Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 37
✝ Andrés Ás-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 11.
apríl 1924. Hann and-
aðist á Landspítalan-
um við Hringbraut 4.
júní síðastliðinn. For-
eldrar Andrésar
voru Ásmundur
Gestsson, kennari í
Reykjavík, f. 17.6.
1873, d. 11.2. 1954,
og Helga Helgadótt-
ir, húsmóðir, f. 22.6.
1891, d. 11.9. 1944.
Ásmundur og Helga
slitu samvistum og
flutti Andrés, yngstur systkina
sinna, með móður sinni á Lindar-
götu í Reykjavík, þar sem hann
ólst upp. Systkini Andrésar eru:
Selma, húsmóðir, f. 24.2. 1915, d.
12.11. 1997, Halldór Magnús, bif-
vélavirki, f. 21.8. 1916, d. 26.1.
1984, Guðrún, húsmóðir, f. 21.5.
1927, d. 2.9. 1980, og Alma, hús-
móðir, f. 6.9. 1921. Systkini Andr-
ésar, samfeðra, eru: Guðrún Gerð-
ur, leikkona, f. 19.11.
1935, og Páll, lækn-
ir, f. 23.2. 1934.
Andrés kvæntist
Guðlaugu Katrínu
Gísladóttur 16.8.
1952 en þau slitu
samvistum árið
1955. Andrés var í
sambúð með Krist-
ínu Guðmundsdótt-
ur, f. 16.4. 1929, d.
22.7. 1961, og eign-
uðust þau eina dótt-
ur, Helgu Björgu, f.
29.8. 1959. Hún lést í
Danmörku 4.3. 1998
og lætur eftir sig einn son, Réne
Thorkels, f. 5.6. 1980. Lengstan
hluta ævi sinnar bjó Andrés í
Reykjavík og vann ýmis verka-
mannastörf, bæði til sjós og lands.
Síðustu 17 ár ævinnar bjó hann og
starfaði á Dvalarheimilinu Ási í
Hveragerði.
Útför Andrésar fer fram frá
Fossvogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ég var átta ára gömul þegar ég
sá Andrés í fyrsta sinn. Það var á
heimili Selmu systur okkar, hún
leiddi mig inn í stofu og þar sá ég
stórglæsilegan ungan mann í brún-
um jakkafötum. „Þetta er bróðir
þinn Gunna mín,“ sagði Selma og ég
starði agndofa af aðdáun á þennan
nýja bróður. Mér fannst hann flott-
ur með dökkt liðað hár, hláturs-
glampa í augum og það sem meira
var, hann Andrés var með ómót-
stæðilegt Clark Gable-bros. Mér
fannst eldri bræður mínir tveir ekki
komast í hálfkvisti við þetta undur.
Og eftir að hafa átt með þeim systk-
inum skemmtilega stund þarna í
stofunni hennar Selmu kvaddi ég
þau og hvíslaði að systur minni um
leið og ég fór: „Hann er svo sætur,
gaman að hafa eignast svona sætan
bróður.“ Selma kyssti mig að skiln-
aði og sagði: „Ég mátti til með að
lofa þér að hitta hann, en þú skalt
ekki tala um hann við pabba þegar
þú kemur heim.“ Þegar ég bað syst-
ur mína um skýringu á þessari
leynd sagði hún mér að það væri
svo margt sárt í brjóstinu á pabba
eftir skilnað mömmu sinnar og
hans. Andrés hafði fylgt móður
sinni og þetta yrði ég, seinni konu
barnið, að skilja.
Auðvitað skildi ég ekki neitt þá,
var aðeins sár yfir að mega hvorki
segja pabba né félögum mínum frá
þeim feng sem mér hafði hlotnast
að eignast slíkan hálfbróður. En
seinna fékk ég að skilja að á þeim
árum var ekki til siðs að tala um
sársaukafulla hluti sem gerðust og
gerast enn í fjölskyldum. Lífið varð
að sýnast slétt og fellt á yfirborð-
inu.
