Morgunblaðið - 12.06.2002, Síða 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 43
OD
DI
H
F
I4
79
9
Kæli-
og frystiskápar
Eldunartæki
Þvottavélar
og þurrkarar
Uppþvottavélar
VIÐ, iðkendur Falun Gong, hvaðan-
æva úr heiminum óskum áheyrnar
íslensku þjóðarinnar með hliðsjón af
ferðahömlum sem lagðar hafa verið á
iðkendur hreyfingarinnar.
Falun Gong er ævaforn kínversk
aðferð til andlegs þroska. Henni til
grundvallar liggja eftirfarandi meg-
inreglur: Sannleiksiðkun, samkennd
og umburðarlyndi. Iðkunin felst í
fimm formföstum og slakandi æf-
ingasamstæðum sem styrkja hug og
líkama. Nú stunda milljónir manna í
meira en 50 löndum þessar æfingar.
Öll starfsemi Falun Gong fer fram
fyrir opnum tjöldum. Góð áhrif iðk-
unarinnar eru viðurkennd um allan
heim.
Árið 1999 fyrirskipaði forseti Kína
að barist skyldi af fullum þunga gegn
þessari ástundun, sem þá hafði náð
áður óþekktum vinsældum. Síðastlið-
in þrjú ár hafa mannréttindasamtök
bent á þúsundir iðkenda sem hafa
látið lífið vegna harkalegra aðgerða
lögreglu og hundruð þúsunda sem
hafa verið fangelsuð, send í vinnu-
búðir og vistuð á geðveikrahælum í
þeim tilgangi að fá fólkið til að láta af
skoðunum sínum.
Forseti Kína liggur á því lúabragði
að rægja Falun Gong um allan heim
til að réttlæta ofsóknir sínar. Þetta
gerir hann til að blekkja leiðtoga
annarra þjóða og beita þá þrýstingi
til þess að aðstoða sig í ofsóknum
hans. Við erum komin til Íslands til
að afhjúpa grimmdarverkin sem kín-
verski forsetinn ber ábyrgð á og eins
til að upplýsa um ástandið svo að ís-
lenska þjóðin láti ekki blekkjast af
ósannindunum og fái ekki ranga
mynd af velviljuðu fólki.
Undanfarin þrjú ár hafa iðkendur
Falun Gong haldið uppi merkjum
meginreglnanna þriggja, „sannleiks-
iðkun, samkennd og umburðarlyndi“,
þrátt fyrir harkalegar aðgerðir kín-
verskra stjórnvalda. Friðsamleg
framganga hreyfingarinnar og sam-
kennd hefur unnið hug og hjarta
þjóða heims að lögregluyfirvöldum
þeirra meðtöldum. Mannréttinda-
samtök víðsvegar um heiminn hafa
veitt iðkendum Falun Gong viður-
kenningar fyrir þátt þeirra í að verja
hugsana- og trúfrelsi í heiminum. Við
erum djúpt snortin og mjög þakklát
fyrir þann mikla stuðning sem við
höfum hlotið frá fjölda þjóða og lög-
regluyfirvöldum þeirra. Þessi al-
þjóðastuðningur hefur verið árang-
ursríkur og bjargað mannslífum.
Þá fáu daga sem við höfum dvalið á
Íslandi höfum við hlotið afar hlýjar
móttökur hjá Íslendingum. Í síðustu
viku höfðum við samband við skrif-
stofu forseta Íslands og skrifstofu
forsætisráðherra. Einnig áttum við
fund með starfsfólki utanríkisráðu-
neytis, dómsmálaráðuneytis og hátt-
settum embættismönnum innan lög-
reglunnar til að skýra fyrir þeim
hvers vegna við erum hér og eins til
að fullvissa þá um að við séum ávallt
reiðubúin til að hlýða lögum og
reglum. Við munum halda áfram að
upplýsa stjórnvöld og embættismenn
um rétta stöðu mála til þess að þeim
verði ljós velvild Falun Gong-hreyf-
ingarinnar og einnig hitt, hversu al-
varlegar ofsóknirnar í Kína eru.
Íslendingar geta verið stoltir af því
alþjóðlega orðspori sem af þeim fer,
að vera þjóð sem bregst á virkan hátt
til varnar mannréttindum í alþjóða-
samfélaginu. Við biðjum ríkisstjórn
Íslands af einlægni að leyfa iðkend-
um Falun Gong, óski þeir þess, að
koma til landsins og tala friðsamlega
fyrir lífi og réttindum vina sinna og
fjölskyldna í Kína. Við treystum því
að íslensk stjórnvöld geri það sem
rétt er og styrki stöðu sína í alþjóða-
samfélaginu sem talsmenn frelsis og
mannréttinda.
