Morgunblaðið - 12.06.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 12.06.2002, Síða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mapei múrefni er allt sem þú þarft Sími 525 3000 • www.husa.is Kítti, flotmúr, flísalím, fúga, viðgerðarefni og fleira. Íslendingadagurinn í Gimli Merkasta hátíð- in í Nýja-Íslandi Íslendingadagurinn íGimli í Kanada verðurmánudaginn 5. ágúst í ár, en Íslendingadagshá- tíðin stendur yfir 2. til 5. ágúst að þessu sinni. Há- tíðin fer nú fram í 113. sinn, en þetta er elsta hátíð þjóðarbrots í Kanada. Til að byrja með var hátíðin í Winnipeg en hún var flutt til Gimli 1932 og verður þar því í 70. sinn í sumar. Timothy Grant Arnason, forseti Íslendingadags- nefndar, er á Íslandi um þessar mundir í boði for- sætisráðuneytisins og ut- anríkisráðuneytisins í þeim tilgangi að kynna há- tíðina. Hann hitti Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, í gær, heimsækir Vesturfararsetrið á Hofsósi í dag og síðan er gert ráð fyrir að hann hitti m.a. Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, Davíð Oddsson, forsætisráðherra, Jón Kristjáns- son, heilbrigðisráðherra, og Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, borg- arstjóra í Reykjavík. Hann verður með viðtalstíma í utanríkisráðu- neytinu frá klukkan 10 til 12 á morgun, fimmtudag, fyrir þá sem hafa áhuga á að koma fram á há- tíðinni í náinni framtíð. Morgun- blaðið hitti Tim og hann var fyrst spurður um ástæður þess að hann hefði unnið eins mikið og lengi fyrir Íslendingadaginn og raun ber vitni. „Ég fæddist inn í þetta áhuga- starf. Björn Valdimar Arnason, faðir minn, sem er 86 ára, hefur verið í stjórn Íslendingadags- nefndar í meira en 40 ár og var forseti 1970 og 1971. Vilhjálmur Arnason, afi minn, fór í nefndina þegar hátíðin var flutt til Gimli fyrir 70 árum og starfaði lengi í henni, en hann var sonur Dórot- heu Soffíu Abrahamsdóttur og Jó- hanns Péturs Árnasonar frá Vill- ingadal í Eyjafirði. Kristín Jónína Benson, móðir mín, hefur alla tíð tekið virkan þátt í starfinu og var Fjallkona 1973, þannig að fjöl- skyldan hefur tengst þessu eins og öðrum málum í íslenska sam- félaginu í Manitoba. Íslendinga- dagurinn hefur verið stór hluti af lífi okkar, en ég er líka í stjórn Kanada-Íslandssjóðsins og er ráð- gjafi nefndarinnar Sameinað ís- lenskt átak.“ Hvernig er dagskráin í ár? „Við erum með fjölbreytta dag- skrá og reynum að bæta hana á hverju ári með því að brydda upp á einhverju nýju, en þetta er merkasta hátíðin í Nýja-Íslandi ár hvert. Í ár verðum við með ís- lenskt leikrit, Völuspá eftir Þór- arin Eldjárn, og félagar úr Harm- onikufélagi Reykjavíkur skemmta, en uppistaða dagskrár- innar byggist á hefðbundnum þáttum eins og margs konar keppni fyrir alla aldurshópa, eld- húsi ömmu, þar sem gestir geta fengið íslenskan mat, margs kon- ar sýningum og menn- ingarviðburðum að ógleymdri skrúðgöngu og flugeldasýningum. Í stuttu máli gengur þetta út á að vera með eitthvað fyrir alla á þessari fjöl- skylduhátíð.“ Hvað er gert ráð fyrir mörgum gestum? „Við rennum mjög blint í sjóinn hvað fjöldann varðar, en á und- anförnum árum hafa verið um 40.000 gestir árlega. Fyrir tveim- ur árum vorum við með um 60.000 manns sem er met, en aðalatriðið er að það er rými fyrir alla og allir eru velkomnir. Við höfum oft fengið gesti frá Íslandi og í þessu sambandi má nefna að Jón Krist- jánsson, heilbrigðisráðherra, flyt- ur minni Kanada á hátíðinni, en J. Timothy Samson minni Íslands. Connie Magnusson er fjallkona í ár og flytur hátíðarræðuna.“ Í fyrra var íslensk-kanadísk kvikmyndahátíð, Gimli kvik- myndahátíðin, hluti af skemmtun- inni. Verður hún aftur í ár? „Já. Kvikmyndirnar vöktu mikla athygli í fyrra en þær voru sýndar á stóru tjaldi úti á Winni- pegvatni og sami háttur verður hafður á í sumar. Að þessu sinni verður kvikmyndahátíðin dagana á undan Íslendingadagshátíðinni sjálfri þannig að skemmtunin verður lengri en á meðal mynda verður Rare Birds eftir Sturla Gunnarsson. Í tengslum við Ís- lendingadaginn gengst vikublaðið Lögberg-Heimskringla fyrir Opna íslenska mótinu í golfi eins og í fyrra og verður það föstudag- inn 2. ágúst.