Morgunblaðið - 12.06.2002, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 19
Auglýsing um deiliskipulag í
Reykjavík og afturköllun
auglýsingar
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar
til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum
breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin
svæði í Reykjavík:
Ofanleiti 1 og 2 (Verslunarskóli Íslands og
Háskólinn í Reykjavík), lokun Ofanleitis.
Tillagan tekur til lóða Verslunarskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík, Ofanleitis nr. 1 og 2 og götunnar
milli lóðanna.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem
unnin var vegna óska íbúa um að lokun götunnar.
Tillagan gerir ráð fyrir að loka Ofanleiti við gatnamót
Neðstaleitis og stækka lóðirnar nr. 1 og 2 um götu-
stæðið. Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að
stækka Verslunarskólann um 500 m2 auk þess gert er
ráð fyrir nokkurri fjölgun bílastæða.
Háaleitisbraut 66-70, Austurver/ Háaleitis-
kirkja og nánasta umhverfi.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Háaleitisbraut
til austurs, lóðum aðliggjandi íbúðarbyggðar til suðurs,
vesturs og norðurs auk Hvassaleitis.
Markmið tillögunnar er að lagfæra aðkomu fyrir akandi
og gangandi umferð, fjölga bílastæðum (m.a. er gert
ráð fyrir byggingu bílapalls sunnan við Austurver) og
auka samnýtingu þeirra, gera opnu grænu svæðin sýni-
legri, lagfæra gönguleiðir innan svæðisins og skilgreina
byggingarmöguleika á svæðinu til framtíðar.
Gerir tillagan ráð fyrir ýmsum breytingum á svæðinu
varðandi framangreinda þætti.
Grundarhverfi Kjalarnes, Jörfagrund 25-39.
Tillagan tekur til lóðanna nr. 25-39 við Jörfagrund í
Grundarhverfi á Kjalarnesi.
Markmið tillögunnar er að fjölga íbúðum og íbúðar-
gerðum á svæðinu en fáar litlar íbúðir eru í hverfinu.
Tillagan gerir ráð fyrir að í stað þriggja raðhúsa með
samtals 9 íbúðum verði heimilt að byggja þrjú fjöl-
býlishús með 8 íbúðum í hverju húsi eða samtals 24
íbúðum. Bílastæðum er fjölgað í samræmi við fjölgun
íbúða. Hámarks hæð húsanna breytist ekki.
Sigtún 38, Grand hótel Reykjavík, stækkun.
Tillagan tekur til lóðarinnar nr. 38 við Sigtún.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi. Gerir tillagan
m.a. ráð fyrir að auk núverandi bygginga verði heimilt
að byggja tvo samtengda hótelturna, allt að 12 hæðir
auk inndreginnar 13. hæðar, syðst á lóðinni. Þá gerir
tillagan ráð fyrir að heimilt verði að byggja eina hæða
ofan á syðstu álmu hótelsins, viðbyggingu til suðurs við
ráðstefnusal auk þess sem gert er ráð fyrir glerbygg-
ingu milli núverandi bygginga og nýbygginganna.
Bílastæðakrafa skv. tillögunni er 1 bílastæði á hverja
65m2 en hún gerir ráð fyrir að byggja skuli 2700m2
bílskýli neðanjarðar (fyrir 110 bíla).
Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir að lóð hótelsins stækki
um 2000m2 og ný aðkoma verði að lóðinni um
Engjateig.
Elliðaárdalur, rafstöðvarsvæði (nágrenni
rafstöðvarinnar í Elliðaárdal) afturköllun.
Afturkölluð er auglýsing um kynningu tillögu að deili-
skipulagi svokallaðs rafstöðvarsvæðis í Elliðaárdal sem
birtist þann 22. maí sl. Tillagan tekur til þess svæðis
sem afmarkast af hitaveitustokk til norðurs, lóðum við
Silungakvísl, Sveinbjarnarlundi, götu vestan við íbúðar-
húsið nr. 33 við Rafveituveg og útivistarsvæðinu á lóð
OR við rafstöðina til austurs og austari kvísl Elliðaánna
til suðurs og vesturs.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingar-
sviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 –
16.00 frá 12. júní 2002 - til 24. júlí 2002. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær
skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 24.
júlí 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 12. júní 2002.
Skipulagsfulltrúi
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
60 ára frábær reynsla.
ÁSTRALSKI fjölmiðlajöfurinn Ru-
pert Murdoch hefur lýst því yfir að
hann muni nota aðstöðu sína sem
áhrifamesti
blaðaeigandi í
Bretlandi til að
berjast gegn öll-
um tilraunum To-
nys Blair for-
sætisráðherra til
að leiða Bretlandi
inn í myntbanda-
lag Evrópu.
