Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 379 STUART TOWNSEND AALIYAH Sýnd kl. 10.10. B. i. 16. Vit 377. ALI G INDAHOUSE Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 385. Þær eru fjarska fallegar En ekki koma of nálægt Frumsýning Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 382. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Vit 389. Einnig sýnd í lúxussal VIP Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit nr. 395. Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein” af stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell! Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 358.Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 370.  DV Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 338 Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10. Vit 395. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Vit 393. Hugh Grant hefur aldrei verið betri. Frábær gamanmynd fyrir bæði kynin. Margir vilja meina að hér sé komin ein besta gamanmynd ársins. 1/2 SV Mbl Vinsælasta myndin á Íslandi í dag Kvikmyndir.is Óskarsverðlaunahafarnir Kevin Costner og Kathy Bates fara á kostum í dularfullum og yfirnáttúru- legum trylli í anda THE SIXTH SENSE. ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR... ER HANN ÞÁ HORFINN AÐ EILÍFU?  kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2  Strik.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16. Ástin stingur. Sýnd kl. 8 og 10.15. Loksins er Sly Stallone kominn í góða gamla Rambó gírinn aftur. Rafmagnað- ur spennuhasar frá upphafi til enda. Að lifa af getur reynst dýrkeypt ÓHT Rás 2 1/2HK DV HL Mbl Kvikmyndir.com Frábær teikni- mynd fyrir alla fjölskyduna. Með íslensku tali. Þau drukku safa sem neyddi þau til að kafa Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 5.45 og 10.30. Nýjasta snilldarverkið frá meistaranum drepfyndna... hinum eina sanna Woody Allen. Ný ímynd, nýr Allen. Ath! Áhorfendur verða dáleiddir af hlátri. Sýnd kl. 8. Bi 16. HK DV HJ Mbl Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. Hugh Grant hefur aldrei verið betri. Frábær gamanmynd fyrir bæði kynin. Margir vilja meina að hér sé komin ein besta gamanmynd ársins. Frumsýning: Saga um strák „Besta gamanmynd ársins“ -US MAGAZINE -EMPIRE  HL Mbl MIKIÐ hefur verið á seyði íTilraunaeldhúsinu undan-farið, skammt er síðan tveir matsveinar eldhússins sneru aftur heim eftir frækna för til Barcelona, þar sem leikið var á Son- ar-raftónlistarhátíðinni, og á næstu dögum heldur fríður flokkur til Ítal- íu að leika á hátíð í Flórens og það- an til Englands, meðal annars til að leika á sérstakri tveggja daga tón- listarhátíð sem helguð er íslenskri framúrstefnu. Jóhann Jóhannsson og Kristín Björk Kristjánsdóttir voru fulltrúar Tilraunaeldhússins, sem kallast Kitchen Motors ytra, á Sonar-hátíð- inni og segir Jóhann að það hafi ver- ið mikið ævintýri að fá að vera með þar, enda Sonar ein virtasta til- raunatónlistarhátíð heims nú um stundir. „Við komum fram í þeim hluta hátíðarinnar sem kallast Son- arlab, en þá er plötufyrirtækjum boðið að kynna tónlist. Yfirskriftin á okkar skemmtun var að við værum að kynna Kitchen Motors og við lék- um mikið af óútgefinni íslenskri tónlist listamanna sem tengjast okkur að einhverju leyti en líka tón- list hljómsveita sem eru á vegum Thule, eins og Apparat og Trabant, en þær tengjast okkur reyndar líka.