Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Til kaupenda tækja
sem brenna gasi
Vinnueftirlitið hefur á þessu ári bannað sölu á
nokkrum tækjum sem brenna gasi og uppfylla ekki
kröfur um öryggisbúnað o.fl.
Kaupendur tækjanna eru hvattir til að gæta
að því að ...
tækin séu CE-merkt,
óska eftir leiðbeiningum á íslensku,
fá staðfestingu á því að tækin uppfylli
lágmarkskröfur um öryggi.
Tækin sem hér um ræðir eru m.a. gaseldavélar til heimilisnota,
fyrir sumarbústaði, ferðahýsi og tjöld, ofnar til hitunar, ísskápar,
hitarar fyrir ferðahýsi, yljarar, vatnshitarar og útigrill.
Samkvæmt reglum nr. 108/1996 skulu gastæki vera örugg í
notkun og valda hvorki heilsutjóni né umhverfisspjöllum.
Meðal annars eru gerðar eftirfarandi kröfur:
1. Tækin skulu vera CE-merkt sem vottar að þau séu
framleidd samkvæmt kröfum sem gilda á Evrópska
efnahagssvæðinu.
2. Tæki, sem ætluð eru til notkunar innanhúss, skulu vera
með öryggisbúnaði sem kemur í veg fyrir að óbrunnið gas
safnist upp í herbergjum.
3. Tækjunum fylgi leiðbeiningar á íslensku. Leiðbeiningarnar
skulu innihalda:
- tæknilegar leiðbeiningar til þess sem setur tækið upp,
- leiðbeiningar um notkun og meðferð,
- viðeigandi viðvaranir, einnig á umbúðum.
4. Á tækjunum skulu vera upplýsingar um takmarkanir á
notkun þegar við á. Dæmi: Eingöngu til notkunar utanhúss.
Á HUGMYNDAÞINGI um
framtíðarskipulag Mýrar-
götusvæðis sem haldið var
á dögunum í Ráðhúsi
Reykjavíkur kom fram al-
mennur vilji meðal fólks um
að halda ætti í hafnsækna
stafsemi samhliða uppbygg-
ingu íbúðarsvæðis á skipu-
lagssvæðinu. Nokkuð bar
einnig á því að fólk teldi
æskilegt að Geirsgatan yrði
sett í stokk frá Sæbraut
vestur á Ánanaust.
Svæðið sem um ræðir af-
markast af Ánanaustum og
Grandagarði í vestri, slipp-
svæði og Ægisgarði í
Reykjavíkurhöfn í norðri,
Norðurstíg í austri og lóð-
armörkum við Vesturgötu í
suðri. Húsfyllir var á
þinginu sem haldið var í
síðustu viku.
Ætlunin var að fá fram
sjónarmið hagsmunaaðila á
svæðinu sem gætu komið til
góða við gerð samkeppnis-
lýsingar en í haust er ráð-
gert að efna til samkeppni
um skipulag svæðisins.
Ráðgert er að niðurstaða úr
þeirri samkeppni geti legið
fyrir snemma á næsta ári.
Fram komu viðbrögð frá
fólki sem starfar á hafn-
arsvæðinu, íbúum á svæð-
inu og annarra borgarbúa
sem hafa áhuga á skipu-
lagsmálum í miðborginni og
arkitektum.
Kemur til greina
að flytja hús
Að sögn Helgu Braga-
dóttur, skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur, er það nýmæli
að haldið sé samráðs- og
hugmyndaþing í upphafi
skipulagsvinnu. Fyrir liggja
forsendur og stefnumark-
anir úr Aðalskipulagi um
framtíð svæðisins en fólk
var hvatt til að mæta og
greina frá hugmyndum sín-
um og væntingum um
svæðið.
Ekki liggur fyrir ákvörð-
un um nákvæma staðsetn-
ingu Mýrargötunnar í
framtíðinni, að sögn Helgu,
en svæðið, sem skipulagið
nær til, er norðan Mýrar-
götu og um 3 hektarar að
flatarmáli með möguleika á
15 þúsund fermetra bygg-
ingarmagni. Helga segir
stefnt að því að tengja sam-
an á jákvæðan hátt íbúð-
arbyggð við hafnar- og at-
hafnasvæði um Mýrargötu
og að markmið þingsins
hafi meðal annars verið að
laða fram vibrögð þar að
lútandi.