Í viðtali sem
birtist í gær í Fin-
ancial Times sagði Murdoch að hann
myndi vilja að mest seldu bresku
blöðin sem hann á, The Sun, The
News of the World, The Times og
The Sunday Times, segðu lesendum
að greiða atkvæði gegn myntbanda-
lagsaðild, verði hún borin undir þjóð-
aratkvæði.
Murdoch sagði ennfremur að hann
myndi ekki verða ánægður með að
ritstjórar blaðanna tækju aðra af-
stöðu til málsins en hann sjálfur. „Ég
hef það á tilfinningunni að það sé
margt heimskulegt sagt um evruna.
Það er pólitísk ákvörðun [um hvort
gengið verður í bandalagið].“
Fregnir um orð Murdochs ollu því
að breska pundið hækkaði á erlend-
um peningamörkuðum og fór í
1,5544 evrur, úr 1,5468 á mánudag-
inn. „Þetta snýst fyrst og fremst um
sjálfstæði. Ef maður hættir að
stjórna gjaldmiðli sínum mun maður
hætta að geta stjórnað skattkerfi
sínu, það er jafnvíst og að nótt fylgir
degi,“ sagði Murdoch.
Ólíkir
menningarheimar
Hann kveðst telja að í Evrópu séu
svo margir og mismunandi menning-
arheimar að ekki sé ráðlegt að skella
þeim öllum saman „undir stjórn
franskra skriffinna sem ekki þurfa
að standa fyrir máli sínu gagnvart
neinum. Sú hugmynd, að Evrópa
hafi eina, sameiginlega utanríkis-
stefnu, setji heri sína alla undir einn
hatt, sýnist mér vera um 100 árum of
snemma á ferðinni. Ég fæ ekki séð
annað en að allt sé unnið með því að
bíða.“
Blaðakóngurinn Murdoch andvígur evruaðild Bretlands
Hyggst beita blöð-
um sínum gegn aðild
London. AFP.
Rupert
Murdoch
BANDARÍSKI listamaðurinn Arn-
old Skip undir glerplötu á listahá-
tíðinni ART í Basel í Sviss í gær.
Hann lá í nokkrar klukkustundir
hreyfingarlaus undir plötunni.
AP
Listaverk Afganir
hneykslaðir
Kabúl. AFP.
AFGANIR sögðu í gær að þeir væru
hneykslaðir á meintum þrýstingi
Bandaríkjamanna á að fyrrverandi
konungur Afganistans, Mohammed
Zahir Shah, hætti við að bjóðast til að
verða þjóðhöfðingi á ný.
Sögðu Afganirnir, að þótt þeir
væru þakklátir Bandaríkjamönnum
fyrir að hafa losað landið við taliban-
ana og al-Qaeda, ættu bandarísk
stjórnvöld að leyfa Afgönum að
ákveða á fundi þjóðarráðs síns, Loya
Jirga, sem kom saman í gær, hver
yrði þjóðhöfðingi þeirra.
Stríðsherrann Padsha Khan hefur
varað við því að frekari bardagar séu
yfirvofandi í Afganistan, fái Zahir
ekki að verða þjóðhöfðingi. Khan
sagði í gær að Zahir hefði verið
neyddur til að hætta við að bjóða sig
fram. Bandaríkjamenn vilji heldur að
Hamid Karzai, sem nú fer fyrir
bráðabirgðastjórninni í landinu, verði
þjóðhöfðingi.
Almennir borgarar í Afganistan
andmæltu einnig meintum afskiptum
Bandaríkjamanna af málinu. „Banda-
ríkjamenn mega ekki ráðskast með
Afgani. Þeir eiga að leyfa Afgönum að
ráða sjálfir sínum málum,“ sagði Bas-
hir Ahmad, starfsmaður vísindaaka-
demíunnar í Kabúl. „Loya Jirga
merkir að þjóðin eigi sjálf að fá að
ráða örlögum sínum.“
Eiturlyfjahringur
upprættur
Kaupmannahöfn. AFP.
DANSKA lögreglan skýrði frá því á
mánudag, að hún hefði komið upp
um eiturlyfjahring, sem samanstóð
af sumum ofbeldisfyllstu andstæð-
ingum Evrópusambandsaðildar
Dana. Var búist við, að þetta fólk
myndi láta til sín taka þegar Danir
taka við formennsku í Evrópusam-
bandinu, ESB, 1. júlí næstkomandi.
Alls voru níu menn handteknir en
þeir eru allir félagar í vinstrisinn-
uðum öfgasamtökum, sem kallast
„Hinir fullvalda“. Eru þau kunn
fyrir ofbeldi og fyrir mikil sam-
skipti við lík samtök erlendis.
Lögreglan gerði húsleit á 14
stöðum og fyrir utan eiturlyfin
fundust á einum stað efni til
sprengjugerðar. Ole Wagner, einn
dönsku lögreglumannanna, sagði,
að kannað yrði hvort eiturlyfjaféð
hefði verið notað til að fjármagna
mótmæli sumra Evrópuandstæð-
inga.