Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 2
HANN minnir eilítið á kúreka úr villta vestrinu, hestamaðurinn með barðastóra hattinn, sem fékk sér reiðtúr á hestasvæðinu í Víðidal í gær. Sól skein í heiði og jörðin var brakandi þurr og þá er fátt betra en að njóta lífsins úti í nátt- úrunni. Hitinn komst enda í 23 stig um miðjan dag í Reykjavík í gær og er þetta mesti hiti sem mældur hefur verið í júnímánuði í borginni frá upphafi mælinga, árið 1920. Heldur svalara veður var hins vegar í öðrum landshlutum í gær. Í dag er gert ráð fyrir að hiti verði víða 13–20 stig að deginum, en hlýjast verður á suðvesturhorn- inu. Sprett úr spori í veðursæl- um Víðidal Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isJón Arnar þjálfar lið Breiðabliks/B1 Stærsti sigur Íra á HM/B3 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Morgunblaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið Sjónvarps- dagskráin. Blaðinu verður dreift um allt land. JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segist fylgjast vel með þeirri umræðu sem fram fer hér á landi og erlendis um einkarekstur inni á sjúkrastofnunum. Umræðan sé at- hyglisverð en ákvarðanir hafi ekki verið teknar um frekari einkavæð- ingu. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á laugardag eru uppi hug- myndir í Svíþjóð og Danmörku um að bjóða út rekstur einstakra deilda á ríkisreknum sjúkrahúsum og hafa danskir stjórnmálamenn deilt um þessar hugmyndir. Jón minnir á að hugmyndir hafi verið uppi hérlendis um að einka- væða göngudeildir Landspítalans. Tíðindin frá Norðurlöndum séu angi af þeirri umræðu. „Það eru engin sérstök einka- væðingaráform uppi hjá okkur. Fram fer mikil einkavæðing inni í kerfinu með samningum við einka- reknar stofur sérfræðinga. Það hef- ur ekki náð til inniliggjandi sjúk- linga,“ segir Jón og bendir á að í raun sé starfandi stór og einkarek- in göngudeild í Mjódd án þess að þar séu sjúklingar lagðir inn. „Menn verða að gá vel að sér í þessu, kanna hvað sé hagkvæmt og hvað veiti sjúklingunum besta þjón- ustu. Við höfum ekki viljað útiloka neinar leiðir. Rekstrarformið er ákveðið tæki en aðalatriðið er að sambærilegir möguleikar séu fyrir alla þegna þjóðfélagsins,“ segir heilbrigðisráðherra. Heilbrigðisráðherra um einkarekstur sjúkradeilda Athyglisverð umræða sem fylgst er vel með Tillögur meirihluta sagnfræðiskorar Háskóla Íslands Áliti dómnefndar hafn- að og staðan auglýst MEIRIHLUTI á fundi kennara við sagnfræðiskor heimspekideildar Há- skóla Íslands vill að áliti dómnefndar um hæfi umsækjenda um starf lekt- ors í fornleifafræði verði hafnað og staðan auglýst að nýju hér á landi og erlendis. Taldir eru annmarkar á álitinu og að í því hafi fundist merki um hlutdrægni, líkt og stöðunefnd heimspekideildar hafði komist að. Sagnfræðiskor fundaði í gær þar sem níu kennarar greiddu atkvæði af ellefu sem mættu, en 13 kennarar til- heyra sagnfræðiskor. Tveir yfirgáfu fundinn áður en til atkvæðagreiðslu kom en tveir kennarar voru staddir erlendis. Að sögn Más Jónssonar, formanns sagnfræðiskorar, sam- þykktu sex kennarar umrædda ályktun, tveir voru á móti og einn skilaði auðu. Önnur tillaga kom ekki fram og er ályktunin eftirfarandi: „Fundur í sagnfræðiskor í heim- spekideild HÍ 11. júní 2002 hefur fjallað um álit dómnefndar um hæfi umsækjenda um starf kennara í fornleifafræði dagsett 27. maí sl. Skorin tekur undir samþykkt stöðu- nefndar heimspekideildar frá 10. júní sl. um að á álitinu séu ýmsir ann- markar og þar sé að finna merki um hlutdrægni. Meðal annmarka á álit- inu er að menntun umsækjenda í fornleifafræði virðist ekki vera metin sem skyldi. Sagnfræðiskor telur því ekki unnt að taka afstöðu til umsækj- enda á grundvelli álitsins. Hún legg- ur því til að álitinu verði hafnað og kennarastaðan auglýst að nýju hér- lendis og erlendis.