Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 15 w w w .c lin iq ue .c om 100% ilmefnalaust Ráðgjafi frá Clinique aðstoðar þig við litaval og létta förðun: Í dag ......................................Austurstræti 12-17 Fimmtudag ...........................Melhaga 12-17 Föstudag ..............................Selfossi 11-17 Laugardag ............................Kringlunni 12-17 Gegnsær og glansandi varalitur með SPF 15 sólarvörn Tólf girnilegir litir í fallegum silfurtúpum. Ómótstæðilegir og freistandi fyrir sumarið. Dekraðu við þig í sumar. Moisture Sheer Lipstick SPF 15 kr. 1.636. Clinique. 100% ilmefnalaust Kaupauki: Ef keyptir eru tveir hlutir úr sólarvörn Clinique fylgir Clinique baðtaska 45*34 cm. Nýir girnilegir varalitir Moisture Sheer Lipstick SPF 15 frá Clinique ÞAÐ ER æði misjafnt hvað börn taka sér fyrir hendur þegar skóla lýkur í sumarbyrjun. Framundan er nægur tími til skemmtilegra verka og víst er að Kristín Ósk Gísladóttir, 10 ára stúlka í Keflavík, er full tilhlökk- unar fyrir þetta óvenjulega sum- ar. Hún ætlar að leika í kvikmynd og þar með hefur langþráður draumur hennar ræst. Kvik- myndin sem um ræðir er Dauði kötturinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur en tökur mynd- arinnar hófust í Reykjanesbæ nýliðna helgi. Rétt fyrir páskahátíðina aug- lýstu aðstandendur kvikmyndar- innar að áheyrnarprufur vegna leikaravals færu fram í Frum- leikhúsinu á föstudaginn langa. Þar var tekið fram að verið væri að leita að ungri stúlku í aðal- hlutverk myndarinnar. Vilborg Reynisdóttir, móðir Kristínar, segist hafa rekið aug- un í auglýsinguna og sagt Krist- ínu frá henni, meira í gríni en al- vöru. „Kristín sagði oft þegar hún var yngri að hún ætlaði að verða leikkona. Ég var svo sem ekkert viss um að sá brennandi áhugi væri enn fyrir hendi þegar ég nefndi þetta við hana, en það var hann samt greinilega því hún dreif sig,“ sagði Vilborg í samtali við Morg- unblaðið. Ekki happatalan Gísli Viðar Harðarson, faðir Kristínar, var jafnhissa og Vil- borg en að kvöldi skírdags bað Kristín pabba sinn að vekja sig snemma morguninn eftir. „Ég spurði hana hvers vegna í ósköp- unum, enda var mér ekki kunn- ugt um að neitt stæði til. Hún til- kynnti mér galvösk að hún ætlaði í prufuna og þar við sat.“ Hátt í 200 stúlkur voru mættar í leikhúsið að morgni föstudags- ins langa, en Kristín lét fjöldann ekkert á sig fá, þrátt fyrir reynsluleysi á þessu sviði. Í prufunni þurfti Kristín að fara í viðtal. „Ég var spurð um áhugamál og svoleiðis,“ sagði Kristín, sem greinlega hefur haft mikla útgeislun því fljótlega var henni tilkynnt að hún væri kom- in í tíu manna úrtak vegna hlut- verksins. „Ég var látin fá númer og mér sagt að koma aftur seinna um daginn. Ég fékk núm- erið 49 og ég segi að það sé happatalan mín. Í seinni pruf- unni þurfti ég svo að leika.“ Þar með voru úrslitin ráðin. Kristín segir að leiklistina geti hún alveg hugsað sér að leggja fyrir sig og á sú reynsla sem hún mun hljóta á næstu vikum ef- laust eftir að reynast henni vel á þeirri braut. Sumir draumar rætast Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Kristín Ósk Gísladóttir tók sig vel út í sumarblíðunni og á sjálfsagt eftir að taka sig jafn vel út á hvíta tjaldinu. Keflavík BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar hvetur til endurskoðunar á ákvörð- un um að takmarka ferðafrelsi fé- laga í Falun Gong hér á landi. Bæj- arstjórnin leggst þó ekki gegn því að þeim verði veitt húsaskjól í Njarðvíkurskóla. Ályktun um aðgerðirnar gegn Falun Gong var samþykkt á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær og stóðu all- ir bæjarfulltrúarnir ellefu að henni. Í henni eru forseti Íslands og ríkis- stjórn hvött til að endurskoða þá ákvörðun sína, í tilefni af komu for- seta Kína hingað til lands, „að tak- marka ferðafrelsi hóps friðsam- legra mótmælenda sem leggur stund á líkamlegar og andlegar æf- ingar undir heitinu Falun Gong“. Þar segir einnig: „Á Íslandi og í Kína ríkir algjörlega ólíkt mat á virðingu fyrir einstaklingnum og réttindum hans. Með tilkomu Ji- angs Zemins, forseta Kína, mega ís- lensk stjórnvöld alls ekki nálgast sjónarmið kínverskra yfirvalda á grundvallarmannréttindum ein- staklinga heldur nota tækifærið og leggja áherslu á mannréttindavið- horf Íslendinga. Ef þjóðhöfðingi Kína má ekki verða vitni að frið- samlegum mótmælum er mikið álitamál hvaða erindi hann á til okk- ar lýðræðisríkis.