Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 27 t upplýs- telur lög- un Gong- gegnum n í landið taka upp gagnvart frá lönd- æðisins í Gong-fé- gvélar af- i og vélar an svæð- abréfaeft- jósmynd- omu að hádegi í þar lok- inu undir ölmiðlum og sömu nt var að élögunum Leifsstöð. af einum aða hurð. anada og erju hann kið hefði engar skýringar fengið á því af hverju því væri meinað að koma til landsins. ,,Ég bið um að ein- hver veiti okkur hjálp. Ég skil ekki af hverju mér er haldið hér. Við erum hér í einangrun og höf- um ekki fengið aðstoð lögfræð- ings enn,“ hrópaði hann í gegnum dyrnar. Hann sagðist ekki hafa komið til Íslands til að mótmæla komu Kínaforseta hingað, heldur í þeim tilgangi einum að færa Ís- lendingum friðsamlegan boðskap Falun Gong. Síðar um daginn komu tveir fulltrúar frá kanad- íska sendiráðinu til fundar við fólkið og síðdegis átti svo Ragnar Aðalsteinsson hrl., sem hefur tek- ið að sér að vera lögmaður fólks- ins, fund með hópnum. Síðdegis bárust þau skilaboð frá yfirvöldum að fjölmiðlum væri heimilt að ræða við fólkið í íþróttahúsinu og í Leifsstöð. 4 til 5 lögreglumenn voru við gæslu í Njarðvíkurskóla í gær- dag. Þá voru um 30 lögreglumenn að störfum í Leifsstöð vegna komu félaga Falun Gong til lands- ins. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli fékk síðdegis í gær tímabundinn liðsauka frá lögreglunni í Reykja- vík. Karl Steinar Valsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, segir að 10 manns hafi verið sendir að ósk lögreglustjórans á Keflavíkurflug- velli. t, frið- t fólk“ mu til ær var eglu í í nótt. m landvist í gær og Keflavíkurflugvelli MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá kínverska sendiráðinu: „Fyrst af öllu: Falun Gong er illskeyttur sértrúarhópur. Þetta er ekki einföld heilsuræktar- stefna. Upphafsmaður hreyfing- arinnar telur sig geta bjargað heiminum frá „dómsdegi“. Hann telur sig vera meiri mann en Lao Zi, Búdda og Jesú. Kenning Falun Gong segir að sá sem veikist sé ekki kominn á nægilega hátt stig í tilverunni. Afskipti lækna muni koma í veg fyrir að þeir komist til himna. Fjölmargir hafa látist vegna þess að þeir leita ekki læknis þegar nauðsyn ber til. Þeir telja að eftir æfingar sínar sé engin þörf á nokkurri læknisaðstoð. Vitað er að 1.660 Falun Gong- áhangendur hafa látist vegna þess að þeir neituðu að þiggja læknisaðstoð. Í öðru lagi: Það sem sagt hef- ur verið um Falun Gong und- anfarið er ekki rétt. Æfingar þeirra eru einungis 10 ára gaml- ar. Þær fylgja ekki gamalli hefð. Enginn kínverskur bardaga- listamaður Qi Gong myndi sam- þykkja að Falun Gong sé Tai Ji eða Qi Gong. Æfingar þeirra eru fengnar úr ýmsum áttum. Þessar æfingar hafa valdið þeim, sem stunda þær, ýmsum vandræðum. Vitað er að það fólk sem hefur verið kristinnar trúar áður en það kynntist Fal- un Gong-hreyfingunni, brenndi biblíuna til að sýna fram á að það væri félagar í Falun Gong. Í þriðja lagi: Margir áhang- endur Falun Gong hafa svipt sig lífi, orðið geðveikir og hafa orðið fjölskyldu sinni, vinum og öðr- um að meini. Ástæða þess er sú að þeim er ógnað af dómsdags- kenningu og eyðileggingu jarð- arinnar. Í fjórða lagi: Falun Gong- áhangendur fylgja flestir kenn- ingum samtakanna af ofstæki. Þeir dýrka stofnandann, hlýða í einu og öllu orðum hans og myndu fylgja honum í dauðann. Ef leiðtoginn segir þeim að „fara út og fullkomnast“ þá hafa sumir þeirra kveikt í sér á op- inberum stöðum og látist af sár- um sínum. Þeir telja sig með þessu komast á æðra tilverustig. Og þegar hann segir þeim að senda frá sér strauma um kenn- inguna til þeirra sem nærstadd- ir eru þá reyna áhangendurnir að komast nærri hátt settum þjóðarleiðtogum Kínverja og kalla til þeirra ókvæðisorð. Í fimmta lagi: Þegar Falun Gong var bannað í Kína hættu þær rúmlega tvær milljónir manna, sem fylgdu hreyfing- unni, æfingum og tóku upp aðr- ar æfingar sem teljast heilbrigð- ar. Einungis örfáir harðir áhangendur voru færðir til dóm- stóla með löglegum hætti. Tek- ist hefur að hjálpa mörgum þeirra til að snúa frá villu vegar til heilbrigðs lífs.“ Tilkynning frá kínverska sendiráðinu Hvað er Falun Gong? SÓLVEIG Pétursdóttirdómsmálaráðherra ítrekarað ákvörðun íslenskrastjórnvalda um að meina Falun Gong-félögum um land- göngu hér á landi sé tekin til að tryggja öryggi en ekki til að koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðspurð hvort það komi til greina að ákvörðunin verði dregin til baka, m.a. í ljósi þess að þeir hafa heitið því að hlíta fyrirmælum lög- reglu, segir Sólveig að þessi ákvörðun hafi verið tekin af rík- isstjórninni en vafalaust verði farið yfir stöðu mála á ríkisstjórnar- fundi í dag. Sólveig segir að stjórnvöld hafi verið mjög undrandi þegar upplýs- ingar bárust um að Falun Gong- félagar myndu fjölmenna hingað. „Mér skilst að Falun Gong hafi gefið út þá yfirlýsingu til fylg- ismanna sinna að fjölmenna til Ís- lands í þeim tilgangi að mótmæla. Ástæðurnar hafi í megindráttum verið tvær. Annarsvegar að Ísland væri lýðræðisríki þar sem tjáning- arfrelsi og önnur mannréttindi væru í hávegum höfð en hinsvegar að íslenska lögreglan væri fámenn og gæti því illa stjórnað stórum hópum mótmælenda. Þarna væri því gullið tækifæri til að koma skilaboðum til kín- verska forsetans beint og milliliða- laust,“ segir Sólveig. „Með þessari aðferð er hreyfingin að spila inn á veikleika íslensku lögreglunnar sem er fámenn, en um leið að spilla opinberri heimsókn erlends þjóðhöfðingja til landsins. Það er ljóst að íslenska lögregl- an, eins góð og vel þjálfuð og hún er, getur ekki tekist á við fjöldamótmæli og um leið tryggt ör- yggi forsetans og fylgdarliðs hans. Þess vegna var nauðsynlegt fyrir íslensk yfirvöld að bregðast við þeim straumi mótmælenda til landsins sem var fyrirsjáanlegur,“ segir Sólveig. Friðsamlegar aðgerðir í langflestum tilfellum Því hafi hún ásamt forsætisráð- herra og utanríkisráðherra tekið þessa ákvörðun og það sé skylda hennar sem yfirmaður lögreglu- mála að sjá til þess að henni sé framfylgt. Hefði ekki verið gripið til þessara aðgerða hefði lögregla staðið frammi fyrir langstærstu lögregluaðgerð fyrr og síðar, að öllum líkindum enn umfangsmeiri en vegna utanríkisráðherrafund- ar Atlantshafsbandalagsins en alls hafi 350 lögreglumenn komið að því verkefni. Embættismenn í dómsmálaráðuneytinu hafa lýst áhyggjum sínum af hugsanlegum viðbrögðum 29 vopnaðra örygg- isvarða sem fylgja forsetanum. Aðspurð hvort stjórn- völd hafi áhyggjur af öryggi Kínaforseta eða almennings segir Sól- veig að fari mótmælend- ur inn fyrir öryggis- svæði geti ákveðin hætta skapast vegna ör- yggisvarðanna. Fram hefur komið að aðgerðir Falun Gong hafa aldrei verið ofbeld- isfullar og aldrei hefur komið til þess að þeim hafi verið vísað frá Vesturlöndum eða mein- uð þar landganga. Sól- veig segir rétt að að- gerðir Falun Gong séu í langflestum tilfellum friðsamleg- ar. Samkvæmt upplýsingum frá þýskum lögregluyfirvöldum hafi meðlimir Falun Gong brotið ýmis fyrirmæli lögreglu þegar forseti Kína var þar í opinberri heim- sókn í apríl sl. „Þýska lögreglan átti að vísu ekki í teljandi erf- iðleikum með þessi mótmæli enda er þar fjölmennt lið sem sinnir öryggisgæslu vegna slíkra heim- sókna. Jafnframt hafði íslenska lögreglan samband við talsmenn þessarar hreyfingar hér á Íslandi fyrir nokkrum dögum og þá kom það fram að þeir myndu ekki hlíta fyrirmælum lögreglu. Þannig að lögregla hafði veru- legar áhyggjur af því að hún myndi ekki ráða við allan þann fjölda mótmælenda sem hafði í hyggju að koma hingað til lands,“ segir Sólveig. Aðspurð hvort það hafi komið til greina að aflýsa heimsókn Jiang Zemins, segir Sólveig að það sé ekki hennar að svara því. Ríkisstjórnin hafi sam- þykkt að taka á móti forsetanum sem kemur í boði forseta Íslands og sú ákvörðun standi óhögguð. Hnekkir fyrir stjórnvöld að hætta við Hún bendir á að Íslendingar hafi á undanförnum árum verið að efla samskipti við kínversk stjórnvöld á ýmsum sviðum. „Hluti af því að byggja upp og treysta samskipti ríkja er opin- berar heimsóknir. Íslenskir ráðamenn, forseti og ráðamenn hafa á undanförnum árum haldið í opinberar heim- sóknir til Kína. Það er eðlilegt að endurgjalda slíkar heimsóknir og sýna kínversku þjóðinni að við tökum af sömu gestrisni á móti þeirra fulltrúum. Ef lögreglunni tekst ekki að tryggja öryggi erlendra þjóðhöfð- ingja hér á landi í tengslum við opinberar heimsóknir þá er ljóst að það verður ekkert af slíkum heimsóknum. Þannig að við stöndum frammi fyrir þeirri spurningu hvort eðli- legt sé að friðsöm hreyfing geti með skipulögðum aðgerðum og flutningi á fjölda mótmælenda hingað til lands haft þannig áhrif á ákvarðanir íslenskra stjórn- valda hverjir koma hingað í heim- sókn,“ segir Sólveig. Farið yfir málið á rík- isstjórnarfundi í dag Sólveig Pétursdóttir Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra á Íslandi í svona máli fyrr og ég hef komið til flestra Evrópu- landa. Við vorum í Moskvu í fyrra og vorum áður í Sankti Pétursborg þegar Jiang for- seti var þar en engin vandamál komu upp. Við fórum í gegnum æfingarnar og lás- um saman og allt var í stakasta lagi, skiptumst á reynslusögum við iðkendur frá öðr- um löndum. En við vorum ekki með neina borða eða spjöld!“ – Gerir þú ráð fyrir að koma nokkurn tíma aftur til Íslands? „Við vonum að við getum kom- ið hingað aftur vegna þess að vinir okkar eru allir jarðarbúar en við viljum ekki lenda í svona vanda aftur,“ segir Lin Shu Hui. Einn af félögum hennar er Lin Chung Chi, sem er sölustjóri hjá plastverksmiðju á Taívan. Hann hefur einnig verið Falun Gong- iðkandi í fimm ár. Hann segist hafa komið til margra Evrópu- landa. En hvenær ákvað hann að fara til Íslands og bjóst hann við að verða stöðvaður í flugstöð- inni? „Það var í byrjun maí. Nei, ég gerði ekki ráð fyrir því að vera stöðvaður. Það hefur aldrei fyrr komið fyrir mig.“ – Hvað heldurðu að hafi valdið þessum móttökum, við hvað eru menn hræddir hér? „Ef til vill varð íslenska ríkis- stjórnin fyrir miklum þrýstingi af hálfu þeirrar kínversku og við skiljum vel að það geti hafa gerst.“ – Hefurðu tekið þátt í mót- mælum gegn Kínastjórn? „Stundum hefur mig langað til þess að taka þátt í friðsamlegum aðgerðum af því tagi. Í hvert sinn sem ég heyri um Falun Gong-iðkanda sem hefur verið pyntaður í Kína langar mig til þess að hitta herra Jiang og segja honum sannleikann í von um að hann hætti að láta of- sækja fólkið. En ég myndi þá mótmæla á friðsamlegan hátt, ekki með ofbeldi.“ Morgunblaðið/Þorkell r sem kyrrsettir voru í Leifsstöð gerðu æfingar sínar á staðnum meðan beðið var eftir því að niðurstaða fengist í málum einsson lögmaður heimsótti fólkið um fimmleytið og sagði því frá því hvað verið væri að gera til að tryggja réttindi þess. Lin Chung Chi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.