“ Viðmiðun fyrir deildarfund Már Jónsson sagði við Morgun- blaðið að nokkur umræða hefði átt sér stað á fundinum þar sem menn hefðu skipst á skoðunum um málið. Í kjölfarið hefði tillaga að ályktun ver- ið lögð fram, hún kynnt og borin undir atkvæði. Hann benti á að þessi ályktun yrði lögð fram til ráðgjafar og viðmiðunar fyrir deildarfund heimspekideildar. Þar munu kennar- ar deildarinnar þurfa að gera upp hug sinn til málsins. Albönsku flótta- mennirnir eru enn í Færeyjum ALBÖNSKU flóttamennirnir fimm sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar á fimmtudag og var vísað héðan úr landi hafa sótt um pólitískt hæli í Fær- eyjum. Að sögn lögregluyfirvalda í Þórshöfn eru mennirnir ennþá í Færeyjum og munu ekki yfir- gefa landið fyrr en ákvörðun hefur verið tekin í máli þeirra. Málefni útlendinga í Færeyjum eru í höndum danskra yfirvalda og gat færeyska lögreglan ekki sagt til um hvenær mennirnir fengju lausn sinna mála. Mjög sjaldgæft er að flótta- menn sækist eftir hælisvist í Færeyjum og taldi lögreglan að meira en áratugur væri síðan slíkt gerðist síðast. Málið hefur vakið mikla athygli í Færeyjum og má meðal annars sjá skoð- anakönnun á heimasíðu Dimma- lætting, eins helsta dagblaðs Færeyja, um hvort veita eigi Albönunum pólitískt hæli í Fær- eyjum eða vísa þeim úr landi. Borgarbyggð Úrslitin standa ÞRIGGJA manna nefnd lögfræð- inga tilkynnti í gær að hún hefði hafnað kæru framsóknarmanna í Borgarbyggð vegna sveitarstjórn- arkosninganna í Borgarbyggð og standa úrslitin því óbreytt. Kosningarnar fóru þannig að D- listi sjálfstæðismanna fékk fjóra menn kjörna, B-listi framsóknar- manna fékk þrjá menn kjörna og L-listi Borgarbyggðarlista fékk tvo menn kjörna. Annar maður á L- lista og fjórði maður á B-lista voru með jafnmörg atkvæði á bak við sig og var af þeim sökum varpað hlut- kesti um sætið, sem féll í skaut L- lista. Í nefndinni voru héraðsdómslög- mennirnir Tryggvi Bjarnason og Jón Haukur Hauksson á Akranesi og Stefán Skjaldarson, skattstjóri á Vesturlandi. MORGUNBLAÐINU í dag fylgir blaðauki um samskipti Íslands og Kína. Blaðaukinn er gefinn út í tilefni opinberrar heimsóknar Jiang Zemin, for- seta Kína, sem hefst á morgun, fimmtudag. M.a. eru rifjuð upp samskipti ríkjanna á sviði stjórnmála, viðskipta, menn- ingar og íþrótta. Í DESEMBER sem leið voru 30 ár frá því stjórnmálasamband komst á milli Íslands og Kína. Á þessu tíma- bili hafa samskipti þjóðanna aukist ár frá ári, en þau voru reyndar ekki mikil áður. Stærsti markaðurinn Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að samskipti Íslands og Kína hafi verið mjög mikil og vin- samleg frá því stjórnmálasambandi hafi verið komið á milli þeirra í des- ember 1971. Hann hafi sjálfur farið tvisvar í opinbera heimsókn til Kína, fyrst með Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta Íslands, 1995, og síðan aftur í fyrra. Aðrir ráðherrar hafi auk þess farið oft í opinberar heimsóknir til Kína og kínverskir