Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 17
Tjöld Svefnpokar D‡nur Tjaldhúsgögn Prímusar
hjá Umfer›armi›stö›inni
Vorum a› opna
Tjöld frá 6.990 kr.
Tjaldaland
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
17
99
1
06
/2
00
2
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
Bornholm
fiægilegt og létt
3ja manna tjald í
fer›alagi›, 5 kg.
Gott fortjald me›
tveimur inngöngum.
Astoria
Frábært fjölskyldutjald,
létt og fyrirfer›arlíti›.
Fæst bæ›i sem 4ra og
5 manna. Gott fortjald,
2 m hátt, sem hægt er
a› opna á flrjá vegu.
Au›velt í uppsetningu.
Kíktu til okkar á túni› vi› BSÍ
og sjá›u meira en 40 tjöld
í öllum stær›um og ger›um.
Opi› mánudaga - föstudaga kl. 9-18
og laugardaga kl. 10-16.
Sirius
Mjög vanda› 3ja manna
göngutjald me› álsúlum.
A›eins 4,1 kg.
Traust tjald
í öllum ve›rum.
Frábært ver›: 13.990
4 manna, ver›: 24.990
5 manna, ver›: 29.990
Ver›: 26.990
SALA á fólksbílum dróst saman um
fimmtung fyrstu fimm mánuði ársins
miðað við sama tíma í fyrra. Sala á
þremur bílategundum af fimmtán
jókst, mest á Skoda eða um 39,3%.
Einnig jókst sala á kóresku bílunum
Hyundai um 20% og á Kia um 14,8%.
Stefán Ásgrímsson hjá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda segir að
gæði þessara bíla hafi farið mjög
vaxandi, sérstaklega undanfarin
fjögur ár, en þeir séu samt sem áður
ódýrir. „Eftir að Skoda komst í eigu
Volkswagen hefur hann batnað gríð-
arlega mikið. Þetta sýna t.d. bilana-
tíðnitölur frá Þýskalandi. Kóresku
bílarnir hafa einnig batnað mjög
mikið og þeir virðast vera komnir í
flokk með japönskum bílum sem
hafa verið hvað minnst hrjáðir af bil-
unum,“ segir Stefán.
Hekla hefur umboð fyrir Skoda á
Íslandi. Sverrir Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Heklu, segir að
sala á Skoda hafi farið stöðugt vax-
andi undanfarin ár. Að hans mati er
ástæðan bæði verð og gæði. „Þetta
er mjög vel byggður bíll, á góðu verði
og vel búinn. Skoda er vel samkeppn-
ishæfur við hvaða evrópskan eða jap-
anskan bíl sem er,“ segir Sverrir.
Skoda Oktavia 1600 kostar nú nýr
1.620 þúsund krónur. Til samanburð-
ar kostar nýr Volkswagen Golf 1600
1.850 þúsund krónur og ný Toyota
Corolla 1600 1.759 þúsund krónur,
samkvæmt upplýsingum á vefsíðum
umboðanna.
Bílar frá Kóreu verða vinsælli
Samkvæmt könnun J.D. Power í
Bandaríkjunum hafa gæði í bíla-
framleiðslu aukist mjög og voru kór-
esku framleiðendurnir Kia og Hy-
undai nefndir sérstaklega. Sala á
þessum bílum hefur einnig aukist og
að sögn Guðmundar Gíslasonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra B&L,
jókst sala verulega í maímánuði á
þessum tegundum í Bandaríkjunum
á meðan sala dróst saman á öðrum
tegundum. Jepplingurinn Santa Fe
er söluhæsti Hyundai-bíllinn á Ís-
landi að sögn Guðmundar. „Fleiri en
ein könnun hefur sýnt fram á lága
bilanatíðni Hyundai og vöruúrvalið
hjá Hyundai er einnig mjög gott,“
segir hann.