“ Tillagan var flutt af Árna Sigfús- syni, nýráðnum bæjarstjóra, og samin eftir samræður oddvita allra flokkanna í bæjarstjórn. Árni segir að bæjarfulltrúarnir séu algerlega andsnúnir þeim aðgerðum sem beitt er gegn Falun Gong og telji þær ekki í þeim anda sem ríkir í ís- lensku þjóðfélagi. Oft áður hafi er- lendir þjóðhöfðingar komið í heim- sókn en aldrei hafi verið farið með þessum hætti að dyntum manna sem komið hafi frá einræðisríkjum og virðist ekki þola friðsamleg mót- mæli. „Við eigum ekki að sætta okkur við slíkt,“ segir Árni. Dvölin verði bærileg Ellert Eiríksson, fráfarandi bæj- arstjóri, og skólastjóri Njarðvíkur- skóla veittu lögreglunni á Keflavík- urflugvelli heimild til að nota húsnæði Njarðvíkurskóla fyrir þá félagsmenn Falun Gong sem ekki fá landvistarleyfi. Í ályktun bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar er tekið fram að þótt stjórnvöld fari ekki að áskorun þeirra um breytingar á ákvörðunum um að takmarka ferðafrelsi Falun Gong megi það ekki verða til þess að þeir búi við slæman kost hér á landi og að við þær aðstæður sé skárra að aðstoða við að gera dvöl þeirra sem bæri- legasta. Felur þetta í sér óbeinan stuðning við afnot fólksins af hús- næði Njarðvíkurskóla. Jóhann Geirdal, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, segist telja óæskilegt að nota skólahúsnæði með þessum hætti en telji að sú samstaða sem náðist í bæjarstjórn um að mót- mæla skerðingu mannréttinda þessa fólks sé mikilvægur áfangi og hafi vegið þyngra í sínum huga. Árni Sigfússon segir að bæjar- fulltrúar beri ákveðna ábyrgð sem einstaklingar og að hann telji ekki rétt að vísa vandanum annað, held- ur að gera fólkinu lífið hér eins bærilegt og unnt sé miðað við að- stæður, ekki síst með tilliti til mannúðarsjónarmiða. Mótmæla takmörkun á ferðafrelsi fólksins Reykjanesbær Nýkjörin bæjarstjórn leggst ekki gegn vistun Falun Gong í Njarðvíkurskóla ÁRNI Sigfússon, oddviti sjálfstæð- ismanna í bæjarstjórn Reykjanes- bæjar, var í gær ráðinn bæjarstjóri á fyrsta fundi nýkjörinnar bæj- arstjórnar. Að loknum fundi tók hann við lyklavöldunum að bæj- arstjóraskrifstofunni af Ellert Ei- ríkssyni sem verið hefur bæjar- stjóri Reykjanesbæjar og áður Keflavíkurbæjar í tólf ár. Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins, sem hafa meirihluta í bæjarstjórn, um ráðningu Árna var samþykkt með sex atkvæðum þeirra en fimm fulltrúar minnihlut- ans sátu hjá. Síðar á fundinum þakkaði Árni kosningu sína, hét því að vinna að heilindum í störfum sín- um og sagðist treysta á stuðning allra bæjarfulltrúa. Sjálfkjörið var í aðrar nefndir, ráð og embætti. Björk Guðjóns- dóttir var kjörin forseti bæjar- stjórnar, Þorsteinn Erlingsson fyrsti varaforseti og Jóhann Geir- dal annar varaforseti. Böðvar Jóns- son var kjörinn formaður bæjar- ráðs og með honum í ráðinu verða Björk Guðjónsdóttir og Steinþór Jónsson en þau eru öll kjörin af D- lista, og Jóhann Geirdal og Ólafur Thordersen, fulltrúar Samfylking- arinnar. Sjálfstæðisflokkur á þrjá fulltrúa og Samfylking tvo í fimm manna nefndum. Framsóknarflokkurinn á ekki fulltrúa í nefndunum nema hvað Kjartan Már Kjartansson bæj- arfulltrúi verður áfram formaður stýrihóps um Staðardagskrá 21, samkvæmt tillögu sjálfstæðis- manna. Þá mun Kjartan Már nýta sér heimild til að sitja fundi bæjar- ráðs sem áheyrnarfulltrúi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ellert Eiríksson afhenti eftirmanni sínum, Árna Sigfússyni, lyklavöldin að bæjarskrifstofunum og höfuðverkjartöflu sem hann hefur geymt í skrifborðsskúffu sinni í tólf ára bæjarstjóratíð en aldrei þurft að nota. Árni Sigfússon tekinn við lyklavöldunum Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.