ráðamenn hafi sótt Ísland heim. „Við höfum verið að byggja upp við- skiptatengsl og sú vinna hefur þegar skilað nokkrum árangri, en við ger- um okkur vonir um að hún beri enn meiri árangur í framtíðinni,“ segir utanríkisráðherra og vísar m.a. til þess að tollar á íslenskum vörum í Kína hafi verið allt of háir. Við aðild Kína að Heimsviðskiptastofnuninni, WTO, hafi verið samið um lækkun þeirra og Íslendingar leggi áherslu á frekari lækkun til að örva þessi við- skipti. Jafnframt hafi verið lagður grunnur að meiri ferðamanna- straumi milli landanna og almennum samskiptum. Á sama tíma hafi póli- tíska samvinnan aukist innan al- þjóðastofnana. „Uppbyggingin í Kína hefur verið ævintýri líkust og það liggur fyrir að Kína verður einn stærsti markaður í heimi, þegar litið er inn í framtíðina, því um leið og framleiðslan eykst þá eykst velmeg- un og kaupmáttur almennings, og viðskipti blómstra í kjölfarið,“ segir Halldór. Kristniboði fyrsti ræðismaðurinn Segja má að íslenskir kristniboðar hafi að sumu leyti rutt veginn fyrir samskipti þjóðanna á fyrri hluta ný liðinnar aldar. Hjónin Astrid og Jó- hann Hannesson voru m.a. í Kína frá 1939 til 1946 en þá flúðu þau til Hong Kong og fóru síðan til Íslands þar sem þau voru í tvö ár. 1948 fékk Jó- hann skipun sem ræðismaður í Yiyang en eftir valdatöku kommún- ista 1949 fóru þau aftur til Hong Kong og var Jóhann þar til 1953. Astrid segir að mikill órói hafi verið í Kína, ekki síst í þeim fylkjum þar sem þau hafi starfað. Bjarni Bene- diktsson utanríkisráðherra hafi því skipað Jóhann sem ræðismann til að styrkja stöðu þeirra og það hafi kom- ið sér vel, en þau hafi ekki haft nein opinber samskipti við Kína. Skúli Svavarsson, framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins, segir að það hafi verið algengt að kristniboð- ar hafi sinnt opinberum trún aðarstörfum án þess að blanda sér í stjórnmálin. Stjórnmálasamband árið 1971 Lýðveldið Kína var meðal stofn- ríkja Sameinuðu þjóðanna og hafði neitunarvald í Öryggisráðinu. 1. október 1949 lýstu kommúnistar yfir stofnun Kínverska alþýðulýðveld- isins. Stjórn þjóðernissinna flúði til Taívans (Formósu) þar sem hún kall- aði sig áfram stjórn Lýðveldisins Kína og taldi sig löglega stjórn alls Kínaveldis. Þessi stjórn skipaði sæti Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, þar til stjórn Kínverska alþýðulýðveld- isins fékk aðildina í sínar hendur 26. október 1971. Vinstri stjórn Ólafs Jó- hannessonar tók við völdum 14. júlí 1971 og í stefnuyfirlýsingu hennar var m a tekið fram að stuðlað skyldi að því að Kínverska alþýðulýðveldið tæki sæti Kína hjá SÞ, og Ísland var á meðal þeirra ríkja sem greiddu at- kvæði með breytingunni á þingi SÞ. Í bók Péturs J. Thorsteinssonar, Utanríkisþjónusta Íslands og utan- ríkismál, segir m.a. að Ísland hafi haft sérstöðu meðal Norðurlanda- ríkjanna í Kínamálinu. Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafi tekið upp stjórnmálasamstarf við kommúnistastjórnina í Peking 1950 og því greitt atkvæði með því að Kín- verska alþýðulýðveldið tæki sæti Kína hjá SÞ. Frá 31. ágúst til 1. sept- ember 1950 var fundur utanrík- isráðherra Norðurlanda haldinn í Reykjavík og er vitnað í fundargerð þar sem sagt er að Bjarni Benedikts- son hafi minnst á að aðalritarinn hafi haldið því fram að kommúnista stjórnin hefði rétt til þess að ákveða, hver yrði fulltrúi Kína hjá Samein- uðu þjóðunum. Íslendingar hefðu ekki haft ástæðu til að taka afstöðu til málsins með því að ekkert sam- band hefði verið milli Íslands og Kína.