Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 21
BANDARÍSKI mafíuforinginn
John Gotti, sem m.a. hlaut á ferli
sínum viðurnefnið „Don Teflon“
vegna þess að hann virtist ætíð
geta hrist af sér allar ákærur, lést
á fangelsissjúkrahúsi sl. mánudag.
Hann var með krabbamein.
Gotti var 61 árs og afplánaði lífs-
tíðardóm sem hann hlaut 1992 fyrir
morð og fjárkúganir. Gotti komst
til æðstu metorða innan mafíunnar
og varð alræmdur í Bandaríkj-
unum og víðar, bæði vegna af-
brotaferilsins og vegna íburð-
armikils lífsstíls. Þannig hlaut hann
einnig viðurnefnið „Dapper Don“,
eða „fágaði doninn“, vegna þess
hve hann var ætíð fínn í tauinu.
Gotti fæddist inn í fátæka fjöl-
skyldu ítalskra innflytjenda í New
York, þar sem hann hóf feril sinn
við skipulagða glæpastarfsemi með
ránum á flutningabílum. Þegar
hann var 21 árs hafði hann þegar
verið handtekinn fimm sinnum, en
ætíð voru ákærurnar felldar niður
eða mildaðar – og einmitt þannig
urðu samskipti hans við arm lag-
anna lengst af.
Hann vann sig í áliti innan
Gambino glæpasamtakanna með
blóðhefnd sem hann hlaut vægan
fangelsisdóm fyrir, og er hann var
látinn laus vann hann sig upp innan
samtakanna með dyggri aðstoð
vinar síns Sammy „Bola“ Gravano.
Saman lögðu þeir svo á ráðin um
morðið á fjölskylduhöfuðpaurnum
„Stóra Páli“ Castellano, sem var
skotinn til bana ásamt bílstjóra sín-
um fyrir utan Sparks steikhúsið á
Manhattan 1985.
Gotti tók þá völdin í fjölskyld-
unni og varð um leið miðpunktur
rannsókna alríkislögreglunnar
(FBI) á skipulagðri glæpastarf-
semi. Með yfirvöldin á hælunum
varð Gotti áberandi í fjölmiðlum og
prýddi meðal annars forsíðu Time
fréttatímaritsins, sem hið nýja and-
lit skipulagðrar glæpastarfsemi.
Eftir að hann hafði verið fundinn
sýkn saka í fjölda dómsmála hlaut
hann viðurnefnið „Don Teflon“.
Gula pressan sagði hann vera
frægasta mafíumann síðan Al Cap-
one, og Gotti naut frægðarinnar,
sannfærður um að hann myndi
standa af sér allar atlögur lög-
regluyfirvalda. „Þegar litið er yfir
valdaferil Gottis sér maður að eini
árangurinn sem hann í rauninni
náði sem mafíuforingi var að fanga
athygli almennings,“ sagði Allan
May, höfundur bókarinnar „Maf-
íusögur“ og vefsíðunnar www.-
crimelibrary.com.
„En sem leiðtoga skorti hann al-
veg þá hæfileika sem einkenna feril
mafíumanna á borð við Al Capone.
Á endanum var það kæruleysi
Gottis og sjálfsánægja sem leiddu
til þess að hann féll af stalli.“ At-
hyglin sem Gotti hlaut kom líka
niður á „kaupsýslu“ Gambino-
fjölskyldunnar, því að lögreglan
sótti að henni úr öllum áttum.
Við réttarhöldin sem leiddu til
lífstíðardómsins yfir Gotti byggði
FBI mál sitt á segulbands-
upptökum sem náðust með hler-
unartækjum er komið hafði verið
fyrir í höfuðstöðvum Gottis í Litlu
Ítalíu-hverfinu í New York. Mátti
þar heyra Gotti tala opinskátt um
mafíuframkvæmdir, þar á meðal
morð.
Á einni segulbandsupptökunni
mátti heyra hann láta í veðri vaka
að Gravano skyldi fá það óþvegið,
og þegar Gravano heyrði upptök-
una gekkst hann inn á að vitna
gegn Gotti og samstarfsmanni
hans, gegn því að fá sjálfur fimm
ára fangelsisdóm fyrir 19 morð.
Upptökurnar og vitnisburður
Gravanos dugðu til að Gotti var
fundinn sekur. Fyrir utan dóms-
húsið gengu stuðningsmenn hans
berserksgang, veltu bílum og æptu:
„Látið Gotti lausan!“
Hann var fluttur í alríkisfang-
elsið í Marion í Illinois þar sem
hann sat uns hann var fluttur á
fangelsissjúkrahúsið í Springfield í
Missouri, þar sem hann lést.
Lögreglumenn sem unnu að því
að handsama hann fordæmdu hann
einróma. „Þegar allt kemur til alls
olli hann mafíunni og Gambino-
fjölskyldunni meira óláni en nokk-
uð annað,“ sagði Ronald Goldstock,
fyrrverandi yfirmaður þeirrar
deildar FBI sem rannsakaði skipu-
lagða glæpastarfsemi. Gotti hefði
verið erkiklaufi.
„Hann kunni ekki að forðast
hleranir (hann var gripinn þrisvar
með þeim hætti), hann veitti mönn-
um frama á grundvelli vináttu og
skyldleika, en ekki eftir því hversu
hæfir menn voru – og sumir þess-
ara manna snérust gegn honum,
hann olli heiftarlegum innanbúð-
arerjum innan mafíunnar og hann
olli því að bæði fjölmiðlar og lög-
regla beindu allri sinni athygli að
mafíunni.“
„Don Teflon“ allur ’ Hann olli mafíunnimeira óláni en nokk-uð annað ‘
APJohn Gotti, fínn í tauinu eins og alltaf, fyrir rétti í New York 1990.
New York. AP, AFP, Newsday.