Morgunblaðið - 12.06.2002, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 47
HARUKI Murakami er með helstu
og vinsælustu höfundum síðustu ára
eins og hefur áður verið sagt frá á
þessum stað. Undanfarin ár hefur
hann verið afkastamikill; frá 1998
hafa komið út á Vesturlöndum fjór-
ar nýjar bækur hans, The Wind-Up
Bird Chronicle, South of the Bor-
der, West of the Sun, Underground
og Sputnik Sweetheart, og ein göm-
ul, Norwegian Wood. Í vikunni
berst síðan hingað til lands ein bók
til, After the Quake, sem hér er
gerð að umtalsefni.
Sjálfskipuð útlegð
Murakami var mörg ár í sjálfskip-
aðri útlegð, fluttist til Bandaríkj-
anna 1986, ekki síst til að geta skoð-
að heimaland sitt úr fjarlægð.
Jarðskjálftinn mikli í Kobe 17. jan-
úar 1995, en hús foreldra hans
hrundi í skjálftanum, og gasárásin í
neðanjarðarlestakerfi Tókýó tveim-
ur mánuðum síðar, 20. mars, varð
honum mikið umhugsunarefni að
því hann hefur sagt, enda þóttist
hann sjá að undir niðri japönsku
samfélagi byltu sér myrk öfl; undir
sléttu og felldu yfirborði kraumaði
óánægja og spenna. Báðir atburð-
irnir áttu síðan eftir að verða honum
efni í ritverk, gasárásin var undir-
staða bókarinnar Undergound, sem
kom út á síðasta ári.
Að sögn Murakamis sjálfs kom
lesendabréf honum af stað við Un-
derground, en hann rakst á það í
glanstímariti. Í því lýsti eiginkona
manns sem lent hafði í gasárásinni
hvernig hann naut stuðnings og
samúðar fyrst eftir árásina en eftir
því sem batinn tók lengri tíma sner-
ist samúðin upp í háð og fyrirlitn-
ingu. Murakami dreif í að ræða við
sem flest fórnarlambanna eða að-
standenda þeirra og byrjaði með
700 nöfn. Honum tókst að hafa upp
á 140, en þegar á reyndi vildu ekki
nema 60 segja sögu sína og sumir
ekki nema að hluta.
Vonleysi án uppgjafar
Murakami lýsti því í viðtölum
vegna útgáfu bókarinnar á sínum
tíma að þegar verkið hófst hafi hann
verið uppfullur fordóma í garð
launaþrælanna sem láta sig hafa
það að fara af stað til vinnu eld-
snemma á hverjum morgni, vera tvo
tíma eða lengur á leið í vinnuna og
snúa síðan heim á kvöldin; sjá aldrei
börn sín nema um helgar og njóta
nánast engra samvista við maka eða
aðra ástvini. Hann áttaði sig þó
snemma á því að launafólkið var að
þrauka við aðstæður sem hann gæti
ekki ráðið við; það sætti sig við lífið
því það ætti enga möguleika á að
breyta því. Minnið um fólk sem sit-
ur fast í aðstæðum sem það ekki
fær breytt eða vill breyta, hversu
óþolandi sem þær eru, er reyndar
sterkt í verkum Murakamis; leitun
er að annarri eins lýsingu á vonleysi
og undir lok Hard Boi-
led Wonderland and the
End of the World, án
þess þó að gefist sé upp.
Undir lok Undergro-
und ræðir Murakami
síðan við liðsmenn Aum
Shinri Kyo, „samtaka
hins æðsta sannleika“,
sem stóðu að gasárás-
inni í Tókýó. Einhverjir
þekkja kannski til leið-
toga hreyfingarinnar,
Shoko Asahara, sem
sauð saman hræru úr
búddafræðum, hindúa-
trú og Kristni, með
hann sjálfan sem Krist
endurborinn, og krydd-
aði með Opinberunar-
bók Jóhannesar og spá-
dómum Nostra-
damusar (virðist ekki
svo ýkja frábrugðinn
stofnanda Falun
Gong, Li Hongzhi, en
það er önnur saga).
Leit að betri
og fegurri heimi
Í viðtölunum við
félaga úr söfnuðinum, þó ekki
þá sem tóku beinan þátt í árásinni,
komst Murakami að því að þeir voru
ósköp venjulegt fólk, og margir
reyndar betur gefnir en gengur og
gerist. Allir áttu þeir það þó sameig-
inlegt að ná ekki að samsama sig
japönsku samfélagi, að kunna ekki
við neysluhyggjuna sem þem fannst
gegnsýra samfélagið; þeir voru í leit
að betri og fegurri heimi og í raun á
sinn hátt fórnarlömb Shoko Asa-
hara líkt og þeir sem urðu fyrir
taugagasinu.
Því er þetta allt rifjað upp að í
vikunni kemur út ný bók eftir
Murakami, After the Quake, sem
getið er í upphafi. Í henni er hann
öðrum þræði enn við sama hey-
garðshornið, að segja sögur af fólki
sem er fast í aðstæðum sem það
ekki getur breytt, fólki sem á erfitt
með að sætta sig við lífið eða fólki
sem ekki á heima í þessum heimi.
Sögurnar eru sjálfstæðar en þó ekki
því jarðskjálftinn í Kobe tengir þær
saman aukinheldur sem aðrir þræð-
ir, leyndir og augljósir, tengja það
saman, önnur minni og þráhyggja.
