Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 9 Fyrir brúðkaupið Glæsilegir kjólar, dragtir og dress Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. undirfataverslun Síðumúla 3-5, sími 553 7355. Opið mán.-fös. kl. 11-18, laugard. kl. 11-15. 2 snið af brjóstahöldurum í skálastærðunum B, C, D. Litir: Hvítt - gull. 2 snið af buxum í stíl. Sendum í póstkröfu. Ný sending - nýjar línur Tensel settin frá Jensen komin aftur Takmarkað magn Einnig ný sending af dökkum gallabuxum Verslun fyrir konur Mjódd sími 557 5900 og Laugavegi 44 sími 562 8070 Laugavegi 63, sími 551 4422 Maura sumarkápur Sumarkápur Regnkápur Ýmis sumartilboð Stuttjakkar kr. 14.900 i il j . . Til að auglýsa á þessari síðu hafðu samband við okkur í síma 569 1111 eða sendu okkur tölvupóst á augl@mbl.is SKIPULAG heilbrigðiskerfisins má að mati Hauks Valdimarssonar að- stoðarlandlæknis bæta með því að efla þátt grunnþjónustu á borð við heilsugæslu. Það megi gera án þess að auka fjármagn inn í kerfið eða draga úr vægi annarrar þjónustu. Haukur var inntur eftir viðbrögð- um við ummælum Einars Odds Krist- jánssonar, varaformanns fjárlaga- nefndar Alþingis, í Morgunblaðinu í gær þess efnis að skipulagi heilbrigð- isþjónustunnar væri ábótavant og efla þyrfti heilsugæsluna frekar en að færa þjónustu upp á hæsta stig með hátækniaðgerðum. „Ég er þó ekki sammála Einari Oddi um að það sé hægt að stilla mál- inu þannig upp að annaðhvort velji menn grunnþjónustu eða hátækni- þjónustu. Þessi stig þurfa bæði að virka saman eins og vel smurðar vél- ar. Með því að bæta grunnþjónustuna væri eflaust hægt að bæta ástandið og taka þá á málum fyrr og á öðru þjónustustigi en verið er að gera,“ segir Haukur og vísar þar einkum til höfuðborgarsvæðisins þar sem kvart- að hafi verið undan aðgengi að grunn- þjónustunni, þ.e. heilsugæslustöðv- unum. Aðspurður hvort heilbrigðisyfir- völd hafi um of lagt áherslu á að há- marka gæði þjónustunnar telur Haukur svo ekki vera. Íslendingar geti verið stoltir af því að bera sig saman við það besta sem þekkist í heiminum á sviði heilbrigðismála. Nú séu flestar aðgerðir gerðar hér á landi og almenn sátt hafi verið um að stefna að því. Haukur segir að ekki megi draga úr þeirri áherslu heldur frekar að beina þjónustunni inn á réttar brautir og dreifa álaginu betur. Efla má þátt grunn- þjónustunnar Skipulag heilbrigðiskerfisins að mati landlæknisembættisins LÝSTAR kröfur í þrotabú VN vegg- efnis ehf., áður Metró-Málarans- Veggfóðrarans ehf., í Skeifunni 8 í Reykjavík, nema um 90 milljónum króna skv. upplýsingum frá skipta- stjóra, þar af um þriðjungur vegna vangoldinna opinberra gjalda. Eng- ar eignir fundust í búinu. Verslanirnar Málarinn og Vegg- fóðrarinn voru settar á laggirnar á millistríðsárunum en voru sameinað- ar árið 1997 og síðan reknar undir merkjum Metró-keðjunnar. Skipta- fundur í þrotabúinu verður haldinn 10. júní nk. Komi ekki fram ábend- ingar um eignir í síðasta lagi á þeim fundi verður skiptum í búinu lokið. Þrotabú VN veggefnis ehf. Lýstar kröfur 90 milljónir ÞRÍR fulltrúar Ríkisendurskoðunar kynntu skýrslu hennar um fjárfram- lög ríkisins til Sólheima í Grímsnesi fyrir fjárlaganefnd Alþingis á mánu- dag. Eins og fram hefur komið gerði Ríkisendurskoðun ýmsar athuga- semdir við starfsemi Sólheima á dög- unum og kemur m.a. fram í skýrsl- unni að framlögum ríkisins hafi ekki verið varið í samræmi við samning ríkisins og Sólheima, en að mati Sól- heima var samningurinn ekki lengur í gildi. Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að ríkisendurskoðandi og tveir starfsmenn stofnunarinnar til við- bótar hafi farið yfir skýrsluna með fjárlaganefndinni, en hún hafi ekki tekið neina ákvörðun í málinu. Hins vegar hafi efni skýrslunnar verið rætt og ljóst væri að það væri vilji í fjárlaganefndinni til að bera klæði á vopnin. Skýrsla Ríkisendur- skoðunar um fjár- framlög til Sólheima Skýrslan kynnt fjár- laganefnd Alþingis ♦ ♦ ♦ ORÐIN streita, asi og erill hverfa úr huganum og gleymast þegar að- komumaður úr þéttbýlinu dvelur vikupart í Flatey á Breiðafirði. Þessi hugtök eru líka óþörf í orða- forða heimamanna. Eins og í öðrum sveitum snýst lífið þar um skepnur og gróður og veðurfar en ekki yfir- vinnu eða æðibunugang eða sjón- varp. Því eru klukkur óþarfar og nægilegt að fylgjast með tímanum af almanaki eða árstíðum. Tveir ábúendur eru í Flatey og búa þar árið um kring. Tekjur hafa þeir af sauðfé og æðardúni og til viðurværis að auki eru hlunnindi úr sjó. Geta bændur sótt sér fisk í soð- ið fyrir heimilið og lundi er veiddur ef ástæða þykir til. Meðal vorverka Flateyjarbænda er að flytja mest af sauðfénu frá eynni yfir í nálægar grösugar eyjar eða uppá fastalandið. Í eyjunum gengur féð sumarlangt. Ekki væsir um það og lömbin eru væn þegar þau eru sótt að hausti. Borgar- börnin gátu rétt hjálparhönd við að koma fé í bát en ekki þurfti svo sem annað að gera en standa fyrir skepnunum og síðan runnu þær sína leið niður í fjöruna. Eftir nokkurt brölt yfir þang- sleipa steina tosuðu bændur og að- stoðarmenn eitt og eitt lamb um borð og ginntu með þeim mæður- nar sömu leið. Stöku sinnum ætluðu lömbin sér annað en í bátinn og fengu í staðinn bað í fjöruborðinu. En það gerðist hjá mannfólkinu líka og kippti sér enginn upp við það. Veðrið var stillt og nógu hlýtt enda verður féð ekki flutt frá eynni nema í blíðu. Allmörg fleiri hús eru í Flatey en tilheyra búunum tveimur. Í pláss- inu hafa afkomendur og ættingjar sem tengjast eynni haldið við göml- um húsum og sumir reist þar ný hús í gömlum stíl. Fátt manna er í þessum húsum lungann úr árinu en á vorin færist í þau líf. Iða þau öll um hásumarið þegar þarna dveljast nokkrir tugir manna og gestkvæmt er einnig hjá bændum og margt í heimili á sumrin. Þar eru líka tvö hús starfsmannafélaga sem vel eru nýtt á sumrin. Ekki er undarlegt að menn drag- ist að Flatey til dvalar. Hvort sem menn verða þátttakendur í eyjalíf- inu með bændum eða sinna húsa- lagfæringum með sumarfólkinu eða eru bara áhorfendur og gestir er dvöl í eynni sérstæð. Þar gengur allt á öðrum hraða en í þéttbýlinu og með öðru hugarfari en á fasta- landinu. Fyrir borgarbörnin er það ný tegund af næringu að kynnast þessu lífi. Í góðviðrinu á dögunum hægðist líka á fuglalífinu og jafnvel krían gat ekki verið aðgangshörð í slíkri blíðu. Hún rétt nennti að garga á göngufólk. Flatey er ekki mjög stór að flat- armáli, um hana má auðveldlega ganga þvera og endilanga á dag- parti. Hluti hennar er friðaður allri umferð milli 15. maí og 15. júlí vegna varpfugla, ekki síst þórs- hana. Í Flatey eru nefnilega aðal- varpstöðvar hans á Íslandi og þar sem pörin eru ekki mörg þarf að gefa þeim frið ef vera mætti til að styrkja viðkomu þeirra. Ýmsa fleiri fugla hitta menn fyrir, svo sem máva og svartfugla og er þar líka sólskríkja og stelkur og æðarfugl eins og öðrum Breiðafjarðareyjum. Féð flutt burt og fólk kemur í staðinn Baldur sér um að halda Flatey í sambandi við land árið um kring. Þegar bjart er og stillt í Flatey hafa bæði menn og fuglar hægt um sig. Morgunblaðið/jt Féð dregið um borð, lömbin fyrst og ærnar fylgja afkvæmunum eftir. joto@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.