Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 39
STIGAMÓT Hellis var skipu-
lagt í þeim tilgangi að gefa skák-
mönnum færi á að hækka á al-
þjóðlega stigalistanum sem
FIDE mun birta í byrjun júlí.
Fjórtán sterkir skákmenn taka
þátt í mótinu. Sú nýjung var tekin
upp í þessu móti að ekki er heim-
ilt að fresta skákum. Fjórum um-
ferðum af sjö er lokið og Björn
Þorfinnsson hefur tekið forystuna
á mótinu með 3½ vinning. Staðan
er annars þessi:
1. Björn Þorfinnsson 3½ v.
2. Sigurður Daði Sigfússon 3 v.
3.–5. Sævar Bjarnason, Bragi
Þorfinnsson, Arnar Gunnarsson
2½ v.
6.–9. Snorri Bergsson, Rík-
harður Sveinsson, Ingvar Þór Jó-
hannesson, Stefán Kristjánsson 2
v.
10.–12. Lenka Ptacnikova,
Hrannar B. Arnarsson, Kristján
Eðvarðsson 1½ v.
13. Dagur Arngrímsson 1 v.
14. Guðmundur Kjartansson ½
v.
Taflmennskan á mótinu hefur
verið afar fjörleg og úrslitin oft
óvænt, bæði þegar tekið er tillit
til stigamismunar keppenda og
eins þegar skoðað er hvernig
skákirnar þróuðust. Efsti maður
mótsins, Björn Þorfinnsson, hef-
ur haft heilladísirnar með sér í
mótinu og kann líka að fagna svo
um munar þegar þær leggja hon-
um lið. Þeir gera ekki miklu betur
knattspyrnumennirnir í heims-
meistarakeppninni, sem nú stend-
ur yfir, þegar þeir ná að skora
mark.
Það er hins vegar Hrannar B.
Arnarsson, nýendurkjörinn for-
seti Skáksambands Íslands, sem
hefur nýtt sér best þetta tækifæri
til að fjölga alþjóðlegu skákstig-
unum, en eftir fjórar umferðir
hefur hann hækkað um 23 stig.
Ein allra villtasta skákin á
mótinu fram að þessu var viður-
eign þeirra Sigurðar Daða Sigfús-
sonar og Braga Þorfinnssonar.
Sigurður Daði teflir afar djarft í
skákinni, og uppsker glæsilegan
sigur.
Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon
Svart: Bragi Þorfinnsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bc4 e6 7.
Be3 –
Önnur leið er 7. Bb3.
7. … a6 8. Bb3 –
Þegar hvítur teflir Velimirovic-
árásina leikur hann venjulega
strax 8. De2.
8. … Dc7 9. De2 –
Með þessum leik, ásamt langri
hrókun, er Velimirovic-árásin sett
í gang. Rólegri skákmenn leika 9.
0–0, ásamt f2–f4–f5 o.s.frv.
9. … Be7
Svartur getur reynt að hefja
strax gagnaðgerðir á drottning-
arvæng með 9 … Ra5.
10. 0–0–0 0–0
Ekki er hægt að birta skák með
þessari byrjun, án þess að geta
grunnskákarinnar: 10. … Ra5 11.
g4 b5 12. g5 Rxb3+ 13. axb3 Rd7
14. Rf5 exf5 15. Rd5 Dd8 16. exf5
0–0 17. f6 gxf6 18. Bd4 Re5 19.
gxf6 Bxf6 20. Hhg1+ Bg7 21.
Bxe5 dxe5 22. Dxe5 f6 23. Re7+
Kf7 24. Dh5+ og svartur gafst
upp (Velimirovic-Sofrevski,
1965).
Danski alþjóðameistarinn
Svend Hamann fann betri vörn
fyrir svart: 16. … Bb7 (í stað 16. –
0–0).
11. g4 Rd7
Upphafsmaður afbrigðisins,
júgóslavneski stórmeistarinn
Dragoljub Velimirovic, vann fal-
lega skák á móti Júlíusi Friðjóns-
syni á Reykjavíkurskákmótinu
1974: 11. … Rxd4 12. Hxd4 b5 (12.