“ Hátíð í fangelsisgarði Jóhann og Kristín, sem kemur fram undir nafinu Kira Kira, léku á Sonar-hátíðinni 14. júní sl., en næst á dagskrá er að fara til Ítalíu þar sem leika á á tónlistarhátíð í Flór- ens 1. og 2. júlí. Jóhann segir að há- tíðin í Flórens sé haldin í gömlum fangelsisgarði og kallist Flóttaleið- in. Þar leika, auk Jóhanns og Kira Kira, músíkvatur, Hilmar Jensson og Skúli Sverrisson, Stilluppsteypa og Auxpan. Beint frá Ítalíu heldur hluti flokksins til Brighton, heimabæjar Fat Cat útgáfunnar sem gefur með- al annars út Sigur Rós og múm. Þar verður haldin Fat Cat skemmtun 5. júlí með þeim Motion, Antenna Farm, Pétri Hallgrímssyni, Kira Kira, músíkvat, Hilmari Jenssyni og Skúla Sverrissyni og Auxpan. Ekki er fjörið búið þar með því daginn eftir hefst tveggja daga ís- lensk tónlistarhátíð sem haldin er í ICA, nútímalistamiðstöðinni í Lundúnum, 6. og 7. júlí. Jóhann seg- ir að sú hátíð sé til komin meðal annars fyrir frumkvæði stjórnenda þáttaraðar hjá BBC sem kallast Mixing It, en þeir komu hingað til lands fyrir nokkru og tóku upp þætti sem fluttir voru á BBC. Á há- tíðinni flytja Kira Kira og Sigga Björg brúðuleikhúsþátt sem kallast Málfur Skinnytoe og Jóhann segir að sé eins konar sambland af há- vaðatónlist og hryllingsbrúðuleik- húsi, Slowblow leikur með Emilíönu Torrini, Auxpan flytur tónlist, Hel- vítis orgelsinfónían verður flutt undir stjórn Bruce Gilbert sem var í hljómsveitinni Wire, Hilmar Jens- son og Skúli Sverrisson leika og múm og orgelkvartettinn Apparat troða upp. Einnig verða sýndar stuttmyndir eftir Þorgeir Guð- mundsson og Dag Kára. Að sögn Jóhanns er ferð sem þessi bráðgagnleg, ekki endilega til að ná plötusamningum, enda er Til- raunaeldhúsið með ágæta dreifing- arsamninga bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, heldur er þetta al- menn kynning á því sem er á seyði í „skapandi íslenskri tónlist“, eins og Jóhann orðar það. Í tengslum við hátíðina í Lundúnum kemur sjö- tomma út á merki David Holmes í Bretlandi með tveimur lögum Apparats orgelkvartetts sem Jó- hann segir að sé gert til gamans, væntanleg sé breiðskífa Apparats í haust sem Thule gefi út og ekki stefnt að frekari útgáfu hjá David Holmes að svo stöddu. Ýmsar útgáfur í aðsigi Jóhann segir að ekki sé bara að Tilraunaeldhúsið sé lagst í ferðalög heldur eru væntanlega ýmsar út- gáfur á næstunni. Skammt er reyndar síðan út kom diskur til að afla fjár fyrir ferðalögin öll, en á honum er tónlist eftir Kira Kira, músíkvat, Auxpan, Slowblow og Apparat orgelkvartett. Í aðsigi er svo fyrsta breiðskífa Kippa Kan- inus, H u g g u n, sem gefin er út í samvinnu Tilraunaeldhússins og Óma, en þess má geta að Kippi verður á ferð með múm um Banda- ríkin 17. til 26. júlí næstkomandi. Í haust koma síðan út diskar með tónlist við þöglar kvikmyndir sem flutt var í Bæjarbíói í vetur á vegum Kvikmyndasafnsins í umsjá Orra Jónssonar. Fyrst kemur út tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar við Höddu Pöddu og Hilmars Jensson- ar og Skúla Sverrissonar við Nan- ook of the North, en á hinum diskn- um verður tónlist múm við Beitiskipið Potemkin og Jóhanns Jóhannssonar við Fall St. Péturs- borgar. Tónleikahald á Íslandi er ekki fullmótað, að sögn Jóhanns, en þó ljóst að haldnir verða útgáfutón- leikar þegar plata Kippa Kaninus kemur út. Erfitt sé þó að koma á frekara tónleikahaldi að sinni, enda séu menn uppteknir út um allar jarðir í sumar, hann sé til að mynda að fara að gefa út plötu með tónlist- inni við Englabörn hjá útgáfunni Touch og fleira sé í bígerð. Það muni því ekki skýrast fyrr en í haust hvort Tilrauneldhúshátíð verði sett upp hér á landi eða hvort menn verði bara að leggja land undir fót. Íslensk framúrstefnutónlist verður kynnt í þremur Evrópu- löndum í sumar. Árni Matthíasson ræddi við Jóhann Jóhannsson, sem lagstur er í ferðalög með Tilraunaeldhúsinu. Tilraunaeldhúsið gerir víðreist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.