Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 33
✝ Skúli Helgasonþjóðhagi og
fræðimaður frá
Svínavatni í Gríms-
nesi, til heimilis að
Óðinsgötu 32 í
Reykjavík, fæddist 6.
janúar 1916. Hann
andaðist hinn 25. maí
síðastliðinn. Hann
var sonur Helgu
Jónsdóttur á Svína-
vatni og Helga Guð-
mundssonar bónda á
Apavatni. Hálfbræð-
ur hans voru Guð-
mundur og Jón
Helgasynir, bændur á Apavatni,
og er Jón enn á lífi.
Skúli giftist ekki né lét eftir sig
afkomendur. Mörg
merk verk liggja eft-
ir hann á sviði smíða
og ber þar hæst
Árbæjarkirkju í
Reykjavík. Hann
skráði stór ritverk á
fræðasviði, sum út-
gefin, önnur í hand-
riti. Hann var höf-
undur að
Byggðasafni Árnes-
sýslu.
Jarðarför hans fór
fram frá Fossvogs-
kapellu hinn 7. júní, í
kyrrþey að hans eig-
in ósk. Jarðsett var að hans gömlu
sóknarkirkju á Mosfelli í Gríms-
nesi.
Mér brá mjög í brún er ég fékk
fregnina um það að góðvinur minn,
Skúli Helgason frá Svínavatni, væri
búinn að feta götu sína til enda. Það
var honum líkt að láta fréttina fara
með hljóðlátum hætti til vina og
vandamanna, öðrum kom hún ekki
við að áliti hans. Vinakynni okkar
voru löng og traust, full 50 ár og bar
þar aldrei neinn skugga á, enginn
gat verið heilli eða sannari í vináttu
en hann. Allir sem ná háum aldri
reyna það að vinir þeirra „fara
fjöld“.
Skúli var fæddur á Svínavatni
þann 6. janúar 1916, sonur Helga
Guðmundssonar bónda á Apavatni
og Helgu Jónsdóttur bónda á Svína-
vatni, Jónssonar. Líklega var koma
þessa nýja borgara ekki vel séð af
öllum en hann átti eftir að sanna
rækilega og svo að eftir verður mun-
að tilverurétt sinn í mannfélagi 20.
aldar. Faðirinn, Helgi á Apavatni,
var merkur bóndi, ritfær vel og mik-
ill unnandi fornra fræða. Halldór
Laxness átti við hann góð kynni og
lét honum þessa vísu í té:
Apvetninga silung sauð,
saltaði og sneiddi ofan á brauð.
Útidauða aldrei bauð
andans rauða fjallasauð.
Í móðurkyn var Skúli kominn út
af Skúla Magnússyni landfógeta.
Helga húsfreyja á Brekku í Bisk-
upstungum, langamma Skúla frá
Svínavatni, var dóttir séra Jóns
Bachmanns í Klausturhólum en
móðir hans var Halldóra Skúladóttir
frá Viðey. Ekki var þetta í nokkurs
manns huga er drengnum var gefið
nafn en Skúli Árnason læknir í Skál-
holti bjargaði honum nýfæddum frá
dauðans dyrum. Hann hlaut svo
nafn lífgjafans og má þá minnast
þess að hann átti einnig ætt að rekja
til Skúla fógeta, en Steinunn dóttir
hans var langamma Skúla læknis.
Skúli óx á legg á Svínavatni í
umsjá Helgu móður sinnar, afa síns
Jóns og ömmu, Sigurleifar Þorleifs-
dóttur frá Syðri-Brú í Grímsnesi og
svo síðar Ingileifs Jónssonar og
Ingibjargar Jóhönnu Guðmunds-
dóttur, en þau tóku við búi á Svína-
vatni 1926. Heimilið var fremur vel
efnum búið á þeirrar tíðar vísu og
það gerði Skúla vel úr garði að hætti
haldgóðrar sveitamenningar þar
sem fátt þurfti til annarra að sækja.
Ungur tók Skúli að fást við smíðar
og ungur lærði hann vel til allra
verka við húsagerð. Til smiðju sem
hann kom sér upp á unglingsaldri
smíðaði hann flest er til þurfti annað
en steðja og hamra, m.a. læsingu og
haglega gerðan lykil með kopar-
höldu. Sammerkt áttum við Skúli í
því að á æskualdri fórum við að gefa
fullan gaum að því sem eldri kynslóð
í nálægð okkar hafði að segja af
mannlífi og háttum fyrri tíða.
Tveir merkir áfangar utan heim-
ilis bjuggu Skúla undir ævigöngu.
Árin 1934-35 sótti hann nám í
heimaskóla séra Guðmundar Ein-
arssonar á Mosfelli og varð þá full-
vígur á það að lesa Norðurlandamál
og til Kristjáns Kristjánssonar járn-
smiðs á Lindargötu í Reykjavík sótti
hann haldgóða kennslu í járnsmíði.
Þá hóf hann einnig að leita sér
fræðafanga í Þjóðskjalasafninu þar
sem hann átti síðar eftir að verða
mikill heimagangur. Bílpróf tók
hann árið 1936 að tilmælum séra
Guðmundar á Mosfelli og varð síðan
einkabílstjóri hans um nokkur ár. Á
Selfoss flutti Skúli árið 1945, varð
þar starfsmaður á járnsmíðaverk-
stæði Kaupfélags Árnesinga og
byggði sér þar íbúðarhús í Ártúni
13. Það var á þessum tíma sem vinur
Skúla, Páll Guðmundsson bóndi á
Hjálmsstöðum, orti til hans þessa
starfshvöt:
Þörf þín iðja sífellt sé,
sinntu brýnum þörfum.
Hamraðu járn og heflaðu tré
og hyggðu að fræðastörfum.
Íslenskar sveitir stóðu á miklum
tímamótum um miðja 20. öld. Ný at-
vinnumenning var að ryðja sér til
rúms, hin gamla var að fara að fullu
forgörðum. Um tæki hennar var víð-
ast lítt hirt og horfði til þess að
þeirra sæi brátt engan stað. Hér
þurfti að stinga við fótum og
byggðasöfn voru stofnuð í öllum
landshlutum. Sýslunefnd Árnes-
sýslu samþykkti árið 1954 að efna til
Byggðasafns Árnesinga. Frum-
kvæðið átti Björn Sigurbjarnarson
bankagjaldkeri á Selfossi og að ráð-
um hans var Skúli Helgason fenginn
til þess að hefja söfnunarferðir um
héraðið og koma upp minjasafni
þess. Skúli átti áður samtal um þetta
við Kristján Eldjárn þjóðminjavörð.
Hann var heldur vondaufur varð-
andi starfið, taldi líklegt að í Árnes-
sýslu væri sviðin jörð hvað varðaði
menningarminjar sökum nálægðar
hennar við Reykjavík og einnig sök-
um eftirsóknar útlendra manna í
þær. Raunin varð þó sú að Skúla
tókst á undraskömmum tíma að
koma saman fjölbreyttu og stór-
merku minjasafni.
Árnesingar reistu veglegt safnhús
á þeirrar tíðar vísu og þar var
byggðasafn þeirra opnað með við-
höfn 1964. Kristján Eldjárn og Gísli
Gestsson áttu með Skúla mikinn
þátt í uppsetningu þess og fór allt
fagurlega. Ég man enn vel listræna
safndeild þar með kirkjumunum,
setta upp af Kristjáni. Skúli reisti þó
markið mun hærra. Hann sá fyrir
sér safnhverfi á Selfossi í hallinu of-
an við Ölfusá, austan brúarsporðar.
