Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MARKAÐSVIRÐI Sparisjóðsins í
Keflavík er metið á tæplega 3 millj-
arða króna. Stjórn sjóðsins hefur að
loknum kynningarfundum ákveðið að
ljúka vinnu við að breyta sjóðnum í
hlutafélag og er stefnt að endanlegri
ákvörðun og stofnfundi um mánaða-
mót júlí og ágúst.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að undirbúningi formbreyting-
ar Sparisjóðsins. Mat á markaðsvirði
og fleiri atriði undirbúnings hluta-
félagsstofnunar hafa undanfarna
daga verið kynnt á fundum stofnfjár-
eigenda, síðast í fyrrakvöld.
Að mati óháðra endurskoðenda,
KPMG- Endurskoðunar, er mark-
aðsvirði Sparisjóðsins í Keflavík rétt
tæpir 3 milljarðar kr. en eigið fé
sjóðsins var um 1,8 milljarðar um
áramót. Til samanburðar má geta
þess að verðmæti SPRON, sem einn-
ig er verið að breyta í hlutafélag, er
metið 4,2 milljarðar kr. Stofnfé ein-
staklinga og fyrirtækja í Sparisjóðn-
um í Keflavík verður breytt í hlutafé,
en það var um síðustu áramót rúmar
800 milljónir kr. Í hlut sérstakrar
sjálfseignarstofnunar koma því lið-
lega 2,1 milljarðar kr. Skiptist hlutafé
í Sparisjóðnum í Keflavík hf. þannig
að sjálfseignarstofnunin fær rúmlega
70% hlutafjár en aðrir hluthafar tæp
30% eftir að stofnfjáreign þeirra hef-
ur verið uppfærð frá áramótum.
Hlutafé aukið fljótlega
Geirmundur Kristinsson spari-
sjóðsstjóri segir að eiginfjárstaða
sparisjóðsins sé góð. Hins vegar hafi
ekki verið gefið út nýtt stofnfé í hálft
annað ár og því sé að verða þörf á að
afla nýs eigin fjár. Stefnt sé að útgáfu
nýs hlutafjár fljótlega eftir form-
breytingu og muni hlutur sjálfseign-
arstofnunarinnar minnka smám sam-
an, nema hún auki hlutafé sitt til
samræmis við aðra hluthafa. Um-
rædd sjálfseignarstofnun er bundin
núverandi starfssvæði sparisjóðsins,
Suðurnesjum, og er hlutverk hennar
meðal annars að styrkja menningar-
starfsemi á svæðinu.
Geirmundur segir að mikil sam-
staða hafi verið um málið á kynning-
arfundinum í fyrrakvöld en þó hafi
tveir eða þrír stofnfjáreigendur lýsti
sig mótfallna breytingunni, talið hag-
kvæmara að reka sparisjóðinn áfram
í óbreyttu formi. Stjórn sparisjóðsins
kom saman að fundi loknum og ákvað
að ljúka verkinu með stofnun hluta-
félags um reksturinn.
Áætlun um samruna Sparisjóðsins
í Keflavík við nýtt hlutafélag sem
stofnað hefur verið til að taka við
rekstrinum verður send hlutafélaga-
skrá fyrir mánaðamót og birt opin-
berlega. Að mánuði liðnum verður
unnt að taka endanlegar ákvarðanir
og vonast Geirmundur til að hægt
verði að boða til þeirra funda í lok júlí
eða byrjun ágúst.
Markaðsvirði Sparisjóðsins tæpir þrír milljarðar króna
Stofnfjáreigendur eign-
ast tæp 30% hlutafjár
Keflavík
JÓNSMESSUGANGA verður úr
Grindavík á fjallið Þorbjörn á sunnu-
dagskvöld og Bláa lónið verður opið
til klukkan eitt um nóttina í tilefni
Jónsmessunnar.
Gangan er árlegur viðburður og
eykst fjöldi göngufólks með ári
hverju. Lagt verður af stað klukkan
20 á sunnudagskvöld frá Sundlaug
Grindavíkur og er hópurinn væntan-
legur í Bláa lónið, eftir fjallgönguna,
um klukkan 22.30. Bláa lónið verður
síðan opið til klukkan eitt.
KK mun fara með göngufólki á
Þorbjörn og taka lagið þegar á topp-
inn er komið. Sætaferðir vegna
göngunnar eru frá BSÍ kl 19.15 og
frá Keflavík (SBK) kl. 19.30. Rúturn-
ar fara til baka klukkan hálf eitt.
Jónsmessudagskráin er sam-
vinnuverkefni Bláa Lónsins og
Grindavíkurbæjar.
Gengið á Þorbjörn
Grindavík
Á FYRRA námskeiði Íþrótta- og
leikjaskóla Keflavíkur sem nú
stendur yfir eru 107 börn, meira
en 40 börnum færra en á sams
konar námskeiði á síðasta ári. Í
gær var brugðið á leik, haldinn
furðufatadagur og farið á diskó-
tek í Fjörheimum.
Keflavík, íþrótta- og ungmenna-
félag, stendur fyrir tveimur
íþrótta- og leikjanámskeiðum í
sumar, eins og undanfarin ár.
Hinu fyrra lýkur 28. júní en það
síðara stendur frá 1. til 19. júlí og
er skráð á það á mánudag og
þriðjudag í næstu viku að Skóla-
vegi 32. Fyrra námskeiðið hefur
venjulega verið fjölsóttara en hið
síðara en Einar Haraldsson, for-
maður Keflavíkur, hefur ekki
skýringar á fækkuninni. Hann
nefnir þó að nauðsynlegt hafi ver-
ið að seinka námskeiðinu vegna
þess hvað grunnskólarnir starfi
lengi fram á sumarið.
Á síðasta sumri tóku alls 215
börn á aldrinum sex til ellefu ára
þátt í námskeiðum Íþrótta- og
leikjaskóla Keflavíkur en Einar
Haraldsson telur víst að þau verði
mun færri í ár.
Markmið námskeiðanna er að
kynna börnunum ýmsar íþrótta-
greinar, efla félagsþroska og
samskiptahæfni og auka hreyfi-
færni og bæta líkmsþrek. Einnig
er markmið að kynnast betur um-
hverfinu og náttúrunni, stuðla að
útiveru og skemmta sér með öðr-
um börnum. Dagskrá námskeið-
anna er fjölbreytt. Síðustu daga
hafa börnin til dæmis unnið að
gróðursetningu og farið á hestbak
og í sund. Furðufatadagurinn er
alltaf sérstakur. Börnin mæta
skemmtilega klædd á diskótek í
félagsmiðstöðinni Fjörheimum og
fá aldrei þessu vant að hafa með
sér sælgæti.
Lokadagur námskeiðsins, næst-
komandi föstudag, verður einnig
hátíðlegur, þá verður boðið til
grillveislu og foreldrar hvattir til
að mæta.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Börn á morgunnámskeiði Íþrótta- og leikjaskóla Keflavíkur koma saman í Fjörheimum á furðufatadegi.
Brugðið á leik á
furðufatadegi
Keflavík
MEIRA er flogið yfir efri byggðir
Keflavíkur í sumar vegna malbikun-
arframkvæmda á austur-vesturflug-
braut Keflavíkurflugvallar. Flug-
málastjórn hefur látið íbúana vita.
Íslenskir aðalverktakar hafa tekið
að sér fyrir varnarliðið að fræsa og
heilmalbika austur-vesturflugbraut
Keflavíkurflugvallar. Framkvæmdir
eru hafnar og standa fram á haust. Á
meðan er allri flugumferð beint inn á
norður-suðurbrautina. Í aðflugi fara
flugvélarnar yfir Leiru og nálægt
íbúðahverfum í efri hluta Keflavík-
ur.
Björn Ingi Knútsson flugvallar-
stjóri segir að fólk verði meira vart
við flugið núna vegna aukningar á
flugumferð á sumrin og nýrra álags-
toppa. Nefnir hann aukið kvöldflug,
á fimmtudögum og sunnudögum,
vegna leiguflugs yfir sumarið og
aukið flug Flugleiða samkvæmt
sumaráætlun.
Austur-vesturflugbrautin malbikuð
Flug nærri byggð
Keflavík
VINÁTTUFÉLAGIÐ ICE-NATO-
US Friendship Club hefur heiðrað
þyrlubjörgunarsveit varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli vegna björg-
unar þess á skipverja af vélbátnum
Svanborgu SH sem fórst við Snæ-
fellsnes í desember síðastliðnum.
Vináttufélagið hefur starfað í
aldarfjórðung. Eitt af helstu mark-
miðum þess er að fylgjast með og
fræðast um starfsemi varnarliðs-
ins, með sameiginlega hagsmuni
Íslands og varnarstöðvarinnar að
leiðarljósi, samkvæmt upplýsing-
um frá Gunnari Helgasyni sem
verið hefur formaður frá upphafi.
Árlega er skipulögð sérstök
kynnisferð á Keflavíkurflugvöll þar
sem eitt afmarkað starfssvið varn-
arliðsins er skoðað sérstaklega.
Að þessu sinni kynntu fé-
lagsmenn sér starfsemi þyrlu-
björgunarsveitarinnar frá öllum
hliðum, meðal annars þróun starf-
seminnar, líf og starf flugmanna og
annarra úr áhöfnum, og flugvéla-
kostinn. Þyrlusveitin bauð þátttak-
endum að kynnast af eigin raun
myndvélabúnaði í hjálmum flug-
manna sem gerir þeim kleift að sjá
flug- og björgunaraðstæður í
myrkri. Þessi tækni kom meðal
annars að góðum notum við björg-
un skipverjans af Svanborgu.
Við þetta tækifæri færði félagið
björgunarsveitinni í virðingarskyni
sæveðraðan blágrýtisstein úr fjöru
Snæfellsness með áletruðum silf-
urskildi þar sem björgunarafreks-
ins er minnst.
Heiðra þyrlu-
björgunarsveit
varnarliðsins
Keflavíkurflugvöllur
Nokkrir liðsmanna þyrlubjörgunarsveitarinnar ásamt formanni vináttufélagsins, f.v., Keith H. McCready yf-
irmaður björgunarsveitarinnar, Jeremy Foster flugvirki, Jeremy Miller varðbergsmaður, Scott Bilyeu björg-
unarmaður, Jay Lane björgunarmaður, Javier Casanova flugstjóri og Gunnar Helgason.