Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ fer ekki milli mála að Sjálf-
stæðisflokknum finnist hann í raun
og veru eiga völdin í Reykjavík.
Alla vega þeir
sem mestu ráða í
þeim flokki.
Reykjavíkurlist-
inn hafi tekið
þessa eign
ófrjálsri hendi
fyrir átta árum
og tími sé kom-
inn að þessum
lánstíma sé lokið.
Hinn réttmæti
eigandi Reykjavíkurvaldsins krefst
á nýjan leik fullra yfirráða yfir
þeirri eign sem hefð 20. aldar hefur
veitt honum.
Stundum er auðvelt að fá þá til-
finningu að eiginlega sé það mik-
ilvægara fyrir einstaka sanntrúaða
sjálfstæðismenn að ráða Reykjavík-
urborg en ríkisstjórninni.
Stjórnmálaflokkar eru ekki að-
eins félagsskapur fólks með
ákveðnar sameiginlegar skoðanir
heldur einnig ákveðið valdatæki og
menningarfyrirbæri. Einn styður
annan, helst mann fram af manni og
hefðin er hér öllu öðru mikilvægari.
Þessi skilgreining er nauðsynleg til
að skilja núverandi baráttu Sjálf-
stæðisflokksins fyrir að endur-
heimta völdin í Reykjavík. Skoðana-
lega verður þessi flokkur æ marg-
breytilegri hópur en sem valdatæki
og sem hluti pólitískrar menningar,
ættartengsla og hefðar verður hann
harðskeyttari og samstæðari.
Sé þessi skilgreining rétt sannast
hið fornkveðna að vald spillir. Fólk
skipar sér ekki lengur í hóp eftir
sannfæringu heldur til að ná völd-
um og síðan hygla hvort öðru. Þeg-
ar þessi sami hópur tengist gjarnan
sterkasta fjármálavaldi landsins,
hvort sem við ræðum um „kol-
krabbann“ eða kvótakónga er spill-
ingarhættan ennþá ljósari.
Sjálfstæðisflokkurinn er tví-
mælalaust voldugasti ríkisstjórnar-
flokkurinn. Ef hann nær aftur öll-
um fyrri völdum sínum í Reykjavík
erum við farin að búa við aðstæður
þar sem of mikil völd eins aðila eru
óheppileg fyrir gott lýðræði.
Við skulum óska þess að hver
stjórnmálaflokkur eigi tilveru sína
fyrst og fremst að þakka sameig-
inlegum hugmyndum. En ekki
valdi. Ekki valdi til að ráðskast með
fólk. Því þarf að hindra að valda-
flokkurinn, sem kenndur er við
sjálfstæði, nái aftur fyrri fótfestu í
Reykjavík. Því að vald spillir.
KOLBEINN ÓTTARSSON
PROPPÉ,
skipar 11. sæti Reykjavíkurlistans.
Eiga flokkar fólk?
Frá Kolbeini Óttarssyni Proppé:
Kolbeinn Óttarsson
Proppé
EFNISHYGGJAN lætur ekki að sér
hæða en vélar og hæðir mannfólkið.
Hún lætur vesælar sálir halda að allt
sé fengið með að
verða ríkur, en að
hugsun, undir-
staða atgervis,
skipti minna máli.
Sumir ráðamenn
eru svo uppteknir
af eigin velferð að
þeir gleyma til
hvers þeir voru
kosnir. Þá vantar
þann þroska
skilnings og samkenndar sem góð
manneskja skartar. Upp á stjörnu-
himin stjórnmála hefur skotist kona,
öryggið uppmálað, hugrökk og mál-
vís, en ekki að sama skapi hógvær og
góðviljuð. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir var kosin borgarstjóri og lof-
aði hún góðu í fyrstu, en breytti fljótt
um stíl. Áhugaleysi þessarar sterku
konu fyrir afkomu og velferð þeirra
sem fatlast hafa, hvort sem er af
slysförum eða öðru, skín víða í gegn.
Hún hefur sýnt ferðaþjónustu fatl-
aðra og húsnæðismálum fátækra
lygilegt tómlæti. Sjálfstæðisflokkur-
inn hafði látið ferðaþjónustuna fá
nýjan bíl árlega, en Ingibjörg dró
þar úr sem fleiru og kórónaði áhuga-
leysi sitt á velferðarmálum fatlaðra
með því að ráða ósamvinnuþýða og
skilningslitla konu sem forstjóra fyr-
irtækis sem varðaði þá. Ferðaþjón-
usta fatlaðra er þeim geysilega mik-
ilvæg, en nú liggur við að Ingibjörg
leggi í rúst mikilvægasta þáttinn og
er nú svo komið að sendibílar flytja
stóran hluta hjólastólafólks í farang-
ursrými þar sem hver misfella í veg-
um veldur óþægindum fyrir utan
þrengslin og virðingarleysið. Hún
hefur kosið að taka hag verktaka
framar þeim sem fyrir er unnið. Sér-
hannaðir bílar fyrir hjólastóla eru í
auknum mæli notaðir fyrir gangandi
fólk sem vel getur notað nær hvaða
bíl sem er. Fyrir liggur að starfsem-
in verði boðin út nái hún kosningu og
væri það ljót aðför að fötluðu fólki. Í
borgarstjóratíð Ingibjargar hefur
húsaleiga orðið yfirgengilega há og
fólki með lágar og meðaltekjur of-
viða. Aldrei hefur slík holskefla ok-
urs dunið yfir landsmenn í húsa-
leigumálum. Við úthlutun lóða er sá
sigurvegari sem hæst býður og er nú
svo komið að almenningur hefur þar
enga möguleika og segir sig sjálft að
húsnæði verður þeim ókaupandi.
Þrælafjötrar húsaleigu er þeim boð-
ið sem vilja stofna fjölskyldu. Við
liggur að 9-10 fermetra herbergi
leigist nú á sama verði og eðlilegt er
að 60-70 fermetra íbúð sé. Með lóða-
skorti og okri á þeim fáu sem bjóðast
hefur fjöldi húsameistara verið úti-
lokaður og þar með samkeppni og
fjölbreytni. Milljarða kostnaður í til-
færslu á landi, borgarenda á milli,
eykur skuldasöfnun og vandræði.
Ekki átti ég von á að það yrði hag-
stætt fötluðum og öðrum sem eiga
fárra kosta völ að koma R-listanum
frá eins og nú er komið og sorglegt
að sýndarmennskan skuli þar vera
mannúðinni yfirsterkari. Pólitík
kemur ótrúlega mörgum í stað trúar
og er það í meira lagi hallærislegt og
líkist skjóli fyrir huglausa. Fólk á að
kynna sér málin og þora að gera það
sem því finnst rétt.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Til fátækra kjósenda
Frá Alberti Jensen:
Albert
Jensen