Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HUGMYNDAÞING um framtíðar- skipulag svokallaðs Mýrargötu- svæðis verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Hugmynda- vinnan sem þar verður unnin verð- ur síðan höfð til hliðsjónar í fyr- irhugaðri samkeppni um skipulag svæðisins. Svæðið sem um ræðir afmarkast af Ánanaustum og Grandagarði í vestri, slippasvæði og Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn í norðri, Norður- stíg í austri og Vesturgötu í suðri. Að sögn Helgu Bragadóttur, deild- arstjóra hjá Skipulags- og bygg- ingasviði Reykjavíkur, er hug- myndin að fá fram sjónarmið hagsmunaaðila á svæðinu, s.s. íbúa, atvinnurekenda og annarra sem þar starfa, en á þinginu verð- ur til umræðu staða skipulags- og umferðarmála á svæðinu og fram- tíðarsýn á hafnar-, athafna- og íbúðarsvæði. Helga segir standa til að efna til samkeppni um skipulag svæðisins í haust og hugmyndir frá þinginu verði síðan notaðar við undirbún- ing samkeppnislýsingarinnar. Eru allir sem hagsmuna hafa að gæta á svæðinu því hvattir til að mæta og greina frá sínum hugmyndum og væntingum varðandi framtíð þess. Hugmyndaþingið verður sem fyrr segir haldið í Ráðhúsi Reykja- víkur í dag, miðvikudaginn 12. júní, og hefst það klukkan 16:30.                                                         Hugmyndaþing um Mýrar- götusvæðið Vesturbær KOSTNAÐUR við endurskipulagn- ingu Korpúlfsstaða sem alhliða menningarmiðstöðvar yrði mun minni en áætlaður kostnaður við endurbyggingu hússins sem menn- ingarseturs og Erró-safns var fyrir tæpum áratug. Þetta segir Guðrún Jónsdóttir, formaður menningar- málanefndar Reykjavíkurborgar. Eins og Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku hefur menningarmála- nefnd gert það að tillögu sinni að Korpúlfsstaðir verði í framtíðinni nýttir sem miðstöð menningar, sköp- unar og mannræktar. Fyrir tæpum áratug lagði svokölluð Korpúlfs- staðanefnd til að byggingin yrði end- urgerð sem menningarsetur og Erró-safn en hætt var við þær fyr- irætlanir vegna þess hve kostnaðar- samt verkefnið þótti. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, formanns menningamálanefndar, hafa forsendur breyst að því leyti að nú eru áformaðar mun minni breyt- ingar á húsinu en þá var gert. „Í fyrri hugmynd, þegar Erró-safnið var á döfinni, var stefnt að ansi mikilli breytingu á burðarvirkinu og sömu- leiðis átti að saga út stóra glugga í framhliðina,“ segir hún. „Hvort tveggja er mjög dýrt í svona húsi sem er ekki járnbent. Eins var í fyrri tillögunni talað um stækkun á Korp- úlfsstöðum því þá átti að byggja geymslu norðan við húsið. Þá var líka gert ráð fyrir miklum loftræsti- kerfum og raka- og loftskiptikerfum út af listasafninu og þetta allt saman var mjög kostnaðarsamt. Þannig að áætlunin var mjög há eða töluvert á annan milljarð króna.“ Mikið verk eftir við að lagfæra bygginguna Hún segir annað uppi á teningnum núna og í raun stefnt að því að varð- veita húsið sem mest í upprunalegri mynd. „Það er hvorki verið að tala um að byggja við né breyta burð- arvirkjum heldur að nýta þetta hús eins og það kemur af skepnunni og reyna að lagfæra það sem þarf.“ Guðrún bendir á að húsinu hafi lít- ið verið breytt vegna þeirrar starf- semi sem það hýsir núna. Um 200 milljónum hafi verið kostað til þegar Korpuskóli hóf starfsemi sína í hús- inu en þar af hafi 100 milljónir verið vegna nauðsynlegs viðhalds hússins. Hún segir engu að síður töluvert verk eftir við að lagfæra bygg- inguna. „Það eru stór rými í mið- burstinni sem eru mjög lítið nýtt og nánast fokheld og sömuleiðis á eftir að laga kjallarann.“ Skólinn farinn eftir þrjú ár Hún segir menningarmálanefnd ekki hafa sett fram kostnaðaráætlun vegna verksins enda yrði hún að taka mið af því hvað yrði í húsinu. „Núna þyrfti að setja einhverja nefnd í að hugsa það út næstu þrjú árin því tím- inn er svo fljótur að líða. Það er talað um að skólinn fari úr húsinu árið 2005 og þá opnast þarna mikið rými þótt samningar við golfarana séu lengri. Við gerum ráð fyrir því að fyrir þann tíma verði búið að hugsa út hvernig á að nota þetta.“ Að mati Guðrúnar er húsið ein- stakt byggingasögulega séð og segir hún að áhersla verði lögð á að virða það. En var það þá bara heppni að húsinu var ekki breytt á sínum tíma eins og hugmyndir gerðu ráð fyrir? „Ég held það, á margan hátt. Þótt þetta væri stórhuga og glæsileg hug- mynd þá held ég að hún hefði verið of stór og hefði ekki skilað því að húsið yrði varðveitt eins og maður hefði gjarnan viljað.“ Grafarvogur Fyrri hugmyndir mun kostnaðarsamari Morgunblaðið/Árni Sæberg Menningarmálanefnd borgarinnar leggur áherslu á að húsið verði varðveitt í upprunanlegri mynd, ólíkt fyrri hugmyndum um endurbyggingu, en kostnaður við þær fyrirætlanir var áætlaður á annan milljarð króna. Forsendur breyttar vegna nýtingar Korpúlfsstaða Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Vikufer› til Mallorca 17. júní tilbo› *Innifali›: Flug, skattar, gisting í 7 nætur í ra›húsi me› 2 svefnherbergjum og stofu á Íris, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. kr. *45.843 m.v. tvo fullor›na og tvö börn, 2-11 ára í húsi. Ver›: Brottför 17. júní. Einungis 4 hús í bo›i í ra›ahúsagar›inum Íris. kr. *49.730 m.v. lágmark tvo fullor›na í húsi. Ver›: Betri fer›ir – betra frí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 80 74 06 /2 00 2 INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir segir ljóst að viðræður verði að fara fram milli borgaryfirvalda og flug- málayfirvalda áður en flugbrautir í Vatnsmýrinni verði lagðar af. Hún segist alltaf hafa búist við því að um- hverfisráðherra setji fyrirvara við staðfestingu svæðisskipulags höfuð- borgarsvæðisins hvað varðar flug- vallarsvæðið. Morgunblaðið greindi frá því í gær að Skipulagsstofnun fallist ekki á að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geti tekið bindandi ákvörðun í svæð- isskipulagi um að leggja Reykjavík- urflugvöll niður í áföngum. Í grein- argerð stofnunarinnar er mælt með því við umhverfisráðherra að hann setji fyrirvara við staðfestingu svæð- isskipulags höfuðborgarsvæðisins, sem nú bíður afgreiðslu hans, hvað varðar flugvallarmálið þar sem ekki liggi fyrir önnur stefna af hálfu stjórnvalda en að flugvöllurinn verði miðstöð innanlandsflugs á landinu. Ingibjörg bendir á að í greinargerð Skipulagsstofnunar komi fram að svæðis- og aðalskipulag sé réttur vettvangur til að hefja undirbúning að slíkum breytingum. „Aðalskipu- lag Reykjavíkur er auðvitað stefnu- mótun borgarinnar til rúmlega 20 ára og það felur í sér þá stefnu sem við höfum varðandi þetta svæði. Við höfum engin önnur tæki til þess að sýna stefnumótunina í aðalskipulagi öðruvísi en að gera það á korti eins og við gerum þarna. En það kemur jafnframt fram, og á það höfum við lagt áherslu, að í framhaldinu verði að fara fram viðræður milli borgar- yfirvalda og flugmálayfirvalda um nánari útfærslu á málinu.“ Viðræður verði að fara fram fljótlega Í greinargerð Skipulagsstofnunar er talað um bindandi ákvörðun í þessu sambandi og aðspurð um það hvort svo sé ekki ítrekar Ingibjörg að um stefnumörkun borgarinnar sé að ræða. „Ég átta mig ekki alveg á því hvað átt er við með því að þessi ákvörðun sé bindandi því við breyt- um stundum aðalskipulagi reita. Í framhaldi af slíkri ákvörðun þurfa borgaryfirvöld að fara í viðræður við þá aðila sem hagsmuna hafa að gæta. En við getum ekki mótað stefnuna öðruvísi en í gegnum skipulagstillög- ur.“ Ingibjörg segist alltaf hafa átt von á því að umhverfisráðherra myndi staðfesta skipulagið með fyrirvara um Vatnsmýrina eins og Skipulags- stofnun leggur til. „Það kemur mér ekkert á óvart. Svo má gera ráð fyrir því að viðræðurnar fari fram og ein- hver niðurstaða komi úr því og þá á eftir að samþykkja aðalskipulag aft- ur því það er gert á fjögurra ára fresti.“ Hún segir ekki búið að ákveða við- ræður við stjórnvöld en segist telja að það verði að gerast fljótlega. „Það eru ákveðnir hlutir sem er gert ráð fyrir að taki gildi á árabilinu 2005- 2008 og það þarf auðvitað að liggja ljóst fyrir von bráðar.“ Skipulagið er stefnu- mörkun borgarinnar Vatnsmýrin Borgarstjóri segir umsögn Skipulagsstofnunar vegna Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins ekki óvænta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.