % 6<2 &  644M 64456 * @   !   <        ! 6     1   6  . "   1      "     %++,'7+N'O C+  $  ( % 4* % !P! &  @    %2 4 P!  / P! &  % "! 56 @6  @6 " @6  = 2 &  =# @*@6  ( &      &   * ; !  <      <!  !  6    1 . " . "     !!  !         !     $ -*; /00.  A"!  I ! "#* $    <     .     ! ! 0    #      "      6 %6   # ! @ !"M%( / %(  # %   = !  %  &  ;    %   *  Q &! ( 5 56 *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.