Næst þegar ég sá Andrés voru
liðin 14 ár frá því fundum okkar bar
saman í stofunni hennar Selmu. Ég
fór og heimsótti hann af því ég hafði
frétt að hann lægi mikið veikur á
spítala. Þegar ég kom að rúminu
hans og ætlaði að fara að gefa hon-
um skýringu á hver ég væri sá ég að
það var óþarfi því það héngu tvær
blaðaljósmyndir af mér fyrir ofan
rúmið hans. Voru þessar myndir
klipptar út úr leikdómum um leikrit
sem þá var á fjölunum í Iðnó og það
undarlega var að þessar myndir
voru alveg eins, enda klipptar út úr
tveimur Morgunblöðum. Mér hlýn-
aði óneitanlega um hjartað þegar
ég sá að honum Andrési þótti vænt
um að vera bróðir minn þótt gamall
sársauki foreldra okkar hindraði að
við fengjum að kynnast og eiga eðli-
leg samskipti sem systkini.
Árin liðu og dag einn var ég í
heimsóknartíma á Landspítalanum
einhverra erinda, frammi á gangi.
Þar sat Andrés og við hlið hans
kona, sem auðsjáanlega var sjúk-
lingur. Eins og alltaf fékk ég fallega
brosið hans þegar hann heilsaði
mér og kynnti mig fyrir sessunaut
sínum: „Þetta er konan mín,“ sagði
hann. „Við eigum litla dóttur, hún
fær að vera hér á spítalanum meðan
mamma hennar er svona veik.“ Við
þessi orð hans seildust hendur
þeirra beggja yfir borðið og það
handtak sleppti ekki meðan þau
leiddu mig inn í sjúkrastofu þar
sem hún var, dóttirin, gimsteinninn
þeirra. „Hún heitir Helga í höfuðið
á mömmu,“ sagði Andrés og augu
hans ljómuðu af stolti. „Sjáðu, hún
vill koma til þín,“ bætti hann við. Og
í fang mitt kom hún Helga, það var
auðséð að hún hafði ekki aðeins erft
nafnið hennar föðurömmu sinnar
heldur líka fegurð hennar, því
Helga Helgadóttir, fyrri kona föður
míns, var annáluð fyrir glæsileika.
Stuttu seinna dó Kristín þar á
sjúkrahúsinu. Og Andrés, sem sá
sér ekki fært að gefa dóttur sinni
það uppeldi sem yrði henni fyrir
bestu, gaf dóttur sína góðu fólki til
ættleiðingar. Kannski kom van-
máttur æskuáranna þar til sögunn-
ar. Árin sem hann ólst upp hjá ein-
stæðri veikri móður höfðu gefið
honum þá reynslu sem hann ætlaði
ekki sínu elskaða barni. Sínu eina
barni. En sársauki þessara ára,
konumissirinn og að þurfa að gefa
frá sér dýrgripinn sinn, átti eftir að
lita allt hans líf eftir það.
Nú er hann bróðir minn kominn
til Guðs, hann þarf ekki neinar
velktar blaðaljósmyndir fyrir ofan
rúmið sitt þar til að sannfæra sig
um að hann tilheyrði fjölskyldu. Því
það eitt veit ég af kynnum mínum
við minn elskulega bróður, að hann
tilheyrir fjölskyldu Guðs. Og þær
sem hann elskaði mest í þessum
heimi, konan hans og dóttir, eru
komnar þangað á undan honum og
mér finnst ég sjái þau þrjú saman í
nýjum heimi, heimi sem er fullur
birtu og fyrirgefningar. Öll leynd
og hulinn sársauki þrífast ekki þar,
því veit ég að faðir minn og hans
fyrri kona eru þar einhvers staðar
nærri og fá að horfa á litlu fjöl-
skylduna hans Andrésar sem nú
fær að lifa saman. Og af því að þessi
heimur, heimur vonarinnar, er svo
hátt yfir skilning okkar mannanna
hafinn get ég séð hann föður minn
seilast eftir hendi sinnar fyrri konu
og handtakið verður þétt og lang-
þráð.