– e5 13. Hc4, ásamt 14. g5) 13. g5
Rd7 14. e5!? d5 15. Hh4 g6 16. f4
b4 17. Ra4 Bb7 18. Bd4 Bc6 19.
De3 Hfb8 20. Hg1 Da5 21. f5 Bxa4
22. fxe6 fxe6 23. Dh3 Rf8 24.
Hxh7 Rxh7 25. Dxe6+ Kf8 26.
Hf1+ Ke8 27. Hf7 Hb7 28. Bxa4+
Dxa4 29. Hxh7 Kd8 30. Bb6+
Hxb6 31. Dxe7+ og svartur gafst
upp.
12. Hhg1 Rc5 13. Rf5!? –
Önnur leið er 13. g5. t. d. 13. –
b5 14. Kb1 Bb7 15. Hg3 Rxd4 16.
Bxd4 b4 17. Dh5 bxc3 18. f3 Rxb3
19. axb3 e5 20. Hh3 (20. Bxc3
Bc8) 20. – h6 21. Be3 cxb2 22. Hg1
Da5 23. c4 Bxg5 24. Hhg3 Da1+
25. Kc2 Da2 26. Hb1 Bxe3 og
svartur vann (Garma-Vladimirov,
Kalkútta 2001).
13. … b5
Hvítur fær góð sóknarfæri á g-
línunni ef svartur drepur riddar-
ann. Staðan er svo flókin, að erfitt
er að fullyrða um möguleika tefl-
anda.
14. Bd5 Bb7
Eða 14. … exf5 15. gxf5 He8 16.
Bxf7+! Kxf7 17. Dh5+ Kf8 18.
Hxg7 Kxg7 19. Bh6+ Kf6 (19. …
Kh8 20. Dxe8+ Bf8 21. Dxf8+
mát) 20. Dg5+ Ke5 21. f4+ mát.
Eftir 14. … exd5 15. Rxd5 Db7
16. e5 Re6 17. exd6 Bd8 á svartur
þrönga stöðu, en hvítur virðist
ekki eiga auðvelt með að brjós-
tast í gegnum varnirnar.
15. g5 b4
Skákin verður sífellt flóknari.
Önnur leið er 15. … Hfc8.
16. Dh5 Re5 17. f4!? –
Nýr leikur. Þekkt er 17. Hg3
exf5 18. exf5 bxc3 19. g6 cxb2+
20. Kb1 hxg6 21. fxg6 Rxg6 22.
Dxg6 Re6 23. Bxe6 Bf6 24. Dxf6
fxe6 25. Dxe6+ Df7 26. Hxg7+ og
svartur gafst upp (Sion Castro-
Rivera Kuzawka, Cordoba 1991).
17. … bxc3 18. fxe5 –
Eftir 18. Bxb7 exf5 19. Bxa8
Rc4 stendur svartur til vinnings.
18. … cxb2+
Ekki gengur 18. … exf5? 19. g6
hxg6 20. Dxg6 Re6 21. Bxe6 Bf6
22. exf6 fxe6 23. Dxg7+ Dxg7 24.
Hxg7+ Kh8 25. Hxb7 og hvítur
hefur yfirburðastöðu.
Eftir 18. … exd5 19. Bxc5 dxc5
20. exd5 cxb2+ 21. Kb1 Dd7 22.
Hgf1 Hab8 23. c4 g6 24. Rh6+
Kg7 25. Dh4 á svartur ekki auð-
velt um vik, þótt hann eigi manni
meira.
19. Kb1 Rxe4?
Eftir þennan leik er erfitt að
finna vörn fyrir
svart. Besta vörnin
virðist vera 19. …
Bxd5!?, t.d. 20. exd5
(20. Bxc5 dxc5 21.
exd5 exf5 22. d6 Dd7
23. Hd3 De6 24.
dxe7 Hfe8 25. Hh3
Dg6 26. Df3 Ha7; 20.