Steinhjörtu og Ofurfroskur
Í upphafssögunni verður eigin-
kona söguhetjunnar, Komura, svo
gagntekin af jarðskjálftanum að
hún getur ekki slitið sig frá sjón-
varpinu, starir án afláts dögum
saman þar til hún hverfur á braut
og skilur eftir miða þar sem hún
segir að það að búa með Komura sé
eins og að búa með sneið af lofti,
það sé ekkert inni í honum sem
hann geti veitt öðrum. Þannig verð-
ur skjálftinn til þess að hún breytir
lífi sínu vísvitandi og hann, sem er
fórnarlamb skjálftans líkt og íbúar
Kobe, neyðist til að breyta sínu og
sér.
Eins og getið er er skjálftinn
mikli í Kobe leiðistef After the
Quake, stundum sterkt og áhrifa-
mikið, en einnig veikt og tregafullt.
Ýmislegt fleira tengir sögurnar
saman, sjá til að mynda söguna af
listamanninum sem óttast það helst
að lokast inni í ísskáp og deyja
þannig, og síðan í lokasögunni þar
sem stúlkan óttast að vera sett í lok-
aðan lítinn kassa, hvort tveggja svo
augljósar tilvísanir að ekki þarf að
orðlengja það. Sagan af Satsuki sem
kemur til Taílands í frí og ber innra
með sér hatur svo heitt til manns í
Kobe að hún óttast að hafa komið
jarðskjálftanum af stað kallast á við
söguna af Ofurfroski og hvernig
hann bjargaði Tókýó með Katagiri.
Hatrið sem er eins og eitraður
myrkur steinn innra með Satsuki á
sér samsvörun í orðunum sem ljúka
sögunni af Yoskiya, sem móðir hans
segir getinn af guði og kærasta
hans kallar Ofurfrosk: „Hjörtu okk-
ar eru ekki úr steini. Steinn getur
eyðst með tímanum og glatað mynd
sinni. En hjörtun eyðast aldrei.“
Hjörtu okkar
eru ekki
úr steini
Með helstu og vinsælustu höfundum
síðustu ára er japanski rithöfundurinn
Haruki Murakami. Árni Matthíasson segir
frá nýjustu bók Murakamis sem kemur
út um þessar mundir.
Í nýjustu bók sinni segir hinn
japanski Murakami sögur sem
eiga það sameiginlegt að tengj-
ast jarðskjálftanum í Kobe.
betra en nýtt
„Fylgist með á www.borgarbio.is“
Sýnd kl. 10.10. B. i. 10.
1/2 kvikmyndir.is
1/2 kvikmyndir.com
Sánd SV Mbl
1/2kvikmyndir.is
kvikmyndir.comDV
Sýnd kl. 5.50. B. i. 10.
J O D I E F O S T E R
Einn magnaðasti
spennutryllir
síðustu ára!
Jodie Foster,
tvöfaldur
Óskarsverð-
launahafi,
hefur aldrei
verið betri.
„Meistari spennu-
myndanna hefur
náð að smíða
enn eitt
meistaraverkið“
1/2kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i 16 ára
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
STUART
TOWNSEND
AALIYAH
Sýnd Kl. 8 og 10. B.i. 16. Síðustu sýn. Vit 388.
Frá framleiðendum I Know What You Did
Last Summer og Urban Legend.
Sýnd kl. 6. Síðustu sýningar. Vit 379.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
ALI G
INDAHOUSE
Sýnd Kl. 10.
B.i. 16 ára Vit 385. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
421 -1170
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8.1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
SLACKERS
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 10.
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Miðasala opnar kl. 15.30
5 hágæða bíósalir
kl. 7.30 og 10.
Hversu vel þekkir þú maka þinn?
Allt sem þú treystir á
Allt sem þú veist
Gæti verið lygi
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 16 ára.
kvikmyndir.com
1/2 RadioX
DV
1/2 kvikmyndir.is
Sánd
Yfir 47.000 áhorfendur!
Einn
magnaðasti
spennutryllir
síðustu ára!
Jodie Foster,
tvöfaldur
Óskarsverð-
launahafi,
hefur aldrei
verið betri.
Frá David Fincher, leikstjóra Seven & Fight Club
„Meistari spennu-
myndanna hefur
náð að smíða enn
eitt meistaraverk-
ið“
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
1/2
HK DV
J O D I E F O S T E R
Sýnd kl. 5, 8 og 10.30. B. i. 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 16 ára.
Yfir 30.000 áhorfendur
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B. i. 10.
1/2 kvikmyndir.is
1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd
Rás 2
/ i i i
/ i i
í i i
kl. 4.30.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Einn
magnaðasti
spennutryllir
síðustu ára!
Jodie Foster,
tvöfaldur
Óskarsverð-
launahafi,
hefur aldrei
verið betri.
Frá David Fincher,
leikstjóra Seven & Fight Club
„Meistari
spennumyndann
a hefur náð að
smíða enn eitt
meistaraverkið“
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
J O D I E F O S T E R
Hann ætlar að reyna hið óhugsandi.
Alls ekkert kynlíf í 40 daga og 40 nætur. Drepfyndin
grínmynd með hinum ómótstæðilega Josh Hartnett.
ICE CUBE MIKE EPPS
BRJÁLAÐUR
HASAR OG
GEGGJAÐ
GRÍN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.