“ Hver er tilgangur heimsóknar- innar til Íslands? „Þetta er liður í að styrkja enn frekar böndin milli Nýja-Íslands og Íslands. Við erum stöðugt að leita leiða til að kynna Ísland vestra og notum hvert tækifæri sem við getum til að minna á land og þjóð en Íslendingadagurinn er kjörinn vettvangur til þess. Ís- lendingadagurinn er líka vett- vangur fyrir listafólk á mörgum sviðum og með viðtalstímanum í utanríkisráðuneytinu gefst mér tækifæri til að kynna fyrir áhuga- sömu listafólki hvaða tækifæri það hefur. Við höfum oft verið með íslenska listamenn og viljum halda því áfram. Við viljum líka efla samstarfið við Þjóðræknis- félagið á Íslandi og Snorraverk- efnið er okkur mjög hugleikið. Í heimsókninni gefst mér ennfrem- ur tækifæri til að tengjast betur upprunanum. Hér eru ræturnar og þær eru mikilvægar.“ Timothy Grant Arnason  Timothy Grant Arnason er forseti Íslendingadagsnefndar í Gimli í Kanada, en hefur starfað hjá tryggingafyrirtæki í Winni- peg frá því hann útskrifaðist úr Háskólanum í Winnipeg 1976 og er þar yfirmaður tjónadeildar. Tim hefur mjög látið til sín taka í „íslenska“ samfélaginu í Mani- toba og hefur m.a. verið í stjórn Íslendingadagsins í um 20 ár, þar sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum. Tim er 45 ára og er kvæntur Delphine Arna- son. Þau eiga tvö börn, sem eru Alena Theresa 14 ára og Brady Michael Bjorn 11 ára. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla Þetta er alveg að koma hjá honum, hr. Sægreifi þetta er síðasta kanínan, svo kemur þorskur. MISMUNANDI launakjör starfs- fólks á vernduðum vinnustöðum urðu, að sögn Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra, til þess að í fyrrahaust hófst vinna við úttekt á launakjörum fólks á öllum vernd- uðum vinnustöðum hér á landi. Nið- urstaða vinnunnar liggur ekki fyrir enn. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar um málefni Sólheima kemur fram að meðallaun fatlaðra einstak- linga þar fyrir 7 stunda vinnudag voru 5.300 krónur á mánuði á árinu 2000 og rúmlega 5.600 krónur á mánuði árið 2001, en Páll segir að úttektin hafi ekki tengst Sólheim- um sérstaklega. „Vegna þess að fólki á vernduð- um vinnustöðum eru greidd mis- munandi laun vildum við reyna að finna eitthvert kerfi sem væri sann- gjarnt fyrir alla aðila. Þessi vinna miðar að því að ná þarna skynsam- legu samræmi sem getur tryggt hinum fötluðu aðgengi að vinnu, eða þeim sem eru á því fötlunarstigi að þeir geti á annað borð unnið, án þess að það verði svo dýrt að ókleift verði að halda úti þessum vinnu- stöðum.“ Ákvarðanir teknar á hverjum vinnustað fyrir sig Páll segir að hingað til hafi ákvarðanir um launakjör á vernd- uðum vinnustöðum að einhverju leyti verið teknar á hverjum vinnu- stað fyrir sig og hafi sumir atvinnu- rekendur greitt fötluðum lágmarks- laun þó starfsgeta væri mjög takmörkuð. Páll bendir á að þessi mál séu vandmeðfarin enda sé mjög misjafnt hversu mikla aðstoð hinir fötluðu einstaklingar þurfi við vinnu sína, og með því að greiða fólki hátt kaup líka meðfram því, sé ekki rekstrargrundvöllur fyrir starfseminni. Páll bendir einnig á að atvinnuþátttaka fatlaðra sé ekki einungis efnahagslegt úrræði, held- ur einnig félagslegt, og því megi há- ar launagreiðslur ekki verða til þess að starfsemi leggist niður. Aðspurður um álit sitt á launa- kjörum fatlaðra sem starfa á Sól- heimum segir Páll að fötluðum ein- staklingum sé skipt í ákveðna flokka þar sem fötlun þeirra er metin. Á Sólheimum séu fyrst og fremst einstaklingar sem teljast lít- ið fatlaðir og ef vinnuframlag þeirra sé eitthvert sé ljóst að hér sé ekki um háar greiðslur að ræða. Könnun á vegum félagsmálaráðuneytisins Launakjör fólks á vernd- uðum vinnustöðum skoðuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.