Hyundai Santa Fe kostar nýr
2.350 þúsund krónur. Til samanburð-
ar kostar Suzuki Grand Vitara 2.438
þúsund krónur og Toyota Rav 4
2.489 þúsund krónur.
Kia Sportage er söluhæsti bíll Kia
á Íslandi og er í svipuðum flokki og
Santa Fe, Grand Vitara og Rav 4.
Sportage er svokallaður jepplingur
en er þó byggður á grind. Nýr Sport-
age með tveggja lítra bensínvél kost-
ar 2.090 þúsund krónur.
Stefán Tómasson, forstjóri Kia á
Íslandi, segir að svo virðist sem
ódýrari bílar verði vinsælli hjá al-
menningi þegar harðnar á dalnum.
Söluaukningin hjá Kia stafi fyrst og
fremst af viðskiptum við bílaleigur
og af sölu á smærri og ódýrari bílum
sem standist fyllilega samanburð við
aðrar tegundir. „Söluaukningin
fyrstu fimm mánuðina er á Skoda,
Hyundai og Kia en gæði allra þess-
ara tegunda hafa aukist mjög mikið
undanfarin ár,“ segir Stefán.
Söluaukning á ódýrari bílum
Morgunblaðið/Þorkell
Aukin gæði en
lægra verð
HLUTHAFAR norska sjávarút-
vegsfyrirtækisins Fjord Seafood
ASA hafa hafnað sameiningu við
norska fiskeldisfyrirtækið Cermaq.
Bæði félögin eru á meðal stærstu
fiskeldisfyrirtækja Noregs og sam-
einað félag orðið næststærsta eldis-
fyrirtæki heims.
Á hluthafafundi Fjord Seafood í
fyrradag höfnuðu 36,6% hluthafa
sameiningunni en samþykki 67%
hluthafa þurfti til að af sameining-
unni yrði. Fyrr um daginn höfðu
hluthafar Cermaq samþykkt sam-
runann.
Á netfréttavef Aftenposten kemur
fram að stærstu hluthöfum Fjord
Seafood hafi þótt verðlag nýrra
hlutabréfa, sem gefa átti út til að
fjármagna samrunann, allt of lágt og
myndi leiða til rýrnunar á núverandi
verðmati fyrirtækisins. Samkomu-
lag tókst um samrunann í maí en
hann stóð og féll með hlutafjáraukn-
ingu. Helstu hluthafar Fjord Sea-
food, bandarísku fyrirtækin Conti-
Group og Seaboard Corporation,
töldu verðlag þeirra óviðunandi.
Bréfin átti að bjóða á genginu 4,50
norskar krónur hlutinn en þeir höfðu
vonast eftir að fá nærri helmingi
hærra verð. Því höfnuðu bandarísku
hluthafarnir sameiningunni en þeir
eiga um 22% hlutafjár í Fjord og er
talið að þeim hafi tekist að fá til liðs
við sig hóp smærri hluthafa til að ná
tilskildum atkvæðafjölda til að fella
sameininguna.
Sameiningu fisk-
eldisrisa hafnað
HAGNAÐUR lággjaldaflug-
félagsins Ryanair nam 172
milljónum evra, sem svarar til
14.620 milljóna íslenskra
króna, á síðasta rekstrarári. Er
þetta methagnaður hjá félaginu
en eftirspurn eftir ódýrum
ferðum hefur aukist mjög á
undanförnum misserum.
Í fréttavef BBC kemur fram
að farþegum hafi fjölgað að
sama skapi hjá Ryanair eða um
38% á rekstrarárinu.
Í samtali við BBC sagði for-
stjóri Ryanair, Michael
O’Leary, að árangurinn væri
stórkostlegur með tilliti til þess
að árásirnar á Bandaríkin þann
11. september og gin- og
klaufaveikitilvik hefðu komið
upp á rekstrarárinu.
O’Leary sagðist telja að á
næstu tveimur árum mætti bú-
ast við um 35% aukningu í flug-
ferðum.
Tæplega 15
milljarða
hagnaður
hjá Ryanair