Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÓheppni hjá ÍA í Evrópukeppni
– meistararnir til Bosníu / B1
Skömm að ætla að skella
skuldinni á Seaman / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r22.
j ú n í ˜ 2 0 0 2
MORGUNBLAÐIÐ hefur feng-
ið til birtingar myndir af fólkinu
sem lést í hinu hörmulega slysi í
Blöndulóni að kvöldi 17. júní.
Þau sem fórust voru Jing Li,
fædd 27. júlí 1970, og Albert
Junchen Li, sonur hennar á
fyrsta ári, fæddur 30. ágúst
2001. Jing Li var eiginkona
Davíðs Tong Li sem komst lífs
af úr slysinu. Í slysinu fórust
einnig hjónin Shouyuan Li,
fæddur 29. september 1936, og
Xiuping Lin, fædd 15. ágúst
1942.
Hjónin voru foreldrar Davíðs
Tong Li, en fólkið var allt af
kínversku bergi brotið og til
heimilis í Lækjasmára 21 í
Kópavogi. Söfnun handa Davíð
Tong Li hófst þriðjudaginn eftir
slysið. Að sögn Sveins Óskars
Sigurðssonar, vinar Davíðs
Tong Li, hefur söfnunin farið
vel af stað og sagði Sveinn Ósk-
ar að þakka bæri þeim fjöl-
mörgu sem skrifað hafa í minn-
ingabók sem liggur frammi á
veitingastað Davíðs Tong Li á
Smáratorgi í Kópavogi og komið
með blóm þangað.
Stofnaður hefur verið reikn-
ingur í Búnaðarbanka Íslands á
Smáratorgi sem hægt er að
leggja inn á. Reikningurinn er
nr. 328-13-888.
Hjónin Shouyuan Li og
Xiuping Lin.
Jing Li og sonurinn
Albert Junchen Li.
Létust í slysinu
í Blöndulóni
FJALLAÐ var um öryggisviðbún-
að í tengslum við heimsókn forseta
Kína og aðgerðir gagnvart fylg-
ismönnum Falun Gong á fundi
allsherjarnefndar Alþingis í gær.
Komu m.a. fulltrúar þriggja ráðu-
neyta á fundinn auk fulltrúa
Mannréttindastofu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, formaður nefndarinnar, segir að
gestir nefndarinnar hafi svarað
spurningum nefndarmanna og
veitt fullnægjandi upplýsingar um
ástæður þeirra aðgerða sem gripið
var til.
,,Ég heyri að stjórnarandstaðan
telur ekki svo vera en það er ekki
rétt. Spurningum var svarað og at-
burðarásin skýrð í öllum meginat-
riðum,“ sagði hún.
Fjallað var um málið að beiðni
Lúðvíks Bergvinssonar, þing-
manns Samfylkingarinnar. Hann
segir fátt nýtt hafa komið fram á
fundinum og ýmsum spurningum
sé enn ósvarað. Hann segir að illa
hafi gengið að fá upplýsingar um á
hvaða forsendum ákvarðanir um
takmörkun á ferðafrelsi Falun
Gong-fólksins byggðust. Einnig
hafi verið beðið um upplýsingar
um tilurð hins umdeilda svarta
lista, með nöfnum fylgismanna
Falun Gong, en takmarkaðar upp-
lýsingar fengist um það.
Tryggja átti að forseti Kína
yrði ekki fyrir hugarangri
Sagði hann að þó hafi komið
fram að sú ákvörðun að takmarka
ferðafrelsi fólksins hafi byggst á
áhættumati lögreglunnar en þeg-
ar reynt hafi verið að fá nánari
upplýsingar um matið hafi verið
vísað á lögregluna, en fulltrúi
hennar kom ekki á fundinn. ,,Það
kom líka fram að þeir höfðu ekki
kynnt sér starfsemi Falun Gong
áður en ákvörðun var tekin um
bannið,“ segir Lúðvík. Hann seg-
ir að einnig hafi komið fram á
fundinum að eitt stærsta við-
fangsefni öryggisgæslunnar hafi
verið að tryggja að Jiang Zemin,
forseti Kína, yrði ekki fyrir hug-
arangri, eins og það hafi verið
orðað.