Þar var opið, óbyggt svæði. Hugsjón
Skúla var að endurgera gamalt stór-
býli prestsseturs í Árnesþingi sem
var auðvelt út frá þekkingu hans
ásamt nákvæmum úttektum. Hann
átti einnig þann óskadraum að end-
urgera hina gömlu útbrotakirkju 18.
aldar frá Stóra-Núpi sem hefði orðið
létt verk út frá líkani Brynjúlfs
Jónssonar frá Minna-Núpi og varð-
veittum tréskurði kirkjunnar í Þjóð-
minjasafni. Innviðir gamallar og
merkrar baðstofu frá Tungufelli
voru í Byggðasafni Árnessýslu. Þar
hafði Skúli tekið ofan súðir í heilu
lagi. Fleira var eftirtektarvert í
gömlum húsakosti Árnesinga á
þessum tíma. Ráðamenn í héraði
töldu þetta fjarstæðu. Síðar var
víðsvegar tekið til við að byggja fyr-
ir milljónatugi eftirlíkingar fornra
húsa með mörgum vafaatriðum og
þykir víst allri þjóðinni góðu gegna.
Skúli var héraðsbókavörður Ár-
nessýslu árin 1956-61 og auðgaði
bókasafnið að mörgum merkum og
fágætum ritum og naut þar að
nokkru við fulltingis eins besta
björgunarmanns íslenskra bóka og
tímarita, Helga Tryggvasonar í
Reykjavík. Á þessum sama tíma var
Skúli farinn að taka til hendinni í
Árbæjarsafni í Reykjavík og von-
svikinn hvarf hann með öllu frá Sel-
fossi 1961. Borgarsafn Reykvíkinga
býr að handaverkum Skúla lengi svo
að vel verður eftir munað því merkið
stendur þótt maðurinn falli. Hann
fékk það veglega verkefni að byggja
Árbæjarkirkju upp frá grunni. Á
Silfrastöðum í Skagafirði tók hann
árið 1959 ofan gamalt bæjarhús með
öllum hinum fornu viðum síðustu
torfkirkju þar. Prédikunarstóllinn
hafði fengið hlutverk búrskáps. Upp
úr þessu reis torfkirkjan í Árbæ vel
prýdd ytra sem innra, með útsöguð-
um pílárum, útskornum vindskeið-
um, skreyttum hurðarlömum og
með mikilli og vandaðri hurðarskrá.
Allt þetta var verk Skúla frá grunni
til mænis og höfundur kirkjunnar
gleymist ekki, hún lofar hann hvern
dag. Síðar byggði Skúli skrúðhús
vestur af kirkju og var fyrirmynd
sótt til hins forna kirkjustaðar að
Arnarbæli í Ölfusi.
Bílslys 1966 markaði mikil þátta-
skil í lífi Skúla. Hann steig ekki heil-
um fæti á jörð þaðan af en þá tekur
við annað meginstarf ævinnar, að
færa til stórra bóka og handrita forn
fræði dregin saman úr minni manna
og heimildum handrita og skjala.
Árið 1959 hafði komið út bók hans
Kolviðarhóll og vakti þjóðarathygli.
Árin 1960 og 1972 komu út bæk-
urnar Þættir úr Árnesþingi. Stór-
virkið Þorlákshöfn, þriggja binda
verk, kom út 1988, alls 1400 blaðsíð-
ur, glæsilega út gefið af Erni og Ör-
lygi. Ótrúlega mikil vinnuelja liggur
að baki því verki, geysimikil upp-
taka efnis í söfnum, fjöldi fræða úr
minni fróðra manna og úr öllu unnið
á skýran og skipulegan hátt.
Áfram var unnið á meðan dagur
var og nú var augum beint að ætt-
arsveit, austur í Grímsnesi, þar sem
rakið var mannlíf og sögur um það
langt aftur í tíma, farið bæ frá bæ
um alla sveit. Handritabunkinn í
þessu verki er með ólíkindum.
Mergurinn úr því sér dagsins ljós í
miklu riti um Grímsnesinga og
Laugdælinga. Það kemur væntan-
lega út á þessu ári, prýtt miklu
myndefni sem ekki að litlu leyti er
sótt til Skúla. Til mín var leitað um
myndalán og látið fylgja að Skúli
gæti ekki dáið fyrr en þetta verk
væri komið fyrir almenningsaugu.
Mér varð þá að segja að best væri að
útkoman drægist sem lengst. Svo
fór að biðin varð of löng fyrir vin
minn.
