Morgunblaðið - 12.06.2002, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG leit inn hjá kunningja mínum
fyrir stuttu, sem rammar inn mynd-
ir. Honum var nokkuð niðri fyrir og
dró fram bréf sem hann hafði feng-
ið sent og sýndi mér. Þarna gaf að
líta mynd eftir undirritaðan og
fram kom í texta sem með fylgdi að
málverkinu hafði verið stolið í op-
inberri byggingu á meðan starfs-
fólkið skrapp í kaffi. Atvikið átti sér
reyndar stað snemma morguns,
nánar tiltekið kl. 9.05 á annan hvíta-
sunnu. Þegar farið var að kanna
málavöxtu, kom á daginn að maður
sem staddur var á þriðju hæð í
byggingunni hafði séð til kauða,
hvar hann skaust inn í bíl og brun-
aði á braut með þessa líka fínu
mynd.
Nú langar mig að biðja þennan
listelska smekkmann, sem eflaust
er tregur til að láta ránsfenginn af
hendi, að lána mér umrætt verk á
næstu sýningu mína.
Vinsamlega hafðu samband við
Hafstein Austmann – símanúmerið
mitt er í skránni. Einnig má hafa
samband við Innrömmunarstofuna
Smiðjuna í s. 568-3890.
HAFSTEINN AUSTMANN,
listmálari.
Óskað eftir málverki
sem stolið var
Frá Hafsteini Austmann:
KÆRA frú Sólveig.
Þau tíðindi eru að berast mér til
eyrna að ráðuneyti þitt hafi ákveð-
ið að afturkalla vegabréfsáritanir
til handa gestum okkar hér á landi
af þeirri einni ástæðu að skoðanir
þeirra samrýmist ekki skoðunum
þjóðhöfðingja sem hingað ætlar að
koma í heimsókn. Ekki er það nóg
heldur hefur víst þeim tilmælum
verið beint til þeirra sem gefa út
vegabréfsáritanir til landsins að
gefa ekki þeim sem hafa þessar
skoðanir leyfi til að ferðast hingað.
Ég vona svo sannarlega að hér sé
einhver misskilningur á ferð og ég
vona enn frekar að hér ráði ekki
óskir þess mæta gests Jiangs Zem-
in sem er, ef þú skyldir ekki hafa
vitað af því, æðsti maður einræð-
isstjórnar sem pyntar og myrðir
þegna sína.
Ég get heldur ekki orða bundist
yfir þeirri þvælu að hér ráði ótti
lögreglu við 29 vopnaða lífverði
forsetans, ég vil að þessir menn
verði afvopnaðir á Keflavíkurflug-
velli þar sem þeir tilheyra að öllum
líkindum öryggissveitum forsetans
og hafa væntanlega beitt aðra
pyntingum eða tekið menn af lífi án
dóms og laga. Ég tel öryggi mínu
sem borgara þessa ríkis ógnað með
því að hleypa þeim vopnuðum á
göturnar og tel að lögreglan og
dómsmálaráðuneytið hljóti að vera
á sama máli þar sem fulltrúar þess
nota veru þeirra hér sem afsökun
fyrir því að veita ekki meðlimum
Falun Gong vegabréfsáritun. Ég
geri þá kröfu að Útlendingaeftirlit-
ið og ríkislögreglustjóri heimti
vopn þeirra þegar þeir koma til
landsins og afhendi þau ekki aftur
nema þeir geti lagt fram byssuleyfi
og umgengist skotvopn samkvæmt
reglum þessa lands.
Ég hef hingað til verið stoltur af
því að búa í lýðræðisríki þar sem
ég hef leyfi til að hafa skoðanir
hvort sem þær samrýmast skoð-
unum yfirvalda eða ekki og hef
einnig verið stoltur af því að mega
láta þær skoðanir í ljós samkvæmt
almennum leikreglum án þess að
þurfa að óttast um líf mitt og limi.
Ég er ekkert hræddur við að lýsa
yfir þeirri skoðun minni að ég vilji
ekki hafa Jiang Zemin sem gest
minn og vil gjarnan að yfirvöld
landsins, yfirvöld sem ég valdi mér
meira að segja, segi honum að
hann sé ekki velkominn hér. Því
miður hafa þegnar Jiangs Zemin
ekki tækifæri til að segja skoðun
sína á honum og veru hans í emb-
ætti né heldur geta þeir sagt frá
þeim glæpum sem stjórn hans
fremur þar sem líf þeirra gæti ver-
ið í veði.
Ég mundi áfram vera stoltur af
þjóðerni mínu ef mótmælendunum
yrði hleypt inn í landið og hinum
tigna gesti vísað frá. Ég verð síður
stoltur af því ef við tökum þátt í því
að þagga niður í þegnum hans og
veitum honum þannig stuðning við
að beita gerræðistilburðum sem
við mundum ekki setja okkur undir
sjálf.
Með vinsemd og þverrandi virð-
ingu,
ÞRÖSTUR JÓNASSON,
Víðihvammi 10,
200 Kópavogur.
Opið bréf til
dómsmálaráðherra
Frá Þresti Jónassyni: