Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 61
haldinu reynist frumkvæði hvíts svörtum ofviða. 28. Df5+! Kg8 29. Hxc4 Dc7 30. Hc2 Hd6 31. Hfc1 b4 32. Dc5 Rg4 33. g3 a5 34. He2 Rf6 35. Dxd6 Dxd6 36. c7 Db6+ 37. Kf1 g6 38. c8=D+ Kg7 39. Dc5 Db7 40. Dc6 og svartur gafst upp. Skákþing Norðlendinga hefst í dag, 22. júní, kl. 13.30 í Grímsey. Tefldar verða 7 umferðir með 25 mínútna umhugsun- artíma á hvorn keppanda. Öllum er heimil þátttaka. Keppninni lýkur 23. júní með tveimur umferðum. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5 5. Bd3 d5 6. Rf3 cxd4 7. exd4 dxc4 8. Bxc4 Dc7 9. De2 O-O 10. O-O Bxc3 11. bxc3 Rbd7 12. Ba3 He8 13. Hac1 a6 14. Re5 b5 15. Bd3 Bb7 16. f4 Had8 17. c4 Db6 18. c5 Da5 19. Bb2 Bd5 20. c6 Rb6 21. f5 Rc4 22. fxe6 Hxe6 23. Df2 Bxc6 24. Rxc6 Hxc6 25. d5 Rxb2 Staðan kom upp á Sigem- an-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Málmey í Svíþjóð. Leif Erlend Jo- hannesson (2452) sem tryggði sér sinn þriðja stór- meistaraáfanga á mótinu hafði hvítt gegn Vladimir Ep- ishin (2606). 26. Bxh7+! Kxh7 27. dxc6 Rc4 27...Rd3 gekk ekki upp vegna 28. Df5+ Kg8 29. c7. Í fram- SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 61 DAGBÓK Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið úrval af fallegum sumardrögtum UNDANFARNA daga höf- um við séð nokkur dæmi um það hvenær útspil í trompi eru „rétt“. En hvenær eru þau „röng“. Ótrúlega oft, segir Mike Lawrence, og undir það má taka. Lawr- ence nefnir til sögunnar nokkrar stöður þar sem sér- staklega ber að varast trompútspil, þar á meðal þegar maður á „dulinn“ styrk í trompinu: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ G7 ♥ KD74 ♦ ÁDG4 ♣G74 Vestur Austur ♠ 1062 ♠ D3 ♥ G65 ♥ Á1093 ♦ 8532 ♦ 1097 ♣Á92 ♣K1065 Suður ♠ ÁK9854 ♥ 82 ♦ K6 ♣D83 Vestur Norður Austur Suður – 1 tígull Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur á ekkert gott út- spil og gæti trompað út í þeim tilgangi að „gefa ekk- ert“. En við sjáum að útspil- ið er síður en svo hættulaust – vörnin glatar trompslagn- um, auk þess sem sagnhafi nær að henda niður tveimur laufum í tígulinn. Tían er ekki hundur! Og það er raunar nían ekki heldur. Allir vita að það borgar sig ekki að spila frá trompgosa eða drottningu, en stundum kostar það slag að spila frá 9x. Til dæmis ef makker á K10x. Í þessu spili vinnur suður fjóra spaða með tígli út, en vörnin hefur betur með út- spili í hjarta eða laufi. Lawr- ence er mjög á móti því að koma út frá óstuddum ás og útilokar laufið því strax. Tromp kemur ekki til greina vegna tíunnar og tígull er litur blinds. Hjarta er því hans val. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. 19. júní sl. urðu sextugar Alberta Guð-rún og Guðný Þóra Böðvarsdætur. Í tilefni þess taka þær á móti gestum á Hólabraut 6 í Hafnarfirði, laugardaginn 22. júní frá kl. 17–20. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 22. júní, er fimmtugur Snorri Magnússon, Laufbrekku 8, Kópavogi. Af því tilefni taka Snorri og eiginkona hans, Ólafía Gísladóttir, á móti gestum á heimiliu sínu frá kl. 20. LJÓÐABROT MINNI INGÓLFS Lýsti sól stjörnu stól, stirndi á Ránar klæði. Skemmti sér vor um ver, vindur lék í næði. Heilög sjón: hló við Frón. Himinn, jörð og flæði fluttu landsins föður heillakvæði. Himinfjöll, földuð mjöll, fránu gulli brunnu. „Fram til sjár,“ silungsár sungu, meðan runnu. Blóm á grund, glöð í lund, gull og silki spunnu, meðan fuglar kváðu allt, sem kunnu. – – – Matthías Jochumsson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Persóna þín er rómantísk og hefur átt í nokkrum ást- arsamböndum. Þá er per- sóna þín talin búa yfir áköf- um tilfinningum. Góður vinskapur skiptir þig jafn- framt miklu máli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki er allt sem sýnist í sam- skiptum þínum við þína nán- ustu. Farðu varlega og ekki gera neinar ráðstafanir sem hægt er að steypa um koll. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það kæmi sér betur fyrir þig að leyfa öðrum að ráða ferð- inni og halda þig til hlés um tíma. Hvíldu þig og endur- nærðu líkama og sál. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú færð ónot í magann í samskiptum við aðra í dag, en slíkt kann að vera merki um að eitthvað grunsamlegt sé á seyði. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú freistast til þess að eyða allt of miklum peningum í einhvern sem þú berð ábyrgð á. Slíkt er ekki nauðsynlegt og oft hægt að gleðja fólk með öðru móti. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samskipti þín við aðra geta reynst ruglingsleg, en slíkt kann að stafa af misskilningi eða orðaruglingi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einhver reynir að telja þér trú um að sá hafi fórnað öllu fyrir þig. Líklega er viðkom- andi að reyna að ná valdi yfir þér með því að ráðskast með tilfinningar þínar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þessi dagur hentar ekki til þess að hefja ný sambönd, nauðsynlegt er að sýna nær- gætni þegar þau eru annars vegar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ekki láta aðra segja þér fyr- ir verkum, því stundum get- ur reynst nauðsynlegt að vera fastur fyrir í samskipt- um. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert ekki alveg eins og þú átt að þér að vera og þarft að vera á varðbergi varðandi hvað þú lætur út úr þér svo þú særir ekki tilfinningar annarra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Dagurinn hentar engan veg- inn til þess að gera viðskipta- sambönd. Ef þú kemst ekki hjá því skaltu fara vandlega yfir alla hluti. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þrátt fyrir að þú öðlist róm- antíska reynslu á þessum degi er ekki sjálfgefið að slíkt eigi sér stað alla daga. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ekki hræðast málefni sem snerta heilsu þína. Misskiln- ingur kann oft að valda öðr- um hugarangri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.             MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík FRÉTTIR NÚ UM helgina verða staddir hér 7 Svíar sem setja upp alþjóðlegan rat- leik á eftirtöldum stöðum: Í Öskjuhlíð kl. 18:00 í dag (laug- ardag) með starti frá Loftleiðahót- elinu, sunnudag í Elliðaárdal kl. 17:00 og á mánudag í Gálgahrauni um kl. 16:00. Allir áhugasamir um ratleik eru velkomnir til að vera með. Alþjóðlegur ratleikur LJÓSMYNDAKEPPNI var haldin í þriðja sinn á vefsíðunni www.ljos- myndari.is í maí sl. Alls bárust 117 myndir í keppnina og var almenn- ingi gefinn kostur á því að taka þátt í vali á bestu myndinni. Í fyrsta sæti var mynd af Jökuls- árlóni, höfundur hennar er Arnar Már Hall Guðmundsson, í öðru sæti „Brotin skál“ eftir Árna Torfason og í þriðja sæti mynd sem Rósalind Hansen tók. Verðlaun eru innskann- anir og útprentun á vinningsmynd- unum. Loftmyndir ehf. Skólavörðu- stíg munu sjá um vinnsluna á vinningsmyndunum, en þeir sérhæfa sig í stækkunum og vinnslu á ljós- myndum, segir í fréttatilkynningu. Úrslit í ljósmyndakeppni Mynd af Jökulsárlóni var í 1. sæti. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá utanríkis- ráðuneytinu: „Utanríkisráðuneytið býður fyrir- tækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendi- herra Íslands til þess að ræða hags- munamál sín erlendis, viðskipta- möguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði. Sigríður Á. Snævarr, sendiherra Íslands í París, verður til viðtals í ut- anríkisráðuneytinu þriðjudaginn 25. júní nk. kl. 14 til 16. Umdæmi sendi- ráðsins nær einnig til Andorra, Ítalíu, Portúgals, San Marínó og Spánar auk þess sem það hefur fyrirsvar gagn- vart Efnahagssamvinnu- og þróunar- stofnuninni (OECD), Menningar- málastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og Matvæla- og landbún- aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Stefán Haukur Jóhannesson, fasta- fulltrúi Íslands hjá Fríverslunarsam- tökum Evrópu (EFTA), verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mið- vikudaginn 26. júní kl. 9:30 til 11:30. Sendiskrifstofan gegnir einnig hlut- verki sendiráðs gagnvart Slóveníu auk þess að fara með fyrirsvar Ís- lands gagnvart Alþjóðaviðskipta- stofnuninni (WTO), skrifstofu Sam- einuðu þjóðanna í Genf og öðrum alþjóðastofnunum sem hafa aðsetur í Genf og Ísland er aðili að. Björn Dagbjartsson, sendiherra Íslands í Mapútó, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 27. júní n.k. 14 til 16. Umdæmi sendi- ráðsins nær einnig til Malaví, Namib- íu, Suður-Afríku og Úganda.“ Sendiherrar til viðtals
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.