Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 9 Frábær ferðafatnaður Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Sportlegur sumarfatnaður Stærðir 36—56                Geisladiskur til sölu Love Messages From Overseas Indian Princess Leoncie Hinn frábæri nýi 17-laga geisladiskur Love Messages From Overseas, fæst í Skífunni, Þrumunni og Japis, Laugavegi. Örfá eintök til. Leoncie, hin vinsæla söngkona, vill skemmta á allskyns opinberum mannfögnuðum. www.simnet.is/leoncie Umboðssími 691 8123 Leoncie er spiluð á Rás 2 Geymið auglýsinguna  HALLDÓR Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, segir að ekki komi til greina að draga úr byggð vegna snjóflóðahættu, en hættumat vegna ofanflóða á Ísafirði og í Hnífs- dal var kynnt á borgarafundi á mið- vikudaginn. „Varnarvirkjaaðferðin er eina raunhæfa leiðin í mínum huga,“ segir Halldór. Hinn kosturinn, að kaupa upp hús þar sem snjóflóðahætta telst vera of mikil fyrir byggð kemur ekki til greina að hans mati. „Að mínu viti erum við ekki að tala um nein álíka varnarvirki og t.a.m. var verið að byggja á Flateyri og verið er að reisa á Neskaupstað og Siglufirði,“ segir hann, en gerir þó þann fyrirvara að hann sé leikmaður á þessu sviði. Óvissu eytt Halldór segir að borgarafundur- inn hafi verið afar málefnalegur. „Fólk var almennt ánægt með að nú væri allri óvissu eytt, en síðan 1995 hafa margir íbúar á meintum hættu- svæðum lifað við þó nokkra óvissu. Nú vita þeir hvar þeir standa og vita líka að þótt þeir búi á hættusvæði verður gripið til viðeigandi aðgerða,“ segir hann. Hann segir að í nokkrum tilvikum hafi hættumatið komið fólki á óvart. „Sérstaklega íbúum efstu húsa við Urðarveg á Ísafirði og á sunnanverð- um Hnífsdal, þar sem er engin saga snjóflóða og fólki datt ekki í hug að hætta væri fyrir hendi,“ segir Hall- dór. Hann segir að sérfræðingur Veðurstofunnar hafi lagt áherslu á að um óvissuvísindi væri að ræða og að með hættumatinu væri gert ráð fyrir verstu hugsanlegu aðstæðum. Tillögur hættumatsnefndar liggja nú frammi á bæjarskrifstofunum til 19. júlí, þegar fjórar vikur eru liðnar frá borgarafundinum, sem haldinn var á miðvikudaginn. Á þeim tíma er almenningi frjálst að leggja fram skriflegar athugasemdir við tillög- urnar. Að þessum tíma loknum verða þær lagðar fyrir umhverfis- ráðherra til staðfestingar. Innan sex mánaða frá staðfestingu hættumats skal bæjarstjórn gera áætlun um að- gerðir til að tryggja öryggi íbúa á hættusvæðum. Í reglugerð er svo gert ráð fyrir að aðgerðum verði lok- ið árið 2010. Lög um varnir gegn skriðuföllum og snjóflóðum kveða á um að ofan- flóðasjóður megi greiða allt að 90% kostnaðar við undirbúning og og framkvæmdir við varnarvirki. Hinn hlutann greiðir sveitarfélagið. Bæjarstjóri Ísafjarðar um aðgerðir vegna snjóflóðahættu Kemur ekki til greina að draga úr byggð BRAUTSKRÁNING kandídata frá Háskóla Íslands verður í Laugar- dalshöll í dag, laugardaginn 22. júní, og hefst kl. 13.00. Að þessu sinni brautskrást 715 kandídatar. Þess má m.a. geta að nú útskrifast í fyrsta sinn nemar úr framhalds- námi í lagadeild og guðfræðideild og fyrstu MBA-nemarnir við Há- skóla Íslands. Húsið verður opnað kl. 11.45 og munu þeir Eðvarð Lár- usson, Jóel Pálsson og Tómas R. Einarsson leika tónlist í anddyri þar til gengið verður til hefðbund- innar dagskrár sem hefst með af- hendingu prófskírteina. Að því búnu ávarpar rektor kandídata. Athöfninni lýkur með söng Há- skólakórsins undir stjórn Hákons Leifssonar. Brautskrán- ing frá Há- skóla Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.