“ Í fundargerð frá utanríkis- ráðherrafundi í Stokkhólmi 10. og 11. október 1951, þar sem Magnús V. Magnússon var eini fulltrúi Íslands, var afstaða Íslands áréttuð og m.a. haft eftir Magnúsi að „Ísland hefði engin viðskipti við Kína“. Um 20 árum síðar komst á stjórn- málasamband á milli ríkjanna. Sig- urður Bjarnason, sendiherra í Kaup- mannahöfn, átti fund með Yueh Siang, kínverska sendiherranum í borginni, 10. nóvember 1971 og til- kynnti honum að ríkisstjórn Íslands óskaði eftir að semja við stjórnina í Peking um stjórnmálasamband. Kín- verjar svöruðu jákvætt nokkrum dögum síðar en þar sem Ísland hafði engin tengsl við ríkisstjórnina á Taí- van voru engin vandkvæði á samn- ingum. Viðræður fóru síðan fram um málið og 14. desember 1971 var samningur um stjórnmálasamband undirritaður. Samdægurs gáfu Ís- land og Kínverska alþýðulýðveldið út sameiginlega yfirlýsingu um gagn- kvæma viðurkenningu, stofnun stjórnmálasambands og skipti á sendiherrum. „Kínverska ríkisstjórnin lýsir yfir því á ný, að Taívan sé óaðskilj- anlegur hluti landsvæðis Alþýðu- lýðveldisins Kína, og er ríkisstjórn Íslands sú yfirlýsing kínversku rík- isstjórnarinnar kunn. Ríkisstjórn Íslands viðurkennir ríkisstjórn Alþýðulýðveldisins Kína sem hina einu löglegu ríkisstjórn Kína,“ segir í yfirlýsingunni. Sambandinu fagnað Kínverjar fögnuðu stjórnmála- sambandinu og í ritstjórnargrein Dagblaðs alþýðunnar í Peking 16. desember 1971 kemur m.a. fram að kínverska stjórnin styðji Mjög mikil og vinsamleg stjórnmála- leg samskipti Reuters Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands, fór í opinbera heimsókn til Kína 1995. Hér kannar hún heiðursvörð í Peking með Jiang Zemin, forseta Kína. Jiang kemur í opinbera heimsókn til Íslands á morgun og endurgeldur þannig heimsókn Vigdísar. Sigurður Bjarnason og frú Ólöf Pálsdóttir voru fyrstu sendiherrahjón Íslands gagnvart Kína og afhenti Sigurður Chou En-lai for- sætisráðherra trúnaðarbréf sitt 25. september 1973. Löndin tóku upp stjórnmálasamband í lok ársins 1971. Í s land og K ína hafa ver ið í s t jórnmálasambandi í rúm 30 ár, en samsk ipt in e iga sér lengr i sögu . Steinþór Guðbjartsson f let t i b löðum og bókum og ræddi v ið mann og annan um þess i samsk ipt i . Ísland og Kína Jiang Zemin, forseti Kína, fjölmennasta ríkis heims, kemur í opinbera heimsókn til Íslands á morgun. Rúm þrjátíu ár eru frá því Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband. Af þessu tilefni rifjar Morgunblaðið upp samskipti ríkjanna á undanförnum áratugum, m.a. á sviði stjórnmála, viðskipta, menningar og íþrótta. Miðvikudagur 12. júní 2002  Blaðauki um samskipti Íslands og Kína  Ísland og Kína/C1-8 Atvinnu- lausum fjölgar Í LOK maí voru 3.953 skráðir at- vinnulausir borið saman við 2.096 í maí í fyrra, samkvæmt gögnum vinnumiðlana og samantekt Hag- stofu Íslands. Af skráðum atvinnulausum í maí sem leið voru 1.056 manns eða 26,7% á aldrinum 15 til 24 ára en 22,8% í maí 2001. 801 einstaklingur eða 20,3% hafði verið sex mánuði eða lengur á atvinnuleysisskrá í maí mið- að við 24,9% í lok maí 2001. Tölur um atvinnulausa ná til allra sem eru skráðir atvinnulausir á við- miðunardegi burtséð frá því hvort þeir eigi rétt á bótum eða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.