Hún segir að vinna þurfi
húsakönnun fyrir svæðið en
á því eru mikilvægar götu-
myndir með gömlum hús-
um, þau elstu byggð upp úr
1850. Hugsanlega komi til
greina að flytja einhver
þeirra.
Helga segir að viðbrögð
fólks, sem sótti þingið, hafi
almennt verið jákvæð í
garð þeirra breytinga sem
rætt hefur verið um. Frá
íbúum og arkitektum komu
hugmyndir um að tengja
svæðið við það svæði sem
horft var til í tengslum við
samkeppni um tónlistar-,
ráðstefnu- og hótelbygg-
ingu fyrr á þessu ári. Mik-
ilvægt væri að líta á þessi
tvö svæði sem eina heild.
Fram kom hversu mikil
breyting hefði orðið við
Grófina þegar Listasafn
Reykjavíkur og Borgar-
bókasafn fluttu starfsemi
sína á svæðið. Austurhluti
hafnarinnar væri að fá ann-
að hlutverk – á sviði menn-
ingar og lista til viðbótar
við áherslu á sjósókn og
hafnarstarfsemi í vestur-
höfninni.
Geirsgata í eins kíló-
metra langan stokk
Nokkuð bar á því að fólk
teldi æskilegt að Geirsgata
yrði sett í stokk frá Sæ-
braut að Ánanaustum.
Á fundinum sýndu borg-
aryfirvöld tvær útgáfur af
Mýrargötu yrði hún sett í
stokk á 90 og 120 metra
kafla. Mýrargatan, sem
kemur í beinu framhaldi af
Geirsgötu, yrði þá sett í
stokk á um 100 metra kafla
á skipulagssvæðinu en yrði
hún sett í stokk frá Sæ-
braut út í Ánanaust yrði
stokkurinn um 1 kílómetri
að lengd.
Fram kom hugmynd um
að sett yrði upp sjóferða-
og verslunarsýning í Búr-
húsinu. Bent var á að verið
væri að vinna að því að
koma á laggirnar Sjóminja-
safni og að hugsanlega
mætti tengja þessa starf-
semi saman.
Fram kom eindreginn
vilji fólks um að halda í
hafnarstarfsemina, fiskiskip
og fiskmarkað á svæðinu.
Einnig komu fram áhyggj-
ur frá húseiganda á svæð-
inu þess efnis að yrði íbúð-
um fjölgað um 100–200 við
Mýrargötu á næstu tíu ár-
um yrði hugsanlega gengið
á gömul hús sem fyrir eru í
grennd við hafnarsvæðið.
Hugmyndaþing um Mýrar-
götusvæði haldið í Ráðhúsinu
Mikilvægt
að halda í
hafnsækna
starfsemi
Morgunblaðið/Golli
Svæðið sem um ræðir er norðan Mýrargötu, um 3 hektarar, með möguleika á 15 þús. fermetra byggingarmagni.
Reykjavík
FRAMKVÆMDIR við Skólavörðu-
stíg eru í fullum gangi um þessar
mundir en áætlað er að þeim
ljúki um mánaðamótin ágúst–
september.
Að sögn Þórs Gunnarssonar,
eftirlitsmanns á svæðinu, er verið
að laga og endurnýja allar lagnir
í götunni. Þar á meðal eru allar
skólplagnir og vatnslagnir end-
urnýjaðar en síma- og raflagnir
eru ýmist lagfærðar eða end-
urnýjaðar. Að því búnu verða
snjóbræðslurör sett ofan á og ým-
ist hellulagt eða malbikað.
Að sögn Þórs voru bæði vatns-
og skólplagnir komnar mjög til
ára sinna og framkvæmdir því
tímabærar.
Það er verktakafyrirtækið
Háfell ehf. sem sér um fram-
kvæmdir á svæðinu en þar starfa
að staðaldri um 20 manns.
Þór segir að reynt sé að haga
framkvæmdum við götuna í sam-
ráði við verslunarmenn. Hann vill
að endingu koma því á framfæri
að neðsti hluti Skólavörðustígs er
að sjálfsögðu opinn fyrir gang-
andi umferð á meðan á fram-
kvæmdum stendur og að verktak-
ar reyni eftir fremsta megni að
sjá til þess að vegfarendur eigi
greiða leið um svæðið.
Skipt um lagnir á Skólavörðustíg
Morgunblaðið/Kristinn
Stundum getur verið gott að fara á háhest og hvíla lúin bein þegar þreytan segir til sín.
Áætlað er að framkvæmd-
um ljúki undir lok sumars
Reykjavík