Við endurtökum þakklæti okkar
fyrir hlýhug og stuðning Íslendinga.
Við bjóðum alla velkomna að vera
með okkur í æfingum á almannafæri
þar sem hvers kyns spurningum
verður svarað og þar sem fólk getur
fengið staðfestingu á því hve
heillandi og kyrrlát Falun Gong-iðk-
unin er.
Með vinsemd,
FALUN GONG-IÐKENDUR,
(íslenskun:
Þórdís B. Sigurþórsdóttir).
Opið bréf til íslensku
þjóðarinnar frá
iðkendum Falun Gong
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi frá iðkendum
Falun Gong:
FRÉTTIR
Í MORGUNBLAÐINU laugardag-
inn 8. júní er rætt við Þjóðgarðsvörð á
Þingvöllum varðandi grein er ég rit-
aði og birtist á heimasíðu Þjóðkirkj-
unnar, kirkja.is., um aðstöðu kirkj-
unnar á Þingvöllum. Tvennt í
athugasemdum þjóðgarðsvarðar tel
ég rétt að skoða nánar, því það gæti
að öðrum kosti valdið misskilningi á
stöðu og sögu Þingvallakirkju.
Hið fyrra varðar þá athugasemd að
aðstaða kirkjunnar sé hin sama nú og
verið hafi um árabil. Eins og ég bendi
á í grein minni á kirkjan.is þá hefur
verið prestsetur á Þingvallastað í ein
1000 ár, eða allt fram yfir kristnitö-
kuhátíðina árið 2000. Skrifstofa
prests og móttaka var í einni burst
Þingvallabæjarins hina síðari áratug-
ina og þá aðstöðu gátu allir prestar og
aðrir nýtt sér er komu til athafna í
Þingvallakirkju um ársins hring. Á
skrifstofu prests var geymdur messu-
skrúði kirkjunnar allur, bækur, helgi-
gripir, skjöl og aðrir munir. Eftir
messur var iðulega boðið til kaffisam-
sætis á prestsetrinu og fjöldi kirkju-
gesta hefur notið þess í gegnum tíð-
ina. Auk þessa nýttu kirkjugestir
aðstöðu prestsetursins af margvís-
legu tilefni. Þessi aðstaða er ekki
lengur fyrir hendi. Í dag er öll aðstaða
Þingvallakirkju eitt herbergi og í því
herbergi er móttaka, geymsla kirkju-
muna og skrifstofa starfandi prests.
Stærstan hluta ársins er aukinheldur
enginn búandi á prestsetrinu gamla.
Hið síðara sem skoðunar þarfnast
er hvort Þingvallakirkja sé í eðli sínu
sambærileg við aðrar litlar sveita-
kirkjur. Þingvallakirkja er vissulega
sóknarkirkja Þingvallasveitar og
helgistaður heimamanna. En þó að
Þingvallakirkja sé lítil og hógvær, þá
er hún sögulega séð einn stærsti
helgidómur íslenskrar kristni, sam-
bærileg við Skálholtsdómkirkju og
Hóladómkirkju. Til hennar koma tug-
ir þúsunda gesta á hverju ári, árið um
kring. Ótölulegur fjöldi hjóna hefur
þar þegið sína vígslu og barna verið
borinn til skírnar. Við altari kirkjunn-
ar hefur hans heilagleiki Jóhannes
Páll páfi beðist fyrir, fyrir hönd kaþ-
ólsku kirkunnar, og þar hafa fulltrúar
allra kirkjudeilda lotið guði. Þing-
vallakirkja stendur á þeim stað þar
sem kirkja hefur staðið lengur í þessu
landi en á nokkrum öðrum stað ef að
líkum lætur. Allt umhverfi kirkjunnar
er helgað sögu kristinnar trúar.
Þeirri kirkju og þeim kirkjustað
hæfir því reisn og aðstaða til að bjóða
gesti velkomna frá öllum hornum
heimsins, af öllum kirkjudeildum og
frá öllum trúfélögum, um allan ársins
hring. Formanni Þingvallanefndar og
Þingvallanefnd ber að þakka alla að-
stoð við umsýslu kirkju og staðar fyrr
og síðar og það góða starf sem er unn-
ið á vegum nefndarinnar og þjóð-
garðsins.
SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON.
Aðstaða kirkjunnar
á Þingvöllum
Frá sr. Þórhalli Heimissyni:
FERÐAFÉLAG Íslands fer í skóg-
ræktarferð í Heiðmörk í dag, mið-
vikudaginn 12. júní, til að snyrta reit
sem FÍ hefur þar. Fararstjóri er Ei-
ríkur Þormóðsson. Brottför frá BSÍ
kl 19.30 og komið við í Mörkinni 6.