Rxe7+ Dxe7 21.
exd5 exd5 22. Hxd5
Re4 23. Hd3 dxe5;
20. exd6 Bxa2+ 21.
Kxa2 Da5+ 22.
Kxb2 Hfb8+ 23. Kc1
Rb3+ 24. cxb3 (24.
Kb2 Rd2+ 25. Kc1
Hb1+ mát) 24. …
Dc3+ 25. Kb1
Hxb3+ 26. Ka2 Db2+ mát; 20.
Rh6+ gxh6 21. gxh6+ Kh8 22.
exd5 Re4 23. Bd4 Rc3+ 24. Kxb2
Hab8+ 25. Kc1 f6) 20. … exf5 og
það er vandséð, hvernig hvítur
nær mátsókn í þessari stöðu.
20. g6 Rc3+ 21. Kxb2 Rxd1+
22. Kc1! fxg6
23. Hxg6! –
Eftir 23. Bxe6+ Kh8 24. Hxg6
Rxe3 25. Rxe3 dxe5 sleppur
svartur með skrekkinn.
23. … Hxf5
Ekki gengur 23. – hxg6 24.
Bxe6+ Hf7 25. Dxg6 Bf8 (26. –
Haf8 27. Dxg7+ mát) 26. Rh6+
Kh8 27. Rxf7+ Kg8 28. Rg5+
Kh8 29. Dh7+ mát.
24. Bxe6+ Kh8
Eða 24. … Kf8 25. Dxf5+ Bf6
(25. … Ke8 26. Df7+ Kd8 27.
Dg8+ Bf8 28. Dxf8+ mát) 26.
Hxf6+ gxf6 27. Dxf6+ Ke8 28.
Bg5 og við hótuninni 29. Dh8+
mát er ekkert að gera.
25. Bxf5 dxe5
Svartur er varnarlaus: 25. …
Bg5 26. Hxg5 g6 27. Dxd1 gxf5
28. exd6 og við hótuninni 29.
Bd4+ er engin vörn, eða 25. …
Rxe3 26. Hxg7! Kxg7 27. Dxh7+
Kf8 28. Dh8+ Kf7 29. e6+ mát,
eða 25. … Bc8 26. He6! g6 27.
Bxg6 Bf8 28. exd6 Db7 29. Bd4+
Kg8 30. He7! og svartur verður
mát.
26. Dxh7+! Kxh7 27. Hh6++
Kg8 28. Be6+
og svartur gafst upp, því að
hann verður mát, eftir 28. – Kf8
29. Hh8+.
Hannes að ná
sér á strik í Svíþjóð
Eftir tap í tveimur fyrstu skák-
unum á Sigeman-mótinu í Svíþjóð
hefur Hannes Hlífar Stefánsson
náð að rétta aðeins úr kútnum. Í
þriðju umferð gerði hann jafntefli
við Tom Wedberg (2.540) og í
þeirri fjórðu sigraði hann sænska
alþjóðlega meistarann Emanuel
Berg (2.514). Staðan á mótinu er
þessi:
1.–3. Peter Heine Nielsen,
Thomas Luther, Jonny Hector
2½ v.
4.–7. Nigel Short, Vladimir Ep-
ishin, Tom Wedberg, Emanuel
Berg 2 v.
8.–10. Jan Timman, Hannes
Stefánsson, Leif Erlend Johann-
essen 1½ v.
Tefldar verða níu umferðir.
Mótinu lýkur 14. júní.
Teflt með tilþrifum
á Stigamóti Hellis
SKÁK
Hellisheimilið
STIGAMÓT HELLIS
3. –13. júní 2002
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Björn
Þorfinnsson
Sigurður Daði
Sigfússon
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu
á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl.
13 fyrir eldri borgara. Kvöldbænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni og í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í
sumar í safnaðarheimili Kirkjuhvoli kl.
10-12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á
könnunni og djús fyrir börnin. Öll foreldri
velkomin með eða án barnanna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10-12.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili frá kl. 10-12.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar
í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Safnaðarstarf
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Ingibjörg Þengilsdóttir, Erla
Alexandersdóttir, og Garðar
Björgvinsson michael-miðill
starfa hjá félaginu og bjóða fé-
lagsmönnum og öðrum uppá
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60
Samkoma í Kristniboðssaln-
um í kvöld kl. 20.30.
Gísli Jónasson talar um köllun
Jeremía.
Allir hjartanlega velkomnir.
sik.is
Miðvikudagur 12. júní
Skógræktarferð í Heiðmörk
Síðari kvöldferð í Heiðmörk til
að snyrta reit F.Í. Prýðum landið!
Fararstjóri Eiríkur Þormóðsson.
Brottför frá BSÍ kl. 19.30 og
komið við í Mörkinni 6.
Allir velkomnir.
Laugardagur 15. júní kl. 8.00
Jarðfræðiferð á Snæfellsnes
Fararstjóri Haukur Jóhannesson
jarðfræðingur.
Mánudagur 17. júní kl. 10.30
Leggjabrjótur, forn þjóðleið
milli Þingvalla og Hvalfjarðar.
Fararstjóri Jónas Haraldsson.
Munið www.fi.is og bls 619
í textavarpi RUV.
12. júní
Reykjafell ofan Hveragerðis
(Útivistarræktin)
Brottför á eigin bílum kl. 18:30
frá skrifstofu Útivistar. Ekkert
þátttökugjald.
14.—16. júní
Fimmvörðuháls (Næturganga)
Brottför frá BSÍ kl. 17.00. Verð
8.700/10.200 (í skála í Básum),
8.200/9.700 (í tjaldi í Básum). Far-
arstjóri: Hallgrímur Kristinsson.
14.—16. júní
Básar á Goðalandi.
Helgarferð í Bása. Brottför frá
BSÍ kl. 17:00. Verð 7.100/8.300.
14.—17. júní
Esjufjöll
Brottför frá BSÍ kl. 18:00. Verð
19.900/22.800. Fararstjóri: Sylvía
Kristjánsdóttir.
14.—17. júní
Núpsstaðaskógur
Brottför frá BSÍ kl. 18:00. Verð
12.900/14.800. Fararstjóri: Reynir
Sigurðsson.
15.—16. júní
Fimmvörðuhálsganga
Brottför frá BSÍ kl. 8:30. Verð kr.
7.700/9.200.
16. júní
Reykjavegur (R-5) Vatns-
skarð — Bláfjöll
Fimmti hluti Reykjavegarins.
Brottför kl. 10:30 frá BSÍ. Verð
kr. 1.500 fyrir félaga/1.700 fyrir
aðra. Fararstjóri: Steinar Frí-
mannsson.
17. júní
Leggjabrjótur
Skemmtileg gönguleið frá Botns-
dal og yfir á Þingvelli. Brottför kl.
10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.800 fyrir
félaga/2.100 fyrir aðra. Farar-
stjóri: Tómas Þ. Rögnvaldsson.
21.—23. júní
Jónsmessuhelgi í Básum.
Munið næturgönguna.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÍÞRÓTTIR
mbl.is
Eins og undanfarin ár eru sum-
arguðsþjónustur eldri borgara í
Reykjavíkurprófastsdæmum.
Þær eru samstarfsverkefni Elli-
málaráðs Reykjavíkurprófasts-
dæma og safnaðanna sem taka á
móti okkur hverju sinni.
Að þessu sinni verður guðs-
þjónustan í Seltjarnarneskirkju
miðvikudaginn 12. júní kl. 14:00.
Sr. Sigurður Grétar Helgason
predikar og þjónar fyrir altari.
Litli kór Neskirkju syngur undir
stjórn Ingu J. Backman, org-
anisti Viera Manasek.
Á eftir verða veitingar í boði
Seltjarnarnessóknar. Allir eru
velkomnir.
Sumarguðs-
þjónusta
Morgunblaðið/Jim Smart