Guðrún Ásmundsdóttir.
„Hann var góður þessi.“ Þessi
orð heyrast ekki lengur í Hvera-
gerði.
Andrés Ásmundsson er látinn.
Hann lést á Landspítalanum við
Hringbraut á fallegasta degi sum-
arsins eftir skamma legu.
Andrés kom sem heimilismaður í
Ás í Hveragerði fyrir 15 árum.
Hann gat aldrei verið verklaus og
frá fyrstu stundu var hann starfs-
maður þar.
Andrés var alla tíð þar til nú í
vetrarbyrjun „reddari“ og „sendi-
herra“ á heimilinu en þá fór heils-
unni að hraka. Hann sótti póstinn í
mörg ár, braut saman tóma pappa-
kassa og gekk frá vörum.
Leikarinn Andrés var aldrei
langt undan og oft var hlegið dátt í
eldhúsinu þegar hann fór með ein-
þáttunginn „Hvíti sloppurinn“.
Ef „stelpurnar“ í Ásgerði vantaði
varalit, augnskugga, hárlit eða hvað
það nefndist fór Andrés í apótekið
og reddaði þessum málum. Hjá
„tuska“ keypti hann skó, peysur,
buxur o.s.frv. fyrir hina og þessa.
„Nammikarlinn“ – undir því
nafni gekk hann hjá börnunum í
Hveragerði, því þeir eru margir
brjóstsykurspokarnir, fílakara-
mellupokarnir og prinspólóin sem
hann laumaði í litlar hendur.
Oft var guðað á glugga á skrif-
stofunni og inn komu karamellur
eða eitthvert annað slikkerí.
Ófá eru þau prinspólóin sem
„húsakonurnar“ hafa innbyrt í
gegnum tíðina og svona mætti lengi
telja hvernig hann Andrés okkar
var. Sagt er að maður komi í manns
stað en það kemur enginn í stað
Andrésar. Mannlíf í Hveragerði og
Ási er fátækara að honum gengn-
um, lífshlaup hans var ekki alltaf
auðvelt og er það von okkar og bæn
að á grænum grundum megi hann
hvílast og við vötnin megi hann
næðis njóta.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinumegin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sigurður Kr. Pét.)
Við samferðafólk vinar okkar
Andrésar eigum eftir að sakna hans
og biðjum honum Guðs friðar.
Eyjólfur og Brynja.
ANDRÉS
ÁSMUNDSSON
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
við Nýbýlaveg, Kópavogi
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
;
- %
%
&
.-45#*3-335 E=
), ,
* '
1&
*
*
3
""#
9
<
"32 "!##
&
/ )% : " (F %$$
4 F %$$
.%& F '
! %$$ +' "" %'
+' %$$
" "+' %$$1
:',
*
*
3
* =>=78$+>=14'=1?@1>=14@AAB1
>>$ $91
9 "AG1
:',
*
*
3
* =>=78$+>=14'=1?@1>=14@AAB1
: ,, #"&&91
9 "AG1
;
-
%
%
%
&
.-H#53.!-335 "$""I?
#%D '
* 4
2
""#
?
*
/ 8 &C//
6 " %'
#$ 416 ' #$#$ %$$
%6 'J "#$ %$$
$+%6 ' 6 0!/ 0 %$$
#$ +',' #$ %$$
/ /0')$,9 $"
D
54: 5-335 / "$EG
), ,
* 6 *
5 2
""#
?
*
: %,
%/$$'
5 "%/$ %$$ " "7)'
" %/$ %$$ 7)"#$'
#$%/$ %$$
5 "$"%/$ "
+' "# %$")4 "
" ':(, 1
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.