,,Við óskuðum eftir að allsherj-
arnefnd aflaði þeirra upplýsinga
sem ekki fengust en formaður
nefndarinnar neitaði því og taldi
að þær upplýsingar sem hægt
væri að veita væru komnar fram.
Það er því ljóst að meirihluti
nefndarinnar mun ekki beita sér
frekar en að sjálfsögðu munu ein-
stakir þingmenn í krafti sinnar
stöðu skrifa ráðuneytum og óska
eftir upplýsingum,“ segir Lúðvík.
Allsherjarnefnd fjallaði um aðgerðir vegna Falun Gong
Ósammála um hvort
fullnægjandi skýring-
ar séu komnar fram
HUNDAFANGARAR frá Heilbrigð-
iseftirliti Suðurnesja og lögreglu
tókst í sameiningu í gær að fanga
sex hunda sem gengið höfðu lausir
um Hafnir í Reykjanesbæ síðustu
daga. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu voru hundarnir allir af
sömu tegund og var talið að hér
væri um að ræða tík með fimm
hvolpa. Íbúar bæjarins voru lítt
hrifnir af lausagöngu hundanna
sem allir eru frekar stórir, að sögn
lögreglu, og hafði hún fengið marg-
ar kvartanir vegna þeirra að und-
anförnu.
Hundarnir eru nú í vörslu lög-
reglu og getur eigandinn vitjað
þeirra þar.
Hundar völsuðu
um lausir í Höfnum
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hér er einn hundanna sem náðist í aðgerðunum í gær.
SUMARSÓLSTÖÐUR eru sá tími
ársins þegar dagurinn er lengstur
og draga nafn sitt af því að sólin
stendur í stað og hvorki hækkar sig
né lækkar. Hvað er betra en vera
úti þegar komið er sumar, sólin
skín og nóttin er nánast ekki til og
allt er orðið fallega grænt af ný-
sprottnu grasi?
Litli hrúturinn hennar Ruggu
sem á heima í Mýrdalnum gat verið
ánægður með að móðir hans skyldi
bera einmitt þennan sólríka dag
enda var hann fljótur að brölta á
fætur og næla sér í mjólkursopa hjá
móður sinni. Ekki er hægt að segja
að þetta sé venjulegur burðartími
hjá ánni þetta árið en það er alltaf
ein og ein ær sem ber annaðhvort
óvenju snemma eða óvenju seint.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ærin Rugga karar nýborna hrútinn sinn.
Sólstöðulamb
EINS hreyfils flugvél af
gerðinni Jodel nauðlenti við
bæinn Á á Skarðströnd
klukkan 20.17 í gærkvöld.
Tveir menn voru um borð og
sakaði þá ekki. Flugvélin var
á leið frá Tungubakkaflug-
velli í Mosfellsbæ að Holti í
Önundarfirði.
Dautt var á hreyfli
flugvélarinnar
Flugmaður annarrar flug-
vélar á sömu slóðum lét flug-
stjórn í Reykjavík vita kl.
20.15 að dautt væri á hreyfli
flugvélarinnar og að flugmað-
ur hennar hygðist lenda á
vegi skammt frá bæ á Skarð-
strönd. Tveimur mínútum síð-
ar lét sami flugmaður vita af
því að flugvélin hefði lent á
túni við bæinn Á. Hreyfilblöð
flugvélarinnar skemmdust við
lendinguna en mennina um
borð sakaði ekki, sem fyrr
segir.
Rannsóknarnefnd flugslysa
fer með rannsókn málsins og
lögregluyfirvöld á svæðinu
voru einnig látin vita af atvik-
inu.
Einka-
flugvél
nauðlenti
á Skarð-
strönd