Allir velkomnir.
Skógræktarferð
í Heiðmörk
SJÖTTA norræna þingið um hjarta-
endurhæfingu verður haldið í
Reykjavík á vegum félags fagfólks
um hjarta- og lungnaendurhæfingu,
FHLE, dagana 14.–16. júní.
Á þinginu, sem haldið er á ensku,
verður fjallað um endurhæfingu
hjartasjúklinga frá ýmsum sjónar-
hólum, enda um þverfaglega ráð-
stefnu að ræða. Fjöldi erinda er á
dagskránni og margir fræðimenn á
sviði hjartaendurhæfingar bæði af
Norðurlöndunum, frá öðrum Evr-
ópulöndum og Bandaríkjunum flytja
erindi á þinginu. Meðal umfjöllunar-
efna er nýjungar í þjálfun hjarta-
sjúklinga, en þvert á fyrri trú manna
hefur gagnsemi þjálfunar hjá fólki
með hjartabilun verið staðfest. For-
varnir verða einnig til umræðu og
þar á meðal nýjar rannsóknir um
tengsl depurðar og félagslegrar ein-
angrunar á hjartasjúkdóma. Ís-
lenskar rannsóknir um áhrif hjarta-
skurðaðgerða og þjálfunar hjarta-
bilaðra verða kynntar á þinginu,
segir í fréttatilkynningu.
Þingið er ætlað öllum heilbrigðis-
stéttum sem koma að meðferð, end-
urhæfingu og forvarnarstarfi hjarta-
sjúkdóma. Nánari upplýsingar og
dagskrá þingsins er að finna á
heimasíðunni: www.tv.is/mbe.
Norrænt þing
um hjarta-
endurhæfingu
HALDINN verður fundur í flokks-
stjórn Samfylkingarinnar í nýja
Haukaheimilinu Ásvöllum í Hafnar-
firði, fimmtudaginn 13. júní kl. 17.
Setning fundar og ræða Össurar
Skarphéðinssonar, formanns Sam-
fylkingarinnar. Ávarp frá bæjar-
fulltrúum í Hafnarfirði og Árborg.
Erindi halda: Ingvar Sverrisson,
Einar Karl Haraldsson, Stefán Jón
Hafstein og Hólmfríður Garðars-
dóttir. Almennar umræður.
Fundurinn er öllum opinn. Allir
nýkjörnir sveitarstjórnarmenn eiga
sjálfkrafa sæti í flokksstjórn, segir í
fréttatilkynningu.
Flokksstjórnar-
fundur Samfylk-
ingarinnar
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn
13. júní kl. 19 – 23 í Fákafeni 11, 2.
hæð. Kennsludagar verða 13., 18. og
20. júní. Þátttaka er heimil öllum 15
ára og eldri. Námskeiðið telst vera 16
kennslustundir. M.a. verður kennd
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna, beinbrotum, meðferð sára
og fleira. Að námskeiði loknu fá nem-
endur skírteini sem hægt er að fá
metið í vinnu eða skólum.
Önnur námskeið sem haldin eru
hjá Reykjavíkurdeildinni eru um sál-
ræna skyndihjálp, slys á börnum og
hvernig á að taka á móti þyrlu á slys-
stað. Reykjavíkurdeild RKÍ útvegar
leiðbeinendur til að halda námskeið
fyrir þá sem þess óska, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeið í
skyndihjálp
„NOKKRIR þekktir veikleikar í Int-
ernet Explorer veikja til muna öryggi
þeirra sem ferðast um á Netinu og
gera utanaðkomandi aðilum kleift að
ná sambandi við tölvuna. Meðal þess
sem óviðkomandi aðilar geta gert er
að stela upplýsingum af tölvunni.
Mögulegt er t.d. að taka allt það sem
liggur á klippiborði (clipboard), stela
auðkenniskökum, bæta við, breyta
eða stela skrám o.fl. Á vefsíðu Arcis
www.arc.is er nú á einfaldan hátt
hægt að gera prófun á því hvort tölv-
an sé með einhverjum af þessum
þekktu veikleikum og einnig koma
fram leiðbeiningar um hvernig hægt
er að lagfæra þá. Einfaldasta leiðin er
þó oftast að vera með einkaeldvegg á
tölvunni sem á að tryggja að óvið-
komandi hafi ekki aðgang að henni,“
segir í fréttatilkynningu frá Arcis.
Veikleikar í
Internet Explorer