Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í VIÐTALI við forsvarsmenn sölu-
skrifstofu Allianz á Íslandi í Morgun-
blaðinu um síðustu helgi kom fram að
þýska tryggingafélagið Allianz er far-
ið að bjóða viðbótarlífeyrissparnað
hér á landi, fyrst erlendra trygginga-
félaga. Í viðtalinu sögðust forsvars-
mennirnir telja að Allianz bjóði upp á
ákveðin atriði sem ekki hafi verið í
boði hér á landi. Meðal annars sé um
að ræða að Allianz lofi 6% nafnvöxt-
um og þýska ríkið tryggi 3,25% nafn-
ávöxtun, hvort tveggja í evrum, en
annað atriði sem forsvarsmenn Alli-
anz leggja áherslu á er einmitt að
sparnaðurinn sé í evrum og í því felist
hagstæð áhættudreifing. Þá kom
fram í máli forsvarsmannanna að þeir
telja kostnað launþegans skýrari sé
viðbótarlífeyririnn lagður inn hjá Alli-
anz en almennt hafi tíðkast hafi hér á
landi. Loks segja þeir að meira val sé
um útborgun en boðið hafi verið upp á
hér og leggja í því sambandi sérstaka
áherslu á ævilangan lífeyri, en hér sé
viðbótarlífeyririnn yfirleitt greiddur
út á tilteknum árafjölda.
Kostnaður við viðbótarlífeyri
ekki óskýr hér á landi
Ólafur Haukur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða líftrygg-
ingafélagsins, Samlífs, segist ekki sjá
að með innkomu Allianz á markað
fyrir viðbótarlífeyrissparnað sé að
bætast við vara sem íslenskir neyt-
endur hafi farið á mis við hingað til.
„Við hjá Samlífi höfum boðið upp á
ævilífeyri, sambærilegan því sem Alli-
anz er nú að markaðssetja, en höfum
fallið frá þeirri leið,“ segir Ólafur
Haukur. „Ástæðan er aðallega sú að
með viðbótarlífeyrissparnaði vill fólk
fyrst og fremst tryggja sér svigrúm á
fyrstu árum eftir starfslok og jafnvel
stefna á starfslok fyrr en grunnrétt-
indi lífeyrissjóðanna bjóða upp á.“
Ólafur Haukur segir, aðspurður
um það að bjóða tryggða lágmarks-
ávöxtun, að Samlíf hafi frá árinu 1993
boðið upp á verðtryggðan sparnað
með loforði um 2% raunávöxtun, að
viðbættum mögulegum bónus-
greiðslum. „Reynslan er hins vegar
sú,“ segir hann, „að fólk hefur frekar
valið leiðir sem eru samsettar af
skuldabréfum og hlutabréfum með
von um hærri langtímaávöxtun. Slíkir
sjóðir Samlífs hafa til að mynda allir
sýnt yfir 10% árlega nafnávöxtun frá
því lífeyrissparnaður hóf göngu sína
fyrir rúmum þremur árum.
Lífeyrissparnaður með föstum
vöxtum er hins vegar vissulega val-
kostur fyrir þá sem vilja gæta mestu
varúðar en þá hlýtur það fólk einnig
að íhuga hvort rétt sé að taka geng-
isáhættu.“
Spurður út í kostnað og þá stað-
hæfingu Allianz að hjá því fyrirtæki
sé kostnaðurinn skýrari en gerist og
gengur hér á landi segist Ólafur
Haukur ekki geta fallist á það. Kostn-
aður Samlífs sé tekinn áður en ávöxt-
un sjóðanna sé birt. Eigin gjaldtaka
Samlífs sé einungis 0,5% af eignum
sjóða á ári. Hann sagðist jafnframt
efast um að aðrir gætu keypt og selt
bréf án kostnaðar, þar hljóti að vera
um einhverja einföldun að ræða.
Ekki skynsamlegt að hafa allan
viðbótarlífeyrissparnaðinn í evrum
Arnaldur Loftsson, framkvæmda-
stjóri Séreignalífeyrissjóðsins hjá
Búnaðarbankanum, segist ekki telja
skynsamlegt að launþegar ávaxti all-
an viðbótarlífeyrissparnað sinn í evr-
um eins og Allianz bjóði upp á, því
meirihluti af eyðslu fólks sé í íslensk-
um krónum. Þessu ósamræmi fylgi
nokkur áhætta því ef íslenska krónan
styrkist gagnvart evru fái fólk færri
íslenskar krónur þegar það selji evr-
ur. Æskilegt sé samt að hluti af
sparnaðinum sé ávaxtaður í erlendri
mynt til að nýta fjölmörg fjárfesting-
artækifæri erlendis til að dreifa
áhættu. Búnaðarbankinn bjóði upp á
fjölmargar fjárfestingarleiðir í viðbót-
arlífeyrissparnaði sem henti hverjum
og einum. Til dæmis sé hægt að velja
um fjárfestingaleiðir þar sem hluti af
sparnaðinum sé ávaxtaður í erlendri
mynt.
Varðandi loforð Allianz um 6%
nafnávöxtun í evrum segir Arnaldur
að Búnaðarbankinn bjóði nú þegar
upp á Lífeyrisbók í viðbótarlífeyris-
sparnaði fyrir fólk sem vill taka lág-
marksáhættu eða á stutt í eftirlauna-
aldur. Vextir séu nú 6,5% auk
verðtryggingar. Auk þess hafi verð-
bréfasöfn með meira vægi hlutabréfa
skilað almennt hærri ávöxtun til
lengri tíma litið en verðbréfasöfn með
meira vægi skuldabréfa. Mismunandi
sé eftir aldri fólks hvaða eignasam-
setning henti hverjum og einum og
því bjóði Séreignalífeyrissjóðurinn
upp á aldurstengdar leiðir þar sem
áhættan minnki eftir því sem fólk eld-
ist.
Arnaldur segir að erfitt geti verið
að bera saman 3% kostnað af ávöxtun
og 4% söluþóknun Allianz af hverri
greiðslu við 0,5% umsýsluþóknun í
Séreignalífeyrissjóðnum, því mis-
munandi forsendur, eins og ávöxtun
og sparnaðartími, geti skilað ólíkum
niðurstöðum. Sjóðfélagar í Séreigna-
lífeyrissjóðnum greiða enga sölu-
þóknun og því fari allt iðgjaldið í
ávöxtun. Arnaldur segir að viðbótar-
lífeyrissparnaður sé í eðli sínu lang-
tímasparnaður og á löngum tíma
verði vextir stór hluti af uppsafnaðri
inneign launþega. Hann segir að fjár-
festingum fylgi viðskiptakostnaður en
hann sé mismunandi eftir eðli þeirra,
og hann segist gera ráð fyrir að Alli-
anz greiði einhvern viðskiptakostnað
við fjárfestingar sínar eins og aðrir
sjóðir.
Ævilangur lífeyrir engin nýlunda
Varðandi þá möguleika sem Allianz
býður upp á við útborgun, þ.e. að rétt-
hafar geti fengið sparnaðinn greiddan
út til æviloka eða í eingreiðslu, segir
Arnaldur að það sé í raun engin ný-
lunda. Í samningi sem rétthafar geri
við Búnaðarbankann um viðbótarlíf-
eyrissparnað komi fram að þessi
möguleiki sé fyrir hendi. Enginn hafi
þó enn óskað eftir ævilöngum ellilíf-
eyri. Arnaldur segist ekki búast við að
fólk muni nýta sér þennan útborgun-
armöguleika í miklum mæli. Laun-
þegar tryggi sér ævilangan ellilífeyri
með greiðslu 10% iðgjalds í lífeyris-
sjóð. Einnig vilji fólk almennt hafa
hærri tekjur fyrstu árin eftir starfs-
lok og þá sé hagstæðara að taka
viðbótarlífeyrissparnaðinn út á
ákveðnum árafjölda. Einnig minnki
tekjuþörfin á seinni hluta ellilífeyris-
áranna.
Varðandi flutning inneignar til
maka segir Arnaldur að um hann gildi
lög hér á landi og Búnaðarbankinn
bjóði upp á skiptingu á inneign á milli
sjóðfélaga og maka samkvæmt lögun-
um. Ekki megi skipta meira en 50% af
inneign og skiptingin þurfi að vera
gagnkvæm og jöfn.
Nafnávöxtun verðtryggðrar lífeyr-
isbókar verið 10–16% síðustu ár
„Ég hef ekki mikið um þessa frétt
af söluskrifstofu Allianz að segja,“
segir Björn Líndal, framkvæmda-
stjóri hjá Landsbankanum, í samtali
við Morgunblaðið. „Landsbankinn
hefur samkvæmt könnunum náð for-
ystu í sölu viðbótarlífeyrissparnaðar
og býður viðskiptavinum fjölbreyttar
leiðir til að ávaxta slíkan sparnað.
Þegar sagt er að 6% nafnávöxtun sé
tryggð, þá bendi ég til dæmis á verð-
tryggða lífeyrisbók Landsbankans,
sem verðtryggir fjármuni sparenda,
auk þess sem greiddir eru 6,4% vextir
ofan á verðtrygginguna. Nafnávöxtun
bókarinnar var þannig til dæmis
15,56% á síðasta ári, 11,4% árið 1999
og árið 2000 10,4%. Þannig tryggir
samkeppnin mjög góða ávöxtun eins
og þessar tölur sýna og ég held að
þetta nýja útspil breyti þar litlu um.
Varðandi kostnaðinn þá sýnist mér
söluskrifstofan beina spjótum sínum
að öðrum aðilum á markaðnum en
Landsbankanum, og ég hef í sjálfu
sér ekkert um það að segja. Varðandi
útgreiðslumöguleikana þá fylgjum við
vitaskuld reglum íslenskra laga, en
skoðum sífellt nýja kosti í því efni.“
Skiptar skoðanir
um nýjungar
í viðbótarlífeyri
Morgunblaðið/Arnaldur
HEILDARVELTA á millibanka-
markaði með gjaldeyri í maímánuði
nam tæpum 81 milljarði króna sam-
kvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands
og er þetta veltumesti mánuður á
gjaldeyrismarkaði það sem af er
árinu. Þetta er þó rúmlega þrisvar
sinnum minni velta en í maímánuði
fyrir ári en þá nam heildarvelta mán-
aðarins rúmum 254 milljörðum
króna, sem er mesta mánaðarvelta
frá upphafi, að því að fram kom í hálf
fimm fréttum Búnaðarbankans í
gær. Jafnframt segir að þá hafi skýr-
ingar aukningarinnar verið raktar til
afnáms gengisvikmarka og upptöku
verðbólgumarkmiða.
Það sem af er júnímánuði hefur
veltan á gjaldeyrismarkaði verið til-
tölulega lítil eða að meðaltali í kring-
um 2 milljarðar króna en til saman-
burðar var meðalveltan á dag í
maímánuði í kringum 4 milljarðar.
Gengi krónunnar hefur verið að
styrkjast það sem af er mánuðinum,
á mánudag styrktist krónan um 0,4%
en sú styrking gekk til baka í gær og
endaði krónan í rétt tæplega 129
vísitölustigum. Líklegt er að birting
neysluverðsvísitölu fyrir júní í dag
muni hreyfa eitthvað við krónunni en
næstu vísitölumælingar munu hafa
mikil áhrif á vaxtaákvörðun Seðla-
bankans, segir í hálf fimm fréttum.
Mikil velta
á gjaldeyr-
ismarkaði
VERÐI af sameiningu Kaupþings
banka og sænska fjárfestingarbank-
ans JP Nordiska AB verður hinn
sameinaði banki svipaður að stærð
og Búnaðarbankinn. Eigið fé hins
sameinaða banka yrði svipað og eigið
fé Landsbankans. Markaðsverð
bankans yrði einnig svipað og mark-
aðsverð Landsbankans, miðað við
núverandi aðstæður.
Kaupþing banki eignaðist sænska
verðbréfafyrirtækið Aragon í byrjun
þessa árs. Eftir samruna JP Nord-
iska við Aragon, sem tilkynnt var um
í síðustu viku, eignaðist Kaupþing
28% hlut í JP Nordiska og varð þar
með langstærsti einstaki hluthafinn í
bankanum.
Frá því var greint síðastliðinn
mánudag að Kaupþing hefði gert
samning um kauprétt og sölurétt á
allt að 7,8 milljón hlutum í JP Nord-
iska, sem Kaupþing getur nýtt á
tímabilinu frá 15. ágúst 2002 til 15.
janúar 2003 en á sama tíma er einnig
hægt að nýta söluréttinn gagnvart
Kaupþingi í þessum viðskiptum.
Verði kaup- eða sölurétturinn nýttur
innan samningstímans mun Kaup-
þing eiga rúmlega 40% eignarhlut í
JP Nordiska, sem myndi þá skapa
Kaupþingi yfirtökuskyldu sam-
kvæmt sænskum lögum.
Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoð-
arforstjóri Kaupþings, segir að end-
anleg ákvörðun hafi ekki verið tekin
um hvort stefnt sé að sameiningu
Kaupþings banka og JP Nordiska.
Markaðsverðið álíka
og verð Landsbankans
Heildareignir sameinaðs banka
Kaupþings banka og JP Nordiska, ef
af sameiningu verður, yrðu um 194
milljarðar íslenskra króna, miðað við
uppgjör eftir fyrstu þrjá mánuði
þessa árs. Heildareignir Búnaðar-
bankans í lok mars síðastliðins voru
um 202 milljarðar króna. Heildar-
eignir Landsbankans á þessum tíma
voru hins vegar um 277 milljarðar og
Íslandsbanka um 339 milljarðar.
Eigið fé sameinaðs banka Kaup-
þings banka og JP Nordiska yrði um
15,6 milljarðar króna, eins og Lands-
bankans. Eigið fé Búnaðarbankans í
lok mars var um 13,5 milljarðar en
Íslandsbanka um 20 milljarðar.
Markaðsverð Íslandsbanka er um
47,8 milljarðar króna miðað við loka-
verð hlutabréfa bankans á Verð-
bréfaþingi Íslands í gær. Markaðs-
verð Landsbankans er um 25,3
milljarðar og Búnaðarbankans um
23,8 milljarðar.
Markaðsverð Kaupþings banka er
um 20,8 milljarðar króna. Þegar til-
kynnt var um samruna JP Nordiska
og Aragon í síðustu viku var greint
frá því að 28% eignarhlutur Kaup-
þings í hinu sameinaða félagi væri
metinn á um 132 milljónir sænskra
króna, jafnvirði um 1.200 milljóna ís-
lenskra króna.
Miðað við það er markaðsverð JP
Nordiska, eftir samruna Aragon við
félagið, um 4,4 milljarðar íslenskra
króna. Samanlagt markaðsverð
Kaupþings banka og JP Nordiska er
því um 25 milljarðar króna, nokkuð
hærra en markaðsverð Búnaðar-
bankans en svipað markaðsverði
Landsbankans við núverandi að-
stæður.
Hugsanleg sameining Kaupþings banka og JP Nordiska AB
Svipað stór
og Búnaðar-
bankinn
! " "
#
$
%&'
())(
!!"
##
$"%
$"%
*
$!&
$&'
$&'
!
!
$&'
* +
(
(
(
(
""#
""#
""#
(
(
(
(
(
""#
""#
""#
(