Rangt væri að láta þess ekki getið
að Skúli var liðtækt skáld. Honum
var létt um að yrkja vel kveðnar vís-
ur og rímnatöl framtíðar munu ekki
gleyma honum sem rímnaskáldi.
Með allt þetta fór hann þó fremur
leynt, leyfði vinum sínum stöku
sinnum að skyggnast þar bak við
tjaldið. Ekki skal því heldur gleymt
að Skúli skrifaði ákaflega áferðar-
góða rithönd. Ítarlegum dagbókar-
færslum hélt hann til æviloka.
Skúli sótti aldrei eftir vegtyllum í
lífinu og þeir sem hefðu átt að veita
þær austan og vestan Hellisheiðar
voru sparir á þær. Við áttum það
sameiginlegt að meta lítils orður og
titla, enda fáir sem gera meira en
skyldu sína við land og þjóð og fáir
ná svo langt. Ekki skyldi þó látið hjá
líða að geta þess að ráðamenn í Þor-
lákshöfn studdu vel að því að rit
Skúla um býli og verstöð var veg-
lega gefið út. Þar áttu ekki hvað síst
hlut að máli Benedikt Thorarensen
og Gunnar Markússon. Þangað er að
rekja þá ráðstöfun Skúla að bóka-
safn hans mikið og vandað mun til
framtíðar varðveitt í Þorlákshöfn. Í
Grímsnesi átti Skúli og góða vini
sem kunnu vel að meta fræðastarf
hans fyrir fósturbyggð. Á engan er
hallað þótt sagt sé að Böðvar Páls-
son á Búrfelli hafi þar verið í
fremstu röð.
Allt framantalið segir ekki svo
mikið um manninn sjálfan en fyrir
mér er Skúli Helgason einn eftir-
minnilegasti og skemmtilegasti
maður sem á vegi mínum hefur orð-
ið. Hann var hreinn snillingur í frá-
sögn. Allt sem fram við hann hafði
komið í lífinu, gott og vont, orð og
atvik, virtist fast mótað í hugann.
Frá öllu var sagt á skipulegan hátt,
oft með miklu ívafi gamans, oft með
undiröldu heitra tilfinninga. Skipu-
lag frásagnar var með eindæmum
gott, færa hefði mátt framsögn hans
til pappírs frá orði til orðs án nokk-
urra breytinga. Margar stundir sat
ég hugfanginn hjá þeim sagna-
brunni.
Sameiginleg ást á menningararfi
þjóðarinnar batt okkur Skúla
traustum vinaböndum. Hann gladd-
ist löngum yfir því að Rangæingar
og Vestur-Skaftfellingar skyldu
hafa leyft mér að vinna að áhuga-
málum mínum eftir eigin höfði og í
samræmi við það sem hann hefði
viljað gera á Selfossi. Á nokkuð
löngu tímabili kom Skúli ár hvert í
fundaferð að Skógum og það var
honum líkt að láta ekki hafa fyrir sér
á heimili. Hann fékk sér vist á Hótel
Eddu og þaðan sótti hann heim
Skógasafn og heimili mitt. Mér er
það minnistætt að starfskona á Hót-
el Eddu og jafnframt nábúi minn
sagði ætíð er Skúla bar að garði:
„Höfðinginn er kominn.“ Önnur
starfskona Hótel Eddu, einnig nábúi
minn, sagði við mig er ég greindi
henni frá andláti Skúla: „Mér fannst
alltaf eins og enskur gentlemaður
væri að koma þegar hann Skúli steig
út úr rútunni.“ Þetta var ekki út í
bláinn sagt, Skúli bar með sér fyr-
irmennskublæ, alltaf vel búinn og
fágaður í framkomu. Samfundir hafa
verið fáir í Skógum hin síðari ár,
eins dags ferð í hæsta lagi en kynnin
rækt þeim mun betur í Reykjavík,
aldrei þangað komið svo að ekki
væri gert vart við sig á hinu snyrti-
lega og vel búna heimili Skúla á Óð-
insgötu 32. Þar var gesti jafnan vel
fagnað og aldrei þurrð á skemmtun
og fróðleik í samræðu.
Skúli var vinafastur mjög og jafn-
framt vinavandur. Hann hafði mjög
misjafna reynslu af samferðamönn-
um og viðhorf hans til annarra mót-
aðist af sterkri og heilsteyptri skap-
gerð. Þetta heitir víst að vera heitur
eða kaldur. Þröngsýni og kreddu-
festa áttu ekki upp á háborðið hjá
Skúla og hjá hinni andlegu stétt
fannst honum í seinni tíð fækka
mjög um þá menn sem gátu sungið
með séra Matthíasi Jochumssyni:
„Trúðu frjáls á guð hins góða, guð er
innst í þinni sál,“ enda úthýst í
sálmabók þjóðkirkjunnar. Viðhorf
séra Haraldar Níelssonar og séra
Jóns Auðuns mótaði mjög trúar-
skoðanir hans. Sumir prestar hinnar
fyrri kynslóðar áttu þó góðri hylli að
fagna hjá Skúla og þar kom trúar-
legt viðhorf hvergi nærri. Ég nefni
hér til séra Guðmund á Mosfelli,
séra Ólaf Magnússon í Arnarbæli og
séra Bjarna Jónsson. Vinir Skúla
vita það vel að mikil viðurkenning
manns og prests fólst í því að hann
bað séra Þóri Stephensen að tala yf-
ir moldum sínum er að síðustu vista-
skiptum kæmi.
Í stjórnmálum var Skúli ekki hlut-
samur og galt þess líklega fremur en
hitt. „Sá sem ekki er með mér, hann
er á móti mér,“ sögðu framsóknar-
menn og sjálfstæðismenn í Árnes-
sýslu á árum áður. Orð sem Skúli lét
falla við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra er hann hitti
hana s.l. vetur kynnu sumir að segja
að bentu fremur yfir á vinstra væng:
„Ég vona að ég eigi eftir að kjósa
þig í þriðja skiptið.“ Hann féll svo í
valinn við skrifborð sitt á kosninga-
daginn 25. maí og í mínum huga er
það góður og táknrænn viðskilnaður
hins afkastamikla fræðimanns eftir
86 ára dvöl í mannheimi.
Mikil saga liggur að baki þessari
löngu vegferð. Hún liggur fyrir skýr
og skilmerkilega skráð af Skúla.
Hann vildi að skipti hans við menn á
lífsgöngunni og reynslan af þeim
lægi ljós fyrir er fram liðu stundir.
Handritasafn sitt fól hann handrita-
deild Landsbókasafns til varðveislu
og þar er mjög markvert efni lagt í
lófa framtíðar.
Skúli var einfari í lífinu en hann
átti marga mæta og merka vini er að
verðleikum mátu hann mikils. Ætt-
arsetrið á Svínavatni hjá Jóni Ingi-
leifssyni, Þóru Magnúsdóttur og
börnum þeirra stóð honum ætíð op-
ið. Þar var hverri heimsókn hans
fagnað fegins hugar. Staðreyndin sú
að hafa kynnst Skúla Helgasyni og
átt hann að hollvini er einn af hinum
stóru ávinningum ævinnar. Hann er
kvaddur af vinum og vandamönnum
með söknuði og þökk fyrir samveru
á lífsleið.
Skúli Helgason er í röð merkustu
Árnesinga á 20. öld. Verk hans
munu veita nafni hans brautargengi
langt inn í ókomin ár.
Þórður Tómasson, Skógum.
SKÚLI
HELGASON
!
""#
! "#$ %$$
" &" "& '" ( ) %$$
#$(& %$$ * "+','
" (& %$$ $-, '
. ,'/& ' #$/ 0+%)"$ 0
'/ /01
$
%
%
&
2!3456.7-335 ' "0$"8
)
'
'& (
) *'&
!
##& 6 "1/ 0' &% %$$
5 / %$$
.%9 6 0/ 0' %" %$$
* % / %$$ " &" "1" %'
!$(: / %$$ # $ ;'
! 6 0 %$$ $+%/$'
5/ 0/ 0 %$$
4/"/ 0' 6 9 " %$$
;1
$